Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 31

Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 31
FRÉTTIR 31Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 HM tilboð Múrbúðarinnar Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is BESTU MÚBÚÐARVERÐIN Made by Lavor 18.990 MOWER CJ20 Sláttuvél m/drifi, BS 5,0 hp Briggs&Stratton mótor. Rúmtak 150 CC, skurðarvídd 51cm/20”, sjálfknúin 3,6 km/h, safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun, skurðhæð og staða 25-75mm/8 49.990 MOWER CJ18 BS 3,5hp Briggs&Stratton mótor, rúmtak 125 CC, skurðarvídd 46cm/18”. Safnpoki að aftan 60 L, skurðhæð og staða 25-85mm/8 29.990Kaliber Red gasgrill 4 brennara (12KW) + hliðarhella (2.5KW). Grillflötur 41x56cm Kaliber Black gasgrill 3x3kw brennarar (9KW). Grillflötur 41x56cm 39.900 25% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR áður 23.990 Grillboð 44.900 áður 39.990 áður 62.990 14.390 Lavor Galaxy 150 háþrýstidæla 150 bör max, 450 lítr/klst. 2100W 20% AFSLÁTTUR áður 17.990 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Reykjavíkurborg á 15 íbúðar- húsalóðir í Grundarhverfi á Kjal- arnesi. Hins vegar verður ekki hægt að úthluta þeim fyrr en að lokinni fornleifarannsókn á svæð- inu. Kjalarnes varð hluti af Reykjavík árið 1998. Það er fá- mennasta hverfið í höfuðborginni en á sama tíma það langstærsta að flatarmáli enda tilheyrir sjálf Esj- an Kjalarnesi. Hverfisráð Kjalarness beindi spurningu til Reykjavíkurborgar eftir að fyrirspurnir bárust frá íbú- um um framboð á lóðum til bygg- ingar íbúðarhúsnæðis á Kjalarnesi. Því óskaði ráðið eftir upplýsingum frá skrifstofu eigna og atvinnu- þróunar, um hvort og hvenær væri fyrirhugað að setja lóðir til bygg- ingar íbúðarhúsnæðis á Kjalarnesi á sölu. Íbúar á Kjalarnesi hafa valið sér að búa á mörkum sveitar og borg- ar, í nálægð við náttúruna og mikið rými fæst fyrir hvern og einn. Þeir eru margir sem myndu kjósa að búa við þær aðstæður. Fram kemur í svari skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá borg- inni að lóðirnar 15 séu við göturnar Jörfagrund (10 lóðir) Helgugrund (4 lóðir) og Búagrund (1 lóð). Kortleggja mögulega stækkun „Samkvæmt fornleifaskráningu jarðarinnar Jörfa á Kjalarnesi sem framkvæmd var 2003 þarf að fram- kvæma fornleifarannsókn á og í grennd við framangreindar lóðir, því mega engar framkvæmdir fara fram á tilteknum lóðum fyrr en að lokinni fornleifarannsókn. Sú rann- sókn hefur ekki farið fram, lóð- irnar verða því ekki boðnar til út- hlutunar fyrr en það hefur verið gert og samráð hefur verið haft við Minjastofnun Íslands,“ segir í svarinu. Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir að Grundarhverfi geti stækkað og þá helst til vesturs meðfram ströndinni og svo eitthvað til norð- urs. Talað er um 5-10 íbúðir á ári en það hefur ekki gengið eftir, seg- ir Björn Axelsson, skipulagsfulltrúi hjá Reykjavíkurborg. „Það stendur hins vegar til að hefja vinnu við hverfisskipulag fyrir Kjalarnesið þar sem möguleikar til stækkunar á hverfinu verða kortlagðir. Það eru vissulega tækifæri til þess en það liggur ekki alveg fyrir hversu margar íbúðir gætu komist fyrir á svæðinu,“ segir Björn. Fornleifaskráningin árið 2003 var unnin af Önnu Lísu