Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 56
56 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 ✝ Jón Bergþórs-son fæddist 12. september 1924 í Fljótstungu í Hvít- ársíðu í Borgar- firði. Hann lést á Hjúkrunarheimil- inu Sóltúni 4. júní 2018. Faðir Jóns var Bergþór Jónsson, bóndi í Fljótstungu, f. 1887, d. 1955. Móðir Jóns var Kristín Páls- dóttir húsfreyja, f. 1885, d. 1965. Jón átti sex systkini: Guð- rúnu, f. 1920, d. 2015, Þor- björgu, f. 1921, d. 1981, Pál, f. 1923, Sigrúnu, f. 1927, d. 2016, Gyðu, f. 1929, og Ingibjörgu, f. 1930, d. 2014. Jón kynntist eiginkonu sinni Kristínu S. Njarðvík leiðsögu- manni, f. 27. júlí 1929, d. 3. febr- úar 2013, þegar hún kom sem kennslukona í Hvítársíðuna. Kristín var dóttir Sóleyjar Sig- urðardóttur Njarðvík sauma- konu. Jón og Kristín settust að í Reykjavík og giftu sig 5. ágúst 1950. Börn þeirra eru: I) Brynja Jónsdóttir kennari, f. 14. októ- ber 1950, gift Jóni Jóhannssyni bónda. Dóttir þeirra er Kristín Björk Jónsdóttir, f. 1979. Hún var gift Halldóri Gunnarssyni, þau skildu. Börn þeirra eru a) Guðný Björk Halldórsdóttir, f. 1998, og b) Jóhann Atli Hall- dórsson, f. 2005. II) Guðrún Börn þeirra eru 1) Guðmundur Bergþórsson, f. 1982, giftur Bertu Gunnarsdóttur. Börn þeirra eru a) Rósa Guðmunds- dóttir, f. 2013, og b) Jón Kalman Guðmundsson, f. 2017. 2) Jón Bergþórsson, f. 1986, sambýlis- kona hans er Hildur Mark- úsdóttir. Börn þeirra eru a) Þór Jónsson, f. 2012, og b) Kara Jónsdóttir, f. 2016. 3) Páll Berg- þórsson, f. 1990, sambýliskona hans er Guðrún Lilja Sigurð- ardóttir. VI) Margrét Jónsdóttir Njarðvík spænskufræðingur, f. 1966, gift Hálfdáni Sveinssyni hótelstjóra. Var áður gift Má Jónssyni, þau skildu. Börn þeirra eru 1) Ari Másson, f. 1990, 2) Bergþór Másson, f. 1995, og 3) Snorri Másson, f. 1997. Jón varð búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri og stóð til að hann tæki við búskap foreldra sinna í Fljótstungu. Jón stofnaði Nýju sendibílastöðina ásamt öðrum og vann þar lengst af sem sendibílstjóri og stöðvar- stjóri. Jón var fjölskyldumaður og naut þess að sinna börnum og barnabörnum. Honum var um- hugað um heilbrigt líferni, var alla tíð bindindismaður og fór áratugum saman daglega í sund. Hann var hagmæltur og orti margar tækifærisvísur auk þess sem hann var áhugaljós- myndari. Jón var mikill náttúru- unnandi og gaf börnum sínum í arf dálæti á undrum náttúr- unnar. Útför Jóns Bergþórssonar fer fram frá Áskirkju í dag, 14. júní 2018, og hefst athöfnin kl. 15. Jónsdóttir félags- ráðgjafi, f. 21. apríl 1954, gift Tómasi Jónssyni sér- kennslufræðingi. Dætur þeirra eru 1) Sóley Tómasdóttir, f. 1974, gift Aart Schalk. Börn þeirra eru a) Anna Schalk Sóleyjardóttir, f. 1999, og b) Tómas Schalk Sóleyjarson, f. 2002. 2) Þóra Tómasdóttir, f. 1979, sambýlismaður hennar er Arnar Ásgeirsson. Dóttir Þóru er Katla Þórudóttir f. 2006. 