Morgunblaðið - 04.08.2018, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 2018
Hearts Beat Loud geristyfir eitt tímamóta-sumar í lífi plötubúð-areigandans Franks
Fisher frá New York. Reksturinn
gengur brösulega og það er ljóst
að hann þarf bráðlega að loka búð-
inni. Frank er einstæður faður og
Sam, dóttir hans, er á leiðinni í
háskóla í Los Angeles til að læra
læknisfræði. Þetta er síðasta sum-
arið, síðasti séns áður en Sam fer í
skólann og plötubúðin lokar.
Sam er afar samviskusöm ung
kona og er mjög metnaðarfull
gagnvart náminu sem er handan
við hornið. Frank er hins vegar
mun afslappaðri og finnst að Sam
ætti að hætta að vera nefið alltaf
ofan í bókum. Þetta er því við-
snúin þroskasaga, þar sem sá full-
orðni er eins og unglingur og ung-
lingurinn eins og sá fullorðni.
Frank var tónlistarmaður áður
en hann fór að reka búðina og var
í hljómsveit með konunni sinni,
móður Sam, sem lést sviplega í
slysi þegar Sam var ung. Tónlist-
armannsdraumurinn blundar enn
með honum og hann er með lítið
upptökuver heima hjá sér og
slatta af hljóðfærum. Hann fær
Sam til að taka upp lag með sér,
sem reynist vera ansi efnilegur
slagari. Hann stelst til að setja
lagið inn á Spotify, þar sem það
verður vinsælt. Frank fer því að
leggja á ráðin um hvernig þessi
nýja feðginahljómsveit geti tekið
yfir heiminn, meðan Sam er með
hugann við allt aðra hluti, eins og
námið og nýtendrað ástarævintýri
með listakonunni Rose.
Handritið er sterkt og byggist
upp af einföldum og sannfærandi
tilfinningum. Sam þráir breyt-
ingar, hún vill strúktúr frekar en
óreiðu og vill fara frá austurstönd-
inni yfir á vesturströndina. Frank
hins vegar óttast breytingar og
slær öllu á frest til þess að þurfa
ekki að horfast í augu við að líf
hans gæti tekið stakkaskiptum. Á
endanum þurfa þau bæði þurfa að
læra að láta undan og reyna að
sameina ólíka þætti innra með sér,
að leyfa hinu listræna og hinu
jarðbundna að lifa samlífi.
Þróun aðapersónanna er takt-
föst og áhugaverð. Keirsey
Clemons og Nick Offerman eru
frábær í sínum rullum og hafa
virkilega sterka kemestríu sín á
milli. Margir þekkja Nick Offer-
man vísast úr sjónvarpsþáttunum
Parks and Recreation þar sem
hann leikur hinn últra-karlmann-
lega Ron Swanson. Það eru ekki
mikil líkindi milli Ron Swanson og
Frank Fisher, enda er Offerman
fjölhæfur leikari. Engu að síður
má greina sérkenni Offermans í
túlkun hans á Frank og það er
hvað hann er óvenjulegur og ein-
stakur gamanleikari, hann getur
verið grafalvarlegur og spreng-
hlægilegur á sama tíma.
Eðli málsins samkvæmt er mikil
tónlist í myndinni. Gegnum hljóð-
rás og sviðsmynd er vísað til ým-
issa frægra indí-hljómsveita. Það
er ekki kafað mjög djúpt í gras-
rótina, sem hefði verið gaman, en
þarna er t.d. vísað til DJ Shaddow,
Animal Collective og Tom Waits.
Tónlistin sem feðginin semja er
ekkert stórkostleg, hún er heldur
poppuð, en hún passar myndinni
ágætlega og Keirsey Clemons sýn-
ir að hún er reglulega fín söng-
kona.
Aukapersónurnar í myndinni
eru mjög skemmtilegar. Ted
Danson, sem er þekktastur fyrir
að leika geðþekka kráareigandann
Sam í sjónvarpsþættinum Cheers,
rifjar hér upp gamla takta í hlut-
verki Daves, sem á bar sem Frank
heimsækir reglulega. Þótt Dave og
Sam starfi í sama geiranum eru
persónurnar mjög ólíkar. Dave er
værukær freðhaus, sem reynir að
taka lífinu ekki of alvarlega og
leggur Frank lífsreglurnar. Blythe
Danner leikur móður Franks,
ömmu Sam. Hún lítur út fyrir að
vera saklaus gömul kona en hún
er gjörn á að hnupla úr búðum og
Frank þarf ítrekað að koma henni
til bjargar þegar hún er gómuð.
Amman er skemmtilegur kar-
akter og það hefði samt verið
mjög gaman að sjá meira gert úr
henni. Það er eins og það vanti
eitthvað í hennar sögu og gæti
jafnvel hugsast að hún hafi verið
klippt út úr myndinni að einhverju
leyti.
Handritið er helsti kostur
myndarinnar, það er vel skrifað og
persónurnar eru mannlegar og
heillandi. Hearts Beat Loud er
ekta indí feel-good mynd, sem er
bæði hjartnæm og skemmtileg.
Þroskasaga á röngunni
Heillandi „Handritið er helsti kostur myndarinnar, það er vel skrifað og persónurnar eru mannlegar og heillandi,“ segir í gagnrýni um Hearts Beat Loud.
Bíó Paradís
Hearts Beat Loud bbbmn
Leikstjórn og handrit: Brett Haley. Kvik-
myndataka: Eric Lin. Klipping: Patrick
Colman. Aðalhlutverk: Nick Offerman,
Kiersey Clemons, Ted Danson, Toni Co-
lette, Sasha Lane, Blythe Danner. 97
mín. Bandaríkin, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Einungis 10% Breta nýta sér ólög-
legt niðurhal til að streyma tónlist
en það er talsverð lækkun frá árinu
2013 þegar fjöldinn var í kringum
18%. Þetta eru niðurstöður könn-
unar YouGov sem birtar voru á vef
BBC í fyrradag. Þá bendir allt til
þess að þróunin haldi áfram en ríf-
lega 22% þeirra sem nú notast við
ólöglegt niðurhal ráðgera að hætta
því innan næstu fimm ára. Þá sögðu
44% svarenda að þau myndu ein-
ungis nýta sér ólöglegt niðurhal þeg-
ar ekki væri hægt að nálgast lagið
með löglegum hætti.
Ástæða viðsnúningsins er sögð
vera betra aðgengi að löglegum
streymisveitum á netinu. „Með til-
komu Spotify er í raun algjör óþarfi
að nýta sér ólöglegar leiðir á netinu
til að hlusta á tónlist. Þeim hefur
tekist að fylla þetta tómarúm sem
áður var á markaðnum,“ sagði einn
svarenda könnunar YouGov.
Niðurstöður könnunarinnar eru
jákvæðar fréttir fyrir tónlistarmenn
en ólöglegt niðurhal hefur verið tals-
vert vandamál innan geirans í nokk-
ur ár. Justin Marshall, aðstoðar-
framkvæmdastjóri YouGov, sagði að
tónlistarmenn um allan heim gætu
glaðst yfir niðurstöðunum.„Þrátt
fyrir að ólöglegt niðurhal sé enn ógn
þá sýna þessar niðurstöður að það er
ljós við enda ganganna,“ sagði hann.
aronthordur@mbl.is
AFP
Stjörnur Nýjasta plata hjónanna, Jay Z og Beyoncé Knowles, er sú plata
sem oftast hefur verið hlaðið niður ólöglega af netverjum.
Færri hlaða niður ólöglega