Morgunblaðið - 14.06.2018, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Hágæða múrefni
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Deka Acryl grunnur
1 kg 760
5 kg 3.390
Weber REP 980
steiningarlím
og filtmúr, grár
25 kg 2.690
Weber Gróf
Múrblanda
25 kg 1.490
Deka Hrað
viðgerðarblanda
25 kg 3.640
Deka Fíber trefja-
styrkt múrblanda
25 kg 2.740q
Weberfloor
4150 flotefni
4-30mm 25 kg
2.150
Weberfloor 4160
Hraðþornandi flotefni
2-30mm 25 kg
2.790
Weberfloor 4630
Durolit iðnaðar
& útiflot 25 kg
4.390
ogDEKA
Combimix
Staurasteypa
20 kg 860
ÚTI
FLOT
Deka Plan 230
hraðþornandi flot
25 kg 1.890
Weber Milligróf
múrblanda
25 kg
1.690
HRAÐ HRAÐ HRAÐ
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Um þessar mundir eru hundrað ár
liðin frá því að skáldabekkurinn
frægi var í Menntaskólanum í
Reykjavík. Um hann orti Tómas
Guðmundsson:
Þá færðust okkar fyrstu ljóð í letur
því lífið mjög á hjörtu okkar fékk
og geri margir menntaskólar betur,
ég minnist sextán skálda í fjórða bekk.
Víst er að mikið einvalalið skálda,
sem síðar áttu eftir að koma mjög við
bókmenntasöguna, var í Mennta-
skólanum á heimsstyrjaldarárunum
fyrri. Þar má nefna, auk Tómasar
sjálfs, þjóðkunna menn eins og Hall-
dór Laxness, Jóhann Jónsson, Davíð
Stefánsson, Guðmund G. Hagalín,
Sigurð Einarsson í Holti og Richard
Beck. En þetta með sextán skáldin í
fjórða bekk veturinn 1918 til 1919 var
þó eitthvað orðum aukið eins og Tóm-
as viðurkenndi löngu síðar. „Þetta er
þjóðsaga,“ sagði hann í viðtalsbók
Matthíasar Johannessen, Svo kvað
Tómas (Almenna bókafélagið 1960),
„sem upphaflega er þannig tilkomin,
að í tímariti nokkru var kvartað yfir
því, hve Menntaskólinn væri heltek-
inn af skáldskap og því til sönnunar
var tiltekinn þessi skáldafjöldi fjórða
bekkjar. Mig minnir annars, að tíma-
ritið hafi aðeins talið fram fjórtán
skáld, svo tvö hafa sennilega komið
seinna í leitirnar. Við þessa heimild
studdust ljóðlínurnar … og situr þá
ekki á mér að fara að leiðrétta þær.“
Og Tómas bætti við: „Auðvitað var
slatti af [skáldum] í fjórða bekk, svo
sem Halldór Guðjónsson frá Laxnesi
og Sigurður Einarsson sem báðir
voru nýir í skólanum, og svo ég, ef
mér leyfist að minna á mig í leiðinni.
Og ýmsa fleiri mætti þar nefna, þó að
skáldskaparástríðan væri þeim við-
ráðanlegri. En okkar bekkur sat ekki
einn að skólaskáldunum, síður en svo.
Í fimmta bekk voru þeir Guðmundur
G. Hagalín og Jóhann Jónsson, og
Davíð Stefánsson í 6. bekk. Þú sérð
að þetta voru engir aukvisar.“
Sagan um skáldabekkinn hefst í
Skólablaðinu vorið 1919. „Það er
sagt, að í einum bekk Mentaskólans
sjeu nú 14 skáld – og þó mörg í hverj-
um hinna. Það er og hvorttveggja, að
mikið er um kveðskapinn meðal
hinna upprennandi mentamanna. En
færi þar önnur menning eftir skáld-
skapnum, svona yfirleitt, þá er það
alvarlegt mál. En „alt er hirt og alt er
birt“; blöðunum hjer ætlar aldrei að
verða nóg boðið. Og þau eru örlát
sum á skáldnafnið; því rignir yfir
rjettláta og rangláta. Það er nú gott
og blessað, að sem flestir af þeim,
sem annars yrkja, gætu heitið skáld.