3) Kristín Tómasdóttir, f. 1982, gift Guðlaugi Aðalsteinssyni. Börn þeirra eru a) Mattías Kjeld, f. 2009, b) Ylfa Guðlaugsdóttir, f. 2011, c) Stella Guðlaugsdóttir, f. 2015. III) Sóley Jónsdóttir þroskaþjálfi, f. 4. október 1958. Sonur hennar er Pétur Níelsson f. 1986, sambýliskona hans er Anine Svenkerud Nordal. Dóttir þeirra er Edda Nordal Péturs- dóttir, f. 2017. IV) Kristín Jóns- dóttir Njarðvík kennslufræð- ingur, f. 15. janúar 1961, sam- býlismaður Kristján Þorsteinsson viðskiptafræð- ingur. Kristín var áður gift Arn- þóri Halldórssyni, þau skildu. Sonur þeirra er Halldór Arn- þórsson, f. 1991. V) Bergþór Jónsson húsasmíðameistari, f. 15. janúar 1961, kvæntur Rósu Guðmundsdóttur sjúkraliða. Pabbi var fjölskyldumaður og barnakarl sem sinnti okkur krökkunum vel. Hann fór með okkur í bíltúra og kenndi okkur að þekkja náttúruna og njóta hennar. Pabbi var líka Borgfirðingur og kenndi mér snemma að í uppsveitum Borgarfjarðar væri fallegra en annars staðar á land- inu. – Við fórum oft upp eftir og smám saman fyllti fjölskyldan sendiferðabíl og pabbi var beð- inn um að sýna hópferðaleyfið sitt á leiðinni út úr bænum. Pabbi byrjaði ungur að vinna og vann mikið. Hann sagði mér frá því þegar hann var að sækja hestana, smala hraunið, fara á Heiðina og teyma undir hús- byggingarefni upp túnið í Fljótstungu. Pabbi varð búfræð- ingur frá Hvanneyri 1946 og átti að verða bóndi. Hann valdi milli mömmu og jarðarinnar, flutti suður og fór að vinna tímabund- ið á Nýju sendibílastöðinni. Árin á Stöðinni urðu þó 46 og allan tímann var hann vakinn og sof- inn yfir velferð fyrirtækisins. Pabbi kenndi mér að prjóna og elda og hann keyrði mig vest- ur á vit örlaga minna. Við töl- uðum saman flesta daga og hann fylgdist með lífi okkar á Þverfelli jafnt sem annars stað- ar. Hann snerist fyrir okkur og með okkur og náttúrubarnið pabbi sá á hárafarinu í andlitum kindanna okkar að þær fengu ekki allar sama fóðrið. Pabbi var hlýr maður, traust- ur, seigur, og hjálpsamur. Hann var hagmæltur, vel máli farinn og afar ritfær. Hann var okkur líka öllum góð fyrirmynd sem pabbi, afi og langafi. – Mamma, börnin þeirra, barnabörnin, barnabarnabörnin og kisan Hlýja voru líf hans og yndi og hann var ákaflega montinn af þeim öllum. Pabbi og mamma voru ólík en samhent í brauðstritinu og upp- eldi barnanna sinna. Þau fluttu í Sóltúnið á gullbrúðkaupsdaginn sinn. Þar áttu þau fallegt ævi- kvöld, einhver bestu ár ævinnar. Þau bjuggu í „bestu íbúðinni í bænum“ með litlum garði „þar sem alltaf var logn og sólin skein“ svo grænir fingur og um- hyggja pabba fengu að njóta sín. Ef eitthvað er þarna hinum megin veit ég að þau pabbi og mamma sitja saman og haldast í hendur, Hlýja skottast í kring- um þau og pabbi getur ekki stillt sig um að segja brosandi við Doddu systur sína að senni- lega hafi hún haft rétt fyrir sér varðandi barnalánið þeirra. Takk fyrir allt, elsku pabbi minn. Þín, Brynja. Skömmu áður en afi dó var hann spurður hvort ég hefði allt- af fengið allt sem ég vildi hjá þeim ömmu. „Hún hefði allavega átt að fá það“, svaraði hann um hæl. Og hann meinti það. Ég get ekki munað eftir neinu sem þau neituðu mér um. Ef mig hefur vanhagað um eitthvað í lífinu hefur dugað að hringja í afa. Ef maturinn heima var vondur, ef systur mínar eða foreldrar fóru í taugarnar á mér, ef mig langaði í bíltúr, ef ég vildi viðra mig, ef ég þurfti ráðgjöf eða stuðning. Alltaf var afi tilbúinn að sækja mig og gera allt sem í hans valdi stóð til að ég fengi allt sem ég vildi í lífinu. Afi byggði með mér sand- kastala samfleytt í þrjár vikur á Kanaríeyjum, hann hefur varið mörgum vinnuvikum í að spila Olsen við mig og ef ég spurði hvort við ættum að kíkja í ísbíl- túr sagði hann: „Ætli það sé ekki best.