Morgunblaðið - 22.06.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2018
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarmaðurinn og tónskáldið
Ólafur Arnalds er staddur í Berlín
þegar blaðamaður nær tali af honum
snemmsumars og dagurinn und-
irlagður í viðtöl, að hans sögn. „Ég
er eiginlega í prómótúr,“ segir hann
og blaðamaður hváir. Prómótúr fyrir
hvað? „Nýju sólóplötuna mína,“
svarar Ólafur og blaðamaður segist
ekki hafa vitað af því að ný plata
væri væntanleg. Og það er ósköp
eðlilegt því Ólafur segir að ekki sé
búið að segja enn frá útgáfu hennar
en tilkynning sé væntanleg degi síð-
ar, 8. júní. Það verður því búið að
segja frá plötunni þegar þetta viðtal
birtist. Platan heitir Re:member og
kemur út 24. ágúst.
Ólafur er spurður hvernig plata
það sé og hvar hún hafi verið tekin
upp. „Þetta er sólóplata frá mér,
með músíkinni minni og tekin upp
aðallega í stúdíóinu mínu á Íslandi
en líka í Air Studios í London,“ svar-
ar hann. Einhver þróun hafi orðið í
tónlistinni milli platna, raftónlist
orðin meira áberandi en á fyrri sóló-
plötum og meira fjör en píanó og
strengir sem fyrr áberandi. Tónlist-
in er instrumental, án söngs, og það
er stórfyrirtækið Universal sem gef-
ur plötuna út. Plötunni verður því
dreift á heimsvísu og á netinu, eins
og gefur að skilja.
Ólafur er spurður út í plötutitilinn
og segir hann titilinn vísa í end-
urgerð og endurfæðingu. Er hann
þá endurfæddur á plötunni? „Þetta
vísar til sköpunargáfunnar, að finna
nýjar leiðir í sköpunargáfunni,
hvernig maður getur beygt hana og
skekkt til að draga sig á nýjar slóð-
ir,“ svarar hann. Og tókst honum
það þá? „Já, ég held það en það er
allt í vinnslu áfram, það er ekki bú-
ið,“ segir Ólafur kíminn.
Síðasta árið í stúdíói
Þeir sem fylgjast með Ólafi á
Facebook vita að það er alltaf mikið
um að vera hjá honum og að hann er
afkastamikill og önnum kafinn lista-
maður. „Þannig er lífið,“ segir Ólaf-
ur og hlær þegar blaðamaður nefnir
þetta við hann. Ólafur er spurður að
því hvað hann hafi verið að gera síð-
astliðið ár eða þar um bil. „Síðasta
árið hef ég aðallega verið í stúdíói að
gera þessa plötu, ég eyddi ári í hana
en tók reyndar eitthvað að mér inn á
milli. Ég gerði tónlist við sjónvarps-
seríu fyrir Amazon sem heitir
Electric Dreams og líka nýju mynd-
ina hans Baldvins Z sem kemur út í
haust og heitir Lof mér að falla. Og
ég er alltaf eitthvað að spila og þessi
túr minn [tónleikaferðin All Strings
Attached, innsk. blm.] hófst fyrir
þremur vikum og fyrsta giggið var í
Royal Albert Hall í London,“ svarar
Ólafur.
Royal Albert Hall er eitt þekkt-
asta tónleikahús heims og lék Ólafur
þar með hljómsveit fyrir fullu húsi
sem rúmar um 5.000 manns þegar
mest er. Það er ekki hlaupið að því
að fá að spila þar og hvað þá fylla
húsið. Ólafur hlýtur því að vera orð-
inn nokkuð vel þekktur í Bretlandi
en segist ekki geta sagt sjálfur til
um það. „Þetta voru einir af 150 tón-
leikum næsta árið þannig að maður
reynir að gera ekki of mikið úr ein-
hverjum einum, þeir eru allir merki-
legir og allir skemmtilegir,“ segir
Ólafur kíminn. Og hann mun fara
víða um Evrópu, Asíu, Norður- og
Suður-Ameríku og Ástralíu.
Einn góður vörubíll
–E r ekki mikill mannskapur sem
fylgir þér í þessari tónleikaferð og
skipulagi hennar?
„Jú, það er slatti. Við erum 16 sem
ferðumst, sex í hljómsveitinni með
mér og tíu tæknimenn og slíkir,“
svarar Ólafur og spurður út í tækja-
búnaðinn sem fylgir hersingunni
segir Ólafur hann vera um tíu tonn
að þyngd. „Einn góður vörubíll
fylgir okkur, fullur af græjum. Þetta
er svaka sjó, skemmtilegt og flott.
Ég er mjög heppinn með liðið sem
hefur verið að hjálpa mér að setja
það allt saman, virkilega vel gert.“
Spurður hvort aðsóknin að tón-
leikum sé alltaf góð segir Ólafur
hana vera það, alltaf fullt. Minnstu
tónleikastaðir rúmi 1.000-1.500
manns og þeir stærstu um 5.000.
