Morgunblaðið - 22.06.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 22.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bjart var yfir Íslandi og Austur- Grænlandi í fyrradag kl. 12.03, dag- inn fyrir sumarsólstöður, þegar SENTINEL-3, gervitungl Evr- ópsku geimvísindastofnunarinnar sem er hluti af Copernicusar- áætluninni, fór hjá. Ingibjörg Jóns- dóttir, landfræðingur hjá Háskóla Íslands, vann myndina þannig að ör- lítill litamunur er á skýjum annars vegar og snjó og ís hins vegar. Flest öll gögn úr Copernicusar- áætluninni eru opin rannsakendum og almenningi. Áður þurfti að greiða háar fjárhæðir fyrir sambærilegar myndir. Myndirnar liggja fyrir skömmu eftir að gervitunglið fer yf- ir. SENTINEL-3 gervitunglið er ekki síst til þess gert að fylgjast með hafinu, yfirborðssjávarhita, þör- ungablóma, lit sjávarhita, hafís og fleiri eiginleikum hafsins. Slæðurnar sem sjást úti fyrir strönd A- Grænlands eru einmitt hafís. SENTINEL-1 er ratsjártungl og eru myndir úr því m.a. notaðar til að fylgjast með hafís, mengun í sjó o.fl. Ratsjáin gerir að verkum að tunglið „sér“ í gegnum ský sem kemur sér vel t.d. við að vakta hafísinn. SENTINEL-2 tekur m.a. myndir á þeim sviðum litrófsins sem augun sjá ekki og hjálpa til við að greina t.d. gjósku, sandfok, gróður o.fl. Opinn fundur í haust Fulltrúar Copernicusar- áætlunarinnar koma hingað til lands í haust og munu halda opinn fund sem Landmælingar Íslands eru að undirbúa. Ingibjörg telur að fund- urinn muni hvetja vísindamenn og aðra til að nota meira gögnin úr áætluninni. Hún segir að stofnanir á borð við háskóla, Landhelgisgæsl- una, Landmælingar og Veðurstof- una noti gögnin úr Copernicusar- áætluninni mikið dagsdaglega. Gervitunglamynd/ESA/Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur HÍ Ísland sást vel úr geimnum loksins þegar sólin lét sjá sig um allt land Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, segir það vera hlutverk samráðshóps um end- urskoðun búvörusamninga að meta hvernig markmið um allt að 95% nið- urgreiðslu vegna flutnings raforku hefur gengið eftir og eftir atvikum að leggja til tillögur til úrbóta. Þetta segir hann í kjölfar frétta Morgun- blaðsins um að garðyrkjustöðin Brúnalaug í Eyjafirði muni hætta ræktun papriku á veturna vegna hás raforkuverðs sem étur upp allan hagnað af ræktuninni. „Í búvörusamningnum milli garð- yrkjubænda og stjórnvalda árið 2016 var samið um ákveðna fjárhæð á ári út samnings- tímann, alls 278 milljónir króna. Það var sá rammi niðurgreiðslu á flutnings- og dreifingarkostn- aði raforku sem samið var um til 2026 og við það hafa stjórnvöld að sjálfsögðu staðið,“ segir Kristján og bætir við að í við- ræðum bænda og ríkis við endur- skoðun samningsins á næsta ári gef- ist tækifæri til að fara yfir þessi atriði og eftir atvikum ná samkomulagi um breytingar ef vilji er til þess. Samráðshópur metur niðurgreiðslu raforku  Stjórnvöld staðið við niðurgreiðslu Kristján Þór Júlíusson Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Ný sending af gallabuxum frá MARC LAUGE Glæsilegur fatnaður fyrir allar konur KJÓLL 8.995,- SKYRTA 8.995,- Í HIGH COURT OF JUSTICE CR-2017-009253 BUSINESS AND PROPERTY COURTS OF ENGLAND ANDWALES COMPANIES COURT (ChD) Í MÁLI ER VARÐAR RIVERSTONE INSURANCE LIMITED OG RIVERSTONE INSURANCE (UK) LIMITED OG Í MÁLI ER VARÐAR LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG MARKAÐI FRÁ ÁRINU 2000 (THE FINANCIAL SERVICES AND MARKETS ACT 2000) TILKYNNING HÉR MEÐTILKYNNIST að hinn 11. maí 2018 lögðu RiverStone Insurance Limited („framseljandi“) og RiverStone Insurance (UK) Limited („framsalshafi“) beiðni („beiðnin“) fyrir dómstólinn High Court of Justice, Business and Property Courts of England and Wales, Chancery-deild Companies Court í London („dómstóllinn“), á grundvelli gr. 107(1) laga um fjármálaþjónustu og markaði frá árinu 2000 (með síðari breytingum) („lög um fjármálaþjónustu“) um úrskurð: (1) samkvæmt 111. gr. laga um fjármálaþjónustu sem heimilar áætlun um framsal vátryggingastarfsemi, um framsal starfsemi þeirrar sem framseljandi stundar („framseld starfsemi“) til framsalshafa („áætlunin“), og (2) með aukaákvæði um framkvæmd áætlunarinnar samkvæmt 112. gr. og gr. 112A laga um fjármálaþjónustu. Eintak greinargerðar um skilmála áætlunarinnar, sem samin var í samræmi