Morgunblaðið - 22.06.2018, Qupperneq 4
Í VOLGOGRAD
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Það var tilfinningaþrungin stund
þegar Evgenía Mikaelsdóttir, eig-
inmaður hennar og tveir synir
skoðuðu sig um í hvelfingu við
styttuna stórkostlegu, Móðurlandið
kallar, í Volgograd í gær. Á vegg
hvelfingarinnar eru grafin nöfn
allra þeirra sovésku hermanna sem
féllu, og hægt var að bera kennsl á,
í orrustunni grimmilegu um borg-
ina í síðari heimsstyrjöldinni
Amma Evgeníu fékk á sínum
tíma tilkynningu heim til Len-
íngrad, sem nú heitir Pétursborg,
um að eiginmaður hennar hefði
fallið en það var ekki fyrr en í gær,
telur Evgenía, sem einhver úr fjöl-
skyldunni fær það endanlega stað-
fest með eigin augum að borin hafi
verið kennsl á afa hennar, og lang-
afa sonanna, en hann hafi ekki ver-
ið meðal þeirra mörgu sem létu líf-
ið en ekki var frekar vitað um.
Þökk sé Gorbatsjov!
Evgenía hefur búið á Íslandi í 27
ár. Hún kynntist eiginmanni sínum,
Gunnari Bjarna Ragnarssyni, árið
1987 þegar hann kom til Péturs-
borgar í hópi 5.000 ungmenna frá
Norðurlöndunum sem boðið var
austur um eftir að Mikhaíl Gorba-
tsjov hófst handa við breytingar í
Sovétríkjunum með Perestrojku og
Glasnost.
„Ég fór með tveimur hljóm-
sveitum sem vinir mínir voru í, við
gistum í heimahúsum og Evgenía
var túlkurinn okkar í þessari ferð,“
sagði Gunnar Bjarni í gær.
Því má segja að það sé Gorba-
tsjov og breytingum hans á sov-
ésku samfélagi að þakka að þau
Gunnar og Evgenía eru hjón.
„Þetta var í fyrsta skipti sem land-
ið var opnað á þennan hátt. Fáum
árum áður hefði verið óhugsandi að
svona stór hópur kæmi, gisti heima
hjá fólki og umgengist almenning á
þennan hátt. Ég hefði verið hand-
tekin ef ég hefði hitt Gunnar áður,
hvað þá farið á stefnumót!“
Minningarsvæðið í Volgograd er
stórkostlegt. Styttan, Móðurlandið
kallar, er 85 metra há, steinsnar
frá knattspyrnuvellinum þar sem
Ísland mætir Nígeríu í kvöld, og
gnæfir vitaskuld yfir borgina. Kon-
an sjálf er 52 metrar á hæð og
sverðið 33 metrar. Til samanburðar
má nefna að Frelsisstyttan í New
York er 46 m á hæð, en er þó jafn-
an sögð 93 metrar, því stöpullinn
undir hennar svo stór.
Styttan í Volgograd er enn sú
stærsta í Evrópu og stærsta stytta
af konu í veröldinni.
Orrustan um Stalíngrad, eins og
Volgograd hét þá, er talin einn
mesti hildarleikur sögunnar og yf-
irleitt er mat manna það, að sigur
Sovétmanna við Stalíngrad hafi
verið vendipunktur í seinni heims-
styrjöldinni
Gríðarlegt mannfall varð í orr-
ustunni, sem stóð frá því í ágúst
1942 og lauk ekki fyrr en í byrjun
febrúar árið eftir. Ætlað er að allt
að ein og hálf milljón Sovétmanna
hafi látið lífið svo ekki er að undra
að minningarsvæðið skipti Rússa
miklu máli.
Neðan við styttuna er hvelfingin
sem áður var nefnd. Magnþrunginn
staður, þar sem eilífum eldi er
haldið á lofti af risastórri hendi og
nöfn allra þeirra hermanna sem
létust í hildarleiknum, og hægt var
að bera kennsl á, eru grafin í vegg-
ina.
