Morgunblaðið - 22.06.2018, Blaðsíða 14
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Minjastofnun hefur á þessu ári
veitt 22 leyfi til fornleifarannsókna.
Flest leyfin eða 13 eru til svokall-
aðra framkvæmdarannsókna og
framkvæmdaeftirlits, þar sem
fornleifar eru kannaðar eða fylgst
með því hvort þær koma í ljós í
tengslum við byggingu mann-
virkja.
Leyfi til vísindarannsókna eru
átta og eitt leyfi vegna sérstakrar
könnunar. Búist er við að fleiri um-
sóknir um uppgrefti eigi eftir að
berast og nokkrar eru í vinnslu að
sögn Sigurðar Bergsteinssonar,
verkefnisstjóra hjá Minjastofnun.
Vísindarannsóknirnar sem um
ræðir fara fram í Reykjanesbæ,
Stöðvarfirði, Mýrdalssandi, Svarf-
aðardal, Ólafsdal við Gilsfjörð, á
Þingeyrum, Odda á Rangárvöllum
og í Árbæjarsafni í Reykjavík.
Í Reykjanesbæ fer fram upp-
gröftur á Keflavíkurtúninu. Verið
er að kanna rústir þar sem Kefla-
víkurbærinn gamli stóð. Síðast var
búið þar um miðja 19. öld. Miðað
við aðra byggð á Suðurnesjum er
búseta á túninu ekki ýkja gömul
því jarðarinnar er fyrst getið í
jarðarmatsbókum árið 1597. Þarna
var um langt skeið eitt öflugasta
verslunarsvæði landsins.
Elstu minjar á Íslandi?
Á Stöð í Stöðvarfirði er haldið
áfram rannsókn á landnámsbæ og
minjum sem eru taldar eldri. Menn
velta því fyrir sér hvort þarna sé
hugsanlega fundin elsta byggð á
Íslandi.
Á Mýrdalssandi í Álftaveri er
haldið áfram rannsókn á rústum
eyðibýlis frá miðöldum sem nú
gengur undir nafninu Arfabót.
Í Hólakoti í Svarfaðardal verða
aðeins teknir könnunarskurðir.
Á Þingeyrum í Húnaþingi er leit-
að minja um klaustrið á staðnum á
miðöldum. Á Odda á Rangárvöllum
var gerður prufuskurður í leit að
fornum minjum og komu þá í ljós
leifar manngerðra hella sem eftir
er að rannsaka frekar. Í Árbæjar-
safni er verið að rannsaka gamla
býlið á staðnum, m.a. með jarð-
sjármælingum.
Í Ólafsdal í Gilsfirði er verið að
grafa upp skála frá 9. eða 10. öld
sem kom óvænt í ljós við forn-
leifaskráningu í fyrravor. Nánar
verður sagt frá uppgreftrinum í
blaðinu á morgun.
Leyfi til rannsókna á
22 fornleifum í sumar
13 vegna framkvæmda og eftirlits Átta vísindarannsóknir
Strandgata á Bíldudal
Fornleifarannsóknir sumarið 2018
Heimild: Minjastofnun Íslands.
Miðað er við leyfi veitt til 10. júní.
Svalbarðseyri við Eyjafjörð
Afleggjari við Esjustofu
Gamli Keflavíkurbærinn
í Reykjanesbæ
Tjarnará, Vestur-
Húnavatnssýslu
Stöð við Stöðvarfjörð
Bíldudalshöfn
Árbær í Reykjavík
Kleifar í Dýrafirði
Brunnar
í Látravík
Lækjargata 10-12,
Reykjavík
Aðalstræti 12b, Akureyri
Hálönd á Akureyri
Arfabót á Mýrdalssandi
Hólakot í Svarfaðardal
Ólafsdalur við Gilsfjörð
Vorsabær í
Hveragerði
Oddi á Rangárvöllum
Tryggvagata, Steinbryggja
og Bæjartorg í Reykjavík
Ægissíðuhellar
Þingeyrar í Húnaþingi
Mosfellskirkja
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
S V E F N S Ó F A R
TURI
kr. 149.800
frá Innovation Living Denmark
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Það er grunur um rakaskemmdir í
húsnæði Eglu á Höfðabakka 9, en
það hefur ekki tekist að staðfesta að
um myglu sé einnig að ræða þar sem
við höfum enn ekki komist að
skemmdunum,“ segir Einar Þor-
steinsson hjá fasteignafélaginu Reit-
um sem á og rekur húsið. Fram kom
í Morgunblaðinu á miðvikudaginn að
starfsemi verkfræðistofunnar Eflu
verður í sumarlok flutt að Lynghálsi
4 í Reykjavík frá Höfðabakka 9, þar
sem í húsinu hefðu greinst raka-
skemmdir og mygla sem kallaði á
umtalsverðar viðgerðir.
