Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 60
60 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
✝ Helga Ár-manns fæddist
í Vestmannaeyjum
18. nóvember
1940. Hún lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 7. júní
2018.
Eftirlifandi eig-
inmaður Helgu er
Sigurður I. Ólafs-
son, börn þeirra
eru Ragnhildur
Sigurðardóttir, maki Örn Guð-
mundsson, og Ólafur Kr. Sig-
urðsson, maki Sig-
rún Ósk Jóhannes-
dóttir.
Börn Ragnhildar
og Arnar eru
Helga, Ísak og
Guðmundur Freyr.
Börn Ólafs og Sig-
rúnar eru Fannar
Már, Sigurður
Ingiberg og Logi.
Útför Helgu fer
fram frá Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði í dag, 14.
júní 2018, klukkan 13.
Elsku litríka Helga frænka.
Með þinn smitandi hlátur eins og
Njarðvíkurfólkið. Eða Amma
Helga eins og þú varst kölluð eftir
að börnin okkar fæddust. Alltaf í
fallegum og litríkum fötum með
bleikan varalit.
Með þitt fallega bros sem náði
til augnanna og þennan einstaka
hlátur. Við köllum það að hlæja
með hjartanu.
Helga, Siggi og foreldrar okkar
kenndu okkur hvernig fjölskylda
á að standa saman, rækta vinátt-
una og fjölskylduböndin. Það er
margs að minnast en sérstaklega
hvað við fórum í skemmtilegar og
ógleymanlegar ferðir innanlands
sem utan. Og þar varst þú, Helga
frænka, hrókur alls fagnaðar.
Helga frænka okkar var lista-
kona og listunnandi Hún sagði
margar skemmtilegar sögur af
sér og pabba okkar. Ekki síst frá
þeim tíma þegar þau voru börn.
Hvernig þau léku sér saman og
hvernig hann gat endalaust strítt
henni.
Við trúum því að það hafi lagt
grunninn að ævilangri vináttu
þeirra systkina.
Takk fyrir allar sögurnar. Og
fyrir góðar minningar, með
gleðina í aðalhlutverki. Og ekki
síst fyrir öll frábæru listaverkin
sem við eigum eftir þig og bókina
um sögu kvenna í fjölskyldunni.
List þín mun hjálpa okkur að við-
halda minningu þinni í hugum
okkar og barnanna okkar.
Takk fyrir allt, elsku Helga
frænka.
Hildur, Helga, Ármann
og Heiða.
Til minningar um góða frænku.
Það er auðvitað alltaf erfitt og
sárt að fá fréttir af andláti þeirra
sem eru manni kærir og það átti
svo sannarlega við þegar ég fékk
símtalið um að hún Helga frænka
væri farin, en mikið var ég þó feg-
in að hún skyldi þó loksins hafa
fengið hvíldina. Helga frænka var
einhvern veginn alltaf partur af
mínu lífi, alveg frá því að ég var
barn enda voru þau systkinin
mjög náin og fjölskyldur okkar
mjög tengdar. Fyrir það er ég
mjög þakklát. Í dag þegar ég horfi
til baka þá átta ég mig á því hvað
hún hefur í rauninni haft mikil
áhrif á mig, hún kenndi mér að
nota varalit, eða það er að segja að
maður skipti varla um skoðun án
þess að setja á sig varalit, það hef
ég tileinkað mér eins og hún.
Einnig eigum við það sameigin-
legt að fara í nám á gamals aldri,
þegar ég var unglingur tók Helga
upp á því að fara í myndlistarnám,
ég skildi nú ekkert í því hvað
svona gömul kona hefði að gera í
námi.
Ég velti þessu mikið fyrir mér
og talaði mikið um það að frænka
mín sem væri orðin fertug væri að
fara í nám, mér fannst það mjög
skrítið. En hér er ég sjálf í dag,
komin yfir fertugt og komin í nám.
Helga frænka var hlý og góð,
skapandi, litrík og alveg sérlega
hláturmild, það fór ekki framhjá
neinum þegar hún hló og mun ég
sakna hlátursins hennar.
Elsku Siggi, Ragnhildur, Óli og
fjölskyldur, mínar innilegustu
samúðarkveðjur, ég vildi að ég
gæti verið hjá ykkur og tekið utan
um ykkur. Ég mun hugsa til ykk-
ar í dag.
Ástarkveðja,
Heiða Agnarsdóttir.
