Morgunblaðið - 22.06.2018, Page 12

Morgunblaðið - 22.06.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018 Gaman saman Hér leiðbeinir Valerie nokkrum mæðrum með ung börn sín á vatnsmeðferðarnámskeiði og allt fer fram í ró og notalegheitum. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta er ekki sundnámskeið, heldurslökunarstund og einstök tengsla-stund umönnunaraðila og barns,ekki endilega foreldra og barna, heldur líka ömmu og afa og barna, systkina eða annarra sem eru nátengdir börnunum. Þetta er semsagt fyrir alla og ekki krafist grunnþekkingar í neinu,“ segir Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir jógakennari um vatns- meðferðarnámskeið fyrir börn sem haldið verður 29. og 30. júní nk. í Lágafells- laug í Mosfellsbæ. Þegar Arnbjörg er spurð hvort námskeiðið sé ætlað mjög ungum börnum segir hún að fólk geti komið með al- veg upp í þriggja ára gömul börn á námskeiðið og að hægt sé að aðlaga þetta að börnum upp að 10 ára. Einnig er námskeið fyrir fullorðna í kjölfarið. „Þetta námskeið er hægt að aðlaga að öll- um aldri, en hinir fullorðnu koma fyrst fyrir hádegi á námskeiðið án barnanna og þá er far- ið yfir nokkur atriði og hreyfingar og við æf- um okkur með litlar dúkkur. Kennarinn fer yfir það hvernig hægt er að aðlaga þetta allt saman að eldri börnum. Eftir hádegið kemur fólk svo með börnin með sér og þá æfir það sig með þeim, að tileinka sér það sem farið var yf- ir fyrir hádegið. Báðir tímarnir fara fram í sundlauginni en auk þess verður tveggja klukkustunda kennsla í sal.“ Losar um liðamót og mildar verki Arnbjörg segir vatnsmeðferðina vera nú- vitundarmeðferðarform, sem fyrst og fremst sé ætlað til að slaka á og njóta saman flæðandi spennulosandi stundar í vatni. „Fólk og börn læra að treysta vatninu og gefa eftir, þannig að foreldrar eða umönn- unaraðilar eru leiddir inn í slökun og vitund sem þau njóta með börnunum í vatni. Þetta er einstök upplifun, og í takt við áhuga fólks núna á því að dvelja í núinu. Þetta byggir á því að stilla líkamann sem best af í vatninu, með mildum samfelldum toghreyfingum fyrir hryggsúluna, sem léttir á stoðkerfinu, tauga- kerfinu og vöðvum, losar um liðamót og vöðva og mildar verki. Hreyfingarnar eru hægar, ró- andi og auka vellíðan bæði þeirra sem gefa sem og barnsins sem þiggur. Þetta er tilvalið fyrir foreldra ungra barna sem leið til að eiga slakandi og heilandi stund í vatni og veitir vel- líðan og gleði.“ Kennarinn á námskeiðinu er hin sviss- neska Valerie Gaillard, kona sem sérhæfir sig í jahara, en það er heiti vatnsmeðferðarinnar. „Valerie er einstök kona, afskaplega ró- leg og kennir allt hægt, hún leiðir fólk fallega inn í þetta. Hún er bókmenntafræðingur, lærð í japanskri menningu og bjó í Japan í þrjú ár. Hún talar sjö tungumál og hefur lært sál- fræði, er kennari í austrænum meðferðum og nuddari en hefur nú að mestu snúið sér að því að kenna fólki í vatni um allan heim. Hún seg- ist vera eilífur nemandi í mannlegu eðli og nýtur þess að lifa lífinu lifandi,“ segir Arn- björg og bætir við að Valerie sé að koma í þriðja sinn til Íslands. „Ég og nokkrir aðrir jógakennarar erum að læra hjá henni annað stig í jahara-vatnsmeðferðinni. Hún ætlar líka að bjóða upp á námskeið í fyrsta stigi í jahara snemma í júlí í sundlauginni í Stykkishólmi, en það er ætlað fullorðnum sem vilja vinna með þessa aðferð.“ Þegar Arnbjörg er spurð hvernig leiðir hennar og Valerie lágu saman segir hún að þær eigi sameiginlega vinkonu í faginu sem hafi kynnt þær. „Vinkonan áttaði sig á því að við yrðum að hittast þar sem við erum að gera svipaða hluti. Mér finnst endalaust gaman að bæta við mig, svo ég skellti upp námskeiði með henni hér á Íslandi og nýti mér það sjálf, enda vinn ég með fólk í vatni. Ég er mjög hrif- in af jahara, sú aðferð kom með alveg nýja dýpt inn í það sem ég er að gera,“ segir Arn- björg, sem hefur kennt HAF-jóga (áður jóga í vatni) undanfarin átta ár á Íslandi, eða heild- rænt jógískt flæði í vatni. „Ég hef mikinn áhuga á vatnsvinnu og vitundarvinnu í vatni, þessum mjúku leiðum fyrir fólk sem glímir við mikla streitu og stoðverki. Ég er að fara af stað með kennaranám í þeim fræðum í haust.“ Einstök tengslastund og slökun Hin svissneska Valerie Gaillard býður upp á vatnsmeðferðar- námskeið fyrir börn í Lágafells- laug í Mosfellsbæ um næstu helgi. Þar gefst foreldrum, ömm- um, öfum eða öðrum tækifæri til að koma með börn og njóta nús. Nánd Hér er verið að æfa sig með brúðu. Valerie Gaillard Skvett Pabbi fær yfir sig gusur frá stúf. Nánar um og skráning á vatnsmeðferðar- námskeiðið: hafyoga@gmail.com jaharainternational.com Valerie-gaillard.com Ha, varstu að kaupa þéríbúð? Bíddu, hvað ertueiginlega gömul?“ erspurning sem ég hef fengið nokkrum sinnum síðan ég festi kaup á minni fyrstu fasteign fyrir ekki svo löngu. Ég er 23 ára gömul en verð árinu eldri í septem- ber. Á tímum þar sem við heyrum sí- fellt talað um að aldrei hafi verið erf- iðara fyrir ungt fólk að kaupa sér íbúð er þetta afrek mitt jafnan notað sem olía á eld skoðana þeirra sem eldri eru um að fyrstu íbúðarkaup séu líklega ekkert erfiðari nú en þau hafa alltaf verið. Ég get ekki sagt til um það, en það sem ég get sagt er að staðreyndin er sú að þessi fjárfest- ing hefði aldrei verið möguleg fyrir mig ef ekki væri fyrir sterkt bakland og það eru alls ekki allir jafn heppnir og ég í þeim málum. Spurningin sem ég fæ næst er svo auðvitað hvar ég keypti. Jú, ég fjárfesti í lítilli tveggja herbergja íbúð í Fellahverfinu í Breiðholti. Ég viðurkenni fúslega að hverfið var alls ekki minn fyrsti kostur enda eru for- dómar samfélagsins gegn mismunandi hverfum borgarinnar talsverðir. Ég skrifa hér í trúnaði að móðir mín var alfar- ið á móti því að ég skoðaði íbúðir í Fell- unum og ég laumaðist án hennar vitneskju á opið hús í umræddri íbúð sem ég féll svo fyrir. Þarna gafst mér kostur á talsvert stærri og huggu- legri íbúð en þær sem í boði voru annars staðar á höfuðborgarsvæðinu á því verði sem ég var takmörkuð við. Í fyrsta sinn get ég státað af því að vera búsett í borginni, enda hef ég aðeins búið í sveitarfélögunum í kring og á lítilli eyju við suðurströnd landsins hingað til. Ég efast ekki um að kynni mín af borgarlífinu verði með besta móti þó að þeir sem búa í póstnúmerum 101 eða 107 myndu kannski ekki líta á hverfið sem hluta af borginni. Breiðholtið, sem einu sinni þótti úthverfi langt í burtu og var litið hornauga, er nú nokkuð miðsvæðis á stórhöfuð- borgarsvæðinu. Þar er mik- il uppbygging menningar- lífs og ég hlakka til að upplifa hverfið með eigin augum. 23 ára. »Ég skrifa hér í trúnaðiað móðir mín var al- farið á móti því að ég skoð- aði íbúðir í Fellunum og ég laumaðist án hennar vitn- eskju á opið hús í umræddri íbúð sem ég féll svo fyrir. Heimur Þorgerðar Önnu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is Stendur til 27. júní Vefuppboð Grafík, prent og ljósmyndir Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Vefuppboð nr. 371 Bragi Ásgeirsson Erró Tryggvi Ólafsson Picasso

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.