En þá er hitt, hvað við ættum að kalla
þá Jónas og Hallgrím.“
Tímaritið Iðunn, eitt helsta bók-
menntarit landsins á þessum tíma,
hnaut um þessa klausu. „Ég held að
straumhvörf hafi nú legið við land í ís-
lenzkum bókmentum. Vöxturinn hef-
ir kannske sjaldan verið eins mikill í
andlegu lífi hér og nú. Og sennilega á
hann eftir að aukast, ef það er satt, að
t.d. í einum bekk Mentaskólans séu
nú 14 „skáld.“ En það er undir hælinn
lagt, hvort úr þessum vexti verður yl-
ríkur áveitustraumur á íslenzkan
þjóðarþroska eða gjálfrandi andleys-
iselfur af sálardrepandi leirburði,“
skrifaði Vilhjálmur Þ. Gíslason.
„Skáld og froðusnakkar“
Ekki voru allir í skýjunum yfir
áhuga skólapilta á skáldskap. Ágúst
H. Bjarnason prófessor stakk niður
penna í Iðunni sumarið 1919 og
kvartaði yfir því hve illa væri staðið
að því að mennta nemendur skólans
til verklegra afrekra. Aðgangurinn
að lærdómsdeild skólans væri allt of
léttur og aðstreymið of mikið. „En alt
þetta gerir nú það að verkum, að við
höfum miklu færri verkfróðum
mönnum á að skipa en þörf er á í nán-
ustu framtíð og þurfum ef til vill að fá
erlenda menn í þeirra stað til þess að
stjórna verkfræðisfyrirtækjum vor-
um. Ef nú á að fara að beizla fossana,
vantar okkur heilan hóp innlendra
manna, sem þar hefðu getað lagt
hönd á plóginn. Í stað þess höfum við
nú „14 skáld í 4. bekk“ og nóg af
froðusnökkum um land alt,“ skrifaði
hann og leynir sér ekki lítilsvirðingin
á skólaskáldunum.
Tómas Guðmundsson segir að
skólaskáldin hafi að loknum kennslu-
tíma farið á kaffihúsið Uppsali sem
var í Aðalstræti. Það var þá mikill
samkomustaður ungra mennta-
manna í Reykjavík. Þarna var setið
og skrafað um skáldskap og heims-
mál og landsmál yfir kaffibollum. „Þá
bar margt á góma og trúað gæti ég
því, að við hefðum stundum mátt hafa
eitthvað hægara um okkur,“ sagði
Tómas í fyrrnefndu samtali við Matt-
hías. „Ég man að roskinn verslunar-
stjóri, sem borðaði á Uppsölum, tók
sig til og skrifaði blaðagrein, þar sem
hann bar sig undan okkur þessum
ungu mönnum, sem gengju með
broddstaf, þættust vera skáld og
hefðu skoðanir á öllu milli himins og
jarðar.“
Tómas segir ennfremur að þarna á
kaffihúsinu hafi skólaskáldin stund-
um getað vænst þess að helstu blöð
bæjarins, svo sem Landið og Fréttir,
bærust inn með nýjustu ljóðagerð
einhvers úr hópnum. „Það gat jafnvel
komið fyrir, að þessi kvæði tækju yfir
heilar forsíður!“ sagði hann. „Það
voru mikil andlegheit í loftinu.“
Stofnuðu skáldafélag
Halldór Laxness rifjar þennan
tíma upp í endurminningabókum sín-
um. Þar segir hann m.a. frá Vetrar-
brautinni, skammlífu félagi ungra
skálda í Menntaskólanum, haustið
1918. Hann kveðst hafa stofnað félag-
ið ásamt Tomma (Tómasi Guðmunds-
syni), Sigga (Sigurði Einarssyni í
Holti) og „fleiri uppljómuðum fjórðu-
bekkíngum“ og fengið Jakob Smára
(sem var nokkru eldri, stúdent 1908),
til að gerast forseti klúbbsins. Hann
nefnir einnig að ein skáldkona hafi
verið í Vetrarbrautinni, strákarnir
hafi kallað hana „litlu frúna“ eftir
samnefndri smásögu sem hún hafði
birt í Morgunblaðinu.