Guðmunds- dóttur og Sólborgu Unu Páls- dóttur. Með henni var leitast við að staðsetja allar þekktar fornleifar jarðarinnar Jörfa á því svæði sem stærstu framkvæmda er von sam- kvæmt núgildandi deiliskipulagi, þ.e. frá Jörfalæk og að núverandi íbúðabyggð, Grundarhverfinu svo- kallaða. Staðsetning sumra forn- leifa byggðist eingöngu á rituðum heimildum, kortum og loftmyndum. Á loftmyndum sem teknar voru af bandaríska hernum í september 1945 mátti t.d. greina nokkra staði þar sem líklegt væri að finna forn- leifar. Höfundarnir segja að gera megi frekari rannsóknir á vettvangi, með jarðsjármælingum og rannsókn- arskurðum, til að staðsetja forn- leifar frekar og skera úr um hvort þær séu með öllu horfnar eða ekki. Í þjóðminjalögum kemur fram að skylt sé að skrá fornleifar á skipu- lagsskyldum svæðum áður en gengið er frá skipulagi eða endur- skoðun þess. Tilgangur þjóðminja- laganna er að stuðla að verndun menningarsögulegra minja og tryggja að íslenskur menningar- arfur flytjist óspilltur til komandi kynslóða. Minjar 100 ára og eldri teljast til fornleifa, en heimilt er þó að friðlýsa yngri minjar. Allar forn- leifar eru friðhelgar og verndaðar gegn hvers kyns raski. Íbúðabyggð við Jörfalæk Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 er áætlað að vestan við Jörfalæk muni einnig rísa íbúðabyggð. „Er brýnt að það svæði verði vel skráð og rannsakað áður en byggð- in er skipulögð frekar þar sem Hof er einn sögufrægasti staður á Kjal- arnesi,“ segir m.a. í fornleifaskrán- ingunni. Fyrst þarf að kanna fornleifar  Hverfisráði Kjalarness bárust fyrirspurnir um hvort til stæði að úthluta lóðum  Reykjavíkurborg á 15 lóðir sem ekki er hægt að úthluta að svo stöddu  Til skoðunar er að stækka Grundarhverfið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kjalarnesið Sveitarfélagið sameinaðist Reykjavík fyrir 20 árum. Þetta er fámennasta hverfi höfuðborgarinnar en jafnframt það landmesta. Grundarhverfi er neðst til hægri. Nú er til skoðunar að skipuleggja stækkun þess. Morgunblaðið/Júlíus Blása vindar Kjalarnesið kemst oft í fréttirnar þegar djúpar lægðir ganga yfir landið og hressilega blæs af Esjunni. Hviður geta orðið afar öflugar. Jörfi tilheyrir því svæði sem talið er að Helgi bjóla Ketils- son hafi numið. Hann fór til Íslands úr Suðureyjum mjög snemma á landnámsöld og bjó á Hofi. Jörfa er fyrst getið í fógetareikningum 1547-1552. Samkvæmt jarðatali 1704 var jörðin talin vera afbýli úr landi Hofs og var dýrleiki hennar átta hundruð. Matið var reiknað í heimajörðinni. Einn ábúandi var á jörðinni og galt hann sextíu álnir í land- skuld í reiðufé upp á lands- vísu og galt eigandi féð á Al- þingi. Tvö leigukúgildi fylgdu jörðinni og guldust leigur í smjöri til þess staðar sem landsdrottinn vildi. Á jörðinni gátu fóðrast þrjár kýr og átta lömb en kvikfénaður var fjór- ar kýr, átta ær með lömbum, tíu sauðir þrevetrir og eldri, fjórir tvævetrir, átta vet- urgamlir og tveir hestar. Jörðin náði vestan frá Jörfalæk og austur að Klé- bergslæk. Talið er að gamli Jörfabærinn hafi staðið niður undir sjó, skammt austan við Jörfalæk. Árið 1928 fór býlið í eyði. Dýrleiki talinn átta hundruð JÖRFI Á KJALARNESI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.