Morgunblaðið - 22.06.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.06.2018, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fjölmargarþjóðir, ekkisíst í Evrópu eru mjög uppteknar af því sem gerist í Bandaríkjunum, ekki síst eigi Trump forseti þeirra í hlut. Trump er for- dæmdur fyrir allt og um sumt hefur hann sannanlega unnið til þess. En kúnstugt er þegar hann er fordæmdur fyrir gerðir sem aðdáendur fyrirrennara hans héldu ekki vatni yfir. Það er furðu algengt að ein- staka ráðherrar, svo ekki sé tal- að um þingmenn, sem telja sig þurfa að komast í fréttir hafi uppi stóryrði og kröfur í garð Bandaríkjastjórnar af minnsta tilefni. Öll önnur ríki eru látin í friði eins og hvítþvegnir englar, nema helst Ísrael. Frægt var þegar að Trump ákvað að afturkalla ferðaheim- ildir fólks frá tilteknum ríkjum. Meginreglan er að hvert ríki á sjálfdæmi um slíkt. Engu að síð- ur hófust hróp og fordæmingar, jafnvel héðan! Það dró að vísu úr barsmíðum á brjóst þegar að upplýst var að stjórn Obama hafði dregið upp ríkin. Þegar að ríkisdómarar í millidómstigi tóku að dæma gjörðir forsetans ólögmætar hresstust erlendir mótmælendur á ný og tóku ekki sönsum þótt bent væri á að úr- skurðir þessara tilteknu dóm- stóla stæðust jafnan illa fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Þætti gott ef að 10% dóma þeirra stæðust skoðun! Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað með auknum meirihluta að álit dómstólanna væru ómark- tæk og forsetinn hvergi farið út fyrir valdsvið sitt. Lítt var frá því sagt í þeim evrópskum fréttamiðlum, sem látið höfðu verst. Síðustu daga hafa mál verið í umræðu sem að auðvelt er að gera tortryggileg, því að þar koma börn við sögu. Og ekki gátu allir stillt sig. Demókratar vestra sem höfðu misst niður fylgisforskot sitt töldu að þetta mál kynni að bjarga þeim í kosningunum í nóvember. Þeir hafa notað málið út í æsar. Það má hafa pólitískan skilning á því. En eftir „frétta- flutninginn“ austan við Atlants- hafið, er ekki líklegt að margir viti um hvað málið snýst. Al- menningur á þessum slóðum getur lítið annað „vitað“ en að Trump forseti hafi ákveðið að of- sækja börn innflytjenda. Slíkt væri svo ógeðfellt að allir menn hlytu að hafa á því skömm og fyrirlitningu. En er sú raunin? Auðvitað ekki. En hvernig er hún þá? Trump lagði á það þunga áherslu í kosningabaráttu sinni að Bandaríkin ættu, eins og öll sjálfstæð ríki, forræði yfir sínum landamærum. Öllum ritum um stjórnskipun landa ber saman um að forsvar landamæra er eitt af þeim fáu atriðum sem ákvarða hvort ríki teljist sjálf- stætt. Fræðin ein hafa þó varla ráðið þeim þunga sem Trump setti á þetta mál í baráttu sinni. Hann vissi vel hver væri afstaða þorra kjósenda til þeirrar spurningar. Mikill meiri- hluti þeirra vill að landamærin séu virk og að Bandaríkin ákvarði sjálf hverjir skuli fara um þau og hverjir fái landvist. En það er jafn öruggt að Bandaríkjamenn vilja ekki láta umgangast fólk með meiðandi hætti og síst börn. En af hverju er þetta mál þá komið upp núna? Lögin vestra segja að ekki megi hafa þá sem sæta rannsókn sem leitt geti til saksóknar í varð- haldi með börnum sínum, nema þá um stuttan tíma. Þetta veldur ekki vandræðum við mál banda- rískra ríkisborgara. Sæti þeir saksókn er fjölskylda oftast til staðar sem gætir hlutar barna. Ef að einstaklingur með barn er saksóttur og enginn nærri til að gæta hagsmuna þess með við- urkenndum hætti eru foreldri og barn skilin að og félagsmála- stofnanir taka það í sína vörslu. Aðstæður fjölda barna er því ekki ólíkur aðstæðum barnanna við landamærin. En enginn mót- mælir því! Trump hefur skorað á þingið að breyta lögum svo að ekki þurfi að skilja á milli barna og flóttamanna á meðan mál þeirra eru í athugun. Obama forseti hafði „leyst“ málið þannig að kæmu flóttamenn með börn yrði hvorugu haldið. Nöfn væru skráð og fólkið boðað til