Morgunblaðið - 14.06.2018, Side 62
Hestakonan Linda Rún við útskrift af reiðkennarabraut frá Háskól-
anum á Hólum árið 2011. Með henni á myndinni er Máni frá Galtanesi.
ÍÁ Staðarhúsum í Borgarfirði er rekin ferðaþjónustan Hestalanden hana rekur Linda Rún Pétursdóttir, tamningamaður og reið-kennari, ásamt bróður sínum, Guðmari Þór Péturssyni. Fimm ár
eru frá því að Hestalandi var stofnað og gengur starfsemin vel.
„Við fáum hópa til okkar á sumrin bæði í kennslu og í hestaferðir
um landið og við erum með gistiheimili og sumarhús, samtals fyrir 20
manns. Svo rekum við tamningastöð hérna á veturna og bjóðum upp á
reiðkennslu allan ársins hring,“ segir Linda Rún.
„Ég er ófrísk og á von á mér í lok ágúst og er því ekkert að temja
eða keppa, er að sinna öðru hérna á Hestalandi. Ég er bara í smápásu
núna og held ótrauð áfram að temja og keppa í haust,“ Linda Rún
varð heimsmeistari ungmenna í tölti árið 2009 og var í framhaldinu
valin íþróttakona Mosfellsbæjar.
„Hitt áhugamálið mitt er söngur, ég var aðeins í Söngskóla Reykja-
víkur, en ég hef ekki haft tíma fyrir sönginn. Einnig kláraði ég einka-
þjálfarann og hef örlítið sinnt því með tamningum og reiðkennslu.“
Linda Rún ætlar ekki að gera neitt sérstakt í tilefni afmælisins. „Ég
verð í vinnunni. Þegar maður rekur ferðaþjónustu þá er erfitt að
bregða sér af bæ, en kannski maður fái sér köku.“
Eiginmaður Lindu er Ásgeir Yngvi Ásgeirsson smiður. Sonur
Lindu Rúnar og Ásgeirs er Baltasar Jökull 5 ára, en sonur Ásgeirs frá
fyrra sambandi er Rafn 7 ára.
Rekur ferðaþjón-
ustuna Hestaland
Linda Rún Pétursdóttir er þrítug í dag
62 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Skál fyrır hollustu
G
unnar Kristinn Gunn-
arsson fæddist á Súg-
andafirði 14.6. 1933,
ólst þar upp fyrstu tvö
árin, síðan á Akranesi í
fimm ár en síðan í Reykjavík.
Gunnar var í sjö ára bekk á Akra-
nesi, síðan Austurbæjarskóla og
einn vetur í Miðbæjarskóla. Hann
stundaði síðan nám við Versl-
unarskólann og útskrifaðist þaðan.
Gunnar var sendisveinn á náms-
árunum, fyrst við fiskbúð við Berg-
staðastræti og síðan við verslunina
Þórsmörk, á horni Laufásvegs og
Baldursgötu. Þá var hann bréfberi
hjá Póstinum í eitt ár, starfaði á
Keflavíkurflugvelli í tæpt ár og
vann í Málaranum um skeið.
Gunnar hóf störf við Útvegsbank-
ann 1952 og vann þar til starfsloka.
Hann starfaði þar fyrst við bókhald,
vann síðan lengi í gjaldeyrisdeild
bankanna, opnaði útibú Útvegs-
bankans í Hafnarfirði og var fyrsti
útibússtjóri þar í fimm ár og starf-
aði síðasta starfsárið við útibú Út-
vegsbankans á Seltjarnarnesi, árið
1992.
Gunnar festi kaup á fasteignum
að Bárugötu 11 og rak þar gisti-
húsið Ísafold í fjölda ára til 2015.
„Það má segja að ég hafi tekið
tvær örlagaríkar ákvarðanir þegar
ég var 12 ára: Að byrja að æfa
knattspyrnu með Val og byrja að
tefla hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Þó
að ég segi sjálfur frá held ég að ég
hafi orðið vel liðtækur í hvoru
tveggja og er svolítið stoltur af því.
Knattspyrnan og skákin hafa veitt
mér ómælda ánægju alla tíð síðan.“
Gunnar lék með meistaraflokki
Vals frá 16 ára aldri, 1949 og til
1958, og var í hópi fremstu knatt-
spyrnumanna okkar á sínum tíma .
Hann varð Íslandsmeistari með Val
1956 og lék sjö landsleiki 1953-57.
Gunnar varð skákmeistari Tafl-
félags Reykjavíkur 1954, 1959, 1962
og 1971 (ásamt Magnúsi Sól-
Gunnar Kristinn Gunnarsson, fyrrv. útibússtjóri – 85 ára
Afmælisbarnið með systkinum Hér er Gunnar Kristinn, lengst til hægri, ásamt Steinþóri Marínó og Jóhönnu.
Landsliðsmaður í
knattspyrnu og skák
Fjólmundur Forni Karlsson, Bjarni Sævar Óðinsson, Helga Ólafsdóttir, Sóley
María Óttarsdóttir og Guðrún Friðrikka Vífilsdóttir söfnuðu dósum á Akureyri
að andvirði 5.000 krónur til styrktar Rauða krossinum á Íslandi.
Fjáröflun
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón