Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018
Óperan Brothers fjallar umstríð, bræðralag og ástirog er byggð á samnefndrikvikmynd frá 2004 eftir
Susanne Bier. Óperan er fyrsta óp-
eruverk Daníels Bjarnasonar og
var frumsýnd síðsumars árið 2017 í
Árósum. Frumsýningin á laug-
ardaginn var er öðrum þræði einn
af stórviðburðum á 100 ára full-
veldisafmæli Íslands; hvað annað
en íslenskt/danskt samstarfsverk-
efni gæti átt betur við en Brothers
á þessari stundu, var spurt í leik-
skrá. Óperan var flutt á ensku og
var um 100 mínútur í flutningi án
hlés.
Michael og Peter eru á leið á víg-
völlinn. Michael fer frá Söru eig-
inkonu sinni og dóttur, Nadiu, og
Peter frá eiginkonu sinni Önnu,
sem er barnshafandi.
Þeir Michael og Peter eru taldir
af þegar þyrla þeirra ferst. Faðir
Michaels hefur alla tíð haft meira
dálæti á fallna syninum en yngri
bróðurnum, Jamie, og segir að Ja-
mie hefði betur farist.
Jamie sést vekja Söru upp um
miðja nótt, drukkinn og blóðugur
eftir slagsmál. Samdráttur hefst
fljótlega með þeim. Seinna kemur í
ljós að Michael hefur í raun lifað af
og snýr aftur. Anna, sem hefur alið
barnið, bíður og vonar að Peter
muni brátt einnig snúa til baka. Of-
urstinn Peter ræðir við Michael og
spyr hann út í atburðinn. Michael
veit minnst þar sem hann sjálfur
var í haldi óvinahersins. Michael er
fjarhuga og honum reynist erfitt að
aðlagast fyrra lífi. Ljóst er að Ja-
mie og Sara eru orðin náin. Michael
fyllist afbrýðisemi og bregst á ofsa-
fenginn hátt við því þegar dóttir
hans Nadia óhlýðnast honum. Eftir
að hafa misst stjórn á sér ítrekað
og vegið að Söru, játar Michael fyr-
ir ofurstanum að hafa séð Peter á
lífi. Ofurstinn biður hann um að
þegja yfir þessari vitneskju og
hætta að kvelja sjálfan sig. Á sama
tíma birtist Sara heima hjá Jamie.
Og þau þrá hvort annað. Í afmæl-
isveislu Nadiu missir Michael alla
stjórn á sér. Hann gengur út til að
hafa uppi á Önnu. Michael fær sig
ekki til að játa hver örlög Peters
urðu áður en honum sjálfum var
bjargað. Þegar Michael kemur aft-
ur í afmælisveisluna birtist honum
draugur Peters og að endingu af-
hjúpar hann sannleikann og segir
frá því sem gerðist í raun og veru:
að hann hafi verið neyddur til þess
að drepa Peter til þess að bjarga
eigin lífi.
Svo hljóðar stór-hádramaóperu-
verk sumarsins 2018 upp á Íslandi
nema heimsknattspyrnumótið verði
sögulegra (á hvorn veginn sem fell-
ur). Tilfinningin var á þá leið að
fjögurra tíma óperuverk hefði feng-
ið snögga niðursuðu í 100 mínútur;
myrk og óvenjulega þung ópera, á
köflum svarthol að því manni virt-
ist, þ.e. sá staður í alheimi þar sem
gríðarlegur massi, í þessu tilfelli
ástarþríhyrningur og persónuleg
ágjöf sveigir tímarúmið út í hið
óendanlega. En verkið ber þess öll
merki að vera í senn nýsköpun og
endurvinnsla á óperuforminu og
mun þess vegna seint teljast heppi-
leg fyrir byrjendur til áheyrnar. En
lengra komnir mega hinsvegar vera
kátir með afraksturinn.
Formið – hvort heldur stórbrotin
tónlist, frjó og hugvitsamleg sviðs-
mynd auk fágaðrar en um leið út-
smoginnar leikstjórnar – var svo
meitlað, knappt og skarpt að á köfl-
um virkaði söguþráðurinn, ástar-
þríhyrningurinn, nánast aukreitis,
kaffærður.
Uppfærslan á Brothers var fyrst
og síðast framúrskarandi vel og
fagmannlega flutt í alla staði. Ís-
lenska óperan býr nú yfir kjölfestu
í kórnum sem Magnús Ragnarsson
stýrir, en Magnús skilaði af sér sér-
lega kröftugum hópi úrvals söngv-
ara sem kunni öll smáatriði upp á
punkt og prik. Leikstjórinn tók við
keflinu og beitti kórnum, sem á
mun stærri þátt en ella í óperum,
með áhrifaríkum hætti og skerpu í
leiknum. Kórinn var ávallt til stað-
ar á sviðinu allan tímann, um-
kringdi vettvanginn, stóð hjá sem
þögult vitni, stundum kyrrstæður
sem frosinn en tók við sér á stund-
um með fíngerðu látbragði á rétt-
um augnablikum, hallaði sér fram
eða umkringdi hermanninn í einu
þrungnasta augnabliki leiksins og
hvatti til athafna. Leikhússjónauki
væri æskilegur upp á smáatriðin,
svipbrigði og augngotur, ef manni
býðst önnur sýning.
