Morgunblaðið - 22.06.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.06.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018 Þorsteinn Frímann Guðmundsson, rekstrarstjóri hjá Vörumiðlun,á 40 ára afmæli í dag. „Vörumiðlun er þriðja stærsta flutninga-fyrirtæki á landinu, við keyrum um allt landið, erum verktakar fyrir Samskip, Eimskip og Smyril Line og vinnum mikið fyrir Kaup- félag Skagfirðinga og erum með um 50 bíla í akstri. Mitt starf er eigin- lega að vera í öllu, ég sé um innkaup og stjórn á tækjum og viðhaldi meðal annars.“ Höfuðstöðvar Vörumiðlunar eru á Sauðárkróki þar sem Þorsteinn býr, en hann er úr Varmahlíð. Hann er rafvirki að mennt en hefur ekki starfað við það og hefur unnið hjá Vörumiðlun í átján ár. Áhugamál Þorsteins eru laxveiði og skotveiði. Hann leiðsegir líka fyrir Stangaveiðifélag Reykjavíkur, mest í Langá. „Svo veiði ég sjálfur í 30 daga á ári og er búinn að fara í sumar í Húseyjarkvísl sem er við Varmahlíð. Við veiddum vel og ég fer þangað aftur í næstu viku. Í skot- veiðinni er ég síðan mest í gæs og rjúpu.“ Þorsteinn er einnig formaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð og hefur verið það í mörg ár. „Ég verð í vinnunni og svo verður smá kaffi og veitingar fyrir fjöl- skylduna í tilefni dagsins.“ Þorsteinn ætlar að sjálfsögðu að horfa á Ís- land-Nígeríu á HM í dag og spáir 2-1 fyrir Ísland. Eiginkona Þorsteins er Rósa Mary Þorsteinsdóttir, leikskólakennari á Ársölum. Dætur þeirra eru Bríet Stefanía, f. 2005, og Katla Maren, f. 2010. Í Húseyjarkvísl „Þessi var 97 sentimetrar, 20 punda fiskur giska ég á. Ég vigtaði hann ekki, hann fékk að fara aftur. Myndin er frá í fyrra.“ Laxveiðimaður og veiðir 30 daga á ári Þorsteinn Guðmundsson er fertugur í dag E lín Ýrr Halldórsdóttir fæddist 22. júní 1958 í Reykjavík. Hún bjó fyrstu 10 árin í Háa- gerði í Smáíbúða- hverfinu en þá flutti fjölskyldan í nýtt hús í Brúnastekk í Neðra- Breiðholti. Elín Ýrr gekk í Breiðagerðisskóla og síðan Breiðholtsskóla. Þaðan lá leiðin í Ármúlaskóla og Lindargötu- skóla. „Eftir það komst ég þangað sem ég stefndi að frá því ég var fjög- urra ára, þ.e. í Hjúkrunarskóla Ís- lands.“ Elín Ýrr útskrifaðist þaðan 1981 og vann í tvö ár eftir útskrift á hjartadeild Landspítalanns. Hún fór síðan í Nýja hjúkrunarskólann og lærði skurðhjúkrun og útskrifaðist 1986. Elín Ýrr hefur starfað við skurð- hjúkrun frá 1983. „Ég hef gegnt Elín Ýrr Halldórsdóttir, hjúkrunarfr. og deildarstj. á LSH – 60 ára Hjónin Kristján var mikill ferðamálafrömuður og var meðal annars framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ættarfylgja að taka þátt í kjarabaráttu Með barnabörnunum Elín Ýrr ásamt Frosta, Þóru, Freyju og Katrínu. Fimmta barnabarnið, Kristján Logi, er þriggja vikna í dag. Hafnarfjörður Árný Sara fæddist 18. september 2017 í Reykjavík. Hún vó 3.270 g og var 49 cm að lengd. For- eldrar hennar eru Trausti Ragnarsson og Gígja Erlingsdóttir. Nýir borgarar Kópavogur Bergrún María fæddist 13. júní 2017 kl. 23.48 í Reykjavík. Hún vó 3.380 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. S: 555 0800 · Fornubúðum 12 · Hafnarfirði · sign@sign.is · facebook.com/signskart ÁFRAM ÍSLAND Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.