Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 vandræðum. Er þetta rétt hjá Páli? Getur hann farið fram á það að mað- ur segi já eða nei. Er það virkilega þannig? Að þú verðir bara að gjöra svo vel að ganga í þennan flokk eða ekki. Og einhvern veginn æxlaðist það þannig þarna á síðasta sprett- inum hjá mér í náminu að ég varð æ uppteknari af þessari grundvallar- tilvistarspurningu. Svo ég hugsaði með mér, þetta að trúa, það er þá kannski viljaákvörðun manns. Það er þá kannski bara háð vilja manns- ins hvort hann vill trúa eða ekki. Hann getur kosið það að trúa ekki og hann getur líka kosið það að trúa. Og ef ég nú fellst á það hjá Páli að það hljóti nú að vera að kristur sé upprisinn þá er það spurningin bíddu, hverjir eru að segja frá þessu? Eru þetta ekki allt saman einhverjir rammskakkir menn? Eru guðspjallamennirnir ekki að segja frá einhverju sem þeir hafa heyrt aðra segja frá? Og þetta byggist allt á vitnisburði fólks sem þekkti Jes- úm, sem var með honum. Það sagði frá lækningum hans. Kraftaverk- unum. Það er nú margt heldur óskynsamlegt þarna. Og gegn öllu viti og allri reynslu er þessi fullyrð- ing að dauður maður sé upprisinn. Þetta er svo, eins og menn myndu segja í dag, vitlaust. Að láta sér detta þetta í hug. Þetta er alveg út í bláinn að halda þessu fram. En af hverju halda menn þessu fram? Af því að þeir trúa því. Og af hverju trúa þeir því? Vegna þess að þeir hafa tekið mark á þeim sem fullyrtu að þetta hefði gerst. Og þó að þessir menn hafi verið uppi fyrir tvö þús- und árum tæpum eða svo þá eru þeir ekki síður gefnir að öllu leyti heldur en við. Við stöndum ekkert fremri fornmönnum hvað varðar vitsmuni og dómgreind og þess háttar hluti.“ Að taka stökkið „Og ég lendi í þessu að virkilega að berjast í þessari hugsun. Bíddu, var þetta svona eða er þetta bara blekking? Ef þú stendur á bjarg- brún og ákveður að taka stökkið, þá stekkurðu og þú veist ekkert hvern- ig það fer. Og þá er ég ekki að tala um stökkið út í dauðann eða stökkið til þess að tortíma þér heldur taka sénsinn á að stökkva í þeirri trú að – ég trúi til þess að skilja. Þá taka þeir stökkið til þess að reyna trú sína. Þó að þeir séu ekkert lausir við efann frekar en þeir sem velja hina leiðina, að skilja til þess að trúa. Þú ert allt- af að glíma við skynsemina. Þú ert alltaf að glíma við vitsmunina og trú þín verður tóm trúarbarátta. Angist jafnvel. Svo ég eiginlega komst að þeirri niðurstöðu að ef ég tæki mark á Páli með þetta þá yrði ég að taka mér stöðu með kirkju og kristni. Ef ég tek þessa afstöðu. Ég trúi. Ég trúi þessu bara. Hann er sannarlega upprisinn. Þá er ekkert um annað að ræða heldur en að fara og tala um það. Þú verður bara að gjöra svo vel og taka þessari köllun. Þú verður bara að verða prestur. Þú verður að predika. Þú verður að beita þér fyrir fagnaðarerindinu. Þú verður að boða það.“ Messaði í fyrsta skipti í Reyk- holti á afmælisdaginn sinn „Og þannig eiginlega varð það að ég sótti um Reykholt og fékk ekki að sækja um það af því ég var ekki út- skrifaður. Það var annar prestur sem sótti um en söfnuðurinn vildi hann ekki. Þá var Reykholt auglýst aftur, haustið 1978, og ég sótti og ég var vígður hingað og kom hingað og messaði í fyrsta skipti 10. desember 1978, á afmælisdaginn minn. Og kunni nú ósköp lítið annað en guð- fræðina en hér hef ég verið síðan. Þegar við komum hingað í Reyk- holt, við Dagný, var hún nú ekkert ánægð með það að vera að fara út á land en hún féllst á að koma hingað af því að hún hafði verið hér í sveit hjá Halldóru og Andrési Kjerúlf á Akri og Birni Ólafssyni á Varma- landi, þegar hún var stelpa. Hún hafði verið hér í tvö sumur, eitthvað svoleiðis. Svo hún féllst á það, með semingi þó, að við færum hingað. En á þessum tíma var mikill skortur á prestum og það var mikið reynt til að fá mig til að vera prestur á Reyk- hólum. Og það var líka reynt að fá mig til að sækja um Seyðisfjörð. Og það voru fleiri staðir sem stóðu til boða.