Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
www.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
Nýr Polo. Besta útgáfan
af sjálfum sér.
Stærra innanrými og frábært upplýsinga- og afþreyingarkerfi gera allar bílferðir betri í nýjum Polo.
Ný vélartækni skilar meira afli og þú getur valið um fjölmörg aðstoðarkerfi svo að þinn Polo verði
nákvæmlega eins og þú vilt hafa hann. Komdu og prófaðu Polo. Hlökkum til að sjá þig!
Nýr Volkswagen Polo mætir gjörbreyttur til leiks.
Volkswagen Polo
2.390.000 kr.
Verð frá aðeins
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Sjóminjasafnið í Reykjavík var endur-
opnað á dögunum með tveimur nýjum
sýningum: Fiskur & fólk: sjósókn í 150
ár og Melckmeyt 1659 sem fjallar um
fornleifarannsókn neðansjávar á hol-
lensku kaupskipi sem fórst við Flatey
á 17. öld.
Fyrrnefnda sýningin fjallar um fisk-
veiðasögu á Íslandi, frá því árabátarnir
viku fyrir stórskipaútgerð á síðustu
áratugum 19. aldar og allt fram yfir
aldamótin 2000. Sagan er sögð frá
sjónarhóli stærsta útgerðarbæjar
landsins, Reykjavíkur, og sett fram á
lifandi hátt með gripum og textum,
myndum og leikjum. Sýningin er
byggð kringum aðalpersónu þessarar
sögu, það er fiskinn sjálfan sem er
fylgt frá miðum í maga.
Sýningin um kaupfarið Melckmeyt
er ekki síður athyglisverð. Það var full-
lestað við akkeri í Flatey á Breiðfirði
og beið heimfarar til Amsterdam þeg-
ar ægilegur stormur skall á. Börðust
skipverjar við að bjarga skipinu en
tókst ekki. Skipið fór niður og einn
maður fórst. Meira en 300 árum síðar,
árið 1992, fundu kafarar flak skipsins.
Árið eftir var í fyrsta sinn farið í rann-
sókn á fornminjum neðansjávar við Ís-
land. Sérfræðingar köfuðu aftur niður
að flakinu árið 2016 og grófu meira
upp. Á sýningunni fá gestir innsýn í
rannsóknaraðferðir fornleifafræðinnar
og fjallað verður um valda þætti úr
sögu skipsins, áhafnar og verslunar á
17. öld. sbs@mbl.is
Nýjar sýningar á Sjóminjasafni
Ljósmynd/Guðrún Helga Stefánsdóttir
Fiskur Margt ber fyrir augu á grunnsýningunum þar sem sjósókn er í öndvegi.
Sjóminjasafnið Áhugaverður staður
á Grandagarðinum í Reykjavík.
Framlag blóðgjafa er ótrú-lega mikilvægt og með há-tíðinni í dag viljum viðsýna þeim þakklæti
okkar,“ segir Guðrún Ingibjörg Þor-
geirsdóttir, læknanemi og fulltrúi í
stjórn Blóðgjafafélags Íslands. Í dag,
14. júní, er alþjóðlegur dagur blóð-
gjafa og stendur Blóðgjafafélag Ís-
lands að hátíð af því tilefni sem verð-
ur við hús Blóðbankans við
Snorrabraut í Reykjavík. Allir sem
þá mæta og gefa blóð fá rauða rós að
gjöf, auk vikukorts í líkamsræktar-
stöðina Hreyfingu í Glæsibæ. Í há-
deginu verða síðan grillaðar pylsur
ofan í gesti, eða frá kl. 11.30.
Getur skilið milli lífs og dauða
Að sögn Guðrúnar Ingibjargar er
það eitt af helstu markmiðum í starfi
Blóðgjafafélags Íslands að fá fleiri til
að gefa blóð, sem er afar þýðingar-
mikið fyrir heilbrigðisþjónustuna.
„Ég lauk nýverið fimmta ári í
læknadeild Háskóla Íslands og starfa
í sumar á bráðadeild Landspítalans í
Fossvogi. Ég þekki það því af eigin
raun úr námi og starfi hversu áríð-
andi það er að alltaf séu nægar blóð-
birgðir til staðar. Slíkt getur skilið
milli lífs og dauða, til dæmis ef stór-
slys verða. Mikilvægast er þá að nóg
sé til af svokölluðu neyðarblóði, eða
O-mínus blóði, sem er blóðtegund
sem allir mega fá, óháð þeirra eigin
blóðtegund. Stundum þegar litlar
birgðir eru til eða ef stórslys eða stór-
ar skurðaðgerðir verða ræsir Blóð-
bankinn bakvarðasveit sína út og það
er alveg ótrúlegt að sjá hvað blóð-
gjafar eru fljótir að svara slíku neyð-
arkalli. Fólk bókstaflega hendir öllu
frá sér og fer jafnvel úr vinnu til að
geta gefið blóð þegar mikið liggur við.
Íslendingar eru heppnir að eiga slíka
blóðgjafa, því að það er alls ekki sjálf-
gefið,“ segir Guðrún Ingibjörg, sem
leiddi fyrir nokkrum árum árlegt lýð-
heilsuverkefni sem læknanemar í HÍ
stóðu fyrir. Inntak þess var að hvetja
nema við HÍ til að gefa blóð. Við-
brögðin voru góð.
70 blóðgjafar á dag
Í dag þarfnast Blóðbankinn um
16.000 blóðgjafa árlega, eða um 70
blóðgjafa á dag. Karlmenn eru sem
stendur í meirihluta blóðgjafa, en
þeir mega gefa fjórum sinnum á ári
en konur þrisvar sinnum.
„Mikilvægt er að fá nýtt fólk, því að
blóðgjafar eldast og endurnýjun í
hópnum er því mikilvæg. Við vinnum
að endurnýjun með áminningu til
fólks um hve stór gjöf það er og
ánægjulegt að geta gefið blóð – og
gleðin er inntak hátíðarinnar sem við
ætlum nú að halda,“ segir Guðrún
Ingibjörg.
Blóðgjafar fá rauða rós
Hátíð við Blóðbankann í
dag. Blóðgjöfum þakkað
mikilvægt framlag.
Bakvarðasveit sem þarf
fleiri liðsmenn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þakklæti Ánægjulegt er að geta gefið blóð, segir Guðrún Ingibjörg Þor-
geirsdóttir læknanemi, sem er í stjórn Blóðgjafafélags Íslands.
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Gleði Blóðgjafahátíð á fallegum
sumardegi fyrir tveimur árum.