Morgunblaðið - 04.08.2018, Page 44
LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 216. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Umferðarslys á Suðurlandsvegi
2. Tjaldaði í fuglahúsi á Nesinu
3. Gátan um Stonehenge ráðin að hluta
4. Breytt og bætt líf Helga
Bresk-tyrkneski dúettinn Nightjar,
Náttfarinn, kemur fram á Pikknikk-
tónleikum í Norræna húsinu á morg-
un, sunnudag, kl. 15. Dúettinn flytur
blöndu af tyrkneskri klassískri tón-
list og vestrænu poppi. Náttfarinn
svonefndi er gestur frá suðrænum
löndum sem vakir á nóttunni, sem er
lýsandi fyrir bakgrunn og áhugamál
dúettsins, Lloyds Degler og Mehmets
Ali Arslan, eins og segir á vef Nor-
ræna hússins.
Suðrænn gestur sem
vakir á nóttunni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað nyrðra og eystra og
lítils háttar rigning eða súld, en skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir sunnan- og
vestanlands. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast á sunnanverðu landinu.
Á sunnudag Austlæg átt, 8-15 m/s og hvassast syðst, en hægari norðaustan til. Skýjað
og dálítil rigning á Suðausturlandi, skýjað með köflum á Norður- og Vesturlandi og stöku
síðdegisskúrir, en annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 9 til 17 stig, svalast eystra.
„Galdurinn er að taka íþróttina alvar-
lega en hafa gaman af henni um leið.
Líf atvinnukylfinga í mótaröðunum er
tilfinningarússíbani. Ef fólk hefur
metnað til að komast í þann gæða-
flokk þá þarf það að búa sig undir
slíkar sveiflur,“ segir hinn reyndi
Jude O’Reilly, sem aðstoðaði Harald
Franklín Magnús á The Open, m.a. við
Morgunblaðið í dag. »4
Lífið í mótaröðunum er
tilfinningarússíbani
Finnur Freyr Stefánsson, fyrr-
verandi þjálfari KR í úrvals-
deild karla í körfuknattleik, er
á leið í nám í Háskólanum á
Bifröst. Hann hætti með Ís-
landsmeistara KR eftir að
hafa gert liðið að meisturum
fimmta árið í röð. Þá stefnir
hann að því að þjálfa yngri
flokka í körfuknattleik sam-
hliða náminu en hann útilokar
að vera áfram í Vest-
urbænum. »1
Finnur Freyr á
leið í nám á Bifröst
Aníta Hinriksdóttir úr ÍR keppir á
þriðjudaginn í 800 metra hlaupi á
Evrópumeistaramótinu í frjálsum
íþróttum í Berlín. Væntingar til Anítu
eru líklega hóflegar að þessu sinni en
tuttugu hlauparar hafa hlaupið á
betri tíma á
þessu ári og
fjórtán eiga
betri tíma í
greininni
þegar besti
tími kepp-
enda frá upp-
hafi er skoð-
aður. »2
Mikil samkeppni hjá
Anítu á EM í Berlín
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Óperusöngvararnir Aðalsteinn Már
Ólafsson og Gunnar Björn Jónsson
voru fengnir í aðalhlutverk í ítölsku
óperunni Lucia di Lammermoor.
Þeim var boðið að taka þátt í
óperusmiðju sem fór fram í litlum
bæ á Ítalíu á stærð við Ísafjörð,
Novafeltria. Fimm sýningar voru í
bænum og nágrenni. Íslending-
arnir tveir voru hluti af 74 manna
hópi sem tók þátt í verkefninu.
„Þetta byrjaði með því að maður
að nafni Joseph Rescigno, hljóm-
sveitarstjóri sýningarinnar, kom til
landsins síðasta vetur og var með
námskeið í óperusöng. Við mættum
þangað og sungum fyrir hann og í
framhaldinu vildi hann fá okkur
með í óperusmiðju,“ segir Aðal-
steinn. Hann er menntaður verk-
fræðingur en byrjaði að syngja óp-
erur fyrir 10 árum. „Ég hef verið í
þessu með náminu en hef ekki náð
að helga mig söngnum fyrr en
núna.“
Sýningarnar kröfðust mikils
undirbúnings og þurftu söngvar-
arnir báðir að fínpússa ítalska
framburðinn. „Fyrstu þrjár vik-
urnar fóru í að læra ítölsku og svo
vinna með sérfræðingum og söng-
kennurum og setja upp óperuna.