“ Ófögur sjón sem blasti við í Reykholti Geir lýsir sinni fyrstu heimsókn í Reykholt, haustið 1978, sem ömur- legri. „Það var sannast sagna alveg öm- urlegt að koma hingað. Gamli skól- inn var í niðurníðslu, staðurinn var í niðurníðslu og prestssetrið ónýtt. Það hafði verið dæmt óíbúðarhæft. Það var neglt fyrir gluggana á neðri hæðinni. Það lak. Það var eins og að koma inn í ónýtt hús að koma þar inn. Við komum í rigningu og það voru pollar úti um allt og þetta var mjög ókræsilegt. En við komum upp eftir og fluttum inn í húsið þó að það væri búið að dæma það heilsuspill- andi og byrjuðum að berjast fyrir viðgerð á húsinu. Það var nú ekkert einfalt að fá gert við það. Það tók þrjú ár og svo tvö ár að gera við það. Nema hvað, svo var staðurinn allur í ólestri. Hann hafði verið partaður allur í sundur með leigusamningum. Héraðsskólinn hafði hálfan staðinn á leigu, bóndinn hafði fjórðung úr staðnum í leigu og presturinn átti að hafa fjórðung fyrir sig. Þessi fyrstu ár fóru í að berjast fyrir því að það væri gert við húsið. En það var nú erfitt að fá nokkurn mann til að hlusta á okkur þannig að ég fór að kynna mér kirkjurétt. Því ég varð nú að hafa eitthvað til að standa á ef ég ætlaði að fara að gera kröfur til þess að það yrði tekið mark á kirkj- unni. Gamla kirkjan var líka ónýt. Hún var svo illa farin að hún var eig- inlega ekki nothæf. Fyrsta árið sem við vorum hérna var kirkjugarð- urinn fullur. Sóknarnefndin hafði áhuga á því að fá að stækka kirkju- garðinn. Svoleiðis að fyrsta verklega framkvæmdi hjá okkur var að láta stækka kirkjugarðinn. Hann var stækkaður um tvo metra. Og það var ekkert einfalt að fá það gert vegna þess að skólinn eiginlega réði öllu hérna. Það var svo gjörsamlega búið að afskrifa kirkju hérna á staðnum að meira að segja kirkju- garðsveggurinn var hluti af áhorf- endabekkjum fyrir íþróttaleikvang skólans. Þetta var auðvitað ekki gert í neinum kirkjufjandskap eða ein- hverju slíku. Þetta var bara gert vegna þess að kirkjan hafði algjör- lega þokast út á jaðarinn. Þegar við Dagný fórum að lesa, meðal annars bréf frá séra Einari Guðnasyni, presti í Reykholti frá 1930-1971, um það hvað ætti að vera hér þá sáum við að það hefðu verið miklar umræður um að byggja hér gestastofuhús fyrir fræðimenn til þess að vinna. Menn höfðu talað um bókasafn til þess að minnast Snorra Sturlusonar og ég varð strax var við mikinn áhuga útlendinga á staðnum. Þetta var þannig á þessum árum að skólanum var lokið í maí og svo var rekið Edduhótel hér á sumrin og það byrjaði í kringum 20. júní. Þann- ig að frá miðjum maí og til 20. júní var ekkert. En fullt af ferðafólki. Það þurfti að fara á klósett, það þurfti að borða, það var ekkert að sjá annað en Snorralaug og niður- nídd húsin og allt í drasli hérna. Og svo lauk Edduhótelunum á haustin, í lok ágúst, og þá var ekkert fyrr en 1. október þegar skólinn byrjaði. Og allan tímann voru ferðamenn hérna og það komu gestir. Við Dagný vor- um beðin að taka á móti gestum á vegum ráðuneytanna og sendiráð- anna. Það var alltaf verið að hringja og biðja um fyrirgreiðslu gesta- móttöku. Og húsið eins og það var hjá okkur.