skýrslu- töku síðar. Það gat ekki komið á óvart að þá mættu fáir eða engir. Þessi „lausn“ Obama spurðist út til flóttamannasmyglara, sem er arðvænleg atvinnugrein sunnan landamæra. Flóttamenn komu eftir það flestir með börn. Hefðu „fréttaskýrendur“ fylgst með umræðunni vestra vissu þeir að landamæraverðir og lögreglu- yfirvöld fullyrða að í mjög mörg- um tilvikum tengist börnin alls ekki flóttamönnunum, en séu „útveguð“ af smyglurunum gegn greiðslu. Deila má um sannleiksgildi þessa. Hitt liggur fyrir að hlut- fall barna í flóttamannahópnum hefur á örfáum misserum rokið upp, enda voru þau trygging fyr- ir því að sleppa í gegn. Landa- mæraverðir halda því einnig fram að rökstuddur grunur og staðfestur í of mörgum tilvikum sé um að þessi börn séu í fram- haldinu seld í kynlífsþjónustu eða þaðan af verra. En í augnablikinu eru þessi ólánssömu börn notuð í ógeð- felldu áróðursstríði. Það er lág- markskrafa að vandaðir frétta- miðlar skrúbbi burt áróðurinn úr báðum áttum, eins og hægt er, áður en dómar eru felldir á grundvelli hans eins. Sannleikurinn er iðulega helsti skotspónn áróð- ursstríða eins og annarra stríða} Segja þarf alla söguna F yrir skömmu birtust tölur um að samkeppnishæfni Íslands hefði dalað, úr 20. í 24. sæti samkvæmt IMD, svissneskri hugveitu. Ís- lendingar eru miklu neðar en ná- grannar okkar á Norðurlöndum, sem við telj- um líkust okkur að samfélagsgerð. Viðskiptaráð vakti athygli á þessari nið- urstöðu með fróðlegri kynningu. Í henni kem- ur til dæmis fram að hætta á flutningi til út- landa sé ógn við hagkerfið, en Íslendingar eru með þeim líklegustu til þess að flytja, en voru einna ólíklegastir fyrir hrun. Í fljótu bragði virðist það ríma illa við þá staðhæfingu að Ís- land sé hálaunaland. Ef fólk flýr, þrátt fyrir hærri laun, sýnir það mikinn undirliggjandi vanda. Þegar spurt er hvort stefna Seðlabankans hafi jákvæð áhrif á hagkerfið er Ísland í 61. sæti af 63. Þó að það standi ekki í úttektinni er væntanlega átt við vaxtastefnu bankans, en vextir eru hærri hér á landi en í flestum samkeppnislöndum. Í því sambandi er rétt að minna á að í yfirlýsingum peningastefnunefndar bank- ans eftir alþingiskosningar hefur komið fram að stefnan í ríkisfjármálum og minna aðhald en hjá fyrri ríkisstjórn haldi vöxtum uppi. Á öðrum sviðum er ástandið miklu betra. Fjármögnun lífeyriskerfisins er með því besta sem þekkist. Svo eigum við líka nóg vatn! Í kynningu Viðskiptaráðsins kemur fram að hátt gengi krónunnar sé vandamál fyrir útflutningsgreinar, sem satt er. Því skýtur skökku við að tillaga ráðs- ins er sú að „losa um innflæðishöft strax“. Þessi innflæðishöft felast í því að útlendingar sem vilja nýta sér háa íslenska vexti verða að leggja 40% inn á vaxtalausan reikning. Fyrir hrun nýttu útlendingar sér hærri vexti hér en erlendis með þeim afleiðingum að gengi krón- unnar hækkaði með skaðvænlegum hætti og eftir hrun sátu Íslendingar (og útlendu spá- kaupmennirnir) eftir með sárt ennið. Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor varar við afnámi þessarar varúðarreglu: „Ef þetta er gert má búast við að fjárfestar reyni að hagn- ast á vaxtamun með því að kaupa krónur og fjárfesta í innlendum skuldabréfum. Gengi krónunnar mun þá styrkjast og afkoma ferðaþjónustu versna.“ Ráðið nefnir hvergi háa vexti á Íslandi, sem hefta samkeppnis- hæfni íslenskra fyrirtækja. Hvergi er vikið að því orði að gjaldmiðillinn sjálfur sé vandamál, þó það blasi við. Það er vont að fyrirtæki og fólk flýi úr landi. Það er vont að vextir á Íslandi séu miklu hærri en í nágranna- löndunum. Nýlega birtist frétt um að í Svíþjóð séu (óverðtryggðir) vextir á húsnæðislánum 1,7% á sama tíma og þeir eru 5,5 til 6,2% hér. Það er vont þegar gengi krónunnar sveiflast, fyrirtækjum og almenningi til skaða. Og það er mjög vont þegar samtök sem eiga að standa vaktina fyrir heilbrigt efnahagslíf þora ekki