Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 4. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 138. tölublað 106. árgangur
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF RIEDELGLÖSUM
NÓI SÍRÍUS FÆR
LEYFI FYRIR
RÚBÍN-SÚKKULAÐI ADRIFT 3. TEKJUHÆST
DÝRUSTU
SEKÚNDUR ÍS-
LANDSSÖGUNNAR
BALTASAR KORMÁKUR 66 VIÐSKIPTAMOGGINNSILJA MIST 53
Íslensku landsliðsmennirnir í knattspyrnu æfðu ekki í gær og
notuðu tækifærið til að skoða sig um í strandbænum við
Svartahaf þar sem liðið er með heimahöfn. Jón Daði Böðv-
arsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Rúrik Gíslason, Sverrir
Ingi Ingason, Alfreð Finnbogason og Gylfi Þór Sigurðsson
eru hér í miðbænum, við Zabivaka, lukkudýr HM. Spennan
magnast óðum hér heima en liðið flýgur til Moskvu í dag þar
sem það mætir Argentínu á laugardag. HM hefst einmitt þar í
dag, með leik Rússa og Sádi-Araba. »20, 22, 42 og Íþróttir
Skoðuðu mannlífið í Kabardinka á frídegi á HM
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Björn Leví
Gunnarsson,
þingmaður Pí-
rata, var ræðu-
kóngur á nýliðnu
þingi. Hann tal-
aði samtals í
1.025 mínútur.
En það sem
meira er, hann
var einnig
ókrýndur fyrir-
spurnakóngur með 93 fyrirspurnir
alls.
Alþingi Íslendinga, 148. löggjaf-
arþinginu, lauk klukkan 00.38 í
fyrrinótt. Það kemur næst saman á
hátíðarfundi á Þingvöllum 18. júlí.
Það bar til tíðinda á þinginu að
engin kona komst á „topp 10“
ræðulistann yfir þá þingmenn sem
lengst töluðu í vetur. »16
Björn Leví ræðu-
kóngur Alþingis
Björn Leví
Gunnarsson
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fornleifafræðingar færast nú nær
því að komast niður á gólf hinnar
fornu klausturkirkju sem reist var á
Þingeyrum í kaþólskum sið. Vonir
standa til að í kirkjugólfinu eða við
austurhlið kórs byggingarinnar finn-
ist bein þeirra munka sem lifðu í
klaustrinu og létust af völdum
svartadauða í upphafi 15. aldar.
Heimildir herma að allir munkar
klaustursins, utan einn, hafi dáið af
völdum pestarinnar. Þá hafi ábóti
klaustursins einnig látist af sömu
sökum.
Dr. Steinunn Kristjánsdóttir, sem
stýrir uppgreftrinum, segir að ný
tækni geri vísindamönnum kleift að
greina og rannsaka sjúkdóminn á
grundvelli DNA-sýna sem aflað er
úr jarðneskum leifum þeirra sem
dóu af völdum svartadauða.
„Íslensk erfðagreining hyggst
styðja við rannsóknina með því að
taka þessi sýni til rannsóknar. Það
er afar kostnaðarsamt,“ segir Stein-
unn. Hún segir að mikill áhugi sé á
þessum þætti rannsóknarinnar á
Þingeyrum, m.a. í ljósi þess hversu
seint svartidauði barst til landsins,
eða áratugum eftir að hann geisaði
hvað harðast víðast hvar í Evrópu.
Nálgast jarðlög sem
geyma svartadauða
Rannsókn á Þingeyrum gæti varpað nýju ljósi á pláguna
MGrafa sig niður ... » 28
Hafrannsóknastofnun leggur til að
aflamark í þorski verði aukið um 3%
á næsta fiskveiðiári, 2018 til 2019, og
að þorskkvótinn fari úr 257,6 þúsund
tonnum í 264,4 þúsund tonn. Hrygn-
ingarstofn þorsksins hefur ekki ver-
ið stærri í hálfa öld.
Lagt er til að aflamark ýsu verði
58.982 tonn, sem er aukning um 40%
frá yfirstandandi fiskveiðiári.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri SFS, áætlar að
þessi ráðgjöf geti aukið útflutnings-
verðmæti heildarsjávarafla um átta
til tíu milljarða króna. »50
8-10 fleiri
milljarðar
Aflamark verði
aukið í þorski og ýsu