Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 Reykjavík Litskrúðugt leiktæki á Arnarhóli kallast á við nýbyggingarnar sem verið er að fullgera við Hafnartorg. Þar var starfsmaður uppi á þaki við vinnu sína og verið er að klæða ytra byrðið. Arnþór Birkisson Laugardaginn 9. júní komu um 50 manns saman fyrir utan sendi- ráð Stóra-Bretlands í Reykjavík til þess að mótmæla fangelsun breska aðgerðasinnans og fréttamannsins Tommy Robinson þann 25. maí síðastliðinn. Tommy Robinson var handtekinn á götu fyrir utan dómshús í Leeds fyrir að segja fréttir af réttarhöldum yfir 29 pakistönskum múslimum sem á árunum 2004-2011 svívirtu hundr- uð barnungra stúlkna í Jórvíkurskíri. Tommy Robinson var að streyma fréttum af vettvangi þegar hann var handtekinn. Tommy var eini frétta- maðurinn sem flutti fréttir af vett- vangi í Leeds; enginn annar frétta- maður var þar til þess að fjalla um réttarhöldin. Enginn. Tommy var umsvifalaust leiddur fyrir dómara, neitað um lögmann og dæmdur í 13 mánaða fangelsi fyrir að „lítilsvirða réttinn“. Dómarinn setti fréttabann á breska fjölmiðla um dóm Tommy Robinson. Mótmæli hafa verið víða um heim og yfir 500 þúsund manns hafa skrifað undir kröfu um frelsun Tommy. Ljós frelsis slokknaði í Bretlandi. Grundvallarreglur siðaðs samfélags Ég ávarpaði samstöðufundinn fyr- ir utan sendiráðið. Þar var ekki spurt hvort við værum sammála eða ósam- mála Tommy Robinson. Það var spurt um grundvallareglur siðaðs samfélags. Málfrelsi og leikreglur réttarríkisins voru þverbrotnar í Leeds þann 25. maí. Ég hef sjálfur staðið frammi fyrir dyrum lokaðra réttarhalda og flutt fréttir þar sem ég ekki fékk aðgang að rétt- arsal. Það var ákvörðun dómara og enginn gerði athugasemdir enda hagsmunir fórn- arlamba en ekki ger- enda hafðir í huga. Engum datt í hug að varpa mér í fangelsi. Tommy Rob- inson var ekki að skýra frá inntaki réttarhaldanna heldur skýra frá ákærum sem höfðu birst á opinber- um vettvangi. Mál Tommy Robinson varpar ljósi á skipulagt brottnám stúlkna um þvert og endilangt Bretland af mús- limskum nauðgunargengjum, fyrst og fremst af pakistönskum uppruna. Svívirðan er kölluð „child grooming scandals“. Níðingarnir eru verndaðir af breskum yfirvöldum; pólitík, fé- lagsmálayfirvöldum, lögreglu og falsmiðlum með ríkisfréttir BBC í broddi fylkingar. Þeir sem vekja at- hygli á svívirðunni og taka til varna fyrir konur og stúlkur eru hundeltir, ofsóttir og fangelsaðir. Hryllingur í Rotherham, Rochdale og Telford Sunday Times hóf í upphafi þessa áratugar að upplýsa um samsæri fé- lagsmálayfirvalda og lögreglu um að hylma yfir glæpi múslima, einkum frá Pakistan. Þúsundum stúlkna undir lögaldri hefur verið rænt; þær gerðar bjargarlausar með fíkniefn- um og áfengi; þeim komið fyrir á „eins barns“ barnaheimilum í eigu fasteignafélaga og þaðan ekið til staða þar sem tugir íslamskra karl- manna koma saman og svívirða þær og nauðga. Sunday Times komst yfir gögn sem staðfesta svívirðu yfirvalda í Rotherham og einnig í Rochdale. Sunday Times taldi 40 „einsbarns- barnaheimili“ í Rochdale. Blaðið var sakað um rasisma og bæjaryfirvöld í Rotherham létu fara fram rannsókn á lekanum en ekki glæpum sem eiga rætur í trúarbrögðum Íslams. The Mirror hefur upplýst um „versta barnaníð Bretlands“ í Tel- ford, 170 þúsund manna bæ. „Hundr- uðum ungra stúlkna nauðgað, barð- ar, svívirtar og seldar í kynlífs- ánauð,“ sagði í fyrirsögn blaðsins. Sama munstur er í Telford, mús- limskir karlmenn eru að baki sví- virðunni sem staðið