Gott að fá að vera með í ráðum
Ólafur var tilnefndur í ár til klass-
ísku Brit-verðlaunanna, sem afhent
voru um miðjan júní, fyrir tónlist
sína við nýjustu þáttaröð Broad-
church en fyrir tónlist sína við þá
fyrstu hlaut hann bresku kvik-
mynda- og sjónvarpsverðlaunin
Bafta árið 2014. Hann var aftur til-
nefndur árið 2016 fyrir aðra seríu
sömu þátta. Ólafur er spurður hvort
þættirnir hafi ekki gert mikið fyrir
hann og segir hann að jú, þeir hafi
vissulega gert það og þá sérstaklega
í Bretlandi. „Ég fékk mikið pláss í
þessum þáttum, fékk að spila stóra
rullu. Tónlistin spilar mjög stórt
hlutverk og það er auðvitað æðislegt
ef maður fær svoleiðis verkefni, þar
sem maður er ekki bara settur í bak-
grunn heldur hafður með í ráðum
frá byrjun, hvernig heildarstemn-
ingin í þáttunum eigi að vera og
hverju eigi að koma til skila,“ segir
Ólafur.
Reynir að gera eitthvað nýtt
– Hvernig hefur tónlistin þróast
hjá þér á síðustu árum, hefurðu orð-
ið var við einhverja breytingu?
„Já, maður er alla vega alltaf að
reyna að endurtaka sig ekki og
reyna að gera eitthvað nýtt í hvert
sinn. Þessi nýja plata er svolítið
elektrónískari, ég er farinn að
hengja mig meira á það. Ég er með
annað verkefni sem heitir Kiasmos
og er svona elektró-prójekt og er bú-
inn að vera að túra út um allt með
það síðustu árin,“ segir Ólafur en
Færeyingurinn Janus Rasmussen er
með honum í Kiasmos. Ólafur segir
stemninguna úr Kiasmos hafa smit-
ast dálítið yfir í tónlistina hans. „Mig
langaði að gera meira af því og sjá
hvort ég gæti náð að blanda því
meira inn í það sem ég er að gera
daglega.“
Samstarf afar mikilvægt
Ólafur er spurður hvort hann telji
mikilvægt að starfa með öðrum tón-
listarmönnum að tónlistarsköpun og
kveður hann já við. „Eitt af því mik-
ilvægasta, ef maður ætlar að gera
góða músík eða góða plötu, er að
velja fólkið í kringum sig. Ef maður
er með ákveðna sýn sem maður vill
koma til skila verður maður að velja
fólk sem passar inn í þá sýn og stefn-
ir í sömu átt,“ segir hann. Samstarf
við aðra sé því mjög mikilvægt og oft
mjög vanmetið sem hluti af
tónlistargerð. „Þótt maður kalli sig
sólólistamann er maður ekkert
sóló.“
– Ef þú mættir velja þér hvaða
tónlistarmann sem er til að vinna
með, hver væri það þá?
„Ætli það væri ekki Thom Yorke,“
svarar Ólafur að bragði.
– Þú hefur ekki prófað að hringja í
hann?
„Nei, en ég veit hins vegar að
hann veit af mér,“ segir Ólafur og
hlær. „Kannski liggja leiðir okkar
saman, fyrr eða síðar.“
Svipuð efnisskrá
– Þú heldur tónleika á Iceland
Airwaves í nóvember og svo í Eld-
borg í desember. Verða það svipaðir
tónleikar?
„Þessir tónleikar á Airwaves
verða svona „taste“ af þeim sem
verða í Eldborg. Í Eldborg verðum
við með allt sjóið okkar í fullri lengd,
ætlum að flytja allar græjurnar okk-
ar til Íslands þannig að allt „visual“
sjóið, allt ljósasjóið og allt það verð-
ur í Eldborg, en Þjóðleikhúsið er
náttúrlega aðeins minni staður og
ekki hægt að gera alveg allt þar. En
ég ætla að spila mest nýja tónlist, af
nýju plötunni, og verð með sama set-
up og ég ferðast með, sem er sem
sagt ég og þrjú píanó, þar af þrjú
sjálfspilandi, og svo strengjakvar-
tett og slagverksleikari,“ segir Ólaf-
ur. Efnisskráin verði að mestu leyti
sú sama á hvorum tveggja tón-
leikum.
Tónleikarnir í Eldborg verða þeir
síðustu hjá Ólafi á árinu en strax að
loknu jólafríi byrjar ballið á ný með
stífu tónleikahaldi. „Ætli það verði
ekki hringur númer tvö um plán-
etuna því við gerum þetta allt fyrir
jól líka,“ segir Ólafur sposkur.
Beygir og skekkir sköpunargáfuna
Ólafur Arnalds er önnum kafinn við að kynna væntanlega sólóplötu sína, Re:member Löng og
ströng tónleikaferð fram undan Heldur tónleika á Iceland Airwaves í nóvember og í Eldborg í árslok
Ljósmynd/Benjamin Hardman
Afkastamikill Ólafur Arnalds semur kvikmyndatónlist og tónlist við sjón-
varpsþætti og gefur út sólóplötur auk þess að vinna í öðrum verkefnum og
halda tónleika um allan heim, til dæmis tvenna á Íslandi í lok ársins.
»Eitt af því mikilvæg-asta, ef maður ætlar
að gera góða músík eða
góða plötu, er að velja
fólkið í kringum sig. Ef
maður er með ákveðna
sýn sem maður vill
koma til skila verður
maður að velja fólk sem
passar inn í þá sýn og
stefnir í sömu átt.“
Vefsíða Ólafs: olafurarnalds.com
ICQC 2018-20
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 25. júní.
Landsmót hestamanna
Veglegt sérblað tileinkað Landsmóti hestamanna
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. júní
Blaðið mun gera mótinu, og hestamennsku
góð skil með efni fyrir unnendur íslenska hestsins.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
Sími: 569 1134
siggahvonn@mbl.is
SÉRBLAÐ