Morgunblaðið - 04.08.2018, Page 15

Morgunblaðið - 04.08.2018, Page 15
B rjóstsviði eða nábítur geta komið í kjölfar máltíða ef við meltum ekki rétt, þegar við borðum illa samsetta fæðu eða drekkum eitthvað sem maginn er ekki að ráða við. Hvað er brjóstsviði? Þar sem vélindað opnast inn í magann er kallað efra magaop. Þar er sterkur hringvöðvi sem virkar eins og loka í aðra áttina þar sem hann hleypir fæðu niður en varnar því svo að hún leki til baka. Þegar það gerist er talað um vélindabakflæði og er það orsök þess að við fáum brjóstsviða eða nábít. Einkenni bakflæðis Þegar maturinn er kominn í magann bætast meltingarhvatar (ensím) og saltsýra við hann sem gerir innihald magans mjög súrt og ertandi. Ef hringvöðvinn við vélindað er slakur er hætta á því að magainnihaldið leki til baka og ef það gerist finnum við oft verulega fyrir því þar sem innra birgði vélindans er ekki gert fyrir svona mikla sýru. Einkennin geta verið fleiri en bara brjóstsviði, það getur verið: • Nátbítur (Súrt óbragð í munni eða koki) • Brjóstsviði (Bruna- eða sviðaóþægindi undir bringubeini) • Uppþemba • Hæsi / ræskingarþörf • Næturhósti • Kyngingarörðugleikar Acid Soothe gegn brjóstsviða Acid Soothe er náttúruleg lausn gegn brjóstsviða og áþekkum vandamálum en í hverju hylki er að finna ensím, blöð papaya plöntunar og aðrar jurtir sem auðvelda meltinguna og hjálpa líkamanum að halda réttu sýrustigi ( pH-gildi). Að auki er afar öflug tegund af sinki, zinc carnosine, sem reynist afar vel gegn ýmsum magavandamálum; bólgum, gróanda og í þessu tilfelli er það sérstaklega hugsað til þess að styrkja slímhúð magans. Brjóstsviði og bakflæði er einnig algengur fylgikvilli gallblöðruvandamála og hefur þessi tegund sinks reynst afar vel til að draga úr þeim einkennum. Orskök brjóstsviða Eins og áður sagði er algengast að slakur hringvöðvi við efra magaop valdi bakflæði (brjóstsviða) en það getur líka gerst ef um þindarslit er að ræða. Þungun, offita og harðlífi eru vel þekktir orsakalvaldar þar sem þessir þættir valda þrýstingi á magann. Með bættu heilsufari og einnig með því að huga að því hvað við látum ofan í okkur, hvernig við gerum það og hvenær, getur haft góð áhrif en ákveðinn matur er talinn geta stuðlað að brjóstsviða eða a.m.k. aukið líkurnar á honum. Mikið kryddaður og brasaður matur eykur sýrumyndun í maga á meðan feitur matur hægir á magatæmingu og situr innihaldið þá lengur í maganum og líkur á bakflæði aukast. Það sem getur aukið líkur á óþægindum (veikt hringvöðvann) er t.d.: • Kaffi • Áfengi • Súkkulaði • Piparminta • Nikótín (úr tóbaki eða nikótínlyfjum) Góð regla er svo að borða ekki eftir kl 19 á kvöldin eða í a.m.k. 3 klukkustundir fyrir svefn og á það við almennt hvað varðar heilsufar og heilbrigði. Svo getur alltaf verið einstaklingsbundið hvaða fæða það er sem veldur óþægindum hjá okkur en önnur góð regla er að borða aldrei yfir sig. Yfirfullur magi veldur almennt vanlíðan og eykur líka líkurnar á því að hringvöðvinn haldist ekki alveg lokaður. Ef pH-gildi líkamans er ekki rétt eru meiri líkur á að við þjáumst af ýmiskonar kvillum. pH-strimlarnir frá Enzymedica hjálpa fólki að finna út hvert sýrustig líkamans er. L íkami okkar getur verið of súr eða of basískur og eru fjölmargar ástæður fyrir því af hverju það gerist. Ýmsa sjúkdóma má tengja of lágu pH-gildi í líkamanum og geta pH- strimlarnir frá Enzymedica gefið vísbendingu um