Morgunblaðið - 14.06.2018, Síða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Reykjavík Litskrúðugt leiktæki á Arnarhóli kallast á við nýbyggingarnar sem verið er að fullgera við Hafnartorg. Þar var starfsmaður uppi á þaki við vinnu sína og verið er að klæða ytra byrðið.
Arnþór Birkisson
Laugardaginn 9. júní
komu um 50 manns
saman fyrir utan sendi-
ráð Stóra-Bretlands í
Reykjavík til þess að
mótmæla fangelsun
breska aðgerðasinnans
og fréttamannsins
Tommy Robinson þann
25. maí síðastliðinn.
Tommy Robinson var
handtekinn á götu fyrir
utan dómshús í Leeds
fyrir að segja fréttir af réttarhöldum
yfir 29 pakistönskum múslimum sem
á árunum 2004-2011 svívirtu hundr-
uð barnungra stúlkna í Jórvíkurskíri.
Tommy Robinson var að streyma
fréttum af vettvangi þegar hann var
handtekinn. Tommy var eini frétta-
maðurinn sem flutti fréttir af vett-
vangi í Leeds; enginn annar frétta-
maður var þar til þess að fjalla um
réttarhöldin. Enginn.
Tommy var umsvifalaust leiddur
fyrir dómara, neitað um lögmann og
dæmdur í 13 mánaða fangelsi fyrir að
„lítilsvirða réttinn“. Dómarinn setti
fréttabann á breska fjölmiðla um
dóm Tommy Robinson. Mótmæli
hafa verið víða um heim og yfir 500
þúsund manns hafa skrifað undir
kröfu um frelsun Tommy.
Ljós frelsis slokknaði í Bretlandi.
Grundvallarreglur
siðaðs samfélags
Ég ávarpaði samstöðufundinn fyr-
ir utan sendiráðið. Þar var ekki spurt
hvort við værum sammála eða ósam-
mála Tommy Robinson. Það var
spurt um grundvallareglur siðaðs
samfélags. Málfrelsi og leikreglur
réttarríkisins voru
þverbrotnar í Leeds
þann 25. maí. Ég hef
sjálfur staðið frammi
fyrir dyrum lokaðra
réttarhalda og flutt
fréttir þar sem ég ekki
fékk aðgang að rétt-
arsal. Það var ákvörðun
dómara og enginn gerði
athugasemdir enda
hagsmunir fórn-
arlamba en ekki ger-
enda hafðir í huga.
Engum datt í hug að
varpa mér í fangelsi. Tommy Rob-
inson var ekki að skýra frá inntaki
réttarhaldanna heldur skýra frá
ákærum sem höfðu birst á opinber-
um vettvangi.
Mál Tommy Robinson varpar ljósi
á skipulagt brottnám stúlkna um
þvert og endilangt Bretland af mús-
limskum nauðgunargengjum, fyrst
og fremst af pakistönskum uppruna.
Svívirðan er kölluð „child grooming
scandals“. Níðingarnir eru verndaðir
af breskum yfirvöldum; pólitík, fé-
lagsmálayfirvöldum, lögreglu og
falsmiðlum með ríkisfréttir BBC í
broddi fylkingar. Þeir sem vekja at-
hygli á svívirðunni og taka til varna
fyrir konur og stúlkur eru hundeltir,
ofsóttir og fangelsaðir.
Hryllingur í Rotherham,
Rochdale og Telford
Sunday Times hóf í upphafi þessa
áratugar að upplýsa um samsæri fé-
lagsmálayfirvalda og lögreglu um að
hylma yfir glæpi múslima, einkum
frá Pakistan. Þúsundum stúlkna
undir lögaldri hefur verið rænt; þær
gerðar bjargarlausar með fíkniefn-
um og áfengi; þeim komið fyrir á
„eins barns“ barnaheimilum í eigu
fasteignafélaga og þaðan ekið til
staða þar sem tugir íslamskra karl-
manna koma saman og svívirða þær
og nauðga. Sunday Times komst yfir
gögn sem staðfesta svívirðu yfirvalda
í Rotherham og einnig í Rochdale.
Sunday Times taldi 40 „einsbarns-
barnaheimili“ í Rochdale. Blaðið var
sakað um rasisma og bæjaryfirvöld í
Rotherham létu fara fram rannsókn
á lekanum en ekki glæpum sem eiga
rætur í trúarbrögðum Íslams.
The Mirror hefur upplýst um
„versta barnaníð Bretlands“ í Tel-
ford, 170 þúsund manna bæ. „Hundr-
uðum ungra stúlkna nauðgað, barð-
ar, svívirtar og seldar í kynlífs-
ánauð,“ sagði í fyrirsögn blaðsins.
