Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Vanalega hefði útskriftin verið
klukkan eitt en við ákváðum að
færa hana þegar ljóst varð að leik-
urinn yrði á þessum tíma. Þá feng-
um við holskeflu af fyrirspurnum
frá nemendum sem voru uggandi
yfir því að þeir yrðu að vera í út-
skrift á sama tíma,“ segir Katrín
Rut Bessadóttir, verkefnastjóri á
markaðs- og samskiptasviði Háskól-
ans í Reykjavík.
Útskrift skólans verður klukkan
tíu á laugardagsmorgun og verður
henni lokið um hádegisbil, klukku-
tíma fyrir leik Íslands og Argentínu
á HM í Rússlandi. Útlit er fyrir að
þjóðfélagið leggist á hliðina á með-
an á leiknum stendur og fátt verði
annað við að vera.
„Við höfum heyrt af einhverjum
sem ætla að slá saman útskriftar-
veislu og því að horfa á leikinn en
svo verða einhverjir með veislu eftir
leikinn,“ segir Katrín, en um 600
manns útskrifast frá HR að þessu
sinni. Hún segir að útlit sé fyrir
góða mætingu á athöfnina, sem
verður í Hörpu. „Það mæta lang-
flestir og nánast allir þeir sem ekki
komast verða staddir í Rússlandi.“
Háskólinn á Bifröst mun útskrifa
um 80 nemendur á laugardag. At-
höfnin verður sömuleiðis klukkan
tíu að morgni. Að athöfn lokinni
verður boðið upp á móttöku og
hægt verður að horfa á leikinn í að-
stöðu nemendafélagsins.
„Fólk skipuleggur allt í kringum
þetta. Það voru skírnarathafnir
færðar til að þær myndu ekki rek-
ast á leikinn,“ segir Ólafur Jóhann
Borgþórsson, sóknarprestur í Selja-
kirkju. Hann gefur tvö pör saman á
laugardaginn en svo heppilega vill
til að brúðkaupin eru síðdegis. „Ég
er með brúðkaup klukkan þrjú og
svo aftur klukkan hálf fimm. Bæði
pörin voru fegin því að leikurinn var
svo snemma dags og nú vona þau
bara að hann fari vel svo að gestir
verði í góðu skapi þegar þeir
koma.“
Undirbúningur prestsins tekur
sömuleiðis mið af leiknum mikil-
væga. „Já, ætli ég verði ekki með
tvær ræður tilbúnar. Eina ef við
vinnum og aðra ef við töpum.“
Annars kveðst Ólafur öllu orðinn
vanur þegar kemur að fótbolta. „Já,
og það þarf ekki svona stóra leiki
til. Menn eru gjarnan að stelast til
að fylgjast með leikjum í enska
boltanum í símanum í kirkjunni.
Það er bara gaman að þessu.“
Götuspyrnan ekki færð til
„Rússarnir voru greinilega ekki
búnir að átta sig á því að við vorum
búnir að gefa út keppnisdagatalið
okkar þegar þeir skipulögðu mótið.
Það var alveg vitað að götuspyrnan
yrði á þessum tíma. Þetta er náttúr-
lega skandall,“ segir Einar Gunn-
laugsson, stjórnarformaður Bíla-
klúbbs Akureyrar, sem stendur
fyrir Bíladögum um helgina.
Götuspyrnan stendur frá 11-15 og
ætti því hápunktur hennar að vera á
sama tíma og leikurinn við Argent-
ínu. Einar býst þrátt fyrir þetta við
góðri mætingu á Bíladaga og segir
að þeir sem vilji geti horft á leikinn.
„Við reddum því auðvitað og
verðum með leikinn í beinni í sjón-
varpinu í félagsheimilinu okkar. Svo
erum við með kynni sem hefur ekk-
ert rosalega mikið á móti fótbolta
og hann mun eflaust segja frá gangi
mála í leiknum og úrslitunum.“
Þrjátíu konur á golfmóti
Annar viðburður sem ekki er
hróflað við þennan dag er hið árlega
opna kvennamót Golfklúbbs Vatns-
leysustrandar. Ríkharður Bragason,
formaður mótanefndar klúbbsins,
segir að mótið hafi verið planað
snemma í vor og hann hafi ekki
heyrt af óskum um að því yrði frest-
að. „Ég gerði hins vegar ítrekaðar
tilraunir til að fá HM frestað, án ár-
angurs. En svona án gríns þá hefur
þetta verið frábært mót undanfarin
ár og það eru hátt í þrjátíu konur
skráðar núna. Þær verða vonandi
fleiri og við höldum okkar striki.
Þetta verður yndislegt,“ segir hann.
