Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 STYKKISHÓLMUR Gunnlaugur Árnason garnason@simnet.is St. Franciskusspítalinn í Stykkis- hólmi, nú Heilbrigðisstofnun Vestur- lands á Stykkishólmi, á sér afar merkilega sögu. Spítalinn hefur verið brautryðjandi á ýmsum sviðum allt frá því að hann tók til starfa árið 1936, eða fyrir 82 árum. Þess var minnst fyrir stuttu að 40 ár eru liðin frá því að fyrstu sjúkling- arnir fengu endurhæfingu á spítal- anum og við sama tækifæri var haldið upp á 25 ára afmæli háls- og bak- deildar spítalans. Deildin er í sam- starfi við Háskóla Íslands þar sem hún tekur við nemum í sjúkraþjálfun, t.a.m. voru nýverið tveir nemar í verklegri kennslu á deildinni og er hún því akademísk kennsludeild. Nýr yfirlæknir, Andri Heide, sem hefur sinnt háls- og bakverkjum um árabil, hefur nú tekið til starfa við háls- og bakdeild Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Þáttur systranna mikill St. Franciskusregla Kaþólsku kirkjunnar byggði og rak spítalann allt fram á þessa öld eða þar til ríkis- sjóður tók alfarið yfir rekstur hans. Kaþólsku systurnar ráku fjölbreytt starf á spítalanum sem ekki tengdist beint sjúklingum, s.s. leikskóla, prentsmiðju, æskulýðsstarf og sumarbúðir. Var þáttur þeirra því mikill, ekki eingöngu spítalans vegna heldur einnig hvað samfélagið varð- aði. Eitt af frumkvöðlastörfum þeirra var að bjóða upp á sjúkraþjálfun árið 1977, en um svipað leyti voru fyrstu lög sett á Íslandi um sjúkraþjálfun. Sjúkraþjálfun og endurhæfing voru þá lítið þekkt hér á landi og fór sú starfsemi þá ekki fram á sjúkra- húsum. Upphaf sjúkraþjálfunar á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi má rekja til komu systur Lidwinu, sem var menntuð hjúkrunarkona sem leitaði sér þekkingar í endurhæfingu sjúklinga. Hún segir í kveðju sinni: „Í upphafi komu flestir sjúkling- anna úr fiskvinnslunum í Stykkis- hólmi, þar sem margir þeirra unnu við færiband og vegna einhæfra hreyfinga fundu þeir fyrir verkjum í handleggjum, hálsi og baki, flestir fundu fyrir vöðvaverkjum. Smám saman fjölgaði sjúklingum með ýmiss konar verki og flóknari tilfelli. Síðan þá hefur deildin dafnað og þróast í það sem hún er í dag.“ Á vormánuðum árið 1990 urðu læknaskipti á St. Franciskusspítal- anum. Auk hins nýja sjúkra- húslæknis, Jóseps Ó. Blöndal, kom sama vor til starfa við endur- hæfingardeild spítalans Lucia de Korte sjúkraþjálfari. Að frumkvæði Jóseps og með fulltingi og í samstarfi við Luciu var háls- og bakdeild stofn- uð við spítalann árið 1992. Lucia hefur alla tíð síðan starfað að uppbyggingu háls- og bakdeildar- innar og þá hvað varðar útfærslu á þeim grunnhugmyndum sem deildin byggir á. Þróun háls- og bakdeildarinnar hélt áfram og til varð samþætt bakprógramm í skjóli fagaðila sem samanstendur af læknum, sjúkra- þjálfurum og öðrum fagaðilum, sem er m.a. fólgið í 2x5 daga æfinga- prógrammi, bekkjameðferð og sprautum eftir þörfum og þá ýmist í bak og liði, fræðslu hjá hjúkrunar- fræðingi, sjúkraþjálfurum og lækn- um. Þá er einnig hópmeðferð í sund- laug og slökun. Öll meðhöndlun er markvisst einstaklingsmiðuð. Mikil eftirspurn Sjúklingar þurfa tilvísun frá heim- ilislækni eða öðrum fagaðila til að komast að í endurhæfingu á háls- og bakdeild, þar sem nauðsynlegt er að fá réttar upplýsingar um einkenni og að búið sé að prófa úrræði sem standa til boða í heimahéraði. Sjúk- lingar koma fyrst í viðtal og for- skoðun hjá fagaðilum deildarinnar, annaðhvort hjá yfirlækni deild- arinnar eða sjúkraþjálfara. Í kjölfar forskoðunar er tekin ákvörðun um innlögn og meðferð en strangar kröf- ur eru gerðar um hvort sjúklingur leggst inn á deildina eður ei enda mikil eftirspurn og því miður ekki hægt að sinna öllum sem um dvölina sækja. Þjóna landinu með góðum árangri  St. Franciskusspítalinn í Stykkishólmi hefur sinnt endurhæfingu í 40 ár  Rekinn í dag undir merkjum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands  25 ár liðin frá stofnun háls- og bakdeildar spítalans „Ég hef verið mikill bak- sjúklingur síðustu 7-8 árin og fengið að njóta frábærrar þjón- ustu í Hólminum. Það er ynd- islegt starf sem unnið er þar,“ segir Margrét Eg. Sigurbjörns- dóttir, sem hefur notið þjónustu spítalans í Stykkishólmi. „Á þessu tímabili hef ég feng- ið að koma þangað nokkrum sinnum. Hversu lengi ég er í hvert sinn fer eftir því hversu lasin ég er. Það góða er að ég útskrifast ekki, ég get komið aftur þegar bakverkirnir eru hvað verstir. Þessi hjálp heldur mér gangandi og ég get stund- að vinnu. Annars væri ég öryrki í dag,“ segir hún ennfremur. Heldur mér gangandi REYNSLUSAGA Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Stykkishólmur St. Franciskusspítalinn í Stykkishólmi, nú Heilbrigðisstofnun Vesturlands, hefur starfað í 82 ár. Endurhæfing Andri Heide, nýr yfirlæknir í Stykkishólmi, og Lucia de Korte sjúkraþjálfari. Lucia hefur starfað í Hólminum frá árinu 1990. Eftirfylgnin » Kannanir sem gerðar hefa verið meðal sjúklinga að nokkrum árum liðnum sýna þennan árangur: » 80% nota æfingar áfram til að líða betur. » 67% hafa betri stjórn á verkjunum. » 70% aukin virkni í vinnu og einkalífi. » 21% aukin vinnuþátttaka. JÓN BERGSSON EHF RAFMAGNSPOTTAR Einstaklega meðfærilegir og orkunýtnir pottar sem henta jafnt í bústaðinn sem og í þéttari byggð Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is Sjóminjasafnið í Reykjavík Fiskur& fólk Glæný grunnsýning! Grandagarði 8, 101 Reykjavík www.borgarsogusafn.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.