Sama munstur er í Telford, mús-
limskir karlmenn eru að baki sví-
virðunni sem staðið hefur yfir í um 40
ár og yfirvöld vitað af í aldarfjórðung
án þess að aðhafast. Í Telford eru á
annað þúsund fórnarlömb. Barn-
ungar stúlkur hafa týnt lífi sínu. Allt
að milljón stúlkur og ungar konur
hafa verið svívirtar um þvert og endi-
langt Stóra-Bretland af múslimskum
nauðgunargengjum.
Mesta þjóðarskömm
í sögu Breta
Samsæri yfirvalda og barnaníðing-
anna er mesta þjóðarskömm breskr-
ar sögu og endurspeglar skelfilegt
ástand á Bretlandi sem er orðið
„semi-íslamskt“ ríki. Í stað þess að
takast á við skömmina og vandann þá
ræðst bresk kerfis-elíta á þá sem
vekja athygli á glæpum múslima og
fangelsar saklausa menn.
Meginvandi Evrópu er íslamsvæð-
ing álfunnar. Fyrir því lokar bresk
kerfis-elíta augunum. Þeir sem
spyrna við fótum eru ofsóttir og
fangelsaðir. Elítan lætur sig engu
skipta örlög þúsunda, hundruð þús-
unda stúlkna sem eru fórnarlömb
svívirðilegs ofbeldis en á sama tíma
ráðast fjölmiðlar miskunnarlaust á
æru manna, líkt og söngvarans góð-
kunna Cliff Richards, raunar fleiri og
fleiri. Blaðamenn umkringja slíka
menn líkt og hrægammar bráð í and-
arslitrum en sjást ekki við réttarhöld
múslima.
Þegar Churchill stóð einn
og af galskap í Reykjavík
Fyrir 80 árum stóð Winston
Churchill einn gegn Hitler og níð-
ingum hans. Winston Churchill vissi
hvað var í húfi. Sjálft frelsið og vest-
ræn siðmenning voru í húfi. Mið-
aldamyrkur nazisma var sigrað.
Í dag er frelsi Bretlands að veði.
Miðaldamyrkur íslams ógnar frelsi,
lýðræði og vestrænni siðmenningu.
„Mikil er bölvun Múhameðs yfir
fylgjendum sínum,“ sagði Churchill.
Vestræn siðmenning er í húfi; frelsi,
lýðræði og málfrelsi er í húfi.
Í Reykjavík bregða valdhafar fæti
fyrir samtök sem í bráðum 125 ár
hafa unnið með okkar minnstu
bræðrum og systrum. Í Reykjavík
vísa valdhafar á dyr samtökum sem í
40 ár hafa unnið með útigangsfólki. Í
Reykjavík svipta valdhafar börn
kærleiksboðskap Krists sem fylgt
hefur þjóðinni í þúsund ár. Í Reykja-
vík hygla valdhafar íslömskum vin-
um sínum sem hafa heitið að koma
hér á íslömskum Sharia-lögum og
binda enda á vestræna og íslenska
siðmenningu. Þetta er svo galið að
tekur út yfir allan þjófabálk: Reyk-
vískir valdhafar grafa undan mátt-
arstoðum íslensks samfélags og vild-
arvinir þeirra stefna að íslömsku
alræði.
Stóra Bretland er víti til varnaðar.
Það er raunveruleg hætta á að þessi
nágranni okkar verði íslamskt alræð-
isríki. Fólkið fyrir utan breska sendi-
ráðið strengdi þess heit að láta ekki
kúga sig til þagnar heldur standa
með lýðræði, jafnrétti og málfrelsi;
alþýðumanninum Tommy Robinson
og heill kvenna og stúlkna, sama
hvert gjaldið er.
Þöggun íslenskra fjölmiðla
Enginn fjölmiðill mætti á fundinn
til stuðnings Tommy, enginn fremur
en fyrir utan dómshúsið í Leeds. Ís-
lenskir blaðamenn taka þátt í þöggun
glæpa sem eiga sér ekki fordæmi í
sögu vestrænna lýðræðisþjóða.
Hurðum er skellt á alþýðufólk. Elít-
an í hroka sínum hlustar ekki, sviptir
alþýðufólk rödd sinni og fangelsar.
Skömm Breta er mikil. Þjóðsöngur
Breta var leikinn við sendiráðið.
„God save the Queen.“ Að því loknu
var kyrrðarstund. Hve lengi biðja
Bretar um blessun Drottins, þjóð-
höfðingja sínum til handa?
Syngja Íslendingar „Ó, Guð vors
lands“ þegar kemur fram yfir miðja
21. öld?
Eftir Hall Hallsson » Íslenskir fjölmiðlar
taka þátt í þöggun
glæpa og grimmdar-
verka sem eiga sér ekki
fordæmi í sögu vest-
rænna lýðræðisþjóða.
Hallur Hallsson
Höfundur er fréttamaður.
Miðaldamyrkur fjölmenningar