Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 ✝ Ólöf BjörkBjörnsdóttir, garðyrkjufræð- ingur, fæddist 29. maí 1946 í Reyk- holti í Borgarfirði. Hún lést 25. maí 2018 á Heilbrigð- isstofnun Suður- nesja. Foreldrar henn- ar voru Björn Guð- laugur Ólafsson, f. 14. nóvember 1912, d. 1. október 1971, garðyrkjumaður á Varma- landi í Reykholtsdal, og Margrét Jóhannesdóttir, f. 9. mars 1904, d. 28. desember 1996, húsfreyja á Varmalandi í Reykholtsdal. Systkini Ólafar eru Elín Björnsdóttir, f. 1. febrúar 1943, d. 8. ágúst 2016, Sveinn Grétar Unnardóttir, f. 20.6. 2003. 2) Margréti, f. 1. júlí 1968, gift Fal Jóhanni Harðarsyni, f. 15. október 1968. Börn þeirra eru a) Lovísa Falsdóttir, f. 22. júlí 1994, sambýlismaður Gunnar Þorsteinsson, f. 1. febrúar 1994, b) Elfa Falsdóttir, 21. janúar 1998, og c) Jana Falsdóttir, f. 29.11. 2005. Framan af starfaði Ólöf á ýms- um vettvangi, en garðyrkjan átti hug hennar allan og lengst af var hún í eigin rekstri með plöntu- sölu á heimili sínu, Dranga- völlum 6 í Keflavík. Á fimmtugs- aldri hóf Ólöf nám við Garðyrkjuskólann að Reykjum og lauk þaðan námi árið 1996 sem garðyrkjufræðingur. Ólöf rak blómaverslun í verslun varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli í nokkur ár á síðustu árum varn- arliðsins hér á landi og til skamms tíma var hún einnig garðyrkjustjóri Reykjanesbæjar. Útför Ólafar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 14. júní 2018, klukkan 13. Björnsson, f. 21. apríl 1945, og Jó- hanna Guðrún Björnsdóttir, f. 5. desember 1949. Ólöf giftist Stur- laugi Helga Ólafs- syni, f. 9. september 1948, d. 22. október 2009, í Keflavík- urkirkju 26. desem- ber 1967, (skilin í desember 2007) og eignuðust þau 1) Unni, f. 23.1. 1967. Börn Unnar eru a) Davíð Eld- ur Baldursson, f. 11. nóvember 1983, sambýliskona Guðbjörg Huld Árnadóttir, f. 28. ágúst 1990, sonur þeirra er Sturlaugur Árni, sonur Davíðs af fyrra sam- bandi er Jakob Steinn. b) Urður Að kveðja þig nú, elsku mamma, er svo undarlega skrýt- ið og sárt. Ég var farin að trúa því að þú myndir lifa að eilífu enda talaðir þú þannig og lést mann trúa. Kveðjustundin kom kannski ekki fyrirvaralaust en sagt er að þó að aðdragandinn sé langur sé enginn tilbúinn þegar að henni kemur. Garðyrkja og ræktun var þín ástríða. Þú hafðir ekki bara gam- an af gróðri, nei, það má með sanni segja að þú tókst þetta alla leið. Það var bæði skemmtilegt og fræðandi að alast upp í kring- um þig og plönturnar, allir á heimilinu fengu hlutverk og allir tóku þátt. Nú í dag ylja mér minningar um atganginn sem hófst á vorin við að setja upp blómasöluna sem var lengstum bara í innkeyrslunni og á tröpp- unum heima á Drangó. Mamma í essinu sínu að stjórna, græja og gera. Viðskiptavinir komandi á öllum tímum sólarhringsins og heimilisfólk að skottast út til að hjálpa til. Þú varst með stóran kúnna- hóp og fólk sóttist í þekkingu þína enda fáir sem gátu skákað þér þar. Nokkrir skemmtilegir kúnnar komu alltaf og fengu það sama, t.d. gular stjúpur með auga. Þeir sem voru í klíkunni fengu að handvelja sjálfir í bakka enda skildir þú sérviskuna í þeim sem sáu mun á gulri stjúpu og jú gulri stjúpu. Ekkill