Morgunblaðið - 14.06.2018, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ísíðustu viku var starfsemiLæknavaktarinnar flutt afSmáratorgi í Kópavogi íAusturver að Háaleitisbraut
68 í Reykjavík. Ný húsakynni eru
rúmgóð og þar er aðstaða til að veita
skjólstæðingum betri þjónustu, með
fleiri læknastofum og stórri og
bjartri biðstofu auk þess sem ný af-
greiðslutækni ætti að flýta af-
greiðslu og stytta biðtíma. „Stað-
setningin er góð og húsnæðið hentar
vel,“ segir Gunnar Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Læknavakt-
arinnar.
Mikið breyttist þegar Lækna-
vaktin á Smáratorgi var opnuð árið
1998 og raunar má tala um að þá
hafi orðið bylting í þjónustu. Á vakt-
ina hefur fólk getað leitað frá því
síðdegis og fram á tólfta tímann á
kvöldin, það er eftir að heilsugæslu-
stöðvum er lokað. Þegar starfsemin
hófst fyrir tuttugu árum komu um
30 þúsund manns á ári en í fyrra var
talan komin í 82.500. Því var fólki
ljóst á síðasta ári að húsnæðið, sem
er 300 fermetrar, væri sprungið og
bæta þyrfti úr.
Biðstofan sé aðlaðandi
„Það var alls ekki sjálfgefið að
við flyttum; aðrar ráðstafanir á
Smáratogi hefðu alveg komið til
greina. Þegar þetta frábæra hús-
næði hér í Austurveri losnaði, sem
er um 700 fermetrar, varð ekki aftur
snúið. Hér erum við mjög miðsvæðis
miðað við fjölmennustu hverfin á
höfuðborgarsvæðinu, í húsinu er
apótek og Landspítalinn í Fossvogi
rétt hjá. Þetta verður varla betra,“
segir Gunnar Örn og bætir við að
sérstök áhersla hafi verið lögð á að
biðstofan væri aðlaðandi.
„Bið á heilbrigðisstofnunum er
merkilegt fyrirbæri sem ég veit að
fræðimenn hafa rannsakað. Þetta er
staður þar sem fólk finnur stundum
fyrir meintum vanmætti sínum og
finnst það hafa tapað sjálfstæði sínu.
Með hlýlegri biðstofu er vonandi
hægt að létta á þessari tilfinningu
og eins er gott að hafa í huga að
flest þau vandamál sem fólk leitar
hingað með geta okkar frábæru
læknar leyst,“ segir Gunnar.
Fyrsti viðkomu-
staður margra
Læknavaktin er opin alla virka
daga milli klukkan 17 og 23.30 og til
sama tíma á kvöldin um helgar og á
frí- og helgidögum nema að þá er
opnað klukkan 9 á morgnana. Það
eru heimilislæknar af á höfuð-
borgarborgarsvæðinu sem þarna
starfa; um 70 af 115 í þeim hópi. Er
vaktin í raun óbeint framhald af
störfum þeirra á heilsugæslustöðv-
unum. Fjórir til fimm læknar verða
á hverjum tíma á vaktinni í Austur-
veri og sá sjötti síðan í vitjunum í
heimahús til þeirra sem ekki eiga
heimangengt.
„Læknavaktin er mjög mikil-
væg og fyrsti viðkomustaður
margra þegar veikindi steðja að.
Komur á heilsugæslustöðvarnar á
höfuðborgarsvæðinu eru um 400
þúsund á ári en á Læknavaktina
komu meira en 80 þúsund manns í
fyrra. Auðvitað veikist fólk og þarf á
þjónustu að halda á öllum tímum.
Því þarf samt að halda til haga að
heilsugæslan er ekki nógu sterk né
nógu vel mönnuð, þannig að ef bíða
þarf lengi eftir tíma og þjónustu,
kannski vegna minniháttar mála,
kemur fólk einfaldlega á vaktina,“
segir Gunnlaugur Sigurjónsson,
stjórnarformaður Læknavaktar-
innar.
