Morgunblaðið - 01.06.2018, Blaðsíða 32
HAFIÐ ER AKUR
FRAMTÍÐARINNAR
SAMFÉLAGSLEG ÁBYRGÐ
18
00
1
19
25
2
19
60
3
19
80
4
20
00
6
20
17
7
20
25
8
20
40
9
20
65
10
FÓLKSFJÖLGUN FRÁ 1800–2065
Samkvæmt Matvælastofnun Sameinuðu Þjóðanna (FAO)
mun heimsbyggðin þurfa að tvöfalda matvælaframleiðslu
sína fyrir árið 2050 til að mæta mannfjöldaaukningu
jarðarinnar en nú þegar komameira en 50% af fram-
leiddum fiskafurðum í heiminum frá fiskeldi.
Til að mæta eftirspurn þarf að auka framleiðslu sjávarafurða
um 47,5 milljónir tonna. Neysla sjávarafurða mun aukast í 22 kg.
á hvern jarðarbúa árið 2026. Árið 1980 var neyslan 15 kg.
Laxeldi í heiminum skapar 17,5 milljarða máltíða á ári.
Laxeldi á Íslandi mun skapa um 100 milljóna máltíða árið 2018.
15 kg
árið 1980
22 kg
spá fyrir
árið 2026
NEYSLA SJÁVARAFURÐA
Á HVERJA MANNESKJU
Sjórinn þekur 70% af yfirborði jarðar en megnið af matvælum og þeirri næringu sem framleiddar eru fyrir íbúa jarðarinnar er á landi
sem er 30% af yfirborðinu. Sameinuðu þjóðirnar leggja aukna áherslu á fiskeldi í þeim tilgangi að mæta gríðarlegri mannfjölgun á
næstu áratugum og þeirri fæðuþörf sem hún skapar. Markmiðið er að eyða allri hungursneyð fyrir árið 2030. Hafið er 360 milljónir
ferkílómetrar. Laxeldi í heiminum á sér stað 288 ferkílómetra hafssvæði sem er 0,00008% af hafsvæði jarðar.
GÓÐAR AÐSTÆÐUR
Á Íslandi eru einar bestu aðstæður í heimi til ræktunnar á laxi í sjó vegna hagstæðs
hitastigs sjávar í fjörðum landsins. Laxeldi á Íslandi hefur það að markmiði að hafa
umhverfislegar, efnahagslegar og félagslegar aðstæður að leiðarljósi í framtíðarþróun
á sjálfbærni laxeldis sem nú þegar hefur staðfest gildi sín sem kjölfesta í samfélagslegri
uppbyggingu á Íslandi.
Árið 2004 var stórum hluta af strandlengju Íslands lokað fyrir sjókvíaeldi. Þar með var
tryggt að allar helstu laxveiðiár væru í tugi og hundruði kílómetra fjarlægð frá
fyrirhuguðum eldissvæðum. Nýleg skýrsla Byggðarstofnunnar staðfestir þau jákvæðu áhrif
sem uppbygging á laxeldi mun hafa lífsgæði til framtíðar. „Gangi fyrirætlanir
fiskeldisfyrirtækja eftir, þó ekki væri nema að hluta til, munu áhrif á þær byggðir þar sem
eldið nær sér á strik verða veruleg …“
Hér á landi voru 11.300 tonn af laxi framleidd árið 2017. Burðarþolsmat Hafrannsóknar-
stofnunar er upp á 130.000 tonn sem skapar útflutningsverðmæti uppá 100-130 milljarða kr.
Útfutningsverðmæti þorskafurða voru tæplega 100 milljarðar kr. árið 2017.
Um 4000 manns munu hafa afkomu af fiskeldi og afleiddum störfum þegar það verður
komið upp í þau 71 þúsund tonn sem áhættumat Hafrannsóknarstofnunar gerir ráð fyrir.
Ef burðarþolsmatið sem er 130 þúsund tonn réði þá má áætla að um 2.600 manns
hefðu afkomu af starfseminni.
2.600 STÖRF
Möguleikar á að skapa
SJÓKVÍAR BANNAÐAR