Einar segir að myglu hafi orðið
vart í húsnæði Eflu fyrir um tveimur
árum og viðgerðir vegna hennar séu
yfirstaðnar. Nú verði kannað hvort
mygla hafi komið upp á ný samhliða
rakaskemmdum.
„Það var sameiginleg ákvörðun
okkar og Eflu að vera ekki að raska
starfsemi verkfræðistofunnar með
viðgerðum fyrr en þeir væru fluttir,“
sagði Einar. Hann kvaðst halda að
flutningurinn væri ekki eingöngu
vegna rakaskemmdanna. Í stað Eflu
flytja Íslenskir aðalverktakar í húsið
og verða þar með starfsemi á 1.700
fermetrum. Einar segir að viðgerðir
vegna rakaskemmda og myglu séu
hefðbundnir þættir í starfsemi Reita
sem eiga og reka fjölmargar fast-
eignir. Húsið á Höfðabakka er 21
þúsund fermetrar að stærð. Einar
sagði að eitt annað fyrirtæki í hús-
inu, Sálfræðingar Höfðabakka, hefði
kvartað yfir rakaskemmdum og
hefði verið ráðist í viðgerðir þar,
sem kallað hefði á tilflutning innan-
húss. Sálfræðistofan sé í þeim hluta
sem snýr á móti austri. „Það er
blessuð suðaustanáttin sem lemur á
hliðinni og getur valdið leka,“ sagði
hann. Meðal annarra fyrirtækja á
Höfðabakka 9 eru Sjúkraþjálfunin
Styrkur, Íslandsbanki, Creditinfo og
Mímir-símenntun.
Æ oftar er kvartað yfir myglu-
skemmdum, jafnt í atvinnu- sem
íbúðarhúsnæði. Kostnaður við við-
gerðir á allra síðustu árum nemur
tugum milljarða. Bent hefur verið á
að á undanförnum árum hafi aukins
sparnaðar gætt í nýbyggingum. Al-
gengt sé að fólk flytji inn í hús sem
vart eru tilbúin, auk þess sem ný-
byggð hús séu mun þéttari en áður.
Það sé því mikill raki í nýjum bygg-
ingum. Þá sé algengt að skipt sé um
glugga í eldri húsum, og þeir séu
mun þéttari en þeir sem fyrir voru.
Mikilvægt sé því að huga að loftun.
Aukinn þéttleiki húsa geti oft á tíð-
um verið einn helsti valdur þess að
skemmdum fjölgi.
Myglu áður vart
á Höfðabakka
Húsnæði Eflu leigt öðru fyrirtæki
Morgunblaðið/Valli
Höfðabakki 9 Húsið er 21 þúsund
fm. Mörg fyrirtæki eru þar til húsa.
Mygluskemmdir
» Verkfræðistofan Efla flytur
úr húsinu á Höfðabakka 9 í
sumarlok vegna rakaskemmda
og gruns um myglu.
» Einnig hefur þurft að ráðast
í rakaviðgerðir hjá Sálfræð-
ingum Höfðabakka 9.
» Viðgerðir af þessu tagi eru
fastur þáttur starfseminnar
hjá fasteignafélaginu Reitum
sem á húsið.
Viðgerðir standa yfir á gluggum
Gerðar Helgadóttur í Skálholts-
kirkju. „Þeir voru festir þannig að
það var of lítið loftrúm milli hliðar-
glers og listglers og út af hitamis-
muninum döggvaði á milli og þá
skemmdust bæði rammarnir og
gluggarnir. Núna verða þeir settir í
með öðrum hætti og verður öll upp-
setningin öðruvísi,“ segir Kristján
Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skál-
holti. Gluggarnir voru fyrst settir upp
af þýska fyrirtækinu Oidtmann-
bræðrum fyrir tæpum 60 árum og sá
það jafnframt um viðgerð á glugg-
unum. ,,Það er búið að setja upp
flesta gluggana en stór gluggi á vest-
urhlið kirkjunnar verður tekinn niður
ásamt tíu gluggum,“ segir Kristján.
Þeir gluggar koma svo aftur til baka í
október og þá verður verkinu lokið.
Auk þess að gera við listgluggana
hefur verið skipt um hlífðargler og
gluggaopin lagfærð. Myndhöggv-
arinn Gerður Helgadóttir vann
gluggana í Þýskalandi árið 1959.
Einnig hafa staðið yfir viðgerðir á
gluggum Gerðar í Kópavogskirkju,
Hallgrímskirkju í Saurbæ og Nes-
kirkju. veronika@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Skálholtskirkja Oidtmann-bræður kíktu á listglugga Gerðar Helgadóttur.
Listgluggar lagaðir
Viðgerðir á 60 ára gömlum gluggum
Skálholtskirkju Breytt uppsetning