Morgunblaðið - 04.08.2018, Síða 15
B
rjóstsviði eða nábítur
geta komið í kjölfar
máltíða ef við meltum
ekki rétt, þegar við
borðum illa samsetta fæðu
eða drekkum eitthvað sem
maginn er ekki að ráða við.
Hvað er brjóstsviði?
Þar sem vélindað opnast inn í
magann er kallað efra magaop.
Þar er sterkur hringvöðvi sem
virkar eins og loka í aðra áttina
þar sem hann hleypir fæðu niður
en varnar því svo að hún leki til
baka. Þegar það gerist er talað um
vélindabakflæði og er það orsök
þess að við fáum brjóstsviða eða
nábít.
Einkenni bakflæðis
Þegar maturinn er kominn í
magann bætast meltingarhvatar
(ensím) og saltsýra við hann
sem gerir innihald magans mjög
súrt og ertandi. Ef hringvöðvinn
við vélindað er slakur er hætta
á því að magainnihaldið leki til
baka og ef það gerist finnum við
oft verulega fyrir því þar sem
innra birgði vélindans er ekki
gert fyrir svona mikla sýru.
Einkennin geta verið fleiri en
bara brjóstsviði, það getur verið:
• Nátbítur (Súrt óbragð í munni
eða koki)
• Brjóstsviði (Bruna- eða
sviðaóþægindi undir
bringubeini)
• Uppþemba
• Hæsi / ræskingarþörf
• Næturhósti
• Kyngingarörðugleikar
Acid Soothe gegn brjóstsviða
Acid Soothe er náttúruleg lausn
gegn brjóstsviða og áþekkum
vandamálum en í hverju hylki
er að finna ensím, blöð papaya
plöntunar og aðrar jurtir sem
auðvelda meltinguna og hjálpa
líkamanum að halda réttu
sýrustigi ( pH-gildi). Að auki er
afar öflug tegund af sinki, zinc
carnosine, sem reynist afar vel
gegn ýmsum magavandamálum;
bólgum, gróanda og í þessu tilfelli
er það sérstaklega hugsað til
þess að styrkja slímhúð magans.
Brjóstsviði og bakflæði er einnig
algengur fylgikvilli
gallblöðruvandamála og hefur
þessi tegund sinks reynst afar vel
til að draga úr þeim einkennum.
Orskök brjóstsviða
Eins og áður sagði er algengast að
slakur hringvöðvi við efra magaop
valdi bakflæði (brjóstsviða) en það
getur líka gerst ef um þindarslit er
að ræða. Þungun, offita og harðlífi
eru vel þekktir orsakalvaldar þar
sem þessir þættir valda þrýstingi
á magann. Með bættu heilsufari og
einnig með því að huga að því hvað
við látum ofan í okkur, hvernig
við gerum það og
hvenær, getur
haft góð áhrif en
ákveðinn matur er
talinn geta stuðlað
að brjóstsviða
eða a.m.k. aukið
líkurnar á honum.
Mikið kryddaður
og brasaður matur
eykur sýrumyndun
í maga á meðan
feitur matur hægir
á magatæmingu
og situr innihaldið
þá lengur í
maganum og
líkur á bakflæði aukast. Það sem
getur aukið líkur á óþægindum
(veikt hringvöðvann) er t.d.:
• Kaffi
• Áfengi
• Súkkulaði
• Piparminta
• Nikótín (úr tóbaki eða
nikótínlyfjum)
Góð regla er svo að borða ekki
eftir kl 19 á kvöldin eða í a.m.k. 3
klukkustundir fyrir svefn og á það
við almennt hvað varðar heilsufar
og heilbrigði. Svo
getur alltaf verið
einstaklingsbundið
hvaða fæða það
er sem veldur
óþægindum hjá okkur
en önnur góð regla
er að borða aldrei
yfir sig. Yfirfullur
magi veldur almennt
vanlíðan og eykur
líka líkurnar á því að
hringvöðvinn haldist
ekki alveg lokaður.
Ef pH-gildi líkamans
er ekki rétt eru meiri
líkur á að við þjáumst
af ýmiskonar kvillum.
pH-strimlarnir frá
Enzymedica hjálpa
fólki að finna út hvert
sýrustig líkamans er.
L
íkami okkar getur
verið of súr eða of
basískur og eru
fjölmargar ástæður
fyrir því af hverju það gerist.
Ýmsa sjúkdóma má tengja of lágu
pH-gildi í líkamanum og geta pH-
strimlarnir frá Enzymedica gefið
vísbendingu um hvort allt sé í lagi.