nokkur kom á hverju vori og keypti tóbaks- horn á leiði konu sinnar því henni þótti svo gott að reykja, aðrir völdu ilmskúf því lyktin var svo góð. Heilu bílfarmarnir af pott- um voru keyrðir til þín svo þú gætir skreytt þá fallega, já, þú gerðir þá það einstaka að fólk tók myndir til að fá það sama hjá þér næsta vor. Tryggðin og ánægjan hjá þessum kúnnahópi þínum var það mikil að fólk var í mörg ár að koma eftir að þú veiktist í von um að þú værir með blómasölu það vorið. Í þó nokkurn tíma reyndir þú að verða við beiðnum þeirra enda hélstu alltaf í vonina um að geta tekið upp þráðinn en því miður leyfði sjúkdómurinn það ekki. Mamma glímdi við lungna- þembu í 11 ár sem smátt og smátt dró úr þrótti sem ávallt einkenndi hana. Hugur hennar breyttist þó aldrei, hún var alltaf alveg á leið- inni út í skúr að búa til mold, sá fyrir skrautkáli eða prikla silf- urkambinn, þannig var bara mamma og því ekkert skrýtið að ég héldi að hún myndi lifa að ei- lífu. Það er svo margt sem ég gæti skrifað um móður mína, kosti hennar og galla eða hversu ólíkar eða líkar við vorum. Ég er svo heppin að ég átti allar þessar samræður við hana sjálfa enda var samband okkar heiðarlegt. Þrátt fyrir að hafa verið oft ósammála í ákveðnum málefnum vissi ég alla tíð að hún elskaði mig og hún vissi að ég elskaði hana. Með ást minni allri sendi ég nú styrk og bænir blíðar. Ég er ég og þú ert þú Við sjáumst síðar. (Auður Hansen) Guð geymi þig, elsku mamma, og ef ég þekki þig rétt er búið að rigga upp öllum bestu og flott- ustu plöntum jarðar þarna í sum- arlandinu, pungurinn kominn um mittið og opin búð. Þín dóttir, Margrét Sturlaugsdóttir. Í dag fylgjum við Ólöfu Björk Björnsdóttur (Ólu) tengdamóður minni síðasta spölinn. Það eru rétt um 32 ár síðan ég fór að gera mér reglulegar ferðir á Drangavellina til að hitta Mar- gréti dóttur þeirra Ólu og Stulla heitins. Á Drangavöllunum var oft mikið fjör og gestkvæmt. Á sumrin rak Óla blómasölu á heimili sínu þar sem Suðurnesja- menn og konur komu og keyptu blóm og trjágróður ásamt því að sækja í þekkingu Ólu á viðfangs- efninu, því hún var ávallt með svör á reiðum höndum. Óla var mikill frumkvöðull í garðyrkju og má klárlega segja að hún eigi stóran þátt í því að byggð á Suð- urnesjum er jafn gróðri vaxin og raun ber vitni, en margar svart- sýnisraddir töluðu lengi vel um að ekki yxi stingandi strá á Suð- urnesjum. Þar sem ég hef starfað góðan part af minni starfsævi á höf- uðborgarsvæðinu, var ekki óvanalegt að fá hringingu frá Ólu um miðjan dag á fögrum sum- ardegi, þar sem hún bað mig um að koma við á einhverri gróðr- arstöð á leiðinni heim og taka með mér nokkrar plöntur sem hún hefði pantað. Þó hún vissi vel að ég keyrði um á fólksbíl, var magnið yfirleitt það mikið sem hún pantaði að ég þurfti að stoppa á Reykjanesbrautinni til þess að ná andanum, því ég var að tapa baráttunni um súrefnið í bílnum fyrir plöntunum. Á mínum íþróttaferli var ég heppinn að fara oft til útlanda í keppnisferðir. Aldrei klikkaði að Óla bað um sinn skammt í frí- höfninni, karton af Viceroy, Bo- ucheron ilmvatn og P.K tyggjó. Við grínuðumst oft um að Óla færi í Boucheron sturtu, því