Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
P22
Hönnun: Patrick Norguet
Armstóll með eyrum
Leður verð frá 569.000,-
Skemill
Leður verð frá187.000,-
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vísitala lífmassa makríls í Norð-
austur-Atlantshafi er metinn 40%
minni í sumar en á sama tíma á
síðasta ári. Mestur þéttleiki mæld-
ist í Noregshafi en mun minna
mældist á hafsvæðinu við Ísland en
verið hefur undanfarin ár. Kemur
þetta fram í samantekt á upplýs-
ingum úr sameiginlegum uppsjáv-
arleiðangri Íslendinga, Grænlend-
inga, Færeyinga, Norðmanna og
Dana.
Leiðangurinn var farinn á tíma-
bilinu 30. júní til 6. ágúst. Markmið
hans var að meta magn uppsjávar-
fiska í Norðaustur-Atlantshafi að
sumarlagi.
Kemur á óvart
Í skýrslu um niðurstöður leið-
angursins kemur fram að vísitala
lífmassa makríls er 40% lægri en á
síðasta ári. Heldur minni lækkun
er í vísitölu fjölda fiska. Anna
Heiða Ólafsdóttir, sérfræðingur í
uppsjávarfiskum á Hafrannsókna-
stofnun, segir að þessi munur skýr-
ist af fækkun í öllum eldri árgöng-
um makríls en fjölgun sem komi
fram í eins og tveggja ára fiski
vegi létt á móti því. Tekur hún
fram að ekki séu nægar upplýs-
ingar til að bera fjölda ungviðis
saman við fyrri ár.
Mikill þéttleiki makríls var í
Noregshafi og suðaustan og vestan
við Ísland. Makríllinn dreifðist yfir
stærra svæði en á síðasta ári en
hallar sér nú meira í austur, að
Noregi. Fram kemur í tilkynningu
Hafró að mun minna mældist á
hafsvæðinu við Ísland en verið hef-
ur undanfarin ár og Anna Heiða
bætir því við að minnkunin í Nor-
egshafi sé mun minni en við Ísland
og Grænland.
Anna Heiða segir að niðurstöð-
urnar hafi komið á óvart. Ekkert
hafi bent til þessarar þróunar í
leiðangrinum á síðasta ári. Nóg áta
sé í sjónum og nógu heitt fyrir
makrílinn. Þetta séu flóknir hlutir
og ekki víst að skýringin finnist
fyrr en eftir fleiri mælingar.
Varðandi meiri fækkun makríls
við Ísland en Noreg segir Anna að
nærtækt sé að líta til umhverf-
isaðstæðna. Óvenjukalt hafi verið
fyrir vestan Ísland í sumar. Hins-
vegar þurfi meiri tíma til að greina
ástæðurnar.
Minnkun í síld og kolmunna
Magn norsk-íslenskrar síldar
mældist einnig minna en á síðasta
ári, að því fram kemur í tilkynn-
ingu Hafró. Vísitala lífmassa lækk-
aði um 24% frá síðasta ári. Út-
reiðsla stofnsins var svipuð og
undanfarin ár fyrir fullorðna hluta
stofnsins. Mesti þéttleikinn var
norður af Færeyjum og fyrir aust-
an og norðan Ísland.
Þriðja árið í röð var lögð aukin
áhersla á að fylgjast með út-
breiðslu kolmunna og að meta
stærð stofnsins. Vísitala stofn-
stærðar kolmunna sem er ársgam-
all og eldri var 11% lægri en á síð-
asta ári. Kolmunni fannst á
mestöllu rannsóknarsvæðinu nema
í köldum sjó út af Austur-
Grænlandi og milli Íslands og Jan
Mayen. Við Ísland mældist mest af
kolmunna við landgrunnsbrúnina
sunnan við landið.
Meta stofnstærð
Niðurstöður leiðangursins voru
kynntar Alþjóðahafrannsókna-
ráðinu (ICES) í gær. Þær eru not-
aðar við yfirstandandi vinnu við
mat á stofnstærð makríls en ICES
mun birta ráðgjöf um aflamark
síldar, makríls og kolmunna 28.
september næstkomandi og þá er
einnig von á ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar um veiðar á Ís-
landsmiðum.
Minna af makríl við Ísland
Vísitala lífmassa makríls lækkar um 40% í Norðaustur-Atlantshafi Makríllinn færist frá Íslandi
og Grænlandi að Noregi Ástæðurnar eru enn ekki þekktar Minna af síld og kolmunna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makrílveiðar Ekki liggur fyrir hvort og þá hversu mikið makrílkvóti ís-
lenskra skipa minnkar við tíðindin úr sameiginlega makrílleiðangrinum.
Útbreiðsla makríls sumarið 2017 og 2018
Magn makríls í yfirborðstogum í uppsjávarleiðangri sumarið 2018
Magn makríls í yfirborðstogum í uppsjávarleiðangri sumarið 2017
M
ag
n
m
ak
ríl
s
Magn, kg*km-2
20.00010.0001.00010 100
Magn, kg*km-2
20.00010.0001.00010 100
2018
2017
M
ag
n
m
ak
ríl
s
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Þau atvik sem upp hafa komið á
Austurlandi í sumar þar sem menn
ganga inn í ólæst hús og láta greip-
ar sópa líkjast mjög þeim er tíðkast
meðal glæpagengja í Evrópu. Þetta
segir Elvar Óskarsson, lögreglu-
fulltrúi á Austurlandi. Hann segir
lögregluna verða vara við að slík
mál komi upp í bylgjum en hafa þó
engar forsendur fyrir því að málin
sem tilkynnt hafa verið um land allt
tengist með einhverjum hætti. Elv-
ar segir það algengt að þjófarnir
fari hratt um og af þeim sökum séu
málin erfið viðfangs. „Við erum
ekki eyland, við vitum hvernig
svona fer fram t.d. í Evrópu, bæði í
innbrotahrinum og líka í innfarar-
hrinum, þó að það sé algengara að
fólk læsi húsunum úti en hér á
landi. Þetta eru menn sem færa sig
rosalega hratt til, það er þekkt í
Evrópu að þessi gengi færa sig
hratt á milli staða. Ef við horfum á
þetta í samhengi er þetta svipað og
menn gera hlutina annars staðar.“
Hann segir atferli þjófanna teljast
sem húsbrot en ekki innbrot, þ.e.
þeir ganga inn í hús sem ólæst eru.
„Það er reynsla okkar í þessum
málum að þetta fólk er að athafna
sig á vinnutíma fólks, oft um hádegi
og upp úr hádegi. Þessir menn virð-
ast einnig óhræddir við að tjá sig,
þeir grípa í ýmsa frasa til að slá
ryki í augun á fólki. Algengast er að
menn séu að spyrja um gistingu eða
þvíumlíkt og beri sig aumlega.“
Lögreglan á Austurlandi hvetur
fólk til að gefa nærumhverfi sínu
gaum og gera lögreglunni viðvart ef
grunsemdir vakna um grunsamlegt
athæfi. „Við treystum á aðstoð al-
mennings þar sem við vitum ekkert
í hvaða byggðarlagi þeir dúkka upp
og á hvaða tíma.“
Líkist glæpastarf-
semi í Evrópu
Lögregla treystir á hjálp almennings
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fáskrúðsfjörður Nokkur húsbrot
hafa verið tilkynnt á Austurlandi.