að tala um fílinn í stofunni, íslensku krónuna. Benedikt Jóhannesson Pistill Fíllinn og þöggunin Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Verð fyrir grásleppu sem seld er á fiskmörkuðum hefur hækkað um rúm 17% í ár miðað við vertíðina 2017. Eigi að síður eru bátar á veiðum færri en í fyrra og segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, að kaupendur verði að gera betur til að fleiri sjái sér hag í að sækja grásleppuna. „Í ár eru færri leyfi virk held- ur en í fyrra og þó svo að verð hafi hækkað er það alls ekki nógu hátt. Í raun og veru eru þetta skýr skilaboð til kaupenda um að frek- ari verðhækkun verði að eiga sér stað á gráslepp- unni,“ segir Örn. Í ár hafa verið gefin út 209 leyfi til veiða, en í fyrra voru leyfin 230 á þessum tíma. Enn eru 39 grásleppubátar á veiðum og um 30 þeirra eru með netin á innan- verðum Breiðafirði þar sem veiðar hefjast síðar en á öðrum svæðum. Rúmlega 400 leyfi eru til grá- sleppuveiða, en stór hluti leyfanna hefur ekki verið virkjaður í ár. Á árunum 2000–2017 var fjöldi báta sem tók þátt í veiðunum á bilinu 139–369 á ári. Byggt á grunni frá 1997 Það er Fiskistofa sem gefur út leyfi til grásleppuveiða og að- eins er hægt að fá eitt grá- sleppuleyfi á hvern bát á hverri vertíð. Eingöngu er heimilt að veita slík veiðileyfi þeim bátum sem áttu rétt til grásleppuveiða á vertíðinni 1997 og bátum sem komið hafa í þeirra stað. Örn áætlar að úflutningsverð- mæti grásleppu í ár verði alls um tveir milljarðar. Grásleppan er nánast eingöngu seld óskorin, í beinni sölu eða á fiskmarkaði. Meðalverð á mörkuðum það sem af er vertíð er 203 krónur fyrir kílóið. Að sögn Arnar hefur vertíðin í ár gengið ágætlega í heildina, innanverður Breiðafjörður er und- antekning. Þar hefur ótíð hamlað og afli verið lakari en oft áður og áætlar Örn að í innanverðum Breiðafirði sé veiðin um fimmtungi minni en í fyrra. Fyrri hluta ver- tíðar fyrir austan og norðan land gekk mun betur heldur en í fyrra. Þörf á fleiri dögum Veiðum er stjórnað með daga- fjölda og fjölda neta. Á þessari vertíð eru dagarnir 44 og ákveðnir með tilliti til þess að ekki verði veitt umfram það magn, sem Hafrannsóknastofnun leggur til. Stofnunin miðar við að ekki verði veitt umfram 5.497 tonn og segir Örn að útlit sé fyrir að afli endi í 4.400-4.500 tonnum. „Við sjáum núna að þörf hefði verið á fleiri dögum og þetta er í raun annað árið í röð sem við verðum of langt frá því sem ráðlagt var að veiða,“ segir Örn. Árin 2011 og 2012 voru veiðar leyfðar í 50 daga, 32 daga árin 2013–2016 og 46 daga 2017. Um tveir milljarðar fyrir grásleppu í ár Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Langanes Komið með góðan afla til löndunar í upphafi grásleppuvertíðar. Örn Pálsson Grásleppuveiðar við Ísland fengu vottun samkvæmt stöðlum MSC í árslok 2014, en vottunin var aft- urkölluð um síðustu áramót vegna meðafla við veiðar, m.a. á sel og fugli. Örn segir ekki blasa við að þessi breyting hafi haft áhrif á verð á grásleppuhrognum frá Íslandi. „Sumir álíta að við hefðum getað fengið hærra verð á vertíð- inni ef við hefðum verið með MSC-vottun á hrognunum,“ segir Örn. „Vissulega fá Grænlend- ingar hærra útflutningsverð á hrognatunnu í ár en við, en þeir eru með vottun. Við bendum hins vegar á að þegar við fengum vottunina í árslok 2014 hækkaði verðið ekki. Aðalmarkaður okkar fyrir kavíar er í Frakkklandi og þar er ekki gert að skilyrði að hrognin séu MSC-merkt. Í Sví- þjóð og Þýskalandi er meiri krafa um MSC-vottun og skortur á henni gæti þýtt erfiðleika á þeim markaði.“ Örn segir unnið að því að fá vottun á nýjan leik og hefur vott- unarstofan Tún samþykkt að- gerðaáætlun. Málið verður skoð- að í vetur og þá m.a. hvort ástæða sé til að gera breytingu á fyrirkomulagi veiða. Óljós áhrif vottunar UNNIÐ AÐ ÞVÍ AÐ FÁ MSC-MERKINGU Á NÝJAN LEIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.