Morgunblaðið - 04.08.2018, Page 18

Morgunblaðið - 04.08.2018, Page 18
Sesselía Birgisdóttir frá Advania ásamt stjórnarkonum Vertonet, Hrafnhildi Sif Sverrisdóttur og Lindu Stefánsdóttur. ● Advania hefur gert bakhjarlasamning við Vertonet, hagsmunasamtök kvenna í upplýsingatækni, um að styrkja starf félagsins. Advania hyggst meðal annars taka þátt í viðburðum til að efla sam- stöðu kvenna í tæknigeiranum. Hagsmunasamtök kvenna í upplýs- ingatækni á Íslandi voru stofnuð í apríl sem vettvangur fyrir konur til þess að tengjast og fræðast. Á fjölmennum stofnfundi samtakanna kom fram mikill samhugur um nauðsyn þess að auka hlutfall kvenna í tæknigeiranum, að því er fram kemur í tilkynningu. Megintil- gangur félagsins er að vinda ofan af þeim kynjahalla sem nú ríkir í greininni og vekja áhuga kvenna á þeim fjölbreyttu störfum sem rúmast innan tæknigeirans. Advania og Vertonet hafa sett saman aðgerðaáætlun og viðburðaríka dagskrá á næstu mánuðum þar sem konum í tæknigeiranum gefst færi á að kynnast betur og efla tengslanetið. Fyrsti við- burður verður í húsakynnum Advania í september en nánar verður sagt frá dag- skránni á vefsíðu Vertonet. Hyggjast auka hlut kvenna í tæknigeiranum 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hann segir að tæknin sé þannig að allir græði á henni. Landeigendur fái leigu fyrir að vera með einingarnar á landi sínu, orkuna sé hægt að nýta annaðhvort af landeigendum sjálfum, eða selja hana annað, og náttúran græði þar sem verið sé að framleiða hreina raforku með umhverfisvænum og endurnýjanlegum hætti. Tveggja rúmmetra einingar Öström vísar í mikla umræðu sem verið hefur hér á landi um aukna orkuþörf í framtíðinni, meðal annars til orkufrekra gagnavera. „Innan skamms munum við sjá orkuverin okkar rísa um allt Ísland. Einingarnar eru tveir rúmmetrar að stærð, staðl- aðar og hægt er að raða þeim mörgum saman, allt eftir þörfinni á hverjum stað. Núverandi áætlanir Varmaorku eru að setja upp 17-18 lítil orkuver sem framleiða raforku allan sólar- hringinn.“ Um 70 manns vinna hjá Climeon í Svíþjóð. Félagið er skráð á Nasdaq First North markaðinn, og hluthafar nálægt 10 þúsund. „Pantanabókin okkar stendur núna í 80 milljónum evra, og við erum nýbyrjuð að fjölda- framleiða. Auk þess að vera komin með starfsemi hér og í Japan, þá erum við einnig í Þýskalandi og Kanada.“ Öström segir að fyrirtækið sé mjög metnaðarfullt, og ætli sér að vera í fararbroddi í umhverfismálum í fram- tíðinni. Allir geti framleitt orku Orka Varmaorka tók við fyrstu orkustöðvunum að viðstöddu fjölmenni.  Sænskt fyrirtæki býður búnað til að framleiða orku á lághitasvæðum  197 ein- ingar pantaðar hingað til lands sem framleiða alls 30 Mw  Tekjur til landeigenda Vannýtt auðlind » Hiti er ein vannýttasta auð- lind jarðar. 50% fara til spillis. » Umhverfisvæn framleiðsla. » Athafnamaðurinn Richard Branson mun nota tæknina í Virgin Voyages skemmti- ferðaskipum sínum sem nú eru í smíðum. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Landeigendur með aðgang að heitu vatni, eiga nú kost á því að hafa tekjur af raforkuframleiðslu á landi sínu, með tilstilli sænska tækni- fyrirtækisins Climeon og íslensks samstarfsfyrirtækis þeirra Varma- orku. Climeon opnaði á dögunum skrif- stofu hér á landi til að styðja við út- breiðslu tækninnar, sem þeir segja einstaka í sinni röð, og vinni raforku úr jarðvarmaorku á lághitasvæðum. Fyrsti þjónustumaðurinn verður ráð- inn með haustinu. Pöntun fyrir 8 milljarða Thomas Öström, forstjóri fyrirtæk- isins, segir í samtali við Morgunblaðið að Varmaorka hafi nú þegar lagt inn pöntun á 197 einingum frá fyrirtæk- inu fyrir andvirði 65 milljóna evra, eða um 8 milljarða íslenskra króna. Búið er að afhenda fjórar slíkar einingar sem staðsettar verða nálægt Flúðum. Hver stöð getur