Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 46

Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 46
46 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is Frábær smurefni sem einangra, verja og koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra o rafma nsvara. 100% eins árs RAKAVÖRN Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Merkivélarnar frá Brother eru frábær lausn inná hvert heimili og fyrirtæki Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur Peking. AFP. | Kennsluróbóti hefur verið tekinn í notkun til reynslu í leikskólum í Kína og vakið hrifn- ingu barna sem hlýða á hann segja þeim sögur eða leggja fyrir þau þrautir sem reyna á rökvísi þeirra. Kínverjar hafa lagt mikið fé í þróun róbóta sem eru notaðir til að veita ýmiskonar þjónustu, með- al annars til að flytja matvæli frá verslunum til kaupenda og veita öldruðu fólki félagsskap. Kín- verskt fyrirtæki hefur nú þróað kennsluróbótann Keeko, sem hef- ur verið prófaður í rúmlega 600 leikskólum víðs vegar um landið. Fyrirtækið vonar að róbótinn verði tekinn í notkun í fleiri skól- um í Kína og í grannríkjum í Suð- vestur-Asíu. Leysir ekki kennara af hólmi Róbótinn er um 60 cm hár, með lítil hjól, skjá fyrir andlitinu og innbyggðar myndavélar og skynj- ara. Hann leggur þrautir fyrir börnin og í hvert skipti sem þau leysa þær rétt lætur hann ánægju sína í ljós með því að láta hjarta- laga augu á skjánum leiftra. „Þegar börnin sjá Keeko með hringlaga höfuðið og búkinn finnst þeim hann vera indæll og hrífast strax af honum,“ segir kennarinn Candy Xiong sem þjálf- ar aðra kennara í notkun róbót- ans á vegum tæknifyrirtækis sem framleiðir hann. Hver róboti kostar um 10.000 júön, jafnvirði 160.000 króna, eða sem svarar mánaðarlaunum kín- verskra leikskólakennara. Xie Yi, skólastjóri eins leikskólanna þar sem Keeko hefur verið notaður til reynslu, kveðst telja að langur tími líði þar til róbótar geti tekið algerlega við hlutverki kennara í skólunum. Þeir séu hins vegar gagnlegir við kennsluna og hafi ýmsa kosti fram yfir kennara af holdi og blóði. „Hvað er það besta við róbóta? Þeir eru jafnlyndari en við,“ svaraði hún og hló. AFP Gagnlegur róbóti Börn horfa á róbótann Keeko í leikskóla í Peking þar sem hann hefur verið notaður til reynslu. Kennsluróbóti gerir lukku í kínverskum leikskólum Moskvu. AFP. | Þegar rússneska fyrirtækið Kalashníkov til- kynnti nýlega að það væri að undirbúa framleiðslu á rúss- neskum „ofur-rafbíl“ í gömlum stíl höfðu gárungar það að háði en áformin ættu ekki að koma á óvart því að fyrir- tækið hefur lengi stefnt að því að færa út kvíarnar með framleiðslu á öðrum tækjum en vopnum, meðal annars flyg- ildum og seglbátum. Kalashníkov er þekktast fyrir framleiðslu vopna, einkum riffla, en umskiptin sem hafa orðið á rekstri fyrirtækisins síðustu misseri eru þau mestu í 211 ára sögu þess. Kalashníkov-fyrirtækið framleiðir núna um 95% af öllum byssum sem framleiddar eru í Rússlandi og flytur út vörur sínar til 27 landa. Fyrirtækið framleiðir enn þekktustu byssu sína, riffil af gerðinni AK-47 sem kennd er við rúss- neska vopnahönnuðinn Míkhaíl Kalashníkov. Hann hannaði riffilinn skömmu eftir síðari heimsstyrjöldina og fyrirtækið hefur lýst byssunni sem „stórkostlegasta vopni 20. aldar- innar“. Aukin umsvif eftir einkavæðingu Fyrirtækið var stofnað í borginni Izhevsk árið 1807 þegar Izhmash-vopnaverksmiðjan var tekin í notkun. Rússneska ríkisfyrirtækið RosTec, aðaleigandi fyrirtækisins, sameinaði það skammbyssuframleiðandanum Izhmekh árið 2013 og nýja félagið fékk nafnið Kontsern Kalashníkova á