slík- ur var ilmurinn þegar hún gerði sig tilbúna fyrir daginn. Það hefur alltaf verið stutt í prakkarann í mér og á því fékk Óla oft að kenna á. Á námsárum okkar Möggu í Bandaríkjunum urðu á vegi mínum sígarettu- hvellhettur, sem ég keypti með leyfi konu minnar. Þessar hvell- hettur voru einstaklega vel nýtt- ar og vandað var til verka svo Óla tæki ekki eftir þeim og þeim jafnvel troðið inn í miðja sígar- ettuna. Svo sprungu þessar elsk- ur með tilheyrandi öskrum og köllum, „Falur, þú drepur mig einn daginn!“ Óla var alltaf mjög varkár í kringum vélar og tæki. Eitt sinn gekk henni illa að starta keðju- sög sem hún var að nota við að gera einhvern garðinn frægan og kom hún við heima hjá okkur Möggu og bað mig um að athuga hvort við gætum ekki hjálpað henni. Þar sem við stóðum á tröppunum, var þetta of gott tækifæri til að sleppa í lítinn hrekk, þá þóttist ég toga í spott- ann og reif keðjusögina upp fyrir haus með tilheyrandi látum „RATATATA ...“. Já, ég var ekki klappaður upp! Það hefur ekki verið auðvelt að fylgjast með þessari duglegu kjarnakonu sl. 11 ár þar sem hún hefur glímt við lungnasjúkdóm sem bara versnaði með árunum. Alltaf var hún á leiðinni út garð að gera hitt eða þetta, en heilsan leyfði fátt. Elsku Óla mín, takk fyrir alla samveruna og já, ég kyssi Möggu og stelpurnar frá þér. Falur J. Harðarson. Elsku amma okkar rokk. Það er erfitt að kveðja þig svona snemma. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Okkur þótti alltaf svo gaman að heyra bernskusögur þínar af prakkara- strikum þínum í Reykholti og um þann draum þinn að verða rokk- ari og giftast Freddie Mercury. Þú sagðir svo skemmtilega frá þessum draumi og hvernig þú gafst snemma upp á honum, einna helst vegna þess að þú komst að því að Freddie Merc- ury væri samkynhneigður. Það- an lá leiðin beint í sundlaugina, eðlilega. Sögurnar af glæstum sundlaugardögum þínum voru í toppklassa, það hafði enginn roð við þér á landsvísu, mögulega heimsvísu (að eigin sögn). Við systur trúðum lengi vel hverju einasta orði og skildum lítið hvað afi fussaði og sveiaði í bakgrunni. Við systur munum segja börn- unum okkar frá þessum sögum og síðan öllum þeim minningum sem við eigum um þig: Dagarnir sem við fengum að hjálpa til í garðhúsinu og við blómasöluna. Öll verkefnin sem þú sendir okk- ur í, misskemmtileg en í dag ylja minningarnar okkur um hjarta- rætur. Svo eru það verkefnin sem þú hjálpaðir okkur með, eins og þegar Lovísa bað þig um hjálp með skólaverkefni á yngsta stigi í grunnskóla. Bekkurinn átti að gróðursetja lítil sólblóm inni í skólastofu. Lovísa fékk undan- þágu til þess að taka blómið með heim vegna þess að þú varst auð- vitað þekkt í bænum fyrir þína grænu fingur. Flestir bekkjar- félagarnir voru með blóm sem rétt náðu upp úr blómapottinum við gluggann í skólastofunni en blómið hennar Lovísu komst ekki inn í skólann og því varð mynd að duga fyrir bekkinn. Sól- blómið stóð í tæpum þremur metrum enda allt það besta úr blómavítamínsbankanum nýtt í þetta skólaverkefni barnabarns- ins. Við munum alla tíð búa að þeim eiginleikum sem við höfum frá þér. Það var yndislegt hve mikinn húmor þú hafðir fyrir