Morgunblaðið - 22.06.2018, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 173. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Dagur í 17 ára fangelsi fyrir…
2. Fólk í vandræðum í Rússlandi
3. Sigmar vinnur mál gegn Skúla…
4.Fannst látin í þurrkskáp
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sigrún Harðardóttir og Alexandra
Kjeld fremja gjörninginn Samtal milli
kontrabassa og striga kl. 15 á morg-
un í Listasafni Árnesinga í tengslum
við sýningu þeirrar fyrrnefndu Hver/
Gerði. Sama dag kl. 16 verður opnuð í
safninu sýningin Hveragerði – aðset-
ur listamanna.
Samtal milli kontra-
bassa og striga
Tónleikar Tóm-
asar R. Einars-
sonar kontra-
bassaleikara og
latínsveitar hans
eru á sumardag-
skrá Jazzklúbbs
Múlans kl. 21 í
kvöld á Björtu-
loftum í Hörpu.
Auk Tómasar skipa sveitina Óskar
Guðjónsson á saxófón, Ómar Guð-
jónsson á gítar og Þórdís Claessen á
slagverk. Leikin verður tónlist eftir
hljómsveitarstjórann.
Latínsveit Tómasar R.
á Björtuloftum í kvöld
Tölt um tilveruna, sýning Guðrúnar
Hreinsdóttur, myndlistarkonu og
læknis, verður opnuð kl. 16 í dag í
Listasal Mosfellsbæjar. Guðrún hefur
haldið nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í fjölmörgum samsýningum á Ís-
landi og erlendis. Verkin á
sýningunni eru öll máluð
með vatnslitum og inn-
blásin af náttúrunni. Þau
sýna landslag og jurtir,
fólk og dýr og ýmis
önnur náttúru-
fyrirbrigði.
Tölt um tilveruna
í Mosfellsbæ
Á laugardag Suðlæg átt, 5-13, og fer að rigna, fyrst SV-til, en
þurrt NA-lands fram á kvöld. Hiti 8 til 12 stig, en 12 til 18 um landið
NA-vert.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-15 m/s en allt að 20 norðvest-
antil. Dregur úr vindi og úrkomu, víða þurrt seinnipartinn og suð-
læg átt, 5-13, í kvöld, hvassast NV-til á landinu. Hiti 8 til 22 stig.
VEÐUR
„Ég náði mér upp úr erf-
iðum meiðslum skömmu
áður en Íslandsmótið hófst.
Síðan hefur mér gengið vel í
þeim leikjum sem ég hef
spilað,“ sagði Valsarinn
Thelma Björk Einarsdóttir
þegar Morgunblaðið sló á
þráðinn til hennar í gær.
Hún leikur afar vel með Val í
Pepsí-deildinni í knatt-
spyrnu um þessar mundir
þrátt fyrir ýmis hnémeiðsli
á undanförnum árum. »4
Thelma nær sér
á strik með Val
Höfðu breytingar á milli
fyrstu leikjanna í huga
Meiðsli Jóhanns Bergs Guðmunds-
sonar, sem tók engan þátt í loka-
æfingu Íslands fyrir leikinn, ekki
frekar en í æfingum vikunnar, þýða
að minnst ein breyting verður á ís-
lenska liðinu þegar það mætir Níger-
íu á HM í dag. Jafnvel þótt Jóhann
væri heill heilsu hefði liðinu verið
breytt, ef ég skildi orð Heimis Hall-
grímssonar
landsliðsþjálf-
ara rétt á blaða-
mannafundi í
gær. »1
Vandræðagangur Lionel Messi og fé-
laga í argentínska liðinu á HM gefur
bæði Íslandi og Nígeríu galopna
möguleika á að koma sér í kjörstöðu
fyrir lokaumferðina sem verður leikin
á þriðjudaginn kemur. Ísland stendur
aðeins betur að vígi eftir jafnteflið
gegn Argentínu. Nígeríumenn eru
eftir sem áður í þeirri stöðu að þeir
mega alls ekki tapa í dag. »3
Tap Argentínu skapar
tækifæri fyrir Ísland
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Ævar Þór Benediktsson, vísinda-
maður og rithöfundur, var nýverið í
Rússlandi þar sem hann eyddi dá-
góðum tíma með rússneskum börn-
um við leik og fræðslu. Ævar fór til
Moskvu á vegum mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytisins, þar sem
ætlunin var að nýta sér þann með-
byr og áhuga sem Ísland og íslenska
karlalandsliðið hafa hlotið í Rúss-
landi í aðdraganda HM í knatt-
spyrnu. Auk framlags Ævars Þórs
var blásið til íslenskra tónleika og
annarra menningartengdra við-
burða.
Gefur út bók á rússnesku
Ævar segir sitt rússneska ævin-
týri hafa hafist síðastliðið haust þeg-
ar hann sótti fyrst Rússland heim:
„Ég fór til Rússlands og alla leið til
Síberíu í nóvember, þar sem ég tók
þátt í stórri bókamessu. Í kjölfarið
kviknaði áhugi hjá rússnesku bóka-
forlagi á bókaflokki sem ég hef verið
að skrifa sem kallast „Þín eigin“, þar
sem lesandinn fær að fjalla sjálfur
um það sem gerist í bókinni.“ Í kjöl-
farið fékk hann samning hjá bóka-
forlagi þar í landi og mun nýjasta
bók hans, Þitt eigið ævintýri, koma
út á rússnesku í haust.
Las á íslensku fyrir börnin
Í Moskvu gaf Ævar rússnesku
börnunum innsýn í hugarheim bóka
sinna. „Ég hitti þarna heilan haug af
rússneskum krökkum og las upp úr
bókinni minni á íslensku til að leyfa
þeim aðeins að heyra hvernig ís-
lenskan hljómar. Svo tók rússneskur
leikari við og las með miklum til-
þrifum, ég skildi næstum því hvar
hann var staddur í sögunni með því
að horfa á hann,“ segir Ævar og
hlær.
Þá hélt Ævar námskeið þar sem
hann kenndi börnunum að skrifa
bækur með óhefðbundnu sniði. „Ég
kenndi þeim það sem ég kalla sí-
breytilegar bókmenntir, en þá fá
börnin að ráða sjálf endi bókarinnar.
Krakkarnir tóku rosalega vel í þetta
og þau enduðu meira að segja á að
skrifa sínar eigin smásögur með
ólíkum endum og lásu svo upp yfir
hópinn.“
Börn alls staðar eins
Ævar segir jafnframt að heim-
sóknin hafi staðfest þann grun hans
að börn séu mikið til eins, sama hvar
þau eru búsett. „Maður vissi það svo
sem fyrir en ég sé alltaf betur að
krakkar eru alls staðar eins; þau
vilja spennandi sögur, hafa margar
góðar hugmyndir og hafa frá svo
mörgu að segja. Þetta var góð stað-
festing á því. Það er líka gaman að
vita að það sem virkar fyrir Íslend-
inga virkar fyrir önnur börn líka.“
Ljósmynd/Ævar Örn Benediktsson
Bókaormar Rússnesk börn sömdu sínar eigin smásögur undir handleiðslu
Ævars á bókanámskeiði hans í Moskvu í síðastliðinni viku.
Ævar vísindamaður kenndi rússneskum börnum í Moskvu að skrifa smásögur
Las á íslensku
fyrir börnin
í Rússlandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ævar Bók hans, Þitt eigið ævintýri,
verður gefin út í Rússlandi.