“ Hann dröslaðist með mig í vinnuna ef mig langaði það, hlustaði á Dýrin í Hálsa- skógi meðan hann keyrði út banana og kom við í Nesti til að sækja handa mér sjeik. Hann og amma sáu til þess, hvort með sínum hætti, að ég dröslaðist gegnum menntaskóla. Hjá þeim átti ég pólitískt hæli sem ég nýtti mér ansi oft ef ég var við það að bugast á bröltinu í borg- arstjórn. Þau elskuðu börnin mín jafnheitt og ég. Afi varð 93 ára. Hann fæddist undir Danakonungi og það var moldargólf heima hjá honum í Fljótstungu. Hann var 21 árs þegar seinni heimstyrjöldinni lauk og hann talaði um gúmmí- stígvélin sem byltingu. Í stað þess að taka við búi foreldra sinna flutti hann á mölina, keypti sér bíl og stofnaði sendi- bílastöð. Hann eignaðist sex krakka og sá til þess að þau skorti ekkert með því að vinna baki brotnu. Hann lifði mann- kynssögu sem við hin getum bara lesið um. Hann lifði hverja tæknibyltinguna á fætur annarri og aðlagaðist breyttum aðstæð- um, tók snemma þátt í innleið- ingu tölvukerfis á sendibílastöð- inni, kom heim með örbylgjuofn áður en nokkur maður vissi hvað það var og undir lokin spjallaði hann við mig á Mess- enger yfir hafið. Þó hann gæfi sig út fyrir að vera staðnaður og íhaldssamur stóð hann illa undir þeirri ímynd. Afi var hlýr og umhyggju- samur maður. Hann hugsaði ekki bara vel um krakkaskarann sinn og mig heldur líka öll hin barnabörnin, barnabarnabörnin, systkinabörn sín, vini og vanda- menn. Á níræðisaldri passaði hann, hjúkraði og hugsaði betur um ömmu en nokkur annar og eftir að amma dó passaði hann Hlýju sem var elskaðasta kisa í Reykjavík. Hann vissi ekkert betra en hrúgu af afkomendum á sama stað á sama tíma. Þó hann hafi verið mikið veikur síð- ustu vikurnar er ég viss um að honum fannst gott að við skyld- um leggja undir okkur hjúkr- unarheimilið að nóttu sem degi. Hann hefur án efa notið þess að hlusta á okkur spila og ráða krossgátur við rúmstokkinn og þótt sjálfsagt að hafa fullt af miðaldra afkomendum í flat- sæng á gólfinu á nóttunni. Nú er elsku afi farinn til ömmu og Hlýju. Ég hefði helst viljað eiga þau alltaf, en það eru víst takmörk fyrir því sem hann gat látið eftir mér. Ætli það sé ekki best að ég sætti mig við það og þakki fyrir allt og allt. Sóley Tómasdóttir. Þegar ég var lítil og kom í bæinn til afa og ömmu fórum við Þóra með afa út í bakarí og fengum að velja okkur nýbökuð birkirúnnstykki og bleika snúða. Það voru engin bakarí í sveitinni þar sem ég bjó, svo að þetta var mjög hátíðlegt. Við fórum í bíl- túra uppí Heiðmörk þegar fór að vora, miðstöðin var iðulega á fullu og íslenski boltinn í útvarp- inu. Þjóðsögur Jóns Árnasonar voru lesnar þegar við gistum í afa- og ömmurúmi á gamla Kóngs og heimsóknirnar á Stöð- ina voru ófáar en þar fengum við gulan ópal og gos úr vél. Alltaf bað Þóra líka um að fá að sjá dæluna á Stöðinni og afi sýndi okkur hana. Aldrei vissi ég samt til hvers þessi dæla var eða hvaða hlutverki hún gegndi, það var bara eitthvað spennandi við að fara að skoða hana með afa. Þegar ég varð eldri og fór í menntaskóla í bænum bjó ég á Kóngs, í sama stigagangi og afi og amma. Þá eignaðist ég fyrsta