Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 54
Blágrænn eða grænblár? Litirnir
tveir endurspeglast á einstakan hátt
í gríska sjónum þar sem sól skín í
heiði og stafrænir hitamælar snjall-
tækja sýna 30 gráða hita dag eftir
dag. Í miðjum búferlaflutningum
K100/Hvati
Sögustaðir Það ber margt fyrir augu þegar ferðast er um Grikkland. Horft frá Akrópólishæð yfir Aþenuborg.
Spriklandi á Grikklandi
Eyjan Agistri Hvern dreymir ekki um að njóta lífsins á strönd sem þessari?
Hvati í Magasíninu á
K100 fór í óvænta ferð
til Grikklands ásamt
konu sinni þar sem þau
nutu lífsins ásamt hópi
Íslendinga. Hann komst
að því að það er ekki að
ástæðulausu að talað er
um landið sem perlu í
Miðjarðarhafinu.
vorum við hjónin send í óvænta ell-
efu daga sólar- og slökunarferð til
Grikklands í tilefni brúðkaups-
afmælis okkar. Allt hófst þetta með
því að forsvarsmenn Heimsferða
birtust óvænt í stúdíói K100 og
færðu mér gjafabréf. Hulda Bjarna-
dóttir, minn elskulegi samstarfs-
maður í síðdegisþættinum Magasín-
inu, hafði komið þessu í kring í
tengslum við samstarf Heimsferða
og K100.
Fyrstu dagana í grísku sólinni
vorum við hjónin eins og táningar,
sváfum mikið og hvíldumst hvort
sem var á hótelherberginu, við sund-
laugarbakkann eða ströndina sem
Heppin Hjónin Hvati og Dóra
Hanna heimsóttu Grikkland.
var rétt handan Alkyon-hótelsins í
gríska þorpinu Vrachati nærri bæn-
um Loutraki.
Á milli þess sem við nutum góða
veðursins, gómsæta gríska matarins
og skemmtilegra stunda með hópi
Íslendinga á hótelinu skoðuðum við
umhverfið. Dagsferð til Aþenu var
eftirminnileg, þar sem við kynntum
okkur grískar fornminjar. Við geng-
um upp á Akrópólishæð, sem er svo-
kölluð háborg í um 150 metra hæð.
Meðal þekktra fornminja þar er
gríska Meyjarhofið.
Einn af hápunktum ferðarinnar
var dagsferð sem við hjónin fórum í
með öðrum ferðavönum hjónum sem
hafa siglt víða um heimsins höf. Frá
bænum Isthmia sigldum við í rúmar
tvær klukkustundir til eyjarinnar
Aegina, þar sem íbúafjöldinn fer úr
12.000 í rúm 30.000 á sumrin. Eftir
hestaferð um miðbæ eyjarinnar,
göngutúr og hvíld undir sólskyggni á
grískum bar sigldum við til eyj-
arinnar Agistri. Þar búa aðeins um
1.000 manns, en eyjan er vinsæll frí-
staður Grikkja. Dagsferðinni lauk
með magnaðri siglingu í gegnum
skipaskurð sem kenndur er við Kor-
intu. Skurðurinn er rúmlega 6 km
langur og rúmir 20 metrar að
breidd. Maður fyllist lotningu að
sigla þarna um, en sagan segir að
um 5.000 manns hafi grafið skurðinn
á 13 árum.
hvati@k100.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
„Í rauninni eins og ég vinn þá sé ég
bæði þá sem eru farnir og líka inn í
hugann á þeim sem eru lifandi,“ segir
Bára Hilmarsdóttir, sem hefur starf-
að sem miðill í tæp tuttugu ár. „Þetta
eru mínir hæfileikar, ég veit ekki með
aðra.“ Þegar hún er spurð að því
hvort hún geti opnað og lokað fyrir
hæfileikana segist hún ná að loka á
milli því annað væri of mikið vesen. „Í
rauninni tekur það mig sekúndubrot
að opna fyrir. Þannig að ég veit ekki
einu sinni sjálf hvernig ég geri þetta.
Ég bara opna og loka.“ Rúnar Freyr
var agndofa yfir þessum svörum og
velti því fyrir sér hvort hann gæti þá
ekkert varið sig og hvort Bára gæti
hreinlega séð hvað hann væri að
hugsa. „Ég er svo kurteis,“ segir
Bára. „Ég myndi ekki kunna við að
fara inn í hausinn á þér nema að þú
gæfir mér leyfi til þess, annað er bara
dónaskapur. Ég gæti kannski ekki
sagt hvað þú ert að hugsa en ég fyndi
tilfinningarnar þínar og hvernig þér
liði.“ Spurð hvort fólk sé þá hreinlega
ekki hrætt við hana segir Bára hlæj-
andi að það sé ekki raunin og sér-
staklega ekki þegar það þekki hana.
„Ég er svo mikil brussa og létt að það
er ekkert hægt að vera hrædd við
mig.“
Við verðum að trúa til að sigra
„Ég er ekki að sjá þá kafna úr
stressi. Það er svo sterk orkan í þeim
og þeir eru svo ákveðnir,“ segir Bára
um strákana okkar sem alþjóð veit að
eru í Rússlandi á HM. „Sjáum til
dæmis Gylfa Þór, hann veit að hann
er góður en samt er hann ekki egóisti.
Hann er svona karakter að þegar
hann getur ekki eitthvað fer hann og
lærir það þangað til hann nær því og
er ekkert að stressa sig á því hvort
hann sé betri en aðrir eða ekki, hann
er bara bestur.“
Um helgina er fram undan eitt
stærsta verkefni sem strákarnir hafa
tekið að sér þegar þeir keppa við Arg-
entínumenn. Okkur lá forvitni á að
vita hvernig þeim reiðir af og hvort
við sem þjóð getum hjálpað þeim með
einhverjum hætti. „Strákarnir trúa
því að þeir geti ráðið við það en þá
vantar hjálp frá okkur Íslendingum.
Við verðum að trúa því að þeir geti
unnið þá og verðum að setja það inn í
hugann okkar. Fókusið á strákana en
ekki ykkur sjálf, við erum ekki að
fara að keppa, þeir eru að fara að
gera það,“ segir Bára að lokum.
rikka@k100.is
Strákarnir þurfa á
hjálp okkar að halda
Bára miðill „Við verðum að t́rúa.“
Bára Hilmarsdóttir miðill mætti í morgunþáttinn Ís-
land vaknar, þar sem hún setti sig inn í huga strák-
ana okkar sem staddir eru í Rússlandi. Hún segir
mikilvægt að þjóðin hugsi jákvætt til þeirra og
sendi þeim andlegan styrk.