Morgunblaðið - 14.06.2018, Side 10
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Svo virðist sem veðrið það sem af er
sumri hafi nú þegar haft veruleg
áhrif á fyrirtæki þar sem stór hluti
tekjulindar er á sumrin. Morgun-
blaðið ræddi við nokkur fyrirtæki
þar sem salan fer að mestu fram á
sumrin. Flest staðfestu þau að salan
hefði dregist talsvert saman saman-
borið við sömu mánuði í fyrra.
„Þetta hefur verið þungt hjá okkur
þessar fyrstu vikur sumarsins og
talsvert verra en síðustu ár,“ segir
Valdimar Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Kjörís, um sölu á ís
það sem af er sumri. Aðspurður segir
Valdimar að hjá ísfyrirtækjum
myndist hagnaður helst á sumrin en
hina mánuði ársins snúist reksturinn
að mestu um að halda velli. Hann
ráðgerir að veðurfar sumarsins muni
hafa talsverð áhrif á afkomu Kjörís á
þessu ári. „Hjá okkur hefur það verið
þannig að ef hagnaður myndast er
það á sumrin. Sumarið er aðal-
tekjulind okkar og mikilvægasta ár-
stíð rekstrarins. Í ár fengum við
enga sólarhelgi í maí, sem eru auðvit-
að mikil viðbrigði frá því í fyrra, en
þá voru þær nokkrar,“ segir Valdi-
mar.
Verkefni sitja á hakanum
Staðan hjá samkeppnisaðila Kjör-
ís, Emmessís, virðist þó örlítið betri,
en skv. upplýsingum frá Gyðu
Johansen, markaðsstjóra Emmessís,
er sala það sem af er sumri í sam-
ræmi við áætlanir fyrirtækisins.
„Þetta hefur þau áhrif að við mun-
Verra veður hefur mikil áhrif á sölu
Minna selst af sumarvörum það sem af er sumri Neyslumynstur breytist
Morgunblaðið/Ómar
Vonskuveður Veðrið það sem af er sumri hefur nú þegar haft töluverð áhrif á sölu fjölda fyrirtækja hér á landi.
um ekki klára öll þau verkefni sem
við höfðum áætlað að klára,“ segir
Stefán Örn Kristjánsson, eigandi
málarafyrirtækisins 250 lita, um
veðrið það sem af er sumri. Morgun-
blaðið ræddi við nokkra málara, en
svo virðist sem veðrið í sumar muni
breyta þjónustumynstrinu talsvert. Í
stað þess að sumarið verði nýtt til að
klára verkefni utanhúss eins og venj-
an er munu slík verkefni sitja á hak-
anum.
Stefán segir að veðrið muni hafa
einhver áhrif á afkoma málara en
áhrifin séu þó ekki stórvægileg.
„Þetta hefur auðvitað einhver áhrif á
tekjuafkomuna og veldur því að höf-
um minna upp úr sumrinu. Það er
hins vegar mjög mikið að gera hjá
okkur og við reynum þá að sinna t.d.
útimálun síðar í sumar,“ segir Stefán
og bætir við að fyrir málara sé sum-
arið í ár ekki ósvipað sumrinu í fyrra,
þegar veðrið var að hans sögn sam-
bærilegt.
Hjá málningarfyrirtækjum er
einnig talsverð breyting í sölu-
mynstri. Breytingin endurspeglar að
mörgu leyti þjónustumynstur mál-
ara. Kristján Sigurðsson, sölustjóri
Málningar, segir að þrátt fyrir að
salan dragist ekki saman hafi veðrið
talsverð áhrif á öðrum sviðum, þá
helst í pallaolíu, timburmálningu og
olíu á grindverk.
„Það er auðvitað það mikið að gera
hjá málurum í dag að þeir halda bara
í önnur verkefni þegar ekki er gott
veður. Salan hjá okkur er því ekki
verri en í fyrra sökum þess að þegar
salan dregst saman í einum flokki
eykst hún í öðrum,“ segir Kristján.
Vona að HM glæði söluna lífi
Slæmt veður að sumri til kemur
einna verst niður á sölu garðhús-
gagna. Í samtölum Morgunblaðsins
við söluaðila garðhúsgagna kom
fram að salan hefði dregist mikið
saman miðað við sömu mánuði í
fyrra. Þá hefði hluti garðhúsgagna
nú þegar verið settur á útsölu.
Þrátt fyrir minni sölu garðhús-
gagna hefur sala grilla verið sam-
bærileg við síðustu ár. Svo virðist
sem veðrið hafi minni áhrif þar en
áður hafði verið gert ráð fyrir. Hjá
kjötframleiðendum hefur sala á grill-
kjöti þó minnkað talsvert, en þar
binda menn vonir við að Heims-
meistaramótið í Rússlandi glæði söl-
una lífi. Þá er ráðgert að sala á grill-
kjöti aukist mikið, sérstaklega þegar
leikir Íslands fara fram.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú
velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja.
Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
MEÐ KODIAQ OG KAROQ.
KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
ŠKODA KODIAQ 4x4 frá:
5.590.000 kr.5á
ra
áb
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
að
up
p
fy
llt
um
ák
væ
ð
um
áb
yr
g
ð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
að
fi
nn
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
g
d
Þrátt fyrir verra veður í byrj-
un sumars samanborið við
síðustu ár hefur sala ÁTVR
aukist lítillega. Sveinn Vík-
ingur Árnason, fram-
kvæmdastjóri ÁTVR, segir að
salan það sem af er ári hafi
aukist lítillega og svo virðist
sem veðrið hafi ekki mikil
áhrif á áfengisneyslu lands-
manna. Þó sé aukningin yfir
allt árið og því ekki víst að
um aukningu sé að ræða í
maímánuði. Litlar líkur séu
hins vegar á því að salan
dragist mikið saman og líkur
séu á því að salan taki kipp
þegar HM hefst.
Meiri sala í
kringum HM
ÁFENGISNEYSLA ÓBREYTT