Við kynntumst í Gagnfræða-
skólanum við Lindargötu á sjötta
áratug síðustu aldar. Það var frá-
bær skóli, hann var ekki stór en
hélt vel utan um okkur nemend-
urna. Við þekktumst nánast öll
skólasystkinin og urðum mjög
samheldinn hópur. Þar kynnt-
umst við Helgu, við vorum nokkr-
ar stelpur sem urðum mjög nánar.
Þetta var skemmtilegur tími. Við
spáðum í lífið og tilveruna, við
spáðum í strákana og fötin sem við
klæddumst, við áttum ekki mikið
af fötum í þá daga en við skipt-
umst stundum á fatnaði til þess að
fá meiri tilbreytni. Við fórum í
ógleymanlegt skólaferðalag að
Laugarvatni. Við stofnuðum
saumaklúbb, síðan eru liðin 65 ár.
Við kynntumst mannsefnum okk-
ar, þá tóku við skemmtilegar úti-
legur, jólaboð og fleiri samveru-
stundir. Við lærðum margt af hver
annarri, skiptumst á bæði mat-
reiðsluuppskriftum og prjónaupp-
skriftum. Við litum upp til Helgu,
hún fór á húsmæðraskóla til Dan-
merkur og vann þar líka um tíma,
það þótti nú flott á þeim tíma.
Helga giftist Sigga sínum og þau
eignuðust Ragnhildi og Óla, það
hefur verið aðdáunarvert að fylgj-
ast með hversu vel þau hafa hugs-
að um hana í veikindum hennar,
þau voru hennar stoð og stytta.
Dvöl hennar á Hrafnistu urðu
fimm og hálft ár, við vorum svo
lánsamar að geta haft sauma-
klúbbinn okkar áfram þar, starfs-
fólkið á Hrafnistu var svo elsku-
legt og hjálpsamt og á það okkar
bestu þakkir skildar.
Margt ég vildi þakka þér
og þess er gott að minnast
að þú ert ein af þeim sem mér
þótti gott að kynnast.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Söknuðurinn er sár, góðrar vin-
konu er minnst, þó er þakklætið til
staðar að hún fékk lausn frá sjúk-
dóminum grimma.
Elsku Siggi, Ragnhildur, Óli og
fjölskyldur, hugur okkar allra er
hjá ykkur.
Pálína, Ása, Lilja og Amalía.
Kveðja frá félaginu
Íslensk grafík
Við hjá félaginu Íslensk grafík
viljum minnast félaga okkar
Helgu Ármanns grafíklistakonu
sem fallin er frá eftir erfið og löng
veikindi. Hún lauk námi úr graf-
íkdeild Myndlista- og handíða-
skóla Íslands árið 1986 og fljót-
lega eftir það var hún orðin
meðlimur í Íslensk grafík. Í félag-
inu var hún virkur þátttakandi og
lagði sig fram bæði sem stjórnar-
meðlimur og grafíklistamaður.
Helga hafði sérstaklega góða
nærveru og alltaf þar sem hún var
til staðar geislaði af henni. Að
vinna með henni að verkefnum í
félaginu var auðvelt og þökkum
við henni óeigingjarnt starf.
Helga tók þátt í fjölda sýninga
bæði hér heima og erlendis. Verk
hennar voru unnin á einlægan og
kraftmikinn hátt með tilvísun í
náttúruna.
Það var mikið áfall fyrir okkur
félagsmenn og aðra vini þegar
Helga veiktist alvarlega. Hún var
samt sem áður virk í allri sinni
listsköpun og sýndi mikla þraut-
seigju þegar þessi veikindi bar að.
Hún vann að listsköpun sinni eins
lengi og heilsa leyfði.
Við hjá félaginu Íslensk grafík
viljum þakka Helgu fyrir góða
samveru og sendum fjölskyldu
hennar innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Fyrir hönd félagsins Íslensk
grafík,
Anna Snædís Sigmarsdóttir
og Valgerður Hauksdóttir.
Helga Ármanns
✝ Erling R. Guð-mundsson
fæddist 20. janúar
1942 í Reykjavík.
Hann lést 8. júní
2018 á Hrafnistu í
Reykjavík.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Andrésson, f. 8.6.
1895, d. 20.3.
1992, frá Skaga í
Skagafirði og síð-
an dýralæknir á Sauðárkróki,
og kona hans Dagbjört Dag-
mar Lárusdóttir, f. 8.8. 1907,
d. 18.12. 1975, húsmóðir frá
Ísafirði. Þau ættleiddu Erling
á fyrsta ári. Móðir Erlings var
Andrea Tara. 2) Guðmundur
Andrés Erlingsson, f. 28.3.