rúss- nesku. Fyrir sameininguna benti flest til þess að Izhmash biðu sömu örlög og margra sovéskra iðnaðarrisa sem fóru í þrot vegna minnkandi sölu eftir hrun Sovétríkjanna. Míkha- íl Kalashníkov og fleiri gamlir starfsmenn fyrirtækisins kvörtuðu yfir hnignun þess, sögðu að því væri illa stjórnað og laun starfsmannanna væru of lág. Árið eftir sameininguna var nýja fyrirtækið einkavætt að hluta og það hóf sölu á nýjum gerðum af árásar- og veiði- rifflum, skammbyssum og fleiri vopnum, auk þess sem það hóf framleiðslu á öðrum varningi, meðal annars fatnaði, höttum, regnhlífum og fleiri fylgihlutum. Þessi auknu umsvif virðast hafa gefist vel og fyrirtækið fjölgaði starfsfólki sínu um 30% í janúar 2017 vegna aukins útflutnings. Mánuði síðar seldi RosTec forstjóra Kalashní- kov, Alexej Krívorútsjko, stóran hlut í fyrirtækinu og þar með átti rússneska ríkið minnihluta í því. Fyrirtækið stefn- ir nú að því að vopnaframleiðsla þess verði aðeins um 50% af heildarframleiðslu þess ekki síðar en árið 2025. Byrjað á rafbifhjólum Kalashníkov íhugar meðal annars að hasla sér völl á raf- bílamarkaðnum. Frumgerð rafbílsins CV-1 var kynnt á kaupstefnu vopnafyrirtækja í grennd við Moskvu í vikunni sem leið. Hönnun bílsins er gamaldags og byggist á sov- éskum hlaðbak frá áttunda áratug aldarinnar sem leið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort hefja eigi fjöldaframleiðslu á bílnum. Fyrirtækið hyggst fyrst hefja framleiðslu á rafknúnum bifhjólum og það sá rússnesku lög- reglunni fyrir 30 slíkum hjólum þegar heimsmeistaramótið í fótbolta fór fram í Rússlandi í sumar. „Á næsta ári ætlum við að hefja sölu á fyrsta rafbifhjólinu okkar,“ sagði Vladi- mír Dmítríev, sem varð forstjóri Kalashníkov eftir að Krí- vorutsjko hóf störf fyrir rússneska varnarmálaráðuneytið. „Við beinum sjónum okkar að rafknúnum farartækjum vegna þess að við vitum að bensínvélin hverfur fyrr eða síð- ar,“ sagði Olga Boitsova, markaðsstjóri þeirrar deildar fyrirtækisins sem annast framleiðslu á öðrum varningi en byssum. Stefnt er að því að hefja útflutning á rafbílum og rafbif- hjólum til Sádi-Arabíu ekki síðar en á næsta ári. „Er þetta brandari?“ Frumgerð rafbílsins vakti mikla athygli á kaupstefnunni og margir ráku upp stór augu þegar þeir sáu hann innan um nýjar byssur sem fyrirtækið kynnti. 27 ára námsmaður á meðal gestanna sagði að rafbílinn væri „skrýtinn“ en sex- tug kona kvaðst vona að bíllinn yrði „eins traustur og Ka- lashníkov-riffillinn og færi sigurför um heiminn“. Aðrir voru efins um að rafbíllinn CV-1 ætti sér bjarta framtíð og gárungar höfðu hann að háði og spotti á sam- félagsmiðlum. „Er þetta brandari?“ spurði vefurinn MoteurNature.com sem sérhæfir sig í fréttum um umhverf- isvænar samgöngur. Rússneska fyrirtækið Kalashníkov, sem er þekktast fyrir framleiðslu Kalashníkov-riffla, AK-47, hefur kynnt áform um að framleiða rafbíl í gömlum stíl. Frumgerð rafbílsins CV-1. Hönnun hans byggist á sovéskum hlaðbak frá áttunda áratug aldarinnar sem leið. Kalashníkov- fyrirtækið segir að markmið þess sé að keppa við Tesla á rafbílamarkaðnum. Tesla, gerð 3 Nokkrar tegundir og verð í bandaríkjadölum Verð: 35.000 $ 29.990 $ 44.4450 $ 37.495 $ Drægi: 499 km 383 km Drægi: 350 km 241 km 183 km 2018 Nissan Leaf Chevrolet Bolt EV BMW i3 Aðrir rafbílar Kalashníkov kynnir rússneskan rafbíl Heimild og ljósmyndir: digitaltrends.com/AFP Photos/GettyImages 136.500 $ 32.250 $ 507 km 150 km Tesla, gerð S P100D Kia Soul EV Frá rifflum í rafknúin farartæki  Kalashníkov-fyrirtækið í Rússlandi færir út kvíarnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.