„Af heildarfjölda verkefna sem
við sinnum á Læknavaktinni eru
tugir prósenta erindi sem ætti undir
venjulegum kringumstæðum að
vera sinnt af heilsugæslunni á dag-
vinnutíma; svo sem eftirlit með
langvarandi veikindum, útgáfa á
vottorðum, endurnýjun lyfja og svo
framvegis. Fólk vill úrlausn sinna
mála fljótt og vel og því kalli svörum
við. Um 98% þeirra sem koma á
stofu þurfa ekki að leita frekari
þjónustu. Í vitjunum er hlutfallið oft
lægra enda á þar oft í hlut eldra fólk
sem er veikt og þarf kannski á
sjúkrahús eða í aðra þjónustu.“
Annasamt á sumrin
Gunnlaugur Sigurjónsson er í
aðalstarfi læknir á heilsugæslustöð-
inni Höfða við Bíldshöfða og tekur
síðan sex til átta vaktir á mánuði á
Læknavaktinni. „Mest annríkið er
auðvitað í flensunni á veturna. Sum-
arið er líka oft annasamt, til dæmis
síðdegis á sunnudögum þegar fólk
er að koma í bæinn eftir útilegu og
hefur þá harkað af sér yfir helgina.
Þá erum við líka oft að fá inn fólk
með vöðvaáverka, tognanir og fleira
slíkt sem fylgir hreyfingu og úti-
vist,“ segir Gunnlaugur og bætir við
að það hve mikið sé sótt í Lækna-
vaktina feli í sér þau skilaboð að efla
verði starfsemi heilsugæslunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Auknar fjár-
veitingar til starfsemi heilsugæsl-
unnar á síðustu árum hafi fylgt
íbúafjölgun þannig að hægt sé að
halda í horfinu, en ekki að efla
grunnþjónustuna og bæta inn nýj-
um þjónustuþáttum eins og nauð-
synlegt sé. Það sé veruleiki sem
ráðamenn þurfi að bregðast við
enda hafi þeim verið gerð staða
mála ljós.
Læknavaktin
á nýjum stað
Af Smáratorgi í Austurver. Tugir þúsunda fólks leita
árlega á Læknavaktina, sem er mikilvæg stofnun.
Símavakt hjúkrunarfræðinga sinnir öllu landinu,
það er fólki með flensu, beinbrot og allt þar á milli.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Austurver Læknavaktin er nú til húsa að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík, í þakbyggingunni norðanvert á húsinu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Læknir „Fólk vill úrlausn sinna mála fljótt og vel og því
kalli svörum við,“ segir Gunnlaugur Sigurjónsson.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Móttaka Salurinn er bjartur og með stórum gluggum,
hlýir litir ráðandi og tæknin á að hraða afgreiðslu.
„Í starfinu er því mikilvægt að hafa góða undirstöðu og klíníska reynslu,
vera góður hlustandi og hafa þolinmæði en síðast en ekki síst hafa
innsæi við að greina lýsingar fólks og finna lausnir á vanda og veik-
indum,“ segir Ágústa Dúa Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur. Hún starfar á
símavakt Læknavaktarinnar, þangað sem fólk getur hringt allan sólar-
hringinn í símanúmerin 1770 og 1700 og fengið faglegar ráðleggingar
hjúkrunarfræðinga þegar veikindi steðja að. Símhringingarnar eru á
bilinu 90 til 100 þúsund á ári og álagið því oft mikið, þá sérstaklega á
veturna þegar flensan gengur yfir og leggur fólk í rúmið í stórum stíl.
„Reyndar eru erindin út af öllu mögulegu; veikindum andlegum sem
líkamlegum, minniháttar meiðslum og svo framvegis. Þetta er öll flóran
og skjólstæðingar okkar á öllum aldri,“ segir Ágústa Dúa sem hefur
starfað hjá Læknavaktinni frá árinu 2003. Þar tekur hún gjarnan 10 til 12
vaktir á mánuði, en er í aðalstarfi á Reykjalundi. Á að baki langan feril í
heilbrigðisþjónustu eins og hinir hjúkrunarfræðingarnir á vaktinni sem
eru um 20 talsins.
Símaþjónustu Læknavaktarinnar er sinnt úr Reykjavík frá kl. 16 fram
til kl. 8 á morgnana virka daga og allar helgar. Virka daga frá kl. 8 til 16 er
svarað á Húsavík af hjúkrunarfræðingum sem þar starfa.
TUTTUGU HJÚKRUNARFRÆÐINGAR VIÐ SÍMANN
Samstarfsfólk Ágústa Dúa Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á vaktinni og
Gunnar Örn Jóhannsson sem er framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar.
Faglegar ráðleggingar
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað