Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 14.06.2018, Qupperneq 76
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 165. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Alfreð hagnaðist afar vel … 2. Langamma Alberts telur sigur… 3.Ísland gerði frábæra hluti á EM 4. Ólíðandi vinnubrögð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Heimilistónar halda sitt árlega kjólaball í Gamla bíói á laugardag kl. 22. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitar- innar eftir að hún flutti Kúst og fæjó í Söngvakeppninni. Hljómsveitin hefur starfað í rúm 20 ár og sérhæfði sig framan af í erlendum smellum frá gullaldarárum rokksins við eigin texta en hefur á síðustu árum flutt æ fleiri lög úr eigin smiðju. Morgunblaðið/Hanna Kjólaball Heimilis- tóna í Gamla bíói  i8 galleríið tek- ur nú um helgina rétt eins og und- anfarin ár þátt í Art Basel- listkaupstefnunni sem er sú um- fangsmesta sem sett er upp. Yfir 290 gallerí sýna og meðal listamanna sem i8 setur upp verk eftir eru Hildigunnur Birgis- dóttir, Ragnar Kjartansson, Ragna Róbertsdóttir og Ólafur Elíasson. i8 galleríið á Art Ba- sel eins og síðustu ár  Bláklukkur fyrir háttinn, nýtt leikrit Hörpu Arnardóttur, verður flutt á Snæfellsnesi dagana 15.-17. júní. Verkið er flutt sem hljóðverk í hirð- ingjatjaldi sem stað- sett er á vel völd- um stað fjarri mannabyggðum. Allar nánari upplýs- ingar um tíma- og staðsetningar eru á vef Listahátíðar í Reykjavík. Bláklukkur Hörpu fluttar á Snæfellsnesi Á föstudag Norðlæg átt, 5-13 m/s. Skýjað og rigning með norður- og austurströndinni fram undir hádegi og sums staðar slydda til fjalla, en skýjað með köflum og þurrt sunnan jökla. Hiti 2 til 12 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi norðan- og norðaustanátt með rign- ingu norðan- og austantil, víða 8-15 síðdegis, en skýjað með köfl- um og þurrt um landið suðvestanvert. Hiti 5 til 14 stig. VEÐUR Íslandsmeistarar Vals styrktu stöðu sína á toppi Pepsi-deildar karla í fót- bolta með 1:0-sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum í gær. Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Íslandsmótsins 2016, skoraði sigurmarkið snemma í seinni hálfleik og er að finna sig í liði Vals á nýjan leik. Valur er með 15 stig eftir átta leiki en bikar- meistarar ÍBV eru með 8 stig. »2-3 Meistararnir í efsta sætinu Sumir vilja meina að Jorge Sampaoli landsliðsþjálfari hafi tekið við arg- entínska liðinu of seint og hafi ekki haft nægan tíma til að móta það fyrir þetta mikilvæga mót, sem gæti orðið síðasta tækifæri Lionels Messi til að leiða landsliðið til sigurs á heims- meistaramóti. »2 Sampaoli sagður hafa fengið of stuttan tíma „Ég held að þetta verði mjög krefj- andi leikur fyrir Argentínu. Þetta er fyrsti leikurinn á mótinu og Ísland er – ég veit ekki hvernig best er að orða það – mjög fast fyrir,“ segir Tomás Bence, blaðamaður hjá La Nación í Argentínu, meðal annars í spjalli við Morgunblaðið um leikinn sem framundan er á milli Íslands og Argentínu. »1 Mjög krefjandi leikur fyrir Argentínu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Ljósmyndarinn Elma Rún Benedikts- dóttir lá í leyni í um tvo tíma dag einn nú í byrjun júní og fylgdist með tófu ferja yrðlinga sína yfir straumharða á, sem meðfylgjandi mynd sýnir. „Ég sá hana fyrst hlaupa fram hjá mér, svo ég ákvað bara að elta hana,“ segir Elma en hún hefur um árabil stundað dýraljósmyndun vítt og breitt um landið. „Hún er sem sagt að skipta um greni,“ segir Elma og bætir við: „Hún er að færa yrðlingana frá einum stað til annars og neyðist til þess að fara yfir þessa á.“ Elma eyddi þremur dögum í frið- landinu á Hornströndum snemma í júní þar sem hún myndaði náttúrulífið en refir og fuglar hafa verið helsta mynd- efni hennar. „Ég var bara svo heppin að ná þess- um myndum,“ segir Elma en ljóst er að hún var rétt manneskja á réttum stað og tíma í þetta skiptið. Elma hefur eytt mestum tíma við ljósmyndun á Suðurlandi en hefur einn- ig farið í ljósmyndaferðir á Jökulfirði og Mývatn. Heimskautarefurinn, sem einnig er oft þekktur sem melrakki eða tófa, er eina tegund refa sem lifir villt á Íslandi. Þá er heimskautarefurinn einnig eina landspendýrið í íslensku dýraríki sem borist hefur til landsins án aðstoðar manna en talið er að fyrstu heimskauta- refirnir hafi borist hingað til lands með hafís fyrir um 10.000 árum. Telja má að yrðlingurinn á myndinni hér að ofan sé einungis nokkurra vikna gamall. Elti uppi tófu og lá í tvo tíma Ljósmynd/Elma Ben. Móðir Hvarvetna í dýraríkinu má sjá ást móður á unga sínum. Myndina tók Elma á dögunum í friðlandinu á Hornströndum. Ljósmyndari Elma Rún tekur fjölda mynda í dýraríkinu.  Náttúruljósmyndarinn Elma Rún náði mynd af tófu að ferja yrðling yfir á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.