barnabarnabarnið þeirra og ég man enn eftir risastóra blóm- vendinum sem afi kom með til mín á fæðingardeildina. Dóttir mín var ekki aðeins fyrsta lang- afabarnið heldur líka fyrsta stelpan í fjölskyldunni í 16 ár svo afi fór sérstaka ferð í bestu blómabúðina í bænum og keypti fallegasta vöndinn sem þau áttu til. Hann lagði alltaf mikið upp úr fallegum blómum, hvort sem hann keypti þau eða ræktaði sjálfur í litla garðinum sínum í Sóltúni. Eftir að ég skildi fannst mér gott að koma við hjá afa þegar börnin voru hjá pabba sínum og mig langaði ekki að fara heim í mannlausa íbúð eftir vinnu. Afi var þá orðinn einn eftir að amma lést. Við áttum það sam- merkt og sátum oft saman í ein- semdinni. Á föstudagskvöldum skoðuðum við gjarnan myndirn- ar hans afa og vídjóupptökurn- ar. Flestar voru þær skemmti- legar heimildir af afkomendum hans og frændfólki. Aðrar vöktu aðeins minni áhuga eins og t.d. fleiri klukkustundir af ókunnugu fólki að drekka kaffi á Stöðinni. Um helgar horfðum við á fót- bolta og afi hélt með Chelsea eða „sjelsí“ eins og hann kallaði þá en fylgdist líka grannt með Arsenal, hann vildi nefnilega að þeim gengi vel fyrir hann Begga. Þess á milli spjölluðum við um allt og ekkert. Við rædd- um oft um ömmu, lífið og dauð- ann. Einu sinni sagðist afi ekki vita hvort himnaríki væri til en ef hann kæmist þangað og amma væri þar var hann sann- færður um að hann myndi ekki einu sinni taka eftir því heldur bara sjá hana ömmu. Ég kemst ekki hjá því að sjá það fyrir mér núna. Eftir að afi varð níræður og eignaðist iPad og Facebook kváðumst við oft á í gegnum Messenger. Stundum liðu nokkrar vikur á milli vísna en stundum ortum við nokkrar sama kvöldið. Afi stakk reglu- lega uppá því að við gæfum út ljóðabók saman og svo hlógum við bæði. Hann sendi mér stund- um ljóð sem hann hafði ort og vildi vita hvað mér fyndist um þau. Eitt þeirra, undurfallegt ljóð sem heitir Að leiðarlokum, er mér sérstaklega hugleikið þessa dagana. Frá Sóltúni í Sólland fer ég, sannarlega glaður er ég að gista þar á góðri stund. Að eilífu hjá ömmu sef ég örmunum um hana vef ég. Ljúft er að eiga endurfund. Gó gó, elsku afi minn, sofðu vel hjá ömmu. Kristín Björk Jónsdóttir. „Þetta eru fínustu hænsn, vel krydduð og steikt,“ bætir afi við eftir að hann biður mig um að rétta sér volga kjúklingavæng- ina frá KFC. Litlu munar að ég kúgist. Ég man hvað mér fannst ógeðslegt að hann skyldi kalla matinn á borðinu hænsn. Orðið hænsn minnir á fiður. En minn- ingin er lýsandi. Afi var fæddur árið 1924 á bóndabæ í Borg- arfirði. Fyrir honum heitir þetta hænsn, kjúklingur var ekki mat- reiddur og étinn í hans tíð. Og það vissi ég auðvitað ekki þegar mér svelgdist á við orðaval gamla mannsins. Það er ýmislegt sem ég veit ekki um lífshlaup afa. Ég veit að hann ólst upp í sveit og hugðist verða bóndi, eða öllu heldur átti hann að verða bóndi en varð það aldrei. Páll bróðir afa fór í há- skóla en afa var ætlað að taka við búinu og fór í Bændaskólann á Hvanneyri. Ekkert varð úr þeim áformum og hann fluttist suður til Reykjavíkur og kom sér fyrir í hálfgerðum kofa með konu sinni og dóttur. Svo ók hann sendibíl myrkranna á milli í nokkra áratugi, tók svo við rekstri fyrirtækisins. Ég þekki þessa sögu, og þó ekki eins vel og ég