Morgunblaðið - 04.08.2018, Page 41

Morgunblaðið - 04.08.2018, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018 Hearts Beat Loud geristyfir eitt tímamóta-sumar í lífi plötubúð-areigandans Franks Fisher frá New York. Reksturinn gengur brösulega og það er ljóst að hann þarf bráðlega að loka búð- inni. Frank er einstæður faður og Sam, dóttir hans, er á leiðinni í háskóla í Los Angeles til að læra læknisfræði. Þetta er síðasta sum- arið, síðasti séns áður en Sam fer í skólann og plötubúðin lokar. Sam er afar samviskusöm ung kona og er mjög metnaðarfull gagnvart náminu sem er handan við hornið. Frank er hins vegar mun afslappaðri og finnst að Sam ætti að hætta að vera nefið alltaf ofan í bókum. Þetta er því við- snúin þroskasaga, þar sem sá full- orðni er eins og unglingur og ung- lingurinn eins og sá fullorðni. Frank var tónlistarmaður áður en hann fór að reka búðina og var í hljómsveit með konunni sinni, móður Sam, sem lést sviplega í slysi þegar Sam var ung. Tónlist- armannsdraumurinn blundar enn með honum og hann er með lítið upptökuver heima hjá sér og slatta af hljóðfærum. Hann fær Sam til að taka upp lag með sér, sem reynist vera ansi efnilegur slagari. Hann stelst til að setja lagið inn á Spotify, þar sem það verður vinsælt. Frank fer því að leggja á ráðin um hvernig þessi nýja feðginahljómsveit geti tekið yfir heiminn, meðan Sam er með hugann við allt aðra hluti, eins og námið og nýtendrað ástarævintýri með listakonunni Rose. Handritið er sterkt og byggist upp af einföldum og sannfærandi tilfinningum. Sam þráir breyt- ingar, hún vill strúktúr frekar en óreiðu og vill fara frá austurstönd- inni yfir á vesturströndina. Frank hins vegar óttast breytingar og slær öllu á frest til þess að þurfa ekki að horfast í augu við að líf hans gæti tekið stakkaskiptum. Á endanum þurfa þau bæði þurfa að læra að láta undan og reyna að sameina ólíka þætti innra með sér, að leyfa hinu listræna og hinu jarðbundna að lifa samlífi. Þróun aðapersónanna er takt- föst og áhugaverð. Keirsey Clemons og Nick Offerman eru frábær í sínum rullum og hafa virkilega sterka kemestríu sín á milli. Margir þekkja Nick Offer- man vísast úr sjónvarpsþáttunum Parks and Recreation þar sem hann leikur hinn últra-karlmann- lega Ron Swanson. Það eru ekki mikil líkindi milli Ron Swanson og Frank Fisher, enda er Offerman fjölhæfur leikari. Engu að síður má greina sérkenni Offermans í túlkun hans á Frank og það er hvað hann er óvenjulegur og ein- stakur gamanleikari, hann getur verið grafalvarlegur og spreng- hlægilegur á sama tíma. Eðli málsins samkvæmt er mikil tónlist í myndinni. Gegnum hljóð- rás og sviðsmynd er vísað til ým- issa frægra indí-hljómsveita. Það er ekki kafað mjög djúpt í gras- rótina, sem hefði verið gaman, en þarna er t.d. vísað til DJ Shaddow, Animal Collective og Tom Waits. Tónlistin sem feðginin semja er ekkert stórkostleg, hún er heldur poppuð, en hún passar myndinni ágætlega og Keirsey Clemons sýn- ir að hún er reglulega fín söng- kona. Aukapersónurnar í myndinni eru mjög skemmtilegar. Ted Danson, sem er þekktastur fyrir að leika geðþekka kráareigandann Sam í sjónvarpsþættinum Cheers, rifjar hér upp gamla takta í hlut- verki Daves, sem á bar sem Frank heimsækir reglulega. Þótt Dave og Sam starfi í sama geiranum eru persónurnar mjög ólíkar. Dave er værukær freðhaus, sem reynir að taka lífinu ekki of alvarlega og leggur Frank lífsreglurnar. Blythe Danner leikur móður Franks, ömmu Sam. Hún lítur út fyrir að vera saklaus gömul kona en hún er gjörn á að hnupla úr búðum og Frank þarf ítrekað að koma henni til bjargar þegar hún er gómuð. Amman er skemmtilegur kar- akter og það hefði samt verið mjög gaman að sjá meira gert úr henni. Það er eins og það vanti eitthvað í hennar sögu og gæti jafnvel hugsast að hún hafi verið klippt út úr myndinni að einhverju leyti. Handritið er helsti kostur myndarinnar, það er vel skrifað og persónurnar eru mannlegar og heillandi. Hearts Beat Loud er ekta indí feel-good mynd, sem er bæði hjartnæm og skemmtileg. Þroskasaga á röngunni Heillandi „Handritið er helsti kostur myndarinnar, það er vel skrifað og persónurnar eru mannlegar og heillandi,“ segir í gagnrýni um Hearts Beat Loud. Bíó Paradís Hearts Beat Loud bbbmn Leikstjórn og handrit: Brett Haley. Kvik- myndataka: Eric Lin. Klipping: Patrick Colman. Aðalhlutverk: Nick Offerman, Kiersey Clemons, Ted Danson, Toni Co- lette, Sasha Lane, Blythe Danner. 97 mín. Bandaríkin, 2018. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Einungis 10% Breta nýta sér ólög- legt niðurhal til að streyma tónlist en það er talsverð lækkun frá árinu 2013 þegar fjöldinn var í kringum 18%. Þetta eru niðurstöður könn- unar YouGov sem birtar voru á vef BBC í fyrradag. Þá bendir allt til þess að þróunin haldi áfram en ríf- lega 22% þeirra sem nú notast við ólöglegt niðurhal ráðgera að hætta því innan næstu fimm ára. Þá sögðu 44% svarenda að þau myndu ein- ungis nýta sér ólöglegt niðurhal þeg- ar ekki væri hægt að nálgast lagið með löglegum hætti. Ástæða viðsnúningsins er sögð vera betra aðgengi að löglegum streymisveitum á netinu. „Með til- komu Spotify er í raun algjör óþarfi að nýta sér ólöglegar leiðir á netinu til að hlusta á tónlist. Þeim hefur tekist að fylla þetta tómarúm sem áður var á markaðnum,“ sagði einn svarenda könnunar YouGov. Niðurstöður könnunarinnar eru jákvæðar fréttir fyrir tónlistarmenn en ólöglegt niðurhal hefur verið tals- vert vandamál innan geirans í nokk- ur ár. Justin Marshall, aðstoðar- framkvæmdastjóri YouGov, sagði að tónlistarmenn um allan heim gætu glaðst yfir niðurstöðunum.„Þrátt fyrir að ólöglegt niðurhal sé enn ógn þá sýna þessar niðurstöður að það er ljós við enda ganganna,“ sagði hann. aronthordur@mbl.is AFP Stjörnur Nýjasta plata hjónanna, Jay Z og Beyoncé Knowles, er sú plata sem oftast hefur verið hlaðið niður ólöglega af netverjum. Færri hlaða niður ólöglega

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.