Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 33
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Tr ú l o f u n a r h r i n g i r
G i f t i n ga r h r i n g i r
D eman t s s k a r tg r i p i r
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
14 kt. gull með demant.
Verð: 130.384,-
14 kt. gull með demöntum, miðju-
steinn 0,50 ct. Verð: 626.121,-
14 kt. gull með demöntum, miðju-
steinn 0,30 ct. Verð: 298.757,-
14 kt. hvítagull með demöntum,
miðjusteinn 0,30 ct. Verð: 437.577,-
14 kt. rósagull með demöntum.
Verð: 337.847,-
14 kt. gull með demöntum.
Verð: 298.386,-
14 kt. rauðagull og hvítagull með
demöntum. Verð: 354.010,-
14 kt. hvítagull með demöntum,
miðjusteinn 0,20 ct. Verð: 315.559,-
14 kt. gull með demöntum.
Verð: 251.716,-
14 kt. gull með demöntum
Verð: 150.909,-
14 kt. gull með 0,25 ct demant.
Verð: 204.266,-
14 kt. gull með demöntum.
Verð: 239.181,-
Gullsmiðir
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Við staðsetjum okkur þannig í
neyslumynstrinu að við bjóðum gott
verð, ferska gæðavöru og mikið úr-
val, höfum langan afgreiðslutíma og
reynt starfsfólk,“ sagði Eiríkur Sig-
urðsson kaupmaður í samtali við
Morgunblaðið, þegar hann og eig-
inkona hans, Helga Gísladóttir, opn-
uðu fyrstu matvöruverslun Víðis fyrir
rétt rúmum sjö árum.
Í gær barst blaðinu yfirlýsing þess
efnis, frá þeim hjónum, að rekstri
Víðisverslananna, sem í millitíðinni
voru orðnar fimm talsins, hafi verið
hætt því rekstur þeirra hafi ekki
gengið sem skyldi.
Fyrst stofnaður fyrir 67 árum
Saga Víðisverslananna nær aftur
til ársins 1951, er Sigurður Matthías-
son og Vigdís Eiríksdóttir, foreldrar
Eiríks, settu fyrstu Víðisverslunina á
laggirnar við Fjölnisveg í Reykjavík.
Seinna færðu þau út kvíarnar með
verslunum í Starmýri, við Austur-
stræti og Seljabraut í Reykjavík.
Enn síðar var opnuð Víðisverslun í
Mjódd.
Víðir sf. var lýst gjaldþrota skv.
frétt mbl.is frá 1998. Eigendur Víðis
hafi þá verið tveir bræður og fjöl-
skyldur þeirra. Eftir það byggði Ei-
ríkur upp verslanakeðjuna 10-11 og
gekk rekstur hennar vel frá upphafi.
Eiríkur og Helga ákváðu að selja
75% af hlut sínum í Vöruveltunni hf.,
rekstrarfélagi 10-11, í október 1998
með milligöngu Íslandsbanka. Jón
Ásgeir Jóhannesson keypti hlutina
og seldi þá Baugi hf. um mitt ár 1999,
en talsverðar deilur spruttu vegna
þeirra viðskipta Jóns Ásgeirs og urðu
kafli hins svokallaða Baugsmáls. Frá
því var sagt í fréttaskýringu Morg-
unblaðsins árið 2008. Verslanir 10-11
eru nú í eigu Samkaupa frá í apríl sl.,
er Víkurfréttir greindu frá.
Víðisverslanir á fimm stöðum
Víðir ehf. var skráður sumarið
2008 og fyrsta verslun Víðis ehf. var
opnuð í Skeifunni árið 2011. Fannst
Eiríki og Helgu við hæfi að nota
gamla Víðisnafnið.
Víðisverslanir urðu þekktar fyrir
mikið og gott úrval af ferskum ávöxt-
um, grænmeti og kjöti ásamt að vera
með forvitnilega fjölbreytni en fyr-
irtækið flutti sjálft inn ýmsa matvöru.
Hálfu ári eftir opnunina í Skeifunni
var Víðir á Garðatorgi í Garðabæ
opnaður skv. frétt Viðskiptablaðsins
um málið og í mars 2013 var Víð-
isverslun opnuð á Sólvallagötu, gegnt
JL-húsinu. Víðisverslunin í Skeifunni
komst í fréttir er hún slapp á „ótrú-
legan hátt“, að sögn Eiríks, í stór-
brunanum í Skeifunni í júlí 2014 og
fengu slökkviliðsmenn Kók og Prins í
versluninni eftir að hafa unnið við
slökkvistörf, greindi vísir.is frá.
Opnuðu nýja verslun í fyrra
Víðir express opnaði í Ingólfs-
stræti í miðbæ Reykjavíkur í desem-
ber 2015, skammt frá verslun Bónuss
við Hallveigarstíg og var með rýmri
afgreiðslutíma á borð við 10-11 búð-
irnar. Víðir opnaði að lokum fimmtu
verslun sína í Borgartúni í mars 2017,
en þær upplýsingar fundust á Face-
book-síðu Víðis.
Einhverjar blikur sáust á lofti þeg-
ar Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðs-
ins, birti frétt 11. október 2017 um að
allt hlutafé Víðis væri til sölu. Rekst-
ur Víðis hafi ekki farið varhluta af
áhrifum opnunar verslunar Costco í
Garðabæ á matvörumarkaðinn, sem
urðu m.a. til þess að hlutabréf Haga
höfðu fallið um 30%. Mánuði síðar
greindi sama blað frá því að eigendur
Víðis hafi hætt við að selja og talið
var að þau hafi í staðinn viljað selja
Víði í Skeifunni.
Óvissa og lokanir Víðis
Viðskiptavinir Víðis komu að lok-
uðum dyrum verslananna og þeir
upplýstir um að lokað væri vegna
breytinga. Fjölmiðlar og aðrir
reyndu að ná í eigendur Víðis í fram-
haldinu, en án árangurs og óvissa
ríkti í nokkra daga um stöðu mála.
Millistjórnendum hafi verið sagt á
fundi með eigendum fyrirtækisins að
lokunin væri tímabundin, skv. frétt
vísir.is frá í gær. Starfsfólk hafi eng-
ar upplýsingar fengið fyrr en tölvu-
póstur hafi verið sendur til þess frá
eigendum Víðis, seint á sunnudags-
kvöld. Þar hafi m.a. komið fram að fé-
lagið væri hætt rekstri og á leið í
gjaldþrot, og starfsfólki ráðlagt að
leita til stéttarfélags síns, skv. óstað-
festum upplýsingum Morgunblaðsins
frá VR, en félagsmenn eru þegar
teknir að leita þangað eftir aðstoð
vegna málsins. Virðist því sem 67 ára
sögu Víðisverslananna sé lokið,
a.m.k. í bili.
Víðir allur eftir langa verslunarsögu
Fjölskyldufyrirtækið fyrst opnað í Reykjavík árið 1951 Bjartsýni við opnun í Skeifunni fyrir sjö
árum Blikur á lofti frá því í haust Dularfull lokun og sögusagnir um yfirvofandi gjaldþrot
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víðir lokar Minni fjölbreytni er að vænta á íslenskum matvörumarkaði en rekstri verslananna hefur verið hætt.