vildi, en ég var samt ekki á staðnum. Ég veit ekki hvað það er að fá ekki að mennta sig. Ég veit ekki hvað það er að draga björg í bú fyrir sex börn og koma þeim til manns. Þetta var ólíkt þjóðfélag, lífið horfði öðruvísi við afa en við mér. Ég hef lesið um það í bók- um, um fólksflutningana og um- byltinguna frá sveit í borg. Það er stórtækasta breyting á lifn- aðarháttum Íslendinga fyrr og síðar. Nú rennur upp fyrir mér að auðvitað stendur hvergi prentuð í nokkurri bók sú viska sem afi bjó yfir um þennan tíma. Þessum þjóðfélagsbreytingum laust sem eldingu þvert um sálu afa og geð, svo að æ síðan var hann klofinn maður, bóndi á aðra hönd en sendibílstjóri í Breiðholti á hina. Hvorn kostinn hefði ég valið sjálfur? Það er vitlaus spurning, því afi hafði lítið val. Ég fæ að ganga í skóla og ég legg mikið upp úr lærdómi, hef alltaf gert. Afi gerði stólpagrín að ein- kunnaáráttu minni og sér í lagi móður minnar. Hann var vanur að hæðast að mömmu með því að rifja upp eftirminnileg sam- skipti hennar og Ara bróður. Ari kom heim með 8,5 í einkunn á prófi. Mamma sagði það „með öllu óviðunandi“. Þetta taldi afi fullkomna firringu, réttilega, og lét þess oft getið. Hann vissi að lífið er annað og meira en tölur á blaði. Hann þekkti muninn á þekkingu og bókum. Hann kenndi mér að menntun fæst ekki bara í skóla. Hann hló að snobbinu í okkur mömmu. Hann var líka húmoristi. Síð- ustu vikurnar rak hvert gull- kornið annað. Það var rigning- arsuddi, sem eftir á að hyggja var auðvitað skýr fyrirboði um manninn með ljáinn. Ég sat við rúmstokkinn hjá afa. „Það er demba,“ segi ég. Hann svarar til: „Og þú karlremba“. Fem- ínisminn hans afa. Hann var óneitanlega pólitískur, lífsreglur hans, bindindismannsins, eru frægar: „Ég reykti aldrei sígar- ettur, bragðaði aldrei vín og kaus aldrei Sjálfstæðisflokkinn.“ Honum var í nöp við íhaldið, eins og vinstrimenn af hans kynslóð kalla það. Þegar ég til- kynnti honum að ég væri kom- inn á Moggann sagði hann: „Ég vissi að þú yrðir íhaldskarl, þú ert duglegri en við vinstri- menn.“ Þannig voru hans hinstu orð við mig: „Þú ert duglegur karl.“ Þar held ég þó að bóndanum hafi láðst að líta undir taglið á sjálfum sér, því að ekki allir hefðu getað axlað það erfiði sem hann lifði við á langri ævi. Ef til er sannur Íslendingur, þá var það afi. Ég veit ekki alveg hvernig er best að minnast hans. Ég streitist við að kveðja, því að sumir finnst manni að eigi að vera eilífir. Það er þó enginn og hver og einn má svara kallinu þegar það kemur. Ég á alltaf eftir að muna afa. Ég kveð hann hér með og má til með að líta svo á, að dagurinn sem ungur maður kveður afa sinn, hljóti að vera dagurinn sem hann verður loksins að manni. Snorri Másson. Jón var bróðir Sigrúnar mömmu minnar. Þau voru fjórða og fimmta af sjö systk- inum sem ólust upp í Fljóts- tungu í Hvítársíðu. Átthagarnir voru þeim mjög dýrmætir og ræturnar í Fljótstungu sterkar. Þegar þau stofnuðu sín eigin heimili átti hann heima í Reykjavík og hún á Húsafelli. Þau áttu samtals 11 krakka og hjálpuðust að og áttu hvort ann- að að í næstum því öld. Krakka- stúss, fæðingar, skírnir, hlaupa- bólur, fermingar. Unglinga- veseni tekið með æðruleysi og uppskera í ágætis fullorðnum manneskjum sem hafa fjölgað sér