Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.08.2018, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 Undirföt Sundföt Náttföt Sloppar Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði 30-60% afsláttur af völdum vörum Útsalan hefst í dag Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mér hefur alltaf fundistgaman að kenna ogstarfa með ungu fólki,sjá það fyllast sjálfs- trausti og takast á við ný og ögrandi verkefni. Kennarastarfið er oft van- metið þó mikilvægt sé og sama gildir ef til vill líka um iðnmenntun sem getur skapað fólki ótalmörg áhuga- verð tækifæri til starfa,“ segir Hild- ur Ingvarsdóttir, nýr skólameistari Tækniskólans – skóla atvinnulífsins. Hildur tók við starfi skólameist- ara 1. júní síðastliðinn en þá var ver- ið að undirbúa starf næsta skólaárs sem nú er komið á fullt skrið. Áður starfaði Hildur, sem er vélaverk- fræðingur að mennt, hjá Veitum hvar hennar áherslumál var meðal annars að fá ungt fólk og þá ekki síst stúlkur til starfa í annars hefð- bundnum karlastörfum. Einnig að efla öryggismenningu meðal starfs- manna, sem nú verður stærri þáttur en áður í áherslum og starfi Tækni- skólans. Fjölmennasti skólinn Á haustönn verða alls um 2.500 nemendur í Tækniskólanum, sem er fjölmennasti framhaldsskóli lands- ins. Starfsemi hans er skipt upp í sjö undirskóla sem hver sinnir sínu sviði; svo sem í byggingaiðn, skip- stjórn, vélstjórn, raf- og málmiðn- greinum, hársnyrti- og fataiðnum og upplýsingatækni. Þá eru reknar starfsbrautir við skólann, nýbúa- braut og sitthvað fleira. Leiðir til stúdentsprófs eru greiðar í skólanum, í meistaraskól- anum hljóta sveinar réttindi sem meistarar í sínu fagi auk þess sem námskeiðahald á vegum Endur- menntunarskólans er ríkur þáttur í starfseminni. Svo mætti áfram til- taka fleira í námsframboði skólans. Framtíðin er óráðin Um þessar mundir er í húsi Tækniskólans á Skólavörðuholti í Reykjavík unnið að því að útbúa 300 fermetra rými sem verður tileinkað fjórðu iðnbyltingunni og ýmsum breytingum í samfélaginu sem henni munu fylgja. Stofunni verður skipt upp í svæði fyrir ýmis verkefni og nefnast þau; skapandi rými, verk- stæði, mótun, þjarkur, tækni og hljóð og mynd. Þarna verða þrívídd- artæknin og aðrar tækninýjungar áhersluatriði og öll framsetning þannig að vekja megi áhuga ungs fólks fyrir iðn-, tækni- og verknámi. „Við köllum þetta Framtíðar- stofu sem verður notuð fyrir allan skólann og vonandi almenning í framtíðinni,“ segir Hildur skóla- meistari. „Þessi starfsemi mun þróast eftir því sem fram líða stund- ir; enginn veit hvaða störf verða til eftir tíu eða tuttugu ár. Nemendur lifa í mjög óráðinni framtíð og við í skólunum þurfum að geta aðlagað okkur síbreytilegum veruleika. Framtíðarstofan sem nú er í verið að ganga frá og verður væntanlega opnuð í nóvember þarf ef til vill að verða allt öðruvísi eftir fimm eða tíu ár og þá verður bara brugðist við því eins og öðru.“ Verknám sé kynnt í grunnskóla Hildur getur þess að í dag sé mikil eftirspurn í atvinnulífinu eftir fólki með menntun í tölvutækni og Endalausar nýjungar Verknámsnemum fjölgar. Hildur Ingvarsdóttir, nýr skólameistari Tækniskólans, segir mikilvægt að bregðast við þróun og alltaf sé þörf fyrir iðnaðarmenn úti í atvinnulífinu. Hildur Ingvarsdóttir sem er fædd árið 1975 lauk prófi í véla- og iðnaðarverk- fræði frá Háskóla Íslands 1999 og meistaraprófi í vélaverkfræði frá há- skólanum í Bresku Kólumbíu í Kanada 2001. Þá hlaut hún réttindi sem fram- haldsskólakennari 2003. Frá 2006 og fram á þetta ár starfaði hún hjá Orku- veitu Reykjavíkur og var síðustu fimm árin forstöðumaður viðhaldsþjónustu Veitna. „Í framhaldsnáminu í Kanada, að- stoðaði ég við kennslu og tilraunir. Þar vaknaði áhugi minn á skólastarfi og kenndi ég stærðfræði og eðlisfræði við MR um skeið áður en ég snéri mér að hefðbundnari verkfræðistörfum. Þegar starf skólameistara Tækniskólans var auglýst ákvað ég að sækja um, fékk starfið og sé í þessu óteljandi tæki- færi,“ segir Hildur sem er gift, á þrjár dætur og er mikil fjölskyldu- og úti- vistarmanneskja að eigin sögn. Ég sé óteljandi tækifæri VÉLAVERKFRÆÐINGUR MEÐ FJÖLBREYTTAN FERIL AÐ BAKI Skólameistari Hildur Ingvarsdóttir í kennslustofu. Tækniskólinn – skóli atvinnulífsins er með meginstarfsemi sína á Skólavörðuholti og við Háteigsveg í Reykjavík og við Flatahraun í Hafnarfirði. Á þessum stöðum var áður starfsemi þeirra skóla sem voru sameinaðir fyrir um áratug. „Núna dreymir okkur um að geta sameinað starfsemina undir einu þaki á góðum stað á höfuð- borgarsvæðinu. Núverandi húsa- kostur er hamlandi fyrir nýjar áherslur í starfinu. Óhagræðið af því að vera á þremur stöðum og leigja húsnæði fyrir tilteknar námsgreinar á fleiri stöðum blasir við öllum sem vilja. Í nýju húsi sem byggt væri gagngert fyrir starf- semina værum við mun betur sett og höfum því sett húsnæðismálin á stefnuskrá,“ segir Hildur. Vilja vera undir einu þaki HÚSAKOSTUR ER SKÓLASTARFINU HAMLANDI Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skólavörðuholt Iðnskólahúsið sem var byggt árið 1960 og stækkað síðar. Morgunblaðið/Valli Trésmíði Hluti af Tækniskólanum er Byggingatækniskólinn, en nám þar opnar mörg tækifæri. forritun. Það gildi raunar um flestar iðngreinar; alls staðar þurfi fólk með góða fagþekkingu. „Samfélagið eða þjóðarsálin stýrir ungu fólki í stúdentspróf og þaðan í háskóla, en í orði eru allir líka sammála um að hefja verði verk- nám til vegs. En þá verða aðgerðir og hugur að fylgja máli og strax í grunnskóla þarf að kynna fyrir ungu fólki möguleika í iðngreinum. Slíkt gerðum við í mínu fyrra starfi hjá Veitum. Þar buðum við nemendum úr Árbæjarskóla að koma til okkar og kynna sér störfin sem skilaði sér tvímælalaust. Tækniskólinn hefur einnig verið með grunnskólaval með sama markmiði. Verknám er fyrir alla; í boði eru góð störf og fín laun,“ segir Hildur sem heldur áfram: „Og nú virðist mér raunar sem breyting sé að verða. Í haust koma 16% þeirra krakka sem luku grunn- skólanum í vor beint í verk- og starfsnám og það hlutfall hefur sjaldan verið jafn hátt. Hér í Tækni- skólanum jókst aðsókn mikið í raf- iðnaðar- og byggingargreinar svo og málmiðngreinar. Einnig er mikil ásókn í hönnun og nýsköpun og fleira mætti telja til. Það sem mér finnst annars sérstaklega frásagna- vert nú er að stelpurnar eru að koma sterkar inn til dæmis í rafiðnaðar- námið og raunar fleiri greinar þar sem karlarnir hafa verið ráðandi til þessa. Konur eru 7,5% nema í raf- iðngreinum nú en voru 1% árið 2008. Það er góð þróun og afrakstur mik- illar vinnu undanfarin ár.“ Þróun sé mætt með samvinnu Skóli er samfélag fólks sem skiptist á upplýsingum og miðlar þeim, kynnir sér málin og tekur skrefin til framtíðar út frá þekkingu. Samvinna menntastofnana, sam- félags og atvinnulífsins er því mikil- væg. En hver á að leiða þróunina? Hildur segir að best fari á því hvað Tækniskólanum viðvíkur að nýrri verkmenningu og tækniþróun verði mætt með góðri samvinnu skóla og atvinnulífsins. „Ef hver situr í sínu horni ger- ast hlutirnir hægar en ella og allir eru síður í stakk búnir til að mæta nýjum viðfangsefnum og tileinka sér nýja tækni. Í raf- og stjórnbúnaði svo dæmi sé tekið eru endalaust að koma nýjungar og menntun rafiðn- aðarmanna og tölvufólks tekur mið af því. Sama gildir raunar í öllum iðngreinum. Vissulega þarf smiður- inn áfram að nota hamar og sög og málarinn pensil en það er hins vegar margt nýtt að bætast við. Í hár- greiðslunni eru áfram notuð skæri og greiða en nú fylgir starfinu mikil áskorun í því að finna og tileinka sér notkun umhverfisvænni hárvara. Þróun á þessum nótum þurfa skól- arnir, fyrirtækin og raunar sam- félagið allt að mæta.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.