Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 46

Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Almenningur,sem neydd-ur er til þess að standa undir hinni hlut- drægu ríkis- stofnun „RÚV“, hefur enga að- komu að því fyrirtæki. Stjórn, sem sett var upp eins og til málamynda, virðist hafa það meginhlutverk að vera þrýsti- hópur stofnunarinnar gagn- vart ríkisvaldinu og vitagagns- laus fyrir almenning. Lengi vel var talið að lág- markið til að tryggja hlutleysi þessarar stofnunar í samræmi við lög væri tilvera útvarps- ráðs sem teldi sig hafa lýðræð- islegt umboð frá Alþingi og bæri að gæta sérstaklega að hlutleysisþættinum. Það var ekki gallalaus aðferð til að tryggja að fyrirmæli laga um hlutleysi væru ekki þver- brotin, eins og nú er orðið daglegt brauð, og frekar regla en undantekning. Morgunblaðið er ekki opin- ber stofnun, en það leggur sig fram um að gefa öllum færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í blaðinu, óháð skoð- unum. Almenningur hefur því ríkulegan aðgang að blaðinu, en engan að Ríkisútvarpinu! Flest mál sem pólitískur þefur er af frá vinstri verða þegar af þeirri ástæðu að vandræða- máli hjá þessari stofnun. Ríkisútvarpið tekur þátt „fyrir Íslands hönd“ í Söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Ekki er vitað til þess að „RÚV“ hafi gert þann fyrir- vara við stjórn þessarar keppni að Ísrael væri heimil þátttaka í keppninni með því skilyrði að það mætti ekki vinna hana. Hafi stofn- unin ekki gert þann fyrirvara þá er fráleitt að vera með vafninga og rugl eftir að úrslit liggja fyrir. Magnús Ægir Magnússon skrifar um þetta grein í blaðið í gær. Hann rekur hvernig nettröll og kjaftaskar á netinu hafi misst sig eftir að Ísrael vann og krafist þess að Ísland tæki ekki þátt í næstu keppni þar. Magnús segir: „Efnt var til undirskriftasöfnunar á net- inu þar sem þátttaka er að stórum hluta frá útlöndum, meðal annars frá fjarlægum löndum eins og Indónesíu þar sem 90 prósent landsmanna eru múslímar, eingöngu 10% kristnir og engir gyðingar, bú- ið að drepa þá alla eða flæma þá burt.“ Síðar segir Magnús: „Í haust var ákveðið að eyða tíma stjórnarinnar (RÚV) í að ræða á stjórnarfundi „áskoranir einstaklinga til RÚV“ um að sniðganga Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva.“ Magnús taldi að þessi stjórn hefði annað við sinn tíma að gera. En þar sem stjórn „RÚV“ ætli að sökkva sér nið- ur í spurningu um keppni í Ísrael vill Magnús vita hvort „ekki sé rétt að stjórnin komi hið snarasta saman og ræði út- sendingar RÚV frá HM í Rússlandi á sömu nótum?“ Vitnar hann í þessu sambandi til innlimunar Krímskaga og hernaðar í Austur-Úkraínu sem kallað hafi á viðskipta- þvinganir sem enn standi. Það vekur undrun að ofstæki virðist lita sífellt meira þau sjónarmið sem hæst ber hjá „RÚV“ } Andúð „RÚV“ á Ísrael er þekkt Í dag verðurflautað til leiks í opnunarleik heimsmeist- aramóts karla í knattspyrnu. Við- burðurinn er jafn- an talinn stærsti einstaki íþróttaviðburður heimsins að frátöldum Ólympíuleikunum. Keppnin er að þessu sinni sérstök fyrir okkur Íslend- inga, enda ekki verið þátttak- endur áður. Hvernig sem fer kemur Ísland sem sigurvegari frá mótinu, enda verður Ísland á laugardag langfámennasta ríki sem nokkurn tímann hefur látið ljós sitt skína á þessum vettvangi. Það segir sig sjálft að þegar á þennan stall er komið eru engir leikir auðveldir. Að því sögðu verður ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrsta leik, þar sem spil- að verður við Arg- entínu. Íslenska landsliðið hefur þó sýnt að með samheldni, baráttu og öflugri liðsheild getur það haldið í við hvaða keppinaut sem er. Á sama tíma er það til marks um öflugt íþróttalíf