með góðum árangri. Við gistum á Kóngsbakka í lengri og skemmri tíma og þeirra krakkar komu í sveit til okkar. Jón og Kittý hjálpuðu pabba og mömmu meðal annars um versl- unarmannahelgar þegar haldin voru mót á Húsafelli og þau hjálpuðust að við að hafa greiða- sölu þar. Þau skrifuðust á og skiptust á hugmyndum um hvernig væri best að koma undir sig fótunum og í einu bréfinu stingur Jón upp á því að smyrja samlokur og selja svöngum ferðalöngum. Það varð heldur betur úr og eldhúsið á Húsafelli varð samlokugerð undir stjórn kvennanna og Jón stýrði sjopp- unni með dyggri aðstoð Ragn- heiðar á Kolstöðum. Það var sof- ið alstaðar þessa helgi. Í baðkarinu og undir búrborðinu. Einu sinni var nógu hlýtt til að skarinn svaf úti á milli fjárhús- anna. Krakkarnir gerðu líklega að mestu það sem þeim sýndist en hjálpuðu þó til eftir stærð og getu. Það var allavega kostur að ná yfir afgreiðsluborðið og sum- ir voru seigir að tína flöskur og rusl. Jón átti sendiferðabíl. Stund- um átti hann bláan og stundum rauðan en alltaf R 4646. Það var ákaflega skemmtilegt að sitja aftur í og það jafnast engin rússíbani á við veginn yfir hraunið að Fljótstungu í sendi- ferðabíl fullum af krökkum sem syngja hástöfum. Það er mikill auður að eiga góðar og fallegar bernskuminningar og þar á ég Nonna frænda, Kittý og krökk- unum þeirra mikið að þakka. Á níunda áratugnum í lífi þeirra systkina voru þau í miklu sambandi og hann heimsótti systur sína nánast daglega á Sóltún síðustu árin hennar. Þá voru þau bæði búin að missa sína dýrmætu og góðu maka og samband þeirra var nógu náið til þess að þau leyfðu sér að fá útrás fyrir sorg og söknuð með því að kýta svolítið og þusa á milli þess sem þau rifjuðu upp æskuminningar og montuðust af afkomendum sínum. Systir hans gat verið miður sín lengi af til- hugsuninni um að hann hafi far- ið svangur og húfulaus að sækja hestana níu ára gamall og var ekki í rónni með að hann væri að þvælast vettlinga og húfulaus á skutlunni 90 ára gamall. Jón sagðist aldrei myndi ganga í hlýju peysunni sem hún gaf hon- um í 90 ára afmælisgjöf en gleymdi því stundum og mætti í henni og þá kættist litla systir heldur betur. Þau fundu sér eitthvað til að metast um ef skapið var þannig og þá gat það verið hvort ætti ríkari Begga eða hvaða dóttir færi víðast um til að bjarga heiminum. Hann átti oftast sigurinn vísan. En það var 1-1 í því að hún átti fleiri stráka en hann átti fleiri stelpur og í logni var gott að hafa jafntefli í einhverju. Það skal tekið fram og ítrekað að það var fallegt og gott á milli þeirra og þeim þótti innilega vænt um hvort annað. Vinnusemi og myndarskapur var þeirra dyggð og oft var vitn- að í ömmu þeirra sem varð 102 ára og sagði að það ætti að sofa þegar syfjaði en vera aldrei óvinnandi vakandi. Þau voru bæði trú þeirri speki og oft var dáðst að dugnaði Jóns bróður og hann átti hrósið skilið. Jón var góður og fallegur maður. Hann var óendanlega þolinmóður, hlýr og greiðvikinn. Hann hrósaði manni og taldi til kosti samferðafólks sem hallað var á. Hann gat líka bitið í sig sérvisku og honum fannst ekki leiðinlegt að fólkið hans var með honum í því að 4646 væri feg- urst allra bílnúmera og talan 46 Jón Bergþórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.