“ Vildu byggja Reykholt upp „Svo ég hugsaði með mér að ef þessi staður á að lifa þá verður að byggja hann upp. Það verður að byggja hann upp á þeim forsendum sem hann varð til á. Þó að kirkjunni hafi verið ýtt til hliðar hér í bili þá er kirkjan byrjunin á staðnum. Og ég fór auðvitað að lesa og kynna mér sögu staðarins. Snorra og veru hans hér og þá náttúrlega kemur maður inn í heilan heim sem hafði ekkert verið í huga mér þegar ég gerðist prestur hér. Og við Dagný fórum að sökkva okkur ofan í staðinn og sögu hans og eðli hans. Við ásamt fólkinu í sóknarnefndinni fórum að vinna að því að búa til hugmyndina um Snorrastofu. Hrinda í framkvæmd öllum þessum hugmyndum sem höfðu verið settar fram um staðinn. Það voru ekki mínar hugmyndir, eða okkar hugmyndir. Þetta voru hug- myndir séra Einars Guðnasonar og hinna og þessara sóknarnefndar- manna. Ég safnaði saman þessum hug- myndum og þannig varð hugmyndin að Snorrastofu til. Og þegar við vor- um búin að setja okkur yfir þetta þá spruttu fleiri hugmyndir: það þarf að byggja nýja kirkju og í tengslum við hana þarf að byggja nýja íbúð fyrir fræðimenn til að leigja út. Og í tengslum við kirkjuna þarf að hafa aðstöðu til þess að sýna verk Snorra Sturlusonar og fræða fólk um hann. Og það þarf að vera einhver aðstaða í nýju kirkjunni til að taka á móti fólki, til þess að tala við fólk. Það þarf að komast á klósett. Og við Dagný töluðum um þetta á kvöldin heima og við lögðum fram hugmynd- ina um Reykholtskirkju og Snorra- stofu. Okkur fannst þetta mjög flott- ar hugmyndir. Svo við ákváðum að bjóða til okkar frammáfólki úr hér- aði. Svona úr borgfirsku menningar- elítunni. Við buðum fræðslustjóran- um, hreppsnefndaroddvitum og svona helstu kennurum og mennta- mönnum í héraðinu. Það voru marg- ar tertur og hlaðborð. Dagný bakaði og bakaði og bakaði og smurði brauðtertur og allt saman. Það komu 40 manns í kaffi. Og þegar fólkið var búið að drekka og svona þá stóð ég upp og hélt ræðu og gerði grein fyrir þessum hugmyndum. Mér fannst þetta mjög góð ræða hjá mér. Svo lauk henni og fólkið hélt áfram að drekka kaffi og fljótlega fóru menn að þakka fyrir sig og fara. Ekkert. Ekki einn einasti maður tók undir eitt eða neitt. Það voru engin viðbrögð við öllum þessum hug- myndum. Nema tveir eða þrír úr sóknarnefndinni, þeir sátu og hjálp- uðu okkur að vaska upp og svona. Þeir sögðu að þetta breytti engu þó að fólk hlustaði ekki á þetta núna, „við höldum bara áfram að vinna að þessu,“ sögðu þeir. Og ég fór að skrifa uppkast að stofnskrá. Hvern- ig væri hægt að fá þetta til að ganga upp. Handskrifaði hana. Og svo árið eftir þá var ég byrjaður að skrifa Norðmönnum. Djarfur sko. Skrifaði einhverjum gömlum Norðmönnum sem höfðu talað um Ísland og Snorra og allt þetta og sumir svör- uðu mér og tóku undir hugmynd- irnar og sögðu þetta góðar hug- myndir og tímabærar og allt þetta. Það voru Norðmenn sem hvöttu mig. En við héldum áfram og smátt og smátt fóru menn að taka undir.“ Lífið býður ekki bara sykur og rjóma „Ég leit svo á að ég hefði verið kallaður á þennan stað úr því að söfnuðurinn tók við mér og bisk- upinn vígði mig hingað. Ég var kall- aður á þennan stað til þess að standa fyrir réttindum heilagrar kirkju hér, þar sem ég væri þjónandi prestur. Og þetta væri bara það sem mér bæri að gera. Lífið býður manni ekki bara sykur og rjóma. Það verður hver að fást við þær aðstæður sem að hann er í. Ég var kallaður til þess að verða prestur hér og þetta er bara hluti af pakkanum. Og þannig hefur það bara verið alla tíð. Svoleið- is að slagurinn var tekinn hér, um þetta. Og þegar sóknarnefndin féllst á hugmyndir okkar um Reykholts- kirkju og Snorrastofu gekk það upp. Það komu ólíklegustu menn til liðs við okkur, Jónas Kristjánsson, for- stöðumaður Árnastofnunar, sagði: „Já, góðar hugmyndir. Löngu tíma- bærar.