Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 26

Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 E N N E M M / S ÍA / N M 8 8 3 3 9 Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 |www.hyundai.is HYUNDAI IONIQ RAFBÍLAR TIL AFGREIÐSLU STRAX IONIQ PLUG-IN HYBRID TENGITVINNBÍLL IONIQ HYBRID IONIQ 100% RAFBÍLL ÞRJÁR RAFMAGNAÐAR GERÐIR Hyundai hefur haslað sér völl sem einn framsæknasti bílaframleiðandi heims á sviði raf- og vetnistækni.Við bjóðum Ioniq rafbílinn í þremur glæsilegum útfærslum. Ioniq rafbílalína Hyundai er sú eina sinnar tegundar á markaðnum og spannar allt frá 100% rafbíl til Hybrid og tengjanlegra Plug-in Hybrid tvinnbíla sem hafa unnið til fjölda umhverfisverðlauna á undanförnummisserum. Verð frá 3.590.000 kr. Sýning verður opnuð 17. júní á ljósmyndasögusafninu, Saga- Fotografica, á Siglufirði eins og hefð er orðin fyrir. Í sumar verða þar á veggjum verk tveggja ljós- myndara; annars vegar myndir Ragnars Axelssonar frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, hins vegar verk Jónu Þorvaldsdóttur. Fimm stórar Grænlandsmyndir Ragnar verða til sýnis á Siglufirði, auk nokkurra minni úr safni hjónanna Baldvins Einarssonar og Ingibjargar Sigurjónsdóttur, stofnenda Saga-Fotografica. Þar er um að ræða myndir Ragnars frá Íslandi, Færeyjum og Græn- landi. Ragnar þarf ekki að kynna fyrir lesendum Morgunblaðsins enda hafa myndir hans prýtt síður blaðsins í áratugi. Ljósmyndir hans hafa verið á sýningum víða um heim, auk þess sem komið hafa út nokkrar bækur með mynd- um hans. Jóna Þorvaldsdóttir er þekkt fyrir að nota sígildar ljósmynd- unaraðferðir sem voru vinsælar á upphafstímum ljósmyndunar, við gerð verka sinna. „Ég legg mikið upp úr handverkinu í myndunum mínum og nýt þess að dvelja löngum stundum í myrkra- herberginu. Þar læt ég hugann reika og gef ímyndunaraflinu laus- an tauminn,“ segir Jóna. „Oft koma myndirnar allt öðruvísi út en ég hafði áætlað sem gerir þetta ljósmyndaferli bara meira spenn- andi enda verður þá hver og ein framköllun einstök. Flestar þeirra mynda sem mér þykir vænst um hafa orðið til þegar ég hef náð að fylgja innsæinu og ekki ákveðið of mikið fyrirfram hvernig mynd- irnar ættu að vera. Ég geri mér grein fyrir að það er nauðsynlegt að skipuleggja sig, sérstaklega þegar ferðast er með níðþunga gamla ljósmyndavél á þrífæti, en það er eins og það virki best fyrir mig að takast á við umfangsefnið eins og það kemur fyrir hverju sinni, láta hlutina gerast og vinna út frá því.“ Jóna hefur haldið fjölda sýninga hérlendis og erlendis og eru verk hennar í eigu fyrirtækja, safna og einstaklinga. Grænland Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Baldvin Einarsson, eigendur Saga-Fotografica, koma einni mynd Ragnars Axelssonar fyrir á vegg safnsins. Verk RAX og Jónu sýnd á Siglufirði Ímyndunarafl Jóna Þorvaldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.