sjálfri þér og hvað við gátum oft hlegið að þér og með þér á sama tíma. En nú er kominn tími til að kveðja í hinsta sinn, takk fyrir allar minningarnar og góðu stundirnar. Þínar barnadætur, Lovísa, Elfa, Urður og Jana. Blómakonan og baráttujaxlinn Ólöf Björk Björnsdóttir er sofn- uð svefninum langa að lokinni ævi sem alla tíð einkenndist af miklum viljastyrk, baráttuþreki og dugnaði. Það voru margar brekkurnar í lífinu sem hún þurfti að yfirstíga. Kæmist hún ekki yfir þær í fyrstu atrennu, reyndi hún bara aftur og barðist. Hún hafði ekki alltaf sigur og undi hún því illa þegar hún þurfti að lúta í lægra haldi fyrir áskor- unum lífsins. Þessi mikli baráttu- andi var sveitastelpunni úr Borg- arfirði í blóð borinn, enda í æsku alin á hreinum náttúruafurðum og grænmeti sem gerðu hana sterka og kröftuga. Hún elskaði sumarið þegar náttúran skartaði sínu fegursta og það var ein- hvern veginn í hennar anda að sofna inn í eilífðina þegar sum- arið gerði loks vart við sig og sól- in gægðist út úr skýjaþykkninu. Lífsþorsti einkenndi líf hennar alla tíð. Hún var hins vegar breysk og mannleg, fetaði ekki alltaf hefðbundna stígu og gerði mistök eins og við hin. Hún var mikil hugsjónakona og barðist fyrir því að laga það sem henni þótti óréttlátt. Jafnréttismál voru henni hugleikin og var hún formaður jafnréttisráðs í heima- bænum um hríð. Jafnaðarmaður í hjarta sínu sem sýndi það í verki. Hún þurfti að heyja bar- áttu við bankakerfið og hafði bet- ur í stórum málum á þeim vett- vangi, þar sem hún beitti óvéfengjanlegum rökum, án lög- lærðra manna, geri aðrir betur! Pólitísk og réttsýn, alltaf með puttann á þjóðarpúlsinum! Trúin á Guð fleytti Ólu yfir boðaföllin í lífinu og hélt hún því fram að það væri ekki það sama að trúa á Guð og treysta honum. Hún gerði sér fyllilega grein fyr- ir að hún vildi oft stýra aðgerð- um í samtali sínu við himnaföð- urinn, vissi þó að um það snérist hin sanna trú ekki. Ég kynntist þeim sæmdar- hjónum Ólu og Stulla þegar ég kom fyrst til Keflavíkur. Þau sýndu okkur Gísla og öllum í fjöl- skyldu okkar einstaka velvild alla tíð. Þegar ég lít yfir farinn veg og þá leið sem við vorum samferða , er hjarta mitt fullt af þakklæti fyrir þá gæfu að verða aðnjótandi góðrar vináttu þeirra hjóna. Á ljúfum stundum reynd- um við oft að ráða lífsgátuna, sem okkur tókst ekki frekar en öðrum, töluðum um nærandi málefni, tókum í spil og höfðum gaman. Ég lít svo á að nú séu þau Stulli sameinuð á ný, eftir nokkurra ára aðskilnað, bæði í þessu lífi sem og lífinu hér og líf- inu í eilífðarríkinu þegar annar aðilinn kveður. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg; en anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið. Þannig orti Jónas Hallgríms- son. Það veitir fró að vera sam- mála lífssýn skáldsins og sjá þau fyrir sér sameinuð og samstiga sem forðum. Ég lít svo á, að við komu Ólu í eilífðarríkið hafi fjölgað um einn í englahersveit fjölskyldu hennar, fjölskyldunn- ar sem hún unni svo heitt og var henni allt! Við ferðalok vil ég þakka minni kæru vinkonu og þeim Stulla báðum vináttuna í gegnum árin og kærleikann sem þau sýndu mér og mínum alla tíð. Ég votta