hvort allt sé í lagi. Sýrustig og sjúkdómar Öll efnaskiptaferli líkamans eru háð því að sýrustig líkamans sé rétt og haldist í jafnvægi. Sýrustig í þvagi sveiflast aðeins upp og niður milli daga og einnig innan dagsins en þó er það yfirleitt innan ákveðinna marka. Líkaminn er í raun að halda sýrustiginu í jafnvægi með því að skila frá sér mis súru- eða basísku þvagi. Langvarandi súrt (og stundum mjög basískt) ástand getur gefið til kynna undirliggjandi sjúkdóm. pH-Strimlar auðveldir í notkun Með pH-strimlunum frá Enzymedica er auðveldlega hægt að fylgjast með sýrustigi þvagsins til að sjá hvort líkamsstarfsemin sé í jafnvægi hvað þetta varðar. Í pakkanum eru u.þ.b. 132 prufur þannig að hann nýtist vel og lengi. Til viðmiðunar þá er hreint vatn gildið 7 (pH 7), sem er alveg hlutlaust. Þvagið okkar er oft örlítið súrara og þá séstaklega á morgnana. Þegar sýrustigið er mælt er annað hvort að pissa á strimilinn eða dýfa honum í hreint þvag í 3 sekúndur. Liturinn kemur strax í ljós en hann segir til um sýrustigið. Æskilegast er að vera á bilinu 6,5-7,5. Meðaltalið gefur góða mynd Ef þú vilt fylgjast með sýrustigi líkamans er best að mæla það þrisvar sinnum yfir daginn, að morgni (fyrsta þvag), um miðjan dag og að kvöldi. Meðaltalið gefur bestu niðurstöðuna þar sem sýrustig líkamans er breytilegt yfir daginn. Þar sem það getur breyst lítillega milli da er gott að gera einhvern tíma til að sjá hvort hlutirnir séu ekki í jafnvægi og innan æskilegra marka. Maturinn hefur áhrif Það sem við nærumst á telst ýmist basískt eða súrt og góð regla er að reyna að borða sem mest af basískum mat. Við erum það sem við borðum og það skiptir alltaf máli að næra sig vel til að halda góðri heilsu. Muna að borða sem mest af hreinni fæðu og þá mikið úr jurtaríkinu, forðast unna matvöru og óhollustu en auðvitað á að gera sér dagamun. 80/20 reglan er alltaf góð en þá ærumst við 80% á hollustu og svo leyfum við okkur aðeins líka. Ef líkaminn kkar er að naði frekar æti verið ráð ut hollustu í mataræðinu og borða mikið af ávöxtum og grænmeti en þess háttar hollusta hefur alltaf góð áhrif á heilsufar okkar. Strimlarnir eru ekki lækningatæki Athugið að pH-strimlarnir eru einungis til að gefa vísbendingu um ástand líkamans en ekki til þess gerðir að greina, meðhöndla eða fyrirbyggja sjúkóma. Leitið ávallt læknis til að greina eða meðhöndla sjúkdóma/heilsufar. Lausn gegn brjóstsviða og nábít Veistu hvort þú ert súr? Bakflæði, brjóstsviði eða nábítur getur valdið fólki miklum óþægindum. Acid Soothe frá Enzymedica er náttúruleg lausn sem er skjótvirk og styrkir slímhúð magans. AU GL ÝS IN G 15 LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018 „Sterkur hringvöðvi við efra magaop virkar eins og loka í aðra áttina þar sem hann hleypir fæðu niður en varnar því svo að hún leki til baka. Ef það gerist er talað um vélindabakflæði og er það orsök þess að við fáum brjóstsviða eða nábít“ Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan. Brjóstsviði, nábítur eða bakflæði í kjölfar máltíða getur verið sársaukafullt. Acid Soothe getur komið í veg fyrir það. ga þetta í n o jaf súr g að auka hl Til gamans er hægt að mæla sýrustig í munnvatni til að sjá hvort maturinn okkar sé súr eða basískur. Hægt er að breyta sýrustigi í munninum með 1-2 munnbitum af mat. Tekur einungis nokkrar sekúndur að fá niðurstöðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.