Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
STELPUR
KONUR
STAÐURINN
RÆKTIN
Tökum mataræðið og ræktina föstum
tökum og fyllum okkur af orku og léttleika!
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
Ný TT námskeið hefjast 3. september
Tíminn
er kominn!
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Við erum náttúrlega búin að vera
að taka myndina upp síðan 2011
þannig að það væri í raun hægt að
gera heila Game of Thrones-seríu úr
þessu efni,“ segir Guðmundur Felix
Grétarsson um heimildarmyndina
Nýjar hendur – innan seilingar sem
frumsýnd er í Bíó paradís seinni-
partinn.
Myndin fjallar um bið Guðmundar
eftir handaágræðslu en hann missti
báðar hendurnar í vinnuslysi árið
1998. Aðgerð af þeirri stærðargráðu
sem Guðmundur bíður eftir hefur
aldrei áður verið gerð. Hann hefur
búið í borginni Lyon í Frakklandi
síðan 2013 en þar á aðgerðin að fara
fram.
„Þeir hafa grætt hendur á fólk og
eru búin að gera það í 20 ár, þá er
hægt að sníða höndina á staðnum en
þegar komið er út í svona heila arma
þá má ekkert fara úrskeiðis og það
hefur aldrei verið gert áður,“ segir
Guðmundur.
Mikill undirbúningur hefur því
verið fyrir aðgerðina og hefur skrif-
finnska sett strik í reikninginn.
„Við lentum í frönsku skrifræði
sem er algjört brjálæði og það tók
náttúrlega svolítið á. Alla vega þrisv-
ar sinnum vorum við stopp út af ein-
hverjum lagabreytingum. Við vorum
í raun alltaf að eltast við nýjustu
lagasetningarnar.“
Nú ætti þó allt skrifræði að vera
afstaðið. „Nema þessum prinsum
detti eitthvað annað í hug. Ég er bú-
inn að vera á listanum frá 2016 og
bíð því núna eftir gjafa,“ segir Guð-
mundur.
Föst í Lyon
Það er þó ekkert grín að bíða og
getur hvorki Guðmundur né teymið
sem stendur að aðgerðinni farið frá
Lyon á meðan Guðmundur bíður eft-
ir gjafa.
„Það sem bindur okkur er að það
er ekki hægt að brytja manneskjuna
niður og flytja hana á milli lands-
horna heldur þarf gjafinn helst að
vera í næsta herbergi við mig. Ég er
opnaður allur og gerður klár áður en
blóðflæðið er tekið af gjafanum því
það mega ekki líða meira en sex
tímar frá því að blóð gjafans hættir
að renna í útlimi hans þar til mitt
blóð er byrjað að renna í útlimina.“
Því er einungis leitað að líffæra-
gjöfum í Lyon og nágrenni borgar-
innar.
„Þetta væri örugglega löngu af-
staðið ef við gætum leitað að gjafa í
París en það gengur