Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 44

Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 44
44 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 25. júní. Landsmót hestamanna Veglegt sérblað tileinkað Landsmóti hestamanna fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. júní Blaðið mun gera mótinu, og hestamennsku góð skil með efni fyrir unnendur íslenska hestsins. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Sigríður Hvönn Karlsdóttir Sími: 569 1134 siggahvonn@mbl.is SÉRBLAÐ DAGSKRÁ 13:00 SETNING Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Samgönguáætlun 2019-2033 – staða og helstu áherslur Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs 13:20 FRAMKVÆMDIR Áskoranir, framkvæmdir og fjármögnun Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Skattstofnar ökutækja og eldsneytis – framtíðaráskoranir Benedikt S. Benediktsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti Fjármögnun stærri vegaframkvæmda Eyjólfur Árni Rafnsson, verkfræðingur Umræður: Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB 14:20 Kaffihlé 14:40 ÞJÓNUSTA Almenningssamgöngur – ávinningur af heildstæðri stefnu Árni Freyr Stefánsson, verkfræðingur hjá Mannviti Umræður: Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, og Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar 15:20 ÖRYGGI Umferðaröryggi og samfélagslegur kostnaður Berglind Hallgrímsdóttir, umferðarverkfræðingur hjá Eflu Ástandið í umferðinni og ávinningur af sýnilegu eftirliti Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi Umræður: Sigríður Vala Halldórsdóttir, forstöðumaður hagdeildar hjá Sjóvá, og Haraldur Sigþórsson, verkfræðingur 16:00 TÆKNI Upplýsingatækni, iðnbylting og samgöngur: Hvaða möguleikar skapast í samgöngum með nýrri tækni 4. iðnbyltingarinnar Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík Umræður: Lilja G. Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Viaplan, og Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar 16:30 Léttara hjal með Sóla Hólm, þinglok og léttar veitingar Þingstjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri. Þingið er öllum opið en þátttakendur eru beðnir að skrá sig með tölvupósti, netfang: kristin.hjalmarsdottir@srn.is Samgönguáætlun 2019-2033 21. júní í Súlnasal Hótel Sögu Samgöngu þing 2018 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Sókn stjórnarhers Jemen inn í hafnarborgina Hudaydah er hafin. Nýtur herinn stuðnings frá Sádi-Ar- abíu í baráttu sinni við uppreisnar- sveitir Húta, sem eru studdar af Írönum. Er stríðið í Jemen þannig þáttur í baráttu stjórnvalda í grann- ríkjunum Sádi-Arabíu og Íran um áhrif í Mið-Austurlöndum. Vopnuð átök í Jemen hafa valdið ómældum þjáningum fyrir almenna borgara þar. Er áætlað að yfir 11 milljón börn þurfi á aðstoð að halda, hátt í tvær milljónir vegna vannær- ingar, og greinir breska ríkisútvarp- ið (BBC) frá því að um átta milljónir manns eigi nú á hættu að svelta. Neyð fólks í Jemen er sögð sú mesta frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Borgin Hudaydah er sögð mikil- væg vegna legu sinnar, en uppreisn- armenn Húta hafa að sögn BBC nýtt hafnarsvæðið til að smygla inn vopn- um frá Íran. Þessu hafa hins vegar uppreisnarmenn og stjórnvöld í Te- heran staðfastlega neitað. Stjórnar- herinn í Jemen leggur nú allt kapp á að endurheimta borgina og segist viss um að þá muni Hútar neyðast að samningaborðinu. Sögð marka vendipunkt Talið er að um 600 þúsund manns búi í og við borgina Hudaydah. Robert Mardini hjá Rauða krossin- um segir líklegt að árás stjórnar- hersins muni auka enn frekar á neyð almennings. Óttast Sameinuðu þjóð- irnar að allt að 250 þúsund manns muni missa allt sitt – jafnvel týna lífi. Að sögn BBC hófust árásir hersins eftir að Hútar virtu ekki þann frest sem gefinn hafði verið til að yfirgefa svæðið. Hófst sóknin með loftárásum orrustuþotna og í kjölfarið hófst um- fangsmikill landhernaður. Fréttastöðin al-Arabiya, sem er í eigu Sáda, greinir frá „miklum og af- mörkuðum“ loftárásum nærri hafn- arborginni. „Frelsun Hudaydah- hafnar er vendipunktur þegar kem- ur að því að endurheimta Jemen úr klóm þeirra uppreisnarmanna sem rændu landinu til að þjóna hagsmun- um útlendinga,“ er haft eftir stjórn- völdum. Uppreisnarmenn segjast munu berjast við stjórnarherinn „á öllum vígstöðvum“. Sláandi frásagnir barna Fréttavefur breska ríkisútvarps- ins birtir viðtöl við ung jemensk börn sem hafa þurft að þola afleiðingar styrjaldarinnar þar í landi. Frásagn- ir þessara barna eru sláandi. „Þeir settu [tækið] undir bíl og ég tók það og fór inn í hús. Ég fór upp á þak og áður fór ég til systkina minna. Ég reyndi að opna þetta en það gekk ekki. En þá beitti ég kröftum og tæk- ið sprakk í höndunum á mér og ég fékk í mig sprengjubrot og særðist hér,“ segir barnungur drengur og bendir á höfuð sitt, fótlegg og hand- legg. Vegna þessa missti drengurinn hægri handlegg sinn og er nú með gervilim. „Ég get ekki lengur skrifað í skólanum eða gengið inn á klósett. Ég meina, ég kom á sjúkrahúsið og þeir gáfu mér gervihandlegg. Guði sé lof, ég er þakklátur.“ Ung stúlka segist vona að átök- unum ljúki sem fyrst. Fjölskylda hennar missti heimili sitt í loftárás sem gerð var af stjórnarhernum. „Ég vil að stríðinu ljúki og að húsið okkar sé öruggt. Ég vil bara að við förum aftur í borgina okkar og ég vil að það sé öruggt,“ sagði stúlkan í við- tali við fréttamenn BBC. Sókn hersins inn í Hudaydah nú hafin  Neyð almennra borgara í Jemen gríðarmikil vegna átaka AFP Umkomulaus Barnung stúlka situr við eldstæði í flóttamannabúðum. Hudaydah » Í borginni Hudaydah má finna höfn sem sögð er mikil- væg þegar kemur að vopna- flutningum. » Um 600 þúsund manns búa á svæðinu og er óttast að neyð þess fólks aukist til muna á næstunni. „Var að lenda – langt ferðalag, en öllum getur nú liðið mun öruggar en áður en ég tók við embætti. Það er nú engin kjarnorkuógn af Norður-Kóreu. Fundurinn með Kim Jong-un var áhugaverður og mjög jákvæð upplifun. Norður-Kórea á mikla möguleika til framtíðar.“ Var það forseti Bandaríkjanna, Donald J. Trump, sem ritaði þessa færslu á Twitter eftir för sína til Singapúr. Hitti hann þar fyrir leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong- un, og virtist fara nokkuð vel á með þeim. Óvíst er hverju fundurinn mun skila en skýrendur eru flestir sammála um að brýnt sé að þeir ræðist við og er fundur- inn því sagður mikilvægt skref í rétta átt. BANDARÍKIN „Engin kjarnorkuógn af Norður-Kóreu“ Donald J. Trump

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.