„Á meðan karlarnir öskra sig hása
koma konurnar til okkar og fá frið.“
Á sama tíma fer fram afmælismót
Golfklúbbs Ísafjarðar. Hlé verður
gert á mótinu á meðan lands-
leikurinn fer fram. Leikurinn verð-
ur sýndur í golfskálanum og boðið
verður upp á pítsu. Opna Lands-
bankamótinu, styrktarmóti fyrir
barna- og unglingastarf GL, sem
átti að vera á sama tíma hefur hins
vegar verið frestað.
Hlé verður gert á hátíðardagskrá
á Hrafnseyri í tilefni aldarafmælis
sjálfstæðis og fullveldis Íslands
vegna landsleiksins. Dagskráin
hefst klukkan 11 með hátíðarguðs-
þjónustu en á hádegi flytur Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
hátíðarræðu og leggur í kjölfarið
blómsveig að minningarsteini Jóns
Sigurðssonar. Leikurinn verður svo
sýndur í tjaldi á stórum skjá og
gefst hátíðargestum tækifæri til að
fylgjast með honum í félagsskap
forsetans.
Flýttu útskrift vegna leiksins
Þjóðfélagið í hálfgerðum lamasessi meðan Ísland mætir Argentínu á HM Útskrift úr háskóla að
morgni Prestur tilbúinn með tvær ræður fyrir brúðkaup Götuspyrna á Bíladögum á sama tíma
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Undirbúningur Alfreð Finnbogason, Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Sigurðsson verða klárir í slaginn á laugardag.
Ólafur Jóhann
Borgþórsson
Katrín Rut
Bessadóttir
„Ég reikna með því að
horfa á leikinn í Hljóm-
skálagarðinum,“ segir
Lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra og bætir við
að hún geti einfaldlega
ekki beðið eftir leiknum.
Hún var á leið til London
þegar Morgunblaðið hafði
samband og var að sjálf-
sögðu með landsliðstreyju
með í för. „Ég er að lenda
hérna í London og er að fara að hitta íþrótta-
málaráðherrann og ætla að sjálfsögðu að
gefa henni landsliðstreyjuna okkar,“ sagði
Lilja í gær, létt í bragði.
Ráðherrar mega ekki fara á HM en hvar ætla þeir að horfa á leik Argentínu og Íslands?
Lilja
Alfreðsdóttir
„Ég verð á Ísafirði á laug-
ardaginn þannig að ég
mun þurfa að finna mér
stað til að horfa á leikinn
þar væntanlega,“ segir
Katrín Jakobsdóttir, for-
sætisráðherra. Hún ætlar
þó ekki að deyja ráðalaus
og reiknar með því að geta
fundið sér samastað til
þess að sjá leikinn.
„Ég er þar að morgni
laugardagsins og leikurinn er klukkan eitt.
Ég bara banka upp á hjá einhverju fólki og
treð mér í heimboð,“ segir Katrín og hlær.
„Ég treysti á það.“
Katrín
Jakobsdóttir
„Ég var ekki alveg búinn
að negla það,“ segir Sig-
urður Ingi Jóhannsson,
samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra. „Fyrsti
valkostur er heima hjá mér
en ég er að skoða annað.“
Sigurður segir að það geti
verið ágætt að vera einn
þegar kemur að leikjum
landsliðsins, enda á hann
það til að lifa sig inn í leik-
ina.
„Ástæðan er sú að ég verð svolítið innlif-
aður og brjálaður og þá er ágætt að vera
einn,“ segir Sigurður og hlær.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Bjarni Benediktsson, fjár-
málaráðherra og formað-
ur Sjálfstæðisflokksins,
sagði líklegast að hann
myndi horfa á landsleik
Íslands og Argentínu
heima með fjölskyldunni,
þegar Morgunblaðið
hafði samband í gær.
„Já, ætli ég verði ekki
bara heima,“ segir
Bjarni.
Hann sagði þó ekki útilokað að hann
myndi horfa á leikinn í góðra vina hópi.
„Annars gæti verið að ég verði hjá vini
mínum í Garðabænum.“
Bjarni
Benediktsson
Fyrsti leikur Ís-
lands á HM verð-
ur sýndur víða
utanhúss á
höfuðborgar-
svæðinu, t.a.m. í
Hljómskálagarð-
inum, Boxinu í
Skeifunni, við
Vesturbæjarlaug
og á Garðatorgi, Rútstúni og Ing-
ólfstorgi.
Þá mun klúbbur Listahátíðar
Reykjavíkur halda viðburð á laug-
ardaginn. Leikurinn verður sýndur
í Hafnarhúsi og mun Þórunn
Björnsdóttir hljóðlistakona leika
raftónlist undir. ,,Ég ætla að vera
þarna á sviði á meðan klúbburinn
streymir þessum leik og ætla að
taka þátt í því með því að spila raf-
tónlist yfir leiknum og spila sam-
kvæmt því hvernig leikurinn er að
fara,“ segir Þórunn.
Allir leikir Íslands verða sýndir í
Hljómskálagarðinum, þar verða
líka veitingar, leiktæki og fleira.
Ísland-Argentína
verður sýndur víða