Morgunblaðið - 01.06.2018, Page 31
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 MORGUNBLAÐIÐ 31
Vinnslustöðin hf. sendir sjómönnum
og fjölskyldum þeirra góðar kveðjur
í tilefni af sjómannadeginum 2018.
Vinnslustöðin hf. | Hafnargötu 2 | 900 Vestmannaeyjar | vsv.is
Til hamingjumeðdaginnykkar, sjómenn!
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
I
ða Marsibil Jónsdóttir er ein af
mörgum Bílddælingum sem
hafa flutt aftur á æskuslóðirnar
eftir að fiskeldi hófst á staðnum.
Hún segir uppbyggingu iðn-
aðarins vera fagnaðarefni fyrir Bíld-
dælinga og aðra íbúa á svæðinu en
mikil uppbygging
hafi átt sér þar
stað á seinustu ár-
um.
Iða, sem starf-
ar nú sem skrif-
stofustjóri hjá
Arnarlaxi hf., er
fædd og uppalin á
Bíldudal en flutt-
ist búferlum til að
sækja skóla og
vinnu. „Ég út-
skrifaðist sem viðskiptafræðingur frá
Bifröst 2006 og gegndi starfi skrif-
stofustjóra hjá Gló þegar ég bjó í
Reykjavík,“ segir Iða í samtali við
Morgunblaðið. Forsvarsmenn Arn-
arlax höfðu samband við Iðu í lok árs
2013 og ræddu við hana um mögulegt
starf við launagreiðslur og bókhald.
„Á þessum tíma er þetta ævintýri að
byrja. Það voru þrír starfsmenn hjá
fyrirtækinu þá,“ segir Iða en í dag
eru starfsmenn Arnarlax orðnir um
120 talsins.
Áður skorti tækifærin
Iða segist strax hafa verið mjög hrif-
in af þeirri hugmynd að starfa fyrir
fyrirtækið og flytja aftur á Bíldudal.
„Ég varð strax svolítið spennt vegna
þess að það höfðu ekki verið nein
tækifæri til þess að geta sest hér að
til frambúðar með starfsöryggi og
annað slíkt í huga,“ segir hún.
Eftir nokkrar viðræður um vorið
heimsótti Iða fyrirtækið og eftir það
varð ekki aftur snúið. „Ég fluttist ein-
faldlega aftur heim strax í júní og sé
ekki eftir því í dag,“ segir Iða. Þegar
hún flutti aftur heim var lítið um
vænlegan húsakost á svæðinu. Það
endaði með því að heimför Iðu fékk
bókstaflegri merkingu þegar hún
flutti í húsið sem foreldrar hennar
höfðu sjálf byggt seint á sjöunda ára-
tug síðustu aldar. „Ég reif þar allt út
og er búin að koma mér svona líka
ágætlega fyrir,“ segir Iða.
Um 100 manns starfa fyrir Arnar-
lax á starfsstöð fyrirtækisins í Bíldu-
dal en einnig starfar fólk á vegum
fyrirtækisins við seiðaeftirlit bæði í
Tálknafirði og á Þorlákshöfn. Iða
segir uppbyggingu á Bíldudal vera
skýra stefnu fyrirtækisins en fyrir-
tækið rekur einnig litla starfsstöð í
Reykjavík. Eins og gefur að skilja
hefur íbúum á svæðinu fjölgað sam-
hliða stækkun fyrirtækisins, sem Iða
segir mikil gleðitíðindi. „Það hefur til
að mynda tvöfaldast fjöldinn hérna í
grunnskólanum,“ segir hún en bætir
þó við: „Það eru auðvitað örlitlir vaxt-
arverkir sem fylgja svona örri fjölg-
un, bæði hjá fyrirtækinu og sam-
félaginu, en það reyna bara allir að
leggjast á eitt um að vaxa og dafna.“
Úr þremur
starfsmönn-
um í 120
Uppbygging fiskeldis Arnarlax hefur verið lyftistöng
fyrir samfélagið á svæðinu. Margir hafa sest að á
Bíldudal og Tálknafirði en fjöldi nemenda við grunn-
skólann hefur tvöfaldast á skömmum tíma.
Iða Marsibil
Jónsdóttir
Laxeldi Iða Marsibil varð hrifin af fyrirtækin strax í upphafi. Arnarlax á Bíldudal er nú stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins.
Börn Vaxandi fyrirtæki hefur fylgt fólksfjölgun í sveitinni. Grunnskólabörnum fjölgar ört, heimamönnum til mikillar gleði.