Sýrustig og sjúkdómar
Öll efnaskiptaferli líkamans eru
háð því að sýrustig líkamans
sé rétt og haldist í jafnvægi.
Sýrustig í þvagi sveiflast aðeins
upp og niður milli daga og einnig
innan dagsins en þó er það
yfirleitt innan ákveðinna marka.
Líkaminn er í raun að halda
sýrustiginu í jafnvægi með því
að skila frá sér mis súru- eða
basísku þvagi. Langvarandi
súrt (og stundum mjög basískt)
ástand getur gefið til kynna
undirliggjandi sjúkdóm.
pH-Strimlar auðveldir í notkun
Með pH-strimlunum frá
Enzymedica er auðveldlega hægt
að fylgjast með sýrustigi þvagsins
til að sjá hvort líkamsstarfsemin
sé í jafnvægi hvað þetta varðar. Í
pakkanum eru u.þ.b. 132 prufur
þannig að hann nýtist vel og
lengi. Til viðmiðunar þá er hreint
vatn gildið 7 (pH 7), sem er alveg
hlutlaust. Þvagið okkar er oft
örlítið súrara og þá séstaklega
á morgnana. Þegar sýrustigið
er mælt er annað hvort að pissa
á strimilinn eða dýfa honum í
hreint þvag í 3 sekúndur. Liturinn
kemur strax í ljós en hann segir
til um sýrustigið. Æskilegast
er að vera á bilinu 6,5-7,5.
Meðaltalið gefur góða mynd
Ef þú vilt fylgjast með sýrustigi
líkamans er best að mæla það
þrisvar sinnum yfir daginn, að
morgni (fyrsta þvag), um miðjan
dag og að kvöldi. Meðaltalið
gefur bestu
niðurstöðuna
þar sem
sýrustig
líkamans er
breytilegt
yfir daginn.
Þar sem það
getur breyst
lítillega milli da
er gott að gera
einhvern tíma til að sjá hvort
hlutirnir séu ekki í jafnvægi
og innan æskilegra marka.
Maturinn hefur áhrif
Það sem við nærumst á telst
ýmist basískt eða súrt og góð
regla er að reyna að borða sem
mest af basískum mat. Við erum
það sem við borðum og það skiptir
alltaf máli að næra sig vel til að
halda góðri heilsu. Muna að borða
sem mest af hreinni fæðu og
þá mikið úr jurtaríkinu, forðast
unna matvöru og óhollustu en
auðvitað á að gera sér dagamun.
80/20 reglan er alltaf góð en þá
ærumst
við 80% á
hollustu og
svo leyfum
við okkur
aðeins líka.
Ef líkaminn
kkar er að
naði frekar
æti verið ráð
ut hollustu
í mataræðinu og borða mikið
af ávöxtum og grænmeti en
þess háttar hollusta hefur alltaf
góð áhrif á heilsufar okkar.
Strimlarnir eru ekki
lækningatæki
Athugið að pH-strimlarnir eru
einungis til að gefa vísbendingu
um ástand líkamans en ekki til
þess gerðir að greina, meðhöndla
eða fyrirbyggja sjúkóma. Leitið
ávallt læknis til að greina eða
meðhöndla sjúkdóma/heilsufar.
Lausn gegn brjóstsviða og nábít
Veistu hvort þú ert súr?
Bakflæði, brjóstsviði
eða nábítur getur
valdið fólki miklum
óþægindum. Acid Soothe
frá Enzymedica er
náttúruleg lausn sem
er skjótvirk og styrkir
slímhúð magans.
AU
GL
ÝS
IN
G
15
LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018
„Sterkur hringvöðvi við efra magaop
virkar eins og loka í aðra áttina þar sem
hann hleypir fæðu niður en varnar því
svo að hún leki til baka. Ef það gerist er
talað um vélindabakflæði og er það orsök
þess að við fáum brjóstsviða eða nábít“
Hrönn Hjálmarsdóttir,
heilsumarkþjálfi hjá Artasan.
Brjóstsviði, nábítur eða bakflæði í kjölfar máltíða getur verið
sársaukafullt. Acid Soothe getur komið í veg fyrir það.
ga
þetta í
n
o
jaf
súr g
að auka hl
Til gamans er hægt
að mæla sýrustig í
munnvatni til að sjá hvort
maturinn okkar sé súr
eða basískur.
Hægt er að breyta
sýrustigi í munninum
með 1-2 munnbitum
af mat.
Tekur einungis nokkrar
sekúndur að fá niðurstöðu