1974, í sambúð með Sigur-
laugu Knudsen, f. 6.10. 1978.
Sonur þeirra er Breki Már og
börn Sigurlaugar eru Gabríel
Þráinsson og Hekla Sif Þráins-
dóttir.
Erling ólst upp á Sauðár-
króki þaðan sem hann lauk
gagnfræðaprófi en að því
loknu fór hann á sjóinn. Hann
fluttist til Reykjavíkur 1966 og
starfaði sem háseti og báts-
maður hjá Eimskipafélaginu
frá 1966-1980, þegar hann hóf
störf hjá álverinu í Straums-
vík. Samhliða störfum sínum
hjá Eimskip og álverinu sat
hann í stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur og Trúnaðar-
mannaráði Sjómannafélags Ís-
lands.
Útför Erlings fer fram frá
Garðakirkju á Álftanesi í dag,
14. júní 2018, kl. 13.
Sigríður Steinunn
Jónsdóttir, f. 3.8.
1913, d. 23.7.
1991, frá Þingeyri
í Dýrafirði. Hálf-
systir Erlings sam-
mæðra er María
Ragnarsdóttir, f.
14.12. 1950.
Eiginkona Er-
lings var Ríkey Ei-
ríksdóttir, f. 4.12.
1942. Þau slitu
samvistum 1981. Börn þeirra
eru: 1) Erla Gígja Erlings-
dóttir, f. 7.11. 1967, ekkja Ás-
geirs Þórðarsonar f. 23.8.
1964, d. 15.12. 2015. Dætur
þeirra eru Anika Thea og
Erling Richard Guðmundsson
var sjómaður af gamla skólanum;
máttarstólpi um áratugaskeið í
stjórn Sjómannafélags Reykjavík-
ur, síðar Íslands; heiðursfélagi
sem stoltur bar gullmerki félags-
ins. Erling var í stjórn félagsins
1978-2014 en hafði ári áður verið
kjörinn í samninganefnd far-
manna og stóð þar vakt til 2014.
Harður í horn að taka en réttsýnn
og hallaði aldrei réttu máli.
Erling átti sæti í trúnaðar-
mannaráði til 2016, formaður
sjúkrasjóðs félagsins, sat í Sjó-
mannadagsráði um langt árabil;
sat þing Sjómannasambands Ís-
lands, ASÍ og fulltrúi félagsins á
þingum Norræna flutningaverka-
mannasambandsins.
Erling var fæddur í ársbyrjun
1942 og tólf ára gamall fór hann til
sjós á trillu frá Sauðárkróki og
sextán ára gamall réð hann sig í
pláss á togarann Norðlending frá
Ólafsfirði. Hann fór á tvær vertíð-
ir í Vestmannaeyjum en hugur
hins unga manns leitaði ævintýra í
farmennsku. Hann réði sig til
skipadeildar SÍS á ms. Jökulfell,
sem sigldi einkum vestur um haf.
Þá lá leiðin til Eimskipafélagsins á
ms. Selfoss, sem líka flutti freðfisk
til Bandaríkjanna. Erling undi þar
hag sínum vel í 12 ár. Hann var
einlægur aðdáandi Bandaríkjanna
og unni New York. Erling fór í
land og voru borgarferðir helsta
áhugamál hans. Hann dvaldi ávallt
nokkrar vikur í borg. New York
stóð þar upp úr. Hann fór jafnan
einn, sem er merkilegt því hann
var mikill félagsmálamaður.
Ásamt ferðalögum voru málefni
Sjómannafélagsins helsta áhuga-
mál hans; okkar maður vakinn og
sofinn yfir velferð og hag sjó-
manna.
Ég kynntist Erling í hafnar-
vinnu hjá Hafskip, en við höfðum
átt sameiginlegar Ameríkusigling-
ar; hann munstraður á ms. Selfoss
og ég á ms. Brúarfoss. Löngu síðar
komst ég að því að hann hafði beitt
sér fyrir ráðningu minni.
Samstarf okkar var ávallt náið
og farsælt. Ég leitaði jafnan til
hans og alveg sérstaklega þegar úr
vöndu var að ráða. Hann var þá
sem klettur, ráðagóður og alltaf til
staðar. Undanfarin ár átti Erling
við heilsubrest að stríða og bjó
undanfarin ár á Hrafnistu. Við
héldum nánu sambandi og hann
fylgdist vel með og var jafnan upp-
lýstur um öll mál Sjómannafélags-
ins.
