Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
3
3
9
Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 |www.hyundai.is
HYUNDAI IONIQ RAFBÍLAR
TIL AFGREIÐSLU STRAX
IONIQ PLUG-IN HYBRID
TENGITVINNBÍLL
IONIQ HYBRID IONIQ 100% RAFBÍLL
ÞRJÁR RAFMAGNAÐAR GERÐIR
Hyundai hefur haslað sér völl sem einn framsæknasti bílaframleiðandi heims á sviði
raf- og vetnistækni.Við bjóðum Ioniq rafbílinn í þremur glæsilegum útfærslum.
Ioniq rafbílalína Hyundai er sú eina sinnar tegundar á markaðnum og spannar allt frá
100% rafbíl til Hybrid og tengjanlegra Plug-in Hybrid tvinnbíla sem hafa unnið
til fjölda umhverfisverðlauna á undanförnummisserum.
Verð frá 3.590.000 kr.
Sýning verður opnuð 17. júní á
ljósmyndasögusafninu, Saga-
Fotografica, á Siglufirði eins og
hefð er orðin fyrir. Í sumar verða
þar á veggjum verk tveggja ljós-
myndara; annars vegar myndir
Ragnars Axelssonar frá Íslandi,
Grænlandi og Færeyjum, hins
vegar verk Jónu Þorvaldsdóttur.
Fimm stórar Grænlandsmyndir
Ragnar verða til sýnis á Siglufirði,
auk nokkurra minni úr safni
hjónanna Baldvins Einarssonar og
Ingibjargar Sigurjónsdóttur,
stofnenda Saga-Fotografica. Þar
er um að ræða myndir Ragnars
frá Íslandi, Færeyjum og Græn-
landi.
Ragnar þarf ekki að kynna fyrir
lesendum Morgunblaðsins enda
hafa myndir hans prýtt síður
blaðsins í áratugi. Ljósmyndir
hans hafa verið á sýningum víða
um heim, auk þess sem komið
hafa út nokkrar bækur með mynd-
um hans.
Jóna Þorvaldsdóttir er þekkt
fyrir að nota sígildar ljósmynd-
unaraðferðir sem voru vinsælar á
upphafstímum ljósmyndunar, við
gerð verka sinna. „Ég legg mikið
upp úr handverkinu í myndunum
mínum og nýt þess að dvelja
löngum stundum í myrkra-
herberginu. Þar læt ég hugann
reika og gef ímyndunaraflinu laus-
an tauminn,“ segir Jóna. „Oft
koma myndirnar allt öðruvísi út
en ég hafði áætlað sem gerir þetta
ljósmyndaferli bara meira spenn-
andi enda verður þá hver og ein
framköllun einstök. Flestar þeirra
mynda sem mér þykir vænst um
hafa orðið til þegar ég hef náð að
fylgja innsæinu og ekki ákveðið of
mikið fyrirfram hvernig mynd-
irnar ættu að vera. Ég geri mér
grein fyrir að það er nauðsynlegt
að skipuleggja sig, sérstaklega
þegar ferðast er með níðþunga
gamla ljósmyndavél á þrífæti, en
það er eins og það virki best fyrir
mig að takast á við umfangsefnið
eins og það kemur fyrir hverju
sinni, láta hlutina gerast og vinna
út frá því.“
Jóna hefur haldið fjölda sýninga
hérlendis og erlendis og eru verk
hennar í eigu fyrirtækja, safna og
einstaklinga.
Grænland Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Baldvin Einarsson, eigendur Saga-Fotografica, koma einni mynd Ragnars Axelssonar fyrir á vegg safnsins.
Verk RAX og Jónu sýnd á Siglufirði
Ímyndunarafl Jóna Þorvaldsdóttir.