landsins að kvennalandsliðið ætlar sér ekki að vera neinn eftirbátur karlanna. Það náði með góðum sigri í vikunni að tryggja sér hreinan úrslitaleik á Laugar- dalsvelli í haust um þátttöku á HM kvenna. Íslendingar geta sannarlega verið stoltir af þessum lands- liðum sínum. Heimsmeistara- keppnin hefur sér- staka þýðingu í ár fyrir Íslendinga} Knattspyrnuveislan hefst í dag V elgengni íslensku landsliðanna í knattspyrnu hefur fyllt okkur stolti, gleði og tilhlökkun. Ár- angurinn blæs líka baráttuanda og krafti í fjölda barna og ung- linga sem fylgjast spennt með sínum fyr- irmyndum. Vegna þessa er hlaupið hraðar, sparkað fastar og stefnt hærra. Íþrótta- fólkið okkar býr yfir metnaði, dugnaði og vinnusemi. Það hefur sett sér markmið, keppt að þeim sama hvað dynur á og haldið í gleðina yfir stórum sem smáum sigrum. Að baki góðum árangri íslensks íþrótta- fólks er þrotlaus vinna þess og samfélags- ins í gegnum áratugina. Í þessu samhengi langar mig að nefna þrennt sem skiptir máli til að styrkja umgjörðina í kringum við íþróttirnar. Í fyrsta lagi fjárfesting í innviðum en það er sú aðstaða sem við búum íþrótta- fólkinu okkar. Í öðru lagi baklandið, en það er fólkið sem leggur sitt af mörkum með stuðningi sínum, elju og ástríðu. Þetta eru fjölskyldurnar, starfsfólkið í íþróttahúsunum, sjálfboðaliðarnir og aðrir velunn- arar. Þau eru að uppskera ríkulega þessa dagana. Í þriðja lagi jafn aðgangur að íþróttastarfi, óháð að- stæðum og efnahag. Það skiptir sköpum að öll börn njóti jafnra tækifæra til þátttöku í íþrótta- og tóm- stundastarfi, en rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif þess að taka þátt í slíku starfi. Framundan eru spennandi og skemmti- legir tímar. Ævintýrið í Rússlandi er rétt að byrja. Við fylgjumst spennt með fram- gangi karlalandsliðsins sem brátt spilar sinn fyrsta heimsmeistaramótsleik gegn Argentínu. Ísland er fámennasta ríki ver- aldar til að vinna sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu og vegna þessa bein- ast augu margra hingað í undrun og for- vitni yfir þessum árangri. Í tengslum við fyrsta leikinn í Moskvu er skipulögð menn- ingarkynning á vegum íslenskra stjórn- valda þar í borg. Sérstök áhersla er lögð á barnabókmenntir og tónlist. Með því vilj- um við tengja saman íþróttir og menningu og kynna þá miklu grósku sem á sér stað á báðum þessum sviðum. Íþróttir eru samofnar þjóðarsálinni. Það er því engin tilviljun að sameiningarmáttur íþróttanna er mikill. Íþróttafólkið okkar veitir innblástur og tæki- færi til þess að efna til mannamóta og gleðjast. Sem ráðherra íþróttamála sendi ég baráttukveðjur og bestu óskir til Rússlands og óska öllum landsmönnum gleðilegrar fótboltahátíðar næstu vikurnar þar sem slagorðið verður tvímælalaust: Áfram Ísland! Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Ævintýrið í Rússlandi að hefjast Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í skýrslunni hafa rannsakendur útlistað hvers konar stjórntæki henti aðstæðum á Íslandi. Þar segir að ef ná eigi settum markmiðum um sjálf- bæra þróun í ferðaþjónustu þurfi í fyrsta lagi að setja sér slík markmið, og í kjölfarið fara í greinargóða stefnumótun og lagasetningu sem tekur til greina umhverfis-, félags- og efnahagsleg svið atvinnulífs með langtímasjónarmið í huga. Sam- göngur, orka og auðlindir, úrgangs- mál og menningarmál eru meðal þeirra sviða sem þurfi að taka tillit til ferðaþjónustunnar í sinni stefnumót- un. Með því að virkja breiðari hóp geti orðið meiri sátt með stefnumót- unina. Þörf á meiri dreifingu Aukin dreifing ferðamanna um landið hefur lengi verið í deiglunni hér á landi og áhersla lögð á innan stjórnsýslunnar, en herferðir á veg- um Íslandsstofu hafa m.a. haft það að leiðarljósi. Í skýrslunni er eindregið mælt með því að dreifa ferðamönnum á Íslandi yfir fleiri staði. Því tak- marki er hægt að ná með beitingu markaðssókna og betrumbætingu innviða og samgangna þeirra staða sem sátt er um að ferðamenn dreifist á. Einnig er bent á að til að koma í veg fyrir að fjöldi heimsóknargesta fari fram úr þolmörkum áfanga- staðar sé viðeigandi að setja reglu- verk um aðgengi; aðgangsgjöld, tak- mörkun fyrirframbókana og takmörkun hópastærða, í samvinnu við stjórnvöld. Mikilvægi sjálfbærni í ferðaþjónustu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Náttúran Skýrsla um sjálfbæra þróun ferðaþjónustu á Norðurlöndunum segir rétt almennings að náttúrusvæðum á Íslandi ríkari en annars staðar. FRÉTTASKÝRING Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Sjálfbærni í ferðaþjónustu áNorðurlöndunum er um-fjöllunarefni nýrrar skýrsluá vegum Norrænu ráð- herranefndarinnar sem kom út á dögunum. Þar segir m.a. að viðfangs- efni ferðaþjónustu á Íslandi felist í samræmingu regluverks og að mik- ilvægt sé að huga að helsta aðdrátt- arafli íslenskrar ferðaþjónustu, ósnortinni náttúru. Rannsókn- arhópur á vegum ráðherranefnd- arinnar vann skýrsluna, sem að sögn Björns Helga Barkarsonar, sérfræð- ings í umhverfis- og auðlinda- ráðuneytinu, gefur heildræna sýn á stöðu ferðaþjónustunnar í norðrinu. „Þarna koma saman sérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum sem varpa sameiginlega ljósi á áskoranir sem þetta svæði heimsins stendur frammi fyrir í ferðaþjónustu.“ Á öllum Norðurlöndum hefur ferðamönnum fjölgað jafnt og þétt en Högne Øian, einn af höfundum skýrslunnar, segir að æ fleiri ferða- menn séu tilbúnir að eyða meiri tíma og peningum í náttúruupplifanir en áður. Því stækki sífellt úrtak þeirra ferðamanna sem vilji sækja þessi löndheim. Sérstakar aðstæður á Íslandi Helstu áskoranir Íslands er varða sjálfbæra ferðaþjónustu eru sagðar tengjast regluverki og stefnu- mótunarvinnu. Í grunninn sé stjórn- kerfið enn að laga sig að auknum fjölda ferðamanna, þó að margt ágætt hafi átt sér stað frá fjölg- uninni. Þá sé staðsetning grein- arinnar innan hagkerfisins enn í mót- un. Ferðaþjónusta leikur í dag stórt hlutverk í hagkerfi Íslands, sem ger- ir hana að atvinnugrein sem margir gera tilkall til. Það getur því verið flókið að samræma regluverk fyrir grein sem tengist þvert inn á hin ýmsu svið atvinnulífsins, segir í skýrslunni. Þá flækir einnig málið að í grunninn hafi almenningur á Norð- urlöndunum í mörgum tilfellum al- mannarétt til náttúrunnar, sem tíðk- ast mun meira en í öðrum löndum þar sem aðgangur er víðast hvar tak- markaður. Því sé flóknara í vöfum að innleiða aðgangsgjöld að helstu ferðamannastöðum, sem bæði Ísland og Noregur hafi rekið sig á. Aukinn fjöldi ferðamanna sem sækir í náttúruupplifanir veld- ur háværari kröfu um sjálf- bæra þróun í ferðaþjónustu, segir í skýrslu um sjálfbæra þróun í ferðaþjónustu. Í skýrsl- unni segir að ýmsar sam- félagslegar ástæður liggi að baki fjölgun náttúruferða- manna. Aukin sókn í þéttbýli, efnahagslegur vöxtur, aukin innkoma og sveigjanlegur vinnutími fólks hafi orðið til þess að fólk sæki meir í nátt- úrutengdar upplifanir. Þar seg- ir jafnframt að notkun náttúru sem vöru í ferðaþjónustu sé í senn mótsagnakennd og ekki sjálfbær. Það megi því teljast eðlileg þróun að auknar höml- ur verði settar á fjölfarin svæði á Íslandi en einnig verði lögð áframhaldandi áhersla á dreifingu ferðamanna um allt land, til að tryggja að ferða- maðurinn fái þá vöru sem hann taldi sig kaupa, sem er náttúruupplifun. Verndun upplifana HELSTA AÐDRÁTTARAFL NORÐURLANDANNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.