við 109. gr. laga um fjármálaþjónustu af óháðum sérfræðingi, hr. Philip Tippin hjá KPMG LLP, sem skipaður var með samþykki Prudential Regulation Authority („greinargerðin“), þar sem fram koma skilmálar áætlunarinnar og sem hefur að geyma samantakt greinargerðarinnar, svo og greinargerðin í heild sinni, eru aðgengileg án gjaldtöku á www.riltoriuk.co.uk. Stuðningsgögn og frekari fréttir af áætluninni verða birtar á þessari vefsíðu þannig að unnt sé að fá nýjustu upplýsingar. Einnig er hægt að óska eftir gjaldfrjálsum eintökum allra þessara skjala með bréfi eða símtali til framseljanda og er tengiliðaupplýsingar að finna hér að neðan. Beiðnin verður tekin fyrir hinn 7. september 2018 af dómara við Chancery-deild Companies Court, sem er heyrir undir High Court, í The Rolls Building, Fetter Lane, London, EC4A 1NL, Bretlandi. Sem stendur er áformað að áætlunin taki gildi 28. september 2018 hljóti hún samþykki dómstólsins. Hver sá sem telur sig verða fyrir neikvæðum áhrifum af áætluninni á rétt að vera viðstaddur þinghaldið og lýsa sjónarmiðum sínum, annað hvort sjálfur eða með milligöngu lögmanns. Hver sá sem telur sig verða fyrir neikvæðum áhrifum af áætluninni en hyggst ekki vera viðstaddur þinghaldið getur gefið yfirlýsingu um áætlunina með símtali eða bréfi til neðangreindra lögmanna eða framseljanda og er tengiliðaupplýsingar að finna hér að neðan. Þess er óskað (en ekki krafist) að hver sá sem hyggst vera viðstaddur þinghaldið eða gefa yfirlýsingu með símtali eða bréfi komi mótmælum sínum á framfæri við neðangreinda lögmenn eða framseljanda eins fljótt og auðið er og helst eigi síðar en fimm dögum fyrir þinghaldið þar sem beiðnin verður tekin fyrir og haldið verður hinn 7. september 2018 og er tengiliðaupplýsingar að finna hér að neðan. Hljóti áætlunin samþykki dómstólsins mun hún leiða til framsals allra samninga, eigna og skulda sem tengjast framseldu starfseminni til framsalshafa, hvað sem líður hugsanlegum rétti sem aðili kynni annars að eiga til að rifta, breyta, eignast eða krefjast hlutdeildar eða réttar, eða til að líta svo á að hlutdeild eða rétti hafi verið rift eða breytt í því sambandi. Sérhver slíkur réttur verður aðeins framfylgjanlegur að því marki sem kveðið er á um það í úrskurði dómstólsins. 22. júní 2018 Tengiliðaupplýsingar framseljanda: Símanúmer: 01273 792007 (eða, ef viðkomandi er búsettur utan Bretlands, +44 01273 792007). Síminn okkar er opinn frá kl. 9.30 til 17.30 frá mánudegi til föstudags (en þó ekki á almennum frídögum). Utanáskrift: F.A.O. Fraser Henry, RiverStone Insurance Limited, Park Gate, 161-163 Preston Road, Brighton, East Sussex, BN1 6AU, United Kingdom Netfang: riltoriuk@rsml.co.uk Freshfields Bruckhaus Deringer LLP 65 Fleet Street, London EC4Y 1HS, United Kingdom. Ref: 166187-0001 (GHFS/LEH) Lögmenn framseljanda Stöndum með strákunum Lokum kl. 14.30 í dag Áfram Ísland Bæjarlind 6, sími 554 7030 | Við erum á facebook Nú hafa 28 þúsund manns skráð sig í gegnum vefinn arfgerd.is og 24 þúsund þeirra hafa fengið svar um hvort þeir beri genabreytinguna 999del5 í BRCA2-geni, skv. upplýs- ingum frá Íslenskri erfðagreiningu, en genabreytingin á að stórauka lík- ur á brjóstakrabbameini og fleiri tegundum krabbameins. 118 einstaklingar hafa fengið svar um að þeir beri genabreytinguna og hafa 47 þeirra hringt í erfðaráðgjöf Landspítala Íslands (LSH) og að auki nokkrir ættingjar þeirra. Þetta kemur fram í skriflegu svari erfða- og sameindalæknisfræði- deildar LSH við fyrirspurn Morg- unblaðsins. Þeim sem fá upplýsing- ar um að hafa genabreytinguna, og hafa samband við erfðaráðgjöf LSH vegna þess, er boðið í klínískt stað- festingarpróf og verður vísað í eft- irlit í framhaldinu. Þeir sem enn hafa ekki haft sam- band, eftir að hafa fengið upplýs- ingar um að þeir beri 999del5-breyt- inguna í BRCA2-geni, eru eindregið hvattir til að hafa samband við erfðaráðgjöf LSH. Þrír starfsmenn erfðaráðgjafarinnar hafa veitt krabbameinserfðaráðgjöf síðustu mánuði. Ekki sé löng bið en það sé metið eftir alvarleika og þörf hverju sinni. Sex þúsund einstaklingum hefur verið boðið að koma í þjón- ustumiðstöð rannsóknarverkefna á vegum ÍE í sýnatöku. ernayr@mbl.is Fleiri hafa skráð sig í gegnum arfgerd.is  24 þúsund af 28 þúsund fengið svar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.