Erling var jafnan annt um hag
annarra og jafnan boðinn og búinn
til aðstoðar. Hann setti velferð
fólks jafnan ofar eigin hagsmun-
um, svo jafnvel að mér var um og ó
og hafði orð á. Þá brosti Erling.
Þegar ég vakti máls á þörf á
endurnýjun húsgagna á Boða-
granda svaraði hann kankvís:
„Þetta er nógu gott.“
Erlings er sárt saknað af félög-
unum í Sjómannafélaginu. Ein-
stakur maður, drengur góður er
genginn. Við Harpa kveðjum ein-
stakan vin djúpum söknuði og
sendum fjölskyldu okkar dýpstu
samúðarkveðjur
Jónas Garðarsson,
formaður Sjómannafélags
Íslands.
Erling R.
Guðmundsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
TRAUSTI R. HALLSTEINSSON,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 6. júní.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 15. júní klukkan 13.
Björk Ingvarsdóttir
Hallsteinn I. Traustason Nína V. Björnsdóttir
Vignir Þór Traustason Inga H. Guðfinnsdóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
BALDVINS EINARSSONAR,
Fróðengi 1,
lengst af Bláskógum 6.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á meltingar- og
nýrnadeild Landspítalans fyrir góða umönnun.
Sigurveig Haraldsdóttir
Einar Baldvinsson Aðalheiður Jónsdóttir
Jón Heiðar Baldvinsson Jóhanna Sturlaugsdóttir
Gunnar Baldvinsson Björg Sigurðardóttir
Eyrún Baldvinsdóttir Stefán Jóhannsson
Baldvin, Karólína, Jón Valur, Einar Örn, Þórey, Sigrún,
Sigurgeir, Anna Karen, Erna Björk, Bjarki, Sigurður, Viðar
og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN R. THORLACIUS,
lést mánudaginn 4. júní.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
föstudaginn 15. júní klukkan 13.
Jarðsett verður á Staðastað.
Áslaug Th. Rögnvaldsdóttir Sven Aschberg
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir Árni Þór Vésteinsson
Ragnhildur Rögnvaldsdóttir Markús Gunnarsson
Finnbogi Rögnvaldsson Sæbjörg Kristmannsdóttir
Örnólfur Rögnvaldsson Magnea Þóra Einarsdóttir
Ólafur Rögnvaldsson María Edwardsdóttir
Nanna Lind Svavarsdóttir
Kristín R. Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÞORSTEINSSON,
fyrrverandi bóndi á Skúfsstöðum,
síðar skógarbóndi á Melum,
Hjaltadal,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Sauðárkróki, 9. júní.
Útför hans fer fram frá Hóladómkirkju 21. júní klukkan 13.30.
Hólmfríður G. Sigurðardóttir Gunnar Þór Garðarsson
Reynir Þór Sigurðsson
Una Þórey Sigurðardóttir Rafn Elíasson
Njáll Haukur Sigurðsson Arnfríður Agnarsdóttir
Inga Sigurðardóttir Stefán Ægir Lárusson
Halla Sigrún Sigurðardóttir Birkir Marteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær dóttir, móðir, systir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GYÐA SIGURÐARDÓTTIR,
andaðist á heimili sínu fimmtudaginn
30. maí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 15. júní klukkan 15.
Sigurður Jónsson
Kristjana Barðadóttir Björn Óli Hauksson
Ragnhildur Barðadóttir Sigurður Ringsted
Thor Axel Patriksson Healy
Sigurður Sigurðsson
Þorsteinn Sigurðsson
Stefán Barði, Marisa, Valter, Máni, Gunnhildur,
Kristjana Björk, Atli,
Arnar Þór, Steinþór, Eyþór og Frosti
Útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSDÍSAR VALDIMARSDÓTTUR,
Hamrahlíð 3,
Grundarfirði,
verður gerð frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 16. júní klukkan 11. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið Von, Grundarfirði.
Kolbrún Sjöfn Matthíasdóttir Ólafur F. Magnússon
Lárus Þorvarðarson Pía Bertelsen
Jóhannes G. Þorvarðarson Kolbrún Reynisdóttir
Sigurður Ólafur Þorvarðars. Sjöfn Sverrisdóttir
Sævör Þorvarðardóttir Einar Guðmundsson
Jón Bjarni Þorvarðarson Anna Dóra Markúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn