Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 6
Saga ganganna 2002 Eyþing, samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, skipar nefnd til þess að gera skýrslu um gerð Vaðlaheiðarganga. 2003 Einkahlutafélagið Greið leið stofnað um framkvæmdina. 2004 Jarðfræðirannsóknir hefjast 2005 Unnið að rannsóknaborunum í Vaðlaheiði. 2006 Kynnt skýrsla Háskólans á Akureyri um þjóðhagslega arðsemi Vaðlaheiðarganga. 2007 Margir fundir Greiðrar leiðar og samgönguyfirvalda án niðurstöðu. 2008 Alþingi samþykkti viðauka við samgönguáætlun um að göngin yrðu fjármögnuð í einkafram- kvæmd með veggjöldum. 2010 Alþingi samþykkir lög um stofnun hlutafélaga um vegafram- kvæmdir þar sem Vegagerðinni er heimilað að taka þátt í stofnun hlutafélags um gerð Vaðlaheiðar- ganga. 2011 Vegagerðin auglýsir fyrir hönd Vaðlaheiðarganga hf. forval vegna gangagerðarinnar. 2013 Samningar um gerð Vaðlaheiðarganga gerðir við Ósafl, dótturfélag ÍAV. 2014 Verktaki kemur að heitri vatnsæð við gangagerð, sem á eftir að tefja framkvæmdir mjög mikið. Stór vatnsæð opnaðist inn í göngin Fnjóskadalsmegin og ekkert var hægt að vinna þar fyrr en öllu vatninu hafði verið dælt út. 2016 Ljóst orðið að framkvæmdin væri að minnsta kosti ári á eftir áætlun og að lánið sem búið var að samþykkja myndi ekki duga til fyrir framkvæmdum. 2017 Ríkisstjórnin og Alþingi veita Vaðlaheiðargöngum hf. 4,7 milljarða króna lán, til viðbótar við þá 8,7 milljarða sem lánaðir voru árið 2012. 2018 Ljóst orðið að kostnaður við gangagerð er kominn milljörðum fram yfir þær fjárhæðir sem ríkið hefur lánað til verksins. Ósafl krefur verkkaupann um a.m.k. þrjá milljarða í bætur, vegna tafa, m.a. vegna heitavatnslekans, en Vaðlaheiðargöng bjóða að hámarki einn milljarð króna. Deilan komin í algjöran hnút. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson, fjármálaráð- herra, segir það „gríðarlega mikil vonbrigði“, að nú skuli komið á dag- inn að fleiri milljarða vanti enn til þess að ljúka Vaðlaheiðargöngum. Nú blasi það við stjórn Vaðlaheið- arganga hf. að meta hvort félagið geti staðið undir skuldbindingum sínum, sem Bjarni óttast að félagið geti ekki. Meti lögmæti krafna „Á þessu stigi málsins er mikil- vægast að stjórn félagsins leggi mat á þær kröfur sem eru komnar fram frá verktakanum og lögmæti þeirra. Þegar það mat hefur verið gert, þarf að meta það hvort félagið getur stað- ið undir þeim kröfum sem gerðar eru,“ sagði Bjarni í samtali við Morgunblaðið í gær, þegar hann var spurður hvort hann myndi leggja til að Vaðlaheiðargöng hf. fengju frek- ari lánafyrirgreiðslu frá ríkinu. Er félagið gjaldþrota? „Ég hef áhyggjur af því að félagið geti ekki staðið undir þeim kröfum sem gerðar verða og staðið við skuld- bindingar sínar. Ef félagið getur ekki staðið við skuldbindingar sínar, er auðvitað komin upp sú staða, að það þarf að svara því hvort félagið sé þar með orðið gjaldþrota, eða hvort þeir sem standa að félaginu, sem er ekki bara ríkið heldur fleiri aðilar, hyggist grípa til einhverra ráðstaf- ana af því tilefni,“ sagði fjármálaráð- herra. Bjarni segir að sér þyki ekkert sjálfgefið varðandi hvaða niðurstöðu menn komast að í þessu erfiða máli. „Þetta eru auðvitað gríðarlega mikil vonbrigði, að þessi framkvæmd verði mörgum milljörðum dýrari, en áætl- anir gerðu ráð fyrir í upphafi.“ sagði Bjarni. Helstu forsendur brostnar Hann segir að þá sé ekki nema von að helstu forsendurnar fyrir verkinu, sem menn hafi í upphafi gefið sér, séu brostnar. „Ég var einn af þeim sem í upphafi höfðu miklar efasemd- ir um forsendurnar og það mat mitt hefur síður en svo breyst,“ sagði hann. Ríkið lánaði félaginu 8,7 milljarða 2012 og 4,7 milljarða í fyrra. Að- spurður hvort hann útilokaði á þessu stigi, að ríkið legði Vaðlaheiðargöng- um hf. til frekara lánsfé sagði Bjarni: „Ég held að það sé svo langt í frá að vera sjálfsagt mál, að ríkið leggi fé- laginu til frekara lánsfé. Alveg sér- staklega finnst mér það ekki koma til greina að gera það til þess að félagið standi undir kröfum sem eru um- deildar.“ Gríðarleg vonbrigði  Fjármálaráðherra segir það vera svo langt í frá sjálfgefið að ríkið leggi Vaðlaheiðargöngum hf. til frekara lánsfé Morgunblaðið/Skapti Vaðlaheiðargöng Fjármálaráðherra vill að mat sé lagt á lögmæti krafna Ósafls á hendur Vaðlaheiðargöngum. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 112.800 kr. á mann í tvíbýli. Skoðunarferðir innifaldar! sp ör eh f. Jólaferð til Dublin Dásamleg jólaferð til Dublin, höfuðborgar Írlands. Hér er jólastemningin í hávegum höfð, borgin er ljósum prýdd og íbúar borgarinnar í hátíðarskapi. Við skoðum helstu kennileiti Dublinar, ásamt nokkrum jólamörkuðum og áhugasamir geta fræðst og smakkað framleiðslu Guinness. 29. nóvember - 2. desember Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Eins og eðlilegt er þegar maður fær leyfi þá snýr hann til baka að því loknu, nema einhverjar mál- efnalegar ástæður séu fyrir öðru. Þær eru ekki í málinu,“ segir Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri. Ari var inntur eftir því hvort Atli Rafn Sigurðarson leikari hefði snú- ið aftur til starfa í Þjóðleikhúsinu eftir ársleyfi frá störfum. Leyfið nýtti hann til starfa í Borgarleik- húsinu en þar var Atla sagt upp störfum í desember síðastliðnum. Atli átti að fara með eitt aðal- hlutverkanna í leikritinu Medeu en honum var sagt upp vegna ásakana í tengslum við #Metoo-byltinguna. Í yfirlýsingu þegar málið kom upp sagði Atli að um nafnlausar ásak- anir væri að ræða og að sér hefði ekki verið greint frá því hvers eðlis þær væru, frá hvaða tíma eða hverjir ættu í hlut. „Ég hef sagt það áður að Atli Rafn Sigurðarson hefur ekki brotið af sér í starfi hjá Þjóðleikhúsinu og vegna hans hafa engar kvartanir borist mér. Því sneri hann til baka til starfa 20. ágúst eins og til stóð,“ segir Ari í samtali við Morgun- blaðið. Hann segir að Atli Rafn muni leika í Jónsmessunætur- draumi í leikhúsinu í vetur auk þess að vinna í sérverkefnum sem gætu ratað á fjalir leikhússins í fram- tíðinni. Atli Rafn útskrifaðist frá Leik- listarskóla Íslands árið 1997 og hef- ur getið sér gott orð á fjölum leik- húsanna auk þess að leika í sjón- varpi og kvikmyndum. Atli Rafn Sigurðarson aftur til starfa í leikhúsinu  Mun leika í Jónsmessunæturdraumi í Þjóðleikhúsinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjóðleikhúsið Nýtt leikár er að hefjast og Atli Rafn stígur á svið í vetur. Atli Rafn Sigurðarson Ari Matthíasson Íslandspóstur hefur farið fram á 8% hækkun á gjaldskrá sinni. Í febrúar síðastliðnum fékk fyrir- tækið heimild frá Póst- og fjar- skiptastofnun (PFS) til að draga úr útburðarþjónustu sinni. Í kjöl- farið fækkaði dreifingar- dögum í þéttbýli um helming. Ákvörðunin kvað hins vegar einnig á um það að Íslands- póstur skyldi endurskoða gjaldskrá fyrir- tækisins fyrir 1. júní 2018. Er- indi frá fyrirtækinu barst 22. júní þar sem farið er fram á hækk- unina. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags at- vinnurekenda, gagnrýnir fyrir- tækið og segir ýmislegt benda til þess að rekstur þess standist ekki lög. „Við höfum lengi gagnrýnt Ís- landspóst fyrir að sýna ekki fram á það með óyggjandi hætti að ekki sé verið að nota hagnað af einka- rekstrarþjónustunni til þess að niðurgreiða samkeppnisrekstur.“ Ólafur segir PFS hafa fallist á fækkun útburðardaga með því skilyrði að hagræði af samdrætti í þjónustu skili sér til viðskiptavin- anna. Því komi honum á óvart að verðið hækki en þjónustan minnki. „Félagsmenn okkar og allur almenningur í landinu eru að greiða póstútburðargjöld. Gjald- skrá Íslandspóst í einkarétti hækkar stöðugt og hefur tekið gríðarlegum hækkunum á undan- förnum árum. Á sama tíma hækk- ar gjaldskrá fyrirtækisins í sam- keppnisrekstri lítið sem ekkert, þrátt fyrir að kostnaðarliðirnir séu iðulega þeir sömu. Þetta er rekstrarhagfræði sem enginn skil- ur.“ ninag@mbl.is Minnka þjónustu en hækka verð  Rekstrarhagfræði sem enginn skilur Ólafur Stephensen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.