Unni, Möggu, Davíð og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð og bið þeim Guðsbless- unar. Sumarrós Sigurðardóttir (Rósa). Látin er í Keflavík Ólöf Björk Björnsdóttir garðyrkjufræðing- ur. Óla, eins og við kölluðum hana var frá Reykholti í Borg- arfirði, þar sem hún ólst upp hjá foreldrum sínum, garðyrkju- bændunum Birni Ólafssyni og Margréti Jóhannesdóttur konu hans ásamt þremur systkinum. Óla fluttist ung að árum til Keflavíkur og þar kynntist hún manni sínum Sturlaugi Ólafssyni og hófu þau búskap og ólu upp tvær dætur sínar, Unni og Mar- gréti og seinna dóttursoninn Davíð. Óla var vel þekkt í Keflavík og nágrenni enda seldi hún flestum bæjarbúum blóm og tré um margra ára bil. Hún var óspör á fræðslu um gróður og gróður- setningu til viðskiptavina sinna og brann af áhuga fyrir að prýða landið gróðri, ekki aðeins eigin garð, sem var stórkostlegur, heldur bæinn allan. Þennan áhuga hafði hún úr föðurhúsum en á miðjum aldri tók hún sig til og nam fræðin í Garðyrkjuskól- anum í Hveragerði og lauk þaðan námi. Óla var dugnaðarforkur og vílaði ekki fyrir sér erfiðu verkin en best undi hún sér við vinnu utan dyra umvafin mold og hvers konar jurtum. Við hjónin kynntumst Ólu og Stulla þegar börnin okkar Mar- grét og Falur bundust tryggð- arböndum. Þá var góður tími í lífi þeirra hjóna og gaman að kynnast þeim og öllum þeirra góðu vinum sem svo oft litu inn á Drangavellina. Alltaf var glettni í fyrirrúmi. Oftar en ekki voru þjóðmálin rædd en Stulli leysti öll mál á gamansaman hátt sem honum einum var lagið, með kynngimögnuðum sögum af náunganum og hlátrasköllin óm- uðu. Í gegnum árin höfum við glaðst saman yfir velgengni barnanna okkar og litlu hnátun- um þeirra. En lífið er hverfult, Stulli lést eftir erfið veikindi árið 2009 og í kjölfarið hafa áföllin dunið yfir Ólu hvert af öðru og ekki að undra þó heilsa hennar hafi gefið eftir. Síðustu árin hefur verið erfitt að fylgjast með þessari dugnað- arkonu hlekkjaðri í fjötrum sjúk- dóms. Hún sagði aftur og aftur að hún væri viss um að hún mundi hressast þegar sumarið kæmi og hún gæti farið að dunda sér í garðinum. Nokkur sumur hafa liðið og nú hefur sjúkdóm- urinn sigrað en við sjáum hana fyrir okkur í öðrum garði, lausa við þjáningar og mótlæti í hinu eilífa sumarlandi, önnum kafna við að hagræða blómum. Ragnhildur Árnadóttir. Það var fjölbreyttur hópur fólks sem kom saman á haust- dögum árið 1994 til að hefja nám í Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Sjaldan hafði nemendahópur spannað svo vítt svið reynslu og aldurs en þetta árið var meðalaldur nemenda rétt yfir 29 ár. Ólöf Björk Björnsdóttir var ein þeirra nem- enda sem hófu nám þetta haustið og lyfti upp meðalaldrinum, reynslubolti sem bjó yfir mikilli þekkingu af garðyrkju, hafði unnið við fagið í mörg ár og rak sína eigin garðyrkjustöð í Kefla- vík. Það var gaman að hafa Ólöfu í hópnum, hún var hress að tala við og skemmtilega hreinskilin. Við dáðumst að Ólöfu, dáðumst að dugnaðinum við að keyra alla leið á hverjum morgni frá Kefla- vík í Hveragerði hvernig sem viðraði og hvernig sem á stóð. Hún var ein af þeim sem voru með fullt hús í mætingarkladd- ann