Mjög sérstök tilfinning
Fjölskyldan skoðaði veggina
gaumgæfilega og leitin bar árang-
ur.
„Já, ég sá nafn afa míns og fór
bara að gráta,“ sagði Evgenía við
Morgunblaðið eftir að hún kom út
úr hvelfingunni.
„Það var mjög sérstök tilfinning
að sjá nafnið hans, líka fyrir strák-
ana mína,“ segir hún. „Þetta er
stórkostlegur dagur – ég gat ekki
beðið um meira en að finna nafnið.
Við Gunnar höfum stundum talað
um að koma hingað og eftir að Ís-
land komst á HM var að sjálfsögðu
öruggt mál að við færum. Þegar
svo kom í ljós að Ísland myndi
spila í Volgograd kom ekki annað
til greina en koma hingað, til afa.“
Evgenía segir yndislegt að upp-
lifa hve margir Rússar séu hrifnir
af íslenska landsliðinu. Þyki raunar
afar vænt um það. „Án gríns, allir
elska Ísland. Þegar fólk kemst að
því að við séum frá Íslandi – alveg
sama hvar við komum – þá byrjar
ballið! Við hittum einmitt einn
strák hér sem kom sérstaklega frá
Moskvu til Volgograd til þess að
sjá Ísland spila á móti Nígeríu.
Mér fannst það mjög fallegt af hon-
um.
Margir fylgdust með Evrópu-
keppninni fyrir tveimur árum og
hrifust af því hvað þessi litla þjóð
getur gert. Fólk er hrifið af því hve
baráttuviljinn er mikill, að allir geti
staðið svona saman og að öll þjóðin
fylgist í raun að.“
Sá nafn afa síns og fór að gráta
Tilfinningaþrungin stund að fá loks endanlega staðfest að borin hafi verið kennsl á afa og langafa
Lést í orrustunni um Stalíngrad árið 1942 Evgenía Mikaelsdóttir hefur búið á Íslandi í 27 ár
Morunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leitin að afa Evgenía og Arnar skima eftir nafni gamla mannsins á vegg í minningarhvelfingunni í Volgograd.
Áhrifaríkt Evgenía Mikaelsdóttir, Gunnar Bjarni Ragnarsson og synir
þeirra, Leifur til vinstri og Arnar til hægri, við Móðurlandið í gær.
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Arndís Jóhannsdóttir ásta créative clothes
Sunna Sigfríðardóttir
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Reykjavík „Ég segi 2:1 fyrir
okkur, Gylfi og Alfreð með
mörkin. Þetta gæti orðið erf-
itt, það er líka svo heitt. Níger-
íumenn eru vanari hitanum.“
Guðmundur M. Kristjánsson
Volgograd „Hann fer 2:1
fyrir Nígeríu. Þessir gaurar í
nígeríska liðinu hlaupa alltaf
í 40 stiga hita en ekki við.
Við erum vanari 6 stigum.“
Hólmfríður Tryggvadóttir
Reykjavík „Þetta fer 2:0
fyrir Ísland, Gylfi og Kári
skora mörkin. Við erum að
fara út á leikinn svo ég vona
að þetta verði fjörugt.“
Jóhann Guðbjargarson
Volgograd „Leikurinn fer
2:0 fyrir Ísland.Við spilum
mjög vel sem liðsheild og
strákarnir eru alveg með
þetta í blóðinu.“
Guðmundur Kári Skúlason
Reykjavík „Þetta fer 1:1. Ég
ætla að segja að Rúrik komi
með markið, hann gæti kom-
ið á óvart.“
Sæunn Ása Ágústsdóttir
Volgograd „2:0 fyrir Ísland.
Þeir verða að vinna, það hent-
ar okkur að bíða og sækja
hratt. Svo eru þeir slakir að
verjast föstum leikatriðum.“
Jason Már Bergsteinsson
Spurt í Reykjavík og Volgograd: Hvernig fer leikurinn í dag á milli Íslands og Nígeríu og hverjir skora?