Morgunblaðið - 04.08.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Úrskurður kærunefndar útlendinga-
mála í máli Hollendings að nafni Mir-
jam Foekje van Twuijver leggur að
mati Útlendingastofnunar auknar
kröfur á stofnunina við einstaklings-
bundið mat við ákvörðun um brott-
vísun úr landi og endurkomubann
samkvæmt lögum um útlendinga.
Van Twuijver var dæmd í átta ára
fangelsi fyrir stórfelldan fíkniefna-
innflutning og tók Útlendingastofnun
ákvörðun um brottvísun úr landi og
20 ára langt endurkomubann. Var
það m.a. mat kærunefndarinnar að
Mirjam væri ólíkleg til að fremja aft-
ur refsivert brot á Íslandi.
Þorsteinn Gunnarsson, staðgengill
forstjóra Útlendingastofnunar, segir
að niðurstaðan gefi leiðbeiningar um
það með hvaða þætti skuli meta í ein-
stökum málum. Hingað til hafi fram-
kvæmdin verið sú að þeim sem stæðu
að fíkniefnainnflutningi væri vísað
brott.
Þröskuldurinn hækkaður
„Í þessum málum fer þó alltaf fram
einstaklingsbundið mat og löggjöfin
mælir fyrir um það að háttsemi við-
komandi þurfi að gefa til kynna að
hann kunni að fremja refsivert brot á
ný,“ segir Þorsteinn. „Við höfum
skoðað úrskurðinn og teljum að hann
leggi á okkur auknar kröfur um þetta
einstaklingsbundna mat og við tökum
það til okkar. Vissulega má segja að
nefndin sé að flytja þröskuldinn og
setja markið hærra. Ekki þannig að
fallið sé frá því að hægt sé að vísa
brott einhverjum sem standa t.d. að
innflutningi fíkniefna, heldur þurfi
alltaf að fara fram þetta einstak-
lingsbundna mat og meta þetta út
frá hverjum og einum,“ segir hann
og nefnir að eðli brota í fíkniefnainn-
flutningi geti verið misjafnt.
„Í þessu máli hefur viðkomandi
einstaklingur verið nefndur þessu
nafni, „burðardýr“. Þannig gæti ver-
ið að eðli brotsins sé ekki slíkt að það
gefi til kynna að viðkomandi sé lík-
legur til að fremja refsivert brot á
ný. Það má bera þetta saman við ein-
stakling sem skipuleggur fíkniefna-
innflutning og þá er eðli brotsins orð-
ið annað,“ segir Þorsteinn.
jbe@mbl.is
Auknar kröfur séu gerðar
til Útlendingastofnunar
„Burðardýrs“-úrskurður leiðbeining í brottvísunarmálum
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Verslunarmannahelgin er gengin í
garð og flykkjast landsmenn á útihá-
tíðir um allt land. Morgunblaðið hafði
samband við forsvarsmenn nokkurra
helstu útihátíða landsins í gærkvöldi
og hófst helgin vel að sögn þeirra
allra. Á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
fór húkkaraballið fram á fimmtudag
og segir Jónas Guðbjörn Jónsson,
talsmaður þjóðhátíðarnefndar, allt
hafa farið vel fram. „Bara ljómandi
vel. Það var bara frábært húkk-
araball og gekk allt vel. Ekkert ves-
en.“ Hann gat ekki sagt til um ná-
kvæman fjölda fólks í Dalnum í
gærkvöldi. Umferðarslys á Suður-
landsvegi olli því að veginum var lok-
að og var fólki bent á hjáleið sem er
20 km lengri en sú sem liggur um
Þjóðveg 1. Því ríkti einhver óvissa um
hvort allir myndu ná í Landeyjahöfn í
tæka tíð til að komast til Eyja. Að
sögn Jónasar var hins vegar margt
fólk komið til Eyja í gær og var hátíð-
in sett af heimamönnum um miðjan
dag áður en barnadagskrá og síðan
almenn skemmtidagskrá fór af stað.
Straumur af fólki fyrir norðan
Halldór Harðarsson, sem er í for-
svari fyrir hátíðina eina með öllu á
Akureyri, segir hátíðarhöld hafa
gengið vel fyrir norðan. „Glæsileg
byrjun. Við byrjuðum dagskrána á
Glerártorgi og opnuðum hátíðina
þannig á fimmtudaginn. Það var góð
mæting og bæði dagskrá fyrir börnin
um daginn og svo kvölddagskrá. Það
gekk bara glimrandi,“ segir Halldór.
Hann segir að fólk hafi streymt inn í
bæinn í gær og tjaldsvæðin væru að
fyllast. „Mér sýnist tjaldsvæðin öll
vera nokkuð full. Við búumst við
mörgum og það er spáð góðu veðri
þannig að það er lítið hægt að kvarta.
Allt komið í gang og sólin farin að
skína.“
Mýrarboltinn hefst í hádeginu
„Þetta bara byrjar vel og komin
svaka stemning á tjaldsvæðið,“ sagði
Thelma Rut Jóhannsdóttir, ein af
skipuleggjendum mýrarboltans í
gærkvöldi þegar Morgunblaðið hafði
samband. Engin dagskrá var fyrir
vestan á fimmtudag og var skráning-
ardagur fyrir mýrarboltann í gær.
Keppni í sjálfum mýrarboltanum
hefst í hádeginu í dag. Spurð um
fjöldann sem tekur þátt í ár segir
Thelma hann vera svipaðan og í
fyrra. „Það hefur verið straumur inn í
bæinn. Skráning í mýrarboltann hef-
ur verið svipuð og í fyrra. Þetta er
með öðruvísi sniði í ár. Það eru fleiri í
liði og færri lið en var fyrir um þrem-
ur fjórum árum síðan, en töluverð
stemming og mikið fjör.“ Skemmti-
dagskráin fyrir vestan hófst í gær-
kvöldi síðan með sveitaballi í félags-
heimilinu í Bolungarvík.
Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Flúðir
um versló hófst á fimmtudaginn og að
sögn forsvarsmanna hennar hafa fjöl-
margir gestir komið sér fyrir á tjald-
svæðinu á Flúðum. Hátíðin hófst með
tónleikum KK bands í félagsheim-
ilinu á Flúðum og voru tónleikarnir
vel sóttir.
Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson
Blaut byrjun Heimamenn voru mættir í Dalinn til að setja þjóðhátíð 2018 með pompi og prakt.
Það rigndi örlítið en enginn virtist láta það á sig fá og stefnir í góða mætingu á þjóðhátíð.
Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson
Barnadagskrá Þegar setningu þjóðhátíðar lauk var sett af stað barnadagskrá fyrir yngstu kyn-
slóðina á þjóðhátíð. Skoppa og Skrítla skemmtu börnunum í rigningunni í Dalnum.
Útihátíðirnar
fara vel af stað
„Ekkert vesen“ á húkkaraballinu,
segir talsmaður þjóðhátíðarnefndar
Morgunblaðið/Skapti
Fjölskyldufjör á Flúðum KK spilaði ásamt hljómsveit öll sín þekktustu lög á fjölskylduhátíðinni á Flúðum á fimmtu-
daginn. Fjölmargir hafa gert sér ferð á Flúðir um helgina. Páll Óskar sá síðan um stuðið með Palla-balli í gærkvöldi.
Ljósmynd/Aðsend
Stemning fyrir norðan Gestir á fjölskyldu- og íþróttahátíðinni Einni með öllu á Akureyri létu rigninguna fyrir
norðan ekki á sig fá og kíktu á útitónleika í hjarta Akureyrar. Hátíðin fer vel af stað að sögn skipuleggjenda hennar.