þó hún ætti um lengstan veg að fara daglega. Við dáðumst líka að kjarkinum sem hún hafði, kjarkinum við að spyrja ítarlega út í námsefnið, láta sína skoðun í ljós í kennslustundum og við höfðum líka gaman af því þegar hún rak kennarana á gat enda hafsjór að reynslu og þekkingu. Við vorum mörg sem vorum í sambandi við hana á síðustu ár- um á samfélagsmiðlum og þar eins og í skólanum forðum lét hún að sér kveða. Hún hafði sterkar skoðanir á pólitík og samfélaginu, vildi gott og réttlátt samfélag fyrir alla óháð stétt og stöðu. Við skóla- félagarnir í Garðyrkjuskólanum sendum samúðarkveðjur til fjöl- skyldu og vina, við sitjum eftir og minnumst Ólafar, minnumst glaðværrar, ósérhlífinnar konu með sterka réttlætiskennd sem gott var að vera í návistum við. Blessuð sé minning þín. Fyrir hönd samnemenda í Garðyrkjuskóla ríkisins árin 1994-1996, Elín Sigríður Óladóttir. 25. maí síðastliðinn kvaddi ég minn besta vin. Þrátt fyrir að hún hafi verið veik í yfir áratug, þá tókst henni alltaf á einhvern hátt að jafna sig og komast aftur heim, þangað til í þetta skiptið. Þvílíkur var baráttuhugurinn í henni, en það er langt síðan læknir útskýrði fyrst fyrir mér að hún ætti mögulega lítið eftir. Því var það kannski ekki óeðli- legt þegar hún sagði mér í vik- unni áður að hún ætlaði að kom- ast út í garð í sumar, að maður tryði því með henni að það yrði hægt. Orð fá því varla lýst hversu vænt mér þótti um hana ömmu mína. Minning um sterka konu mun lifa í okkur sem þekktum hana um ókomna tíð. Minning um trausta konu sem lagði sig alltaf alla fram til þess að ná settum markmiðum, hvort sem það var fyrir sig sjálfa eða við það að hjálpa öðrum. Í dag er rosalega erfitt að sjá fyrir sér einhverja veröld sem hún er ekki hluti af, en eins og þeir sem þekktu hana vita, þá var um risa- stóran karakter að ræða. Lét sig allt varða og sama hvert um- ræðuefnið var, þá bæði hafði hún skoðun, sem og vildi hún ræða hana. Að hafa fengið að alast upp hjá henni tel ég vera mesta gæfuspor lífs míns. Í minni æsku lagði hún sig alla fram fyrir mig. Ekki aðeins að sjá til þess að ég hefði allt til alls, heldur gaf hún sér einnig ómældan tíma og vor- um við mjög góðir vinir. Vinátta sem hélst frá því ég man eftir mér allt fram til síðasta dags. Þó heimurinn minn sé ein- kennilegur án þín í dag, er ég gíf- urlega þakklátur. Þakklátur fyr- ir allt sem þú kenndir mér, sýndir mér og gerðir fyrir mig. Bæði mun ég svo lengi sem ég lifi segja börnum mínum frá þér og minna á að flest, ef ekki allt, sem gott ég kann, lærði ég hjá þér og afa. Hafði í ófá skipti farið á hnén og beðið fyrir heilsu þinni síðast- liðin ár. Undir lokin kvað þó við eilítið annan tón í bænum mínum þegar ég bað til guðs um að hann myndi taka vel á móti þér, því það átt þú svo sannarlega skilið. Veit ekki nákvæmlega hvar það er sem þú ert núna, en ég vona að afi sé þarna með þér aftur og að þið passið upp á hvort annað. Vert sæl, elsku amma mín. Ég syrgi þig, en góðu minningarnar eru sorginni yfirsterkari. Takk fyrir allt. Ég mun geyma þig í hjartanu svo lengi sem ég lifi. Þinn Davíð. Ólöf Björk Björnsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.