Höfundur þeirrar sögu er Ólöf
Jónsdóttir, sem síðar varð þekktari
undir ættarnafni eiginmanns síns,
Sigurðar Nordals. Hún varð stúdent
1916.
Þess má geta að í einni minnis-
kompu Jóhanns Jónssonar frá þess-
um tíma (sem höfundur þessarar
greinar varðveitir) er að finna nafna-
lista sem líklega er félagatal Vetrar-
brautarinnar. Á þeim lista eru nöfnin
Halldór Guðjónsson, Sigurður Ein-
arsson, Tómas Guðmundsson, Guð-
mundur G. Hagalín, Sveinbjörn Sig-
urjónsson, Friðrik Friðriksson,
Kristmundur Þorleifsson, Sigurjón
Jónsson, Richard Beck, Andrés Gutt-
ormsson, Jón Pálsson, Jakob J.
Smári, Jóhann Jónsson og Ólöf Jóns-
dóttir. Félagatalið sýnir að skáldin
sem héldu hópinn á kaffihúsinu Upp-
sölum voru ekki öll í Mennta-
skólanum, sum voru orðin stúdentar
og sum fengust við önnur störf í
Reykjavík. Það sem þeim var sameig-
inlegt var gífurlegur áhugi á skáld-
skap og menningu.
Voru tilfinningaskáld
„Já. Þá var mikil skáldaöld og mað-
ur lifandi! Við vorum tilfinningaskáld
og háfleygir í ljóðum okkar,“ sagði
Richard Beck í blaðaviðtali á efri ár-
um. „Ég man,“ bætti hann við, „ég
endaði eitt ljóð frá þessum árum á
speki á borð við þessa: „Ég fann ég
var meira en mold.“ Þetta var alveg í
okkar anda. Þetta var veturinn 1918-
19. Hæsti tindurinn á því ári var þó
þann 1. desember 1918, þegar við
stóðum saman við Stjórnarráðið og
lýst var yfir fullveldi Íslands og fán-
inn dreginn að húni í fyrsta skipti.
Sigurður Eggerz flutti stutta en
skáldlega ræðu. Síðar þennan vetur,
á árlegri hátíðarsamkomu okkar,
flutti Davíð Stefánsson, sem þá var í
sjötta bekk, afar fagra ræðu fyrir
minni ættjarðarinnar og nefndi hana
„Ísland, litanna land.“ Ég man enn
áhrifin af þeirri ræðu, svo máttug var
hún. Síðar á því ári gerðist það svo að
Halldór Guðjónsson las opinberlega
úr „Barni náttúrunnar“ og við fjöl-
menntum á upplesturinn, skólabræð-
ur hans, og fleiri. Ég man, að þegar
ég gekk út, var ég samferða kennara
okkar einum, sem sagði að sann-
færður væri hann um, að eitthvað
meira en venjulegt væri byggi i þess-
um skólapilti. Og sannspár hefur
hann orðið.“
Þá voru „mikil andlegheit í loftinu“
Skáldabekkurinn frægi í MR 100 ára „Ég minnist sextán skálda í fjórða bekk“, orti Tómas Guð-
mundsson Skólaár Halldórs Laxness, Jóhanns Jónssonar, Davíðs Stefánssonar og fleiri stórskálda
Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Magnús Ólafsson
Skólapiltar Kennslustund í Menntaskólanum í Reykjavík veturinn 1918-1919 þegar skáldskaparlíf var þar í blóma.
Morgunblaðið/ÓKM
„Sextán skáld“ Tómas Guðmunds-
son gerði skáldabekkinn frægan.
Ljósmynd/Einkasafn
Vinir Halldór Laxness og Jóhann
Jónsson ortu í Menntaskólanum.