“ Hann kom til liðs við okkur og fólkið hérna heima fór bara beint í verkið. Og þetta gekk með Guðs hjálp eins og það gekk og bjargaði staðn- um. Það þýðir ekki að ég hafi bjarg- að staðnum eða að við höfum bjarg- að staðnum. Heldur bara að staðnum var bjargað. Það eru þús- und og ein ástæða fyrir því að þetta tókst. En fyrst og fremst er það náttúr- lega vegna þess að það bilaði ekki ásetningur okkar um að koma þessu fram. Og nú er þetta risið og ég kominn að því að hætta. Er að verða sjötugur bráðum.“ Tvísýnt eftir hrun „Þetta síðasta tímabil okkar hér í Reykholti hefur verið tímabil mikilla tiltekta og verklegra framkvæmda. Bergur [Þorgeirsson, forstöðumað- ur Snorrastofu] vildi að við fengjum fleiri íbúa. Byggðum götu. Við létum Reykholtsstað framkvæma það. Hallveigartröðin hér fyrir ofan er verk Reykholtsstaðar ehf. Sem þýð- ir það náttúrlega að þetta hefur ver- ið býsna tvísýnt. Sérstaklega eftir hrun. Því að skuldirnar af þessu öllu saman liggja á félaginu og bakvið fé- lagið eru kennitölur Snorrastofu og mín, persónuleg. Þannig ef þetta hefði nú allt farið á hausinn þá hefð- um við farið á hausinn. Af því að ég er lénsprestur. Ég er með Reykholt að léni eins og prestarnir frá upp- hafi. Ég er ekki bara einhver starfs- maður eins og nýju prestarnir eru víðast hvar annars staðar. Reykholt er hluti af embætti mínu. Eins og það var hluti af embætti Finns Jóns- sonar meðan hann var prestur hérna. Þannig að ég ber ábyrgð á staðnum. Bæði til góðs og ills. Þann- ig að ef eitthvað er aðfinnsluvert þá er það mér að kenna og ef það er eitthvað sem er í lagi þá er það mér að þakka. En auðvitað geri ég þetta ekki einn. Það hefur verið mjög gott samband við Berg og Snorrastofu. Bergur hefur verið alveg ótrúlega duglegur að útvega peninga í verk- legar framkvæmdir sem ég hef svo, ásamt Tryggva [Konráðssyni, stað- arhaldara í Reykholti], staðið í að láta framkvæma. Þannig að þetta hefur verið dásamlegur tími.“ Get farið úr þessu embætti, býsna ánægður „Ég er mjög glaður og mjög stolt- ur. Ekki í merkingunni montinn heldur stoltur yfir því að staðurinn skuli vera orðinn svona fallegur og margt í svo góðu lagi sem hugsast getur. Auðvitað vantar mikið upp á að það sé fullkomið. Síðasta stór- verkinu er ekki lokið. Við létum bora nýja borholu og það er ný hitaveita að verulegu leyti á staðnum. Og því verður vonandi lokið á næstu vikum. Þá er það komið í höfn. Þannig að ég get farið úr þessu embætti, býsna ánægður með það sem hefur unnist. Og hef tekið svo miklu ástfóstri við staðinn að við Dagný ætlum að byggja okkur hús og eiga heima hérna áfram. Sem er nú ekki alveg sjálfsagt mál því að auðvitað verður erfitt að skipta sér ekki af þegar maður er hættur. Þetta ætti nú að vera eitthvað fyrir þig að moða úr,“ segir Geir í lokin og stendur upp því tíminn er floginn frá okkur eftir rúmlega tveggja klukkustunda gott spjall. Ljósmynd/Guðlaugur Óskarsson Höfuðból Reykholt er skólasetur, kirkjustaður, prestsetur og gamalt höfuðból í Reykholtsdal. Ljósmynd/Björg Guðlaugsdóttir Í guðshúsi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, og Geir í gömlu kirkjunni í Reykholti. Ljósmynd/Úr einkasafni Fræðimaður Séra Geir í Reykholti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.