framleitt um 150 Kw af raforku. Öström hvetur alla land- eigendur til að skoða málið vandlega, en til að vita nákvæmlega hve miklar tekjur hægt er að hafa af orkustöðv- unum sé nóg að vita hve mikið vatn er í boði, og hve heitt það er. Eining- arnar 197 framleiði samtals um 30 Mw. „Það hafa margir gert tilraunir í gegnum tíðina með að framleiða raf- orku úr lághita með hagkvæmum hætti, en enginn náð sama árangri og við. Við byrjuðum að framleiða raf- orku úr affallsvatni og hita úr skipa- iðnaðinum, álverksmiðjum, sements- verksmiðjum og stálverksmiðjum, en eðlilegt næsta skref var að fara til landa þar sem er mikill jarðhiti, eins og á Íslandi. Við höfum einnig opnað starfsstöð í Japan þar sem svipaðar aðstæður eru fyrir hendi,“ segir Öst- röm. banki haldi áfram að styðja við Val- itor til þess að auka virði félagsins. Hin leiðin, sem er líklegri að sögn Höskuldar, væri að selja félagið að hluta eða öllu leyti. Þónokkrar fyrir- spurnir hafi borist um Valitor og áhuginn virðist mikill. Kom það eink- um fram við skráningu bankans á markað fyrr í sumar, að sögn Hösk- uldar. Mikil hreyfing er á félögum í þess- um geira að sögn Stefáns, sem nefnir sem dæmi kaup bandaríska fyrirtæk- isins PayPal á sænska fjártæknifyr- irtækinu iZettle nýverið. Virðast því eldri og stærri fyrirtæki í geir- anum, með eldri kerfi, vera að fjár- festa í auknum mæli í smærri fyr- irtækjum sem bjóða upp á lausn- ir sem henta nú- tíma við- skiptaháttum. Því hefur verið mikil áherslu á vöxt Valitors, en þar geti Arion banki að mestu leyti aðeins stutt við fyrirtækið á innlendum markaði. Væntir breytingar í stjórn Stjórn Arion banka hyggst boða til hluthafafundar í næsta mánuði og leggja fram tillögu um 10 milljarða króna sérstaka arðgeiðslu. Búast má við einni breytingu í stjórn Arion banka á hluthafafundinum en að sögn Höskuldar er eðlilegt að einhver hreyfing verði á stjórn í ljósi nýrra eigenda. peturhreins@mbl.is Arion banki hyggst móta stefnu varð- andi framtíðareignarhald á dótt- urfélagi bankans, Valitors, fyrir lok árs. Bankinn hefur fengið til liðs við sig erlenda ráðgjafa, sem að sögn Höskuldar H. Ólafssonar bankastjóra er eitt af stærri ráðgjafafyrirtækjum heims. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi í Arion banka í gær þar sem Höskuldur, ásamt Stefáni Péturssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs bankans, fóru yfir uppgjör bankans fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Einn valmöguleikinn er að Arion Líklegra að Arion banki selji Valitor  Áhugi á félaginu mikill segir bankastjórinn  Kosið um stjórnarsæti í Arion Höskuldur Ólafsson 4. ágúst 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.52 107.02 106.77 Sterlingspund 138.4 139.08 138.74 Kanadadalur 81.8 82.28 82.04 Dönsk króna 16.538 16.634 16.586 Norsk króna 12.914 12.99 12.952 Sænsk króna 11.938 12.008 11.973 Svissn. franki 106.99 107.59 107.29 Japanskt jen 0.9532 0.9588 0.956 SDR 148.67 149.55 149.11 Evra 123.26 123.94 123.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.9494 Hrávöruverð Gull 1217.6 ($/únsa) Ál 2022.0 ($/tonn) LME Hráolía 72.42 ($/fatið) Brent Guide to Iceland hefur samið við við Philippine Airlines um stofnun markaðs- torgs fyrir ferða- þjónustu sem verður í sameig- inlegri eigu beggja aðila. Samningurinn er gerður í gegnum dótturfélagið Travelshift, hugbún- aðararm Guide to Iceland. Hið nýja markaðstorg nefnist Guide to Philippines og er því ætlað að fylgja eftir þeim árangri sem Guide to Iceland og Travelshift hafa náð við markaðssetningu á Íslandi. Filippseyjar verða fjórða landið sem Travelshift hugbúnaðurinn nemur utan landsteinanna. Ferðatorg í austurvegi Filippseyjar Setja upp markaðstorg.  Guide to Iceland stefnir til Filippseyja STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.