Við vorum frá morgni til kvölds að
læra ítölskuna og fá tilfinningu
fyrir tungumálinu, til þess að
tileinka okkur réttan stíl fyrir
óperuna,“ segir Aðalsteinn.
„Fimm sýningar voru
skipulagðar í bænum
Novafeltria og ná-
grenni, þar á meðal í
San Marínó. Vanalega
hafa tvær til þrjár sýn-
ingar verið settar upp á
ári.“ Aðalsteinn segir að
fólk hafi almennt verið
sammála um að í ár hafi
verið besti tónlistarflutningur sem
hefur heyrst í óperusmiðjunni.
Gunnar segir verkefnið hafa ver-
ið hvetjandi og reynsluna dýrmæta.
„Það er öðruvísi að syngja á Ís-
landi, þá er maður tengdur öðru lífi
og í vinnunni og annað. En þegar
maður fer út í svona verkefni gefst
tækifæri til að lifa og hrærast í
þessu. Þetta er góður innblástur til
að halda áfram á sömu braut.“
Gunnar er menntaður múrari frá
Akureyri. Hann segir að í söng-
námi vanti oft upp á reynslu á leik-
sviði og því hafi verkefnið verið frá-
bært tækifæri. „Þetta er erfiður
bransi, það er ekki nóg að hafa
bara góða rödd. Óperusmiðjan gaf
mér meiri kraft til að vinna með
þetta og koma mér áfram.“
Óperusöngvarar á Ítalíu
Uppgötvaðir og
fengnir í óperu-
smiðju á Ítalíu
Ljósmynd/Ólafur Håkansson
Ópera Gunnar og Aðalsteinn hneigðu sig ásamt Michelle Pedersen eftir vel heppnaða sýningu í San Marínó.
Óperan Lucia di Lammer-
moor er harmleikur
eftir Gaetatno Doni-
zetti og Salvadore
Cammarano frá
árinu 1835.
Hún fjallar um
hina tilfinn-
ingaríku Lucy
Ashton, sem
verður djúpt
ástfangin af
manni sem fjölskylda hennar fyr-
irlítur. Þegar Enrico, bróðir
hennar, uppgötvar ástarsam-
bandið verður hann bálreiður og
reynir að stía elskendunum í
sundur. Verkið hefur verið sýnt
víða en það var frumsýnt 26.
september árið 1835 í Teatro di
San Carlo í Napólí. Síðan var það
fyrst sýnt í London 1835 og loks
náði það til Bandaríkjanna í New
Orleans árið 1841.
Lucia di Lammermoor
HEIMSFRÆGT VERK SETT Á SVIÐ
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 7. ágúst. Frétta-
þjónusta verður um versl-
unarmannahelgina á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er
að koma ábendingum um fréttir
á netfangið netfrett@mbl.is.
Áskrifendaþjónustan er opin
laugardaginn 4. ágúst frá 8-12,
lokað er sunnudaginn 5. ágúst og
mánudaginn 6. ágúst en opnað
aftur þriðjudaginn 7. ágúst kl. 7.
Símanúmer áskrifendaþjónust-
unnar er 569-1122 og netfangið
er askrift@mbl.is.
Auglýsingadeildin er lokuð og
verður opnuð aftur þriðjudaginn
7. ágúst kl. 8. Hægt er að bóka
dánartilkynningar á mbl.is. Net-
fang auglýsingadeildar er
augl@mbl.is.
Blaðberaþjónustan er opin
laugardaginn 4. ágúst kl. 6-12,
lokað er sunnudaginn 5. ágúst og
mánudaginn 6. ágúst. Blaðbera-
þjónustan er opnuð aftur þriðju-
daginn 7. ágúst kl. 5. Símanúmer
blaðberaþjónustunnar er 569-
1440 og netfangið er
bladberi@mbl.is.
Fréttaþjónusta
mbl.is um helgina