Maður var í raun úrvinda eftir
flutninginn, en næstu daga á eftir
lýsti þetta verk upp júnígrámann.
Leikmynd sem og lýsing var út-
hugsuð í þaula og áhrifarík eftir
því; líkt og hvítkalkaður aðal-
uppdráttur af heila; hvítur kassi
með þrepum langs útveggjum sem
hélt utan um leikinn frá upphafi til
enda – sneiðmynd af ferköntuðu
hringleikjahúsi er umfaðmaði í
senn heimsmynd og heilabú við-
staddra. Svartklæddur kórinn varð
áhrifaríkur í þessu sjónarspili. Á
hvíta veggina var myndbandi varp-
að, sprengingar og skíðlogandi báli
á því augnabliki sem dauða her-
mannsins bar að. Þá var skugga-
myndum af mannverum varpað upp
sem og lykiltextum úr líbrettoi.
Heilt yfir var sýningin svo abstrakt
og köld að einu leikmunirnir, róla,
borð og stólar, jafnvel her-
mannabúningar, virkuðu á stund-
um jafnvel framandi í umhverfinu.
Erfitt er að gera upp á milli
framúrskarandi frammistöðu ein-
söngvaranna. Tveir íslenskir
söngvarar skera sig þó úr, þeir
Elmar Gilbertsson og Oddur Arn-
þór Jónsson sem eru báðir á svo
mikilli siglingu að unun að sjá og
hlýða á. Framganga Odds Arnþórs
er sérlega aðdáunarverð með tilliti
til þess að hann stökk inn í aðal-
hlutverið með stuttum fyrirvara.
Stórathafnamaðurinn Daníel
Bjarnason er orðinn sér-fenómen í
tónlistarheiminum, og skilur hér
um bil kollega sína íslenska sem er-
lenda eftir í rykinu. Tónlistin í
Brothers – þéttofinn innblásinn
vefur, fullur af tjáningu og þján –
stendur hæglega ein og óstudd.
Maður eiginlega gapir yfir þessari
ótrúlegu framleiðslu, þessum
þroska og afköstum í hæstu hæðum
hjá einum manni, og ekki eldri
manni!
Óperuhelvíti
Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir
Þroski „Maður eiginlega gapir yfir þessari ótrúlegu framleiðslu, þessum þroska og afköstum í hæstu hæðum hjá einum manni, og ekki eldri manni!“ segir
rýnir um tónskáldið Daníel Bjarnason sem stjórnaði fyrstu óperu sinni, Brothers, í Hörpu um helgina. Flutningurinn var hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Eldborg Hörpu
Brothers bbbbm
Ópera í þremur þáttum eftir Daníel
Bjarnason. Libretto eftir Kerstin Perski.
Hljómsveitarstjórn: Daníel Bjarnason.
Leikstjórn: Kasper Holten. Meðleik-
stjóri: Amy Lane. Leikmynd og bún-
ingar: Steffen Aarfing. Hljómsveit: Sin-
fóníuhljómsveit íslands.
Konsermeistari: Nicola Lolli. Kórstjóri
kórs Íslensku óperunnar: Magnús Ragn-
arsson. Kór: Kór Íslensku óperunnar.
Ljósahönnuður: Ellen Ruge. Mynd-
bandshönnuður: Signe Krogh. Tónlistar-
undirbúningur: Bjarni Frímann Bjarna-
son. Söngvarar: Oddur Arnþór Jónsson
(Michael), Marie Arnet (Sarah, eig-
inkona Michaels), Selma Buch Ørum
Villumsen (Nadia, dóttir þeirra), Elmar
Gilbertsson (Jamie, bróðir Michaels),
Jakob Zethner (faðir Michaels og Ja-
mies), Hanna Dóra Sturludóttir (móðir
Michaels og Jamies), James Laing (Pet-
er, vinur Michaels í hernum), Þóra Ein-
arsdóttir (Anna, eiginkona Peters) og
Paul Carey Jones (Ofurstinn). Íslenska
óperan í samstarfi við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og Jósku óperuna
sýndi á Listahátíð í Reykjavík í Eldborg
Hörpu laugardaginn 9. júní kl. 19.30.
INGVAR
BATES
TÓNLIST
S: 555 0800 · Fornubúðum 12 · Hafnarfirði · sign@sign.is · facebook.com/signskart
WWW. S I G N . I S