Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.06.2018, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2018 Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is S jómannadagurinn er hald- inn hátíðlegur um land allt þessa helgina en sum- staðar er enn meira tilefni til hátíðahalda en annars staðar. Hafnarfjarðarkaupstaður fagnar til að mynda 110 ára afmæli 1. júní og því verður fagnað með ýmsum hætti í hjarta Hafn- arfjarðar. Húllumhæið hefst þegar á föstudeg- inum og heldur áfram án afláts fram yfir sjálf- an sjómannadaginn sem er á sunnudaginn. „Í dag, 1. júní kl. 16:00, dregur til tíðinda en þá verður tilkynnt um úr- slit í opinni hugmynda- samkeppni Hafn- arfjarðarbæjar, Hafnarfjarðarhafnar og Arkitektafélags Ís- lands um framtíðar- skipulag Flensborgar- hafnar og Óseyrarsvæðis,“ segir Andri. „Sýning á öllum tillögum sem bárust í samkeppninni verður í „Apótekinu“ í Hafnarborg og stend- ur hún til 8. júní 2018.“ „Þannig byggðist bærinn“ Föstudaginn 1. júní kl. 17:00 opnar Byggðasafn Hafnarfjarðar nýja sýn- ingu í forsal Pakkhússins sem ber heitið „Þannig byggðist bærinn“ þar sem varpað er ljósi á uppbyggingu, þróun og skipulag Hafnarfjarðar á fyrstu árum kaupstaðarins. Byggða- safnið hefur ennfremur sett upp ljós- myndasýninguna „Hafnarfjörður frá fullveldi til lýðveldis“ á göngustígn- um sem liggur meðfram höfninni. „Sýningin samanstendur af 50 ljós- myndum sem eru lýsandi fyrir bæj- arbraginn og lífið í bænum á þeim tíma,“ útskýrir Andri. Laugardaginn 2. júní kl. 15 verður opnuð sýning í tilefni þess að Hafnarborg á tvöfalt afmæli, en nú eru liðin 35 ár frá því að hjónin í Hafnarfjarðar Apóteki, Sverrir Magnússon og Ingibjörg Sigurjóns- dóttir, færðu Hafnarfjarðarbæ hús- næði sitt að Strand- götu 34 að gjöf, ásamt listaverkasafni sínu. Fimm árum síðar var Hafnarborg formlega vígð, 21. maí 1988. „Á sýningunni getur að líta valin verk úr safneign Hafnar- borgar, bæði verk sem oft hafa verið sýnd áð- ur við ólík tækifæri eða fengið að prýða veggi margra stofnana bæj- arins og einnig verk sem ekki hafa verið hreyfð úr geymslunum síðan þeim var komið þar fyrir,“ segir Andri. „Með þessari sýningu viljum við end- urspegla margbreytileika myndlist- arinnar sem varðveitt er í Hafn- arborg.“ Þrautabraut, siglingar og Salka Sól Það verður svo blásið til hátíð- arhalda við Flensborgarhöfn á sjó- mannadaginn 3. júní og mikil dag- skrá á döfinni í tilefni dagsins. „Við höfnina er nú bæði iðandi líf tengt fiski og fiskvinnslu og einnig fjölbreytt lista- og menningarlíf sem verður sannarlega í kastljósinu á sjó- mannadaginn,“ bendir Andri á. „Há- tíðarsvæðið við höfnina verður opnað kl. 13:00 og hátíðarhöldin standa til kl. 17:00.“ Björgunarsveit Hafnar- fjarðar býður meðal annars upp á þrautabraut í sjó, rennibraut, gáma- sig og fluglínutæki, kaffisala slysa- varnadeildarinnar Hraunprýði verð- ur á sínum stað, Siglingaklúbburinn Þytur verður með opið hús og skemmtisigling í boði Hafnarfjarð- arhafnar. Fram koma Bjartmar Guðlaugsson og Salka Sól og leik- hópurinn Lotta flytur söngsyrpu. „Vinnustofur listamanna í Íshúsi Hafnarfjarðar og við Fornubúðir verða opnar fyrir almenning að heimsækja og skoða, og fagurker- arnir ættu ekki að sleppa tækifærinu sem þarna gefst til að heimsækja Gáru, vinnustofu átta leirlistakvenna í Fornubúðum 8, eða skart- gripaverkstæðið SIGN þar sem fal- legir skartgripir eru hannaðir og smíðaðir í Fornubúðum 12,“ minnir Andri á og undirstrikar hve mikil skapandi starfsemi er um þessar mundir í kringum hafnarsvæðið í Hafnarfirði. Furðuverur undirdjúpanna verða svo til sýnis á bryggjunni. Við Íshús- ið verður einnig boðið upp á báta- smíði fyrir krakkana. Rétt eins og á föstudegi og laugar- degi verður hin merka saga Hafn- arfjarðar í heiðri höfð á sjómanna- daginn sjálfan, að sögn Andra. „Bookless bungalow“ nefnist sýn- ing sem er til húsa í Vesturgötu 32 en hún fjallar um tímabil erlendu út- gerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar á heimili þeirra Bookless- bræðra. Ekki má heldur gleyma hin- um stórmerka Siggubæ við Kirkju- veg 10, en Siggubær er varðveittur sem sýnishorn af heimili sjómanna í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar, þar sem hægt er að upplifa og kynn- ast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.“ Sjómannadagurinn að hætti Andra viðburðastjóra „Í fyrra þótti mér rosalega gaman að sjá leikskólakrakka prófa gámasigið undir styrkri handleiðslu okkar öfl- uga björgunarsveitarfólks,“ segir Andri um það sem hann ætlar helst ekki að missa af á sjómannadeginum í ár. „Eldri krakkarnir ættu svo allir að prófa þrautabrautina og prófa að upplifa sjokkið að detta aðeins í ískaldan sjóinn. Eldri kynslóðirnar eiga svo eflaust eftir að njóta þess að ganga milli vinnustofa alls listafólks- ins sem hefur vinnuaðstöðu í Íshúsi Hafnarfjarðar og við Fornubúðir.“ Saga hafnfirskra sjómanna og af- rek þeirra hefur sett mark sitt á bæ- inn að sögn Andra og því mikilvægt að hans mati að sjómenn og Hafn- firðingar allir geri sér glaðan dag á sjómannadaginn með fjölskyldum og vinum og kynni sér sjómannsstarfið. „Svo er ótrúlega gaman að skella sér í bátsferð með Eldingu og upplifa það að sigla inn Hafnarfjarðarhöfn og sjá hvað Hafnarfjörður er fal- legur frá sjónum séð.“ Loks minnist Andri á að hann ætli að gera eitt með sérstöku sniði á sjó- mannadaginn – hann ætlar að mæta í vinnuna með eftirminnilegum hætti. „Ég er sjálfur reyndar búinn að heita því að sigla í vinnuna á sjó- mannadaginn. Ég hef sjálfur oft tek- ið þátt í róðrarkeppninni en hef alltaf setið í sæti stýrimannsins svo það er kannski komið að mér að róa aðeins en þar sem ég bý við Herjólfsgötuna og er nýbúinn að kaupa mér kajak þá kemur ekki annað til greina en að sigla inn höfnina á sunnudaginn.“ 110 ára afmæli Hafnarfjarðar um sjómannadagshelgina Það má með sanni segja að Hafnarfjörður hafi tvöfalt tilefni til að fagna um helgina, því ekki ein- asta er sjómannadag- urinn haldinn hátíðlegur heldur fagnar bærinn einnig 110 ára afmæli, eins og Andri Ómarsson, viðburðastjóri Hafn- arfjarðar, segir frá. Andri Ómarsson Hafnargaman Fátt er skemmtilegra eða meira viðeigandi á sjómannadaginn en að bregða sér í siglingu um höfnina, einkum ef veðurguðirnir blessa daginn. Sigling Það er þétt setið og staðið þegar Gaflarar og aðrir góðir menn sigla. Skemmtun Óskabarn Hafnarfjarðar, Friðrik Dór, tekur lagið fyrir aðdáendur Lúðrasveitin Engum dylst þegar sveitin þeytir lúður og þenur horn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.