hefur yfir í um 40 ár og yfirvöld vitað af í aldarfjórðung án þess að aðhafast. Í Telford eru á annað þúsund fórnarlömb. Barn- ungar stúlkur hafa týnt lífi sínu. Allt að milljón stúlkur og ungar konur hafa verið svívirtar um þvert og endi- langt Stóra-Bretland af múslimskum nauðgunargengjum. Mesta þjóðarskömm í sögu Breta Samsæri yfirvalda og barnaníðing- anna er mesta þjóðarskömm breskr- ar sögu og endurspeglar skelfilegt ástand á Bretlandi sem er orðið „semi-íslamskt“ ríki. Í stað þess að takast á við skömmina og vandann þá ræðst bresk kerfis-elíta á þá sem vekja athygli á glæpum múslima og fangelsar saklausa menn. Meginvandi Evrópu er íslamsvæð- ing álfunnar. Fyrir því lokar bresk kerfis-elíta augunum. Þeir sem spyrna við fótum eru ofsóttir og fangelsaðir. Elítan lætur sig engu skipta örlög þúsunda, hundruð þús- unda stúlkna sem eru fórnarlömb svívirðilegs ofbeldis en á sama tíma ráðast fjölmiðlar miskunnarlaust á æru manna, líkt og söngvarans góð- kunna Cliff Richards, raunar fleiri og fleiri. Blaðamenn umkringja slíka menn líkt og hrægammar bráð í and- arslitrum en sjást ekki við réttarhöld múslima. Þegar Churchill stóð einn og af galskap í Reykjavík Fyrir 80 árum stóð Winston Churchill einn gegn Hitler og níð- ingum hans. Winston Churchill vissi hvað var í húfi. Sjálft frelsið og vest- ræn siðmenning voru í húfi. Mið- aldamyrkur nazisma var sigrað. Í dag er frelsi Bretlands að veði. Miðaldamyrkur íslams ógnar frelsi, lýðræði og vestrænni siðmenningu. „Mikil er bölvun Múhameðs yfir fylgjendum sínum,“ sagði Churchill. Vestræn siðmenning er í húfi; frelsi, lýðræði og málfrelsi er í húfi. Í Reykjavík bregða valdhafar fæti fyrir samtök sem í bráðum 125 ár hafa unnið með okkar minnstu bræðrum og systrum. Í Reykjavík vísa valdhafar á dyr samtökum sem í 40 ár hafa unnið með útigangsfólki. Í Reykjavík svipta valdhafar börn kærleiksboðskap Krists sem fylgt hefur þjóðinni í þúsund ár. Í Reykja- vík hygla valdhafar íslömskum vin- um sínum sem hafa heitið að koma hér á íslömskum Sharia-lögum og binda enda á vestræna og íslenska siðmenningu. Þetta er svo galið að tekur út yfir allan þjófabálk: Reyk- vískir valdhafar grafa undan mátt- arstoðum íslensks samfélags og vild- arvinir þeirra stefna að íslömsku alræði. Stóra Bretland er víti til varnaðar. Það er raunveruleg hætta á að þessi nágranni okkar verði íslamskt alræð- isríki. Fólkið fyrir utan breska sendi- ráðið strengdi þess heit að láta ekki kúga sig til þagnar heldur standa með lýðræði, jafnrétti og málfrelsi; alþýðumanninum Tommy Robinson og heill kvenna og stúlkna, sama hvert gjaldið er. Þöggun íslenskra fjölmiðla Enginn fjölmiðill mætti á fundinn til stuðnings Tommy, enginn fremur en fyrir utan dómshúsið í Leeds. Ís- lenskir blaðamenn taka þátt í þöggun glæpa sem eiga sér ekki fordæmi í sögu vestrænna lýðræðisþjóða. Hurðum er skellt á alþýðufólk. Elít- an í hroka sínum hlustar ekki, sviptir alþýðufólk rödd sinni og fangelsar. Skömm Breta er mikil. Þjóðsöngur Breta var leikinn við sendiráðið. „God save the Queen.“ Að því loknu var kyrrðarstund. Hve lengi biðja Bretar um blessun Drottins, þjóð- höfðingja sínum til handa? Syngja Íslendingar „Ó, Guð vors lands“ þegar kemur fram yfir miðja 21. öld? Eftir Hall Hallsson » Íslenskir fjölmiðlar taka þátt í þöggun glæpa og grimmdar- verka sem eiga sér ekki fordæmi í sögu vest- rænna lýðræðisþjóða. Hallur Hallsson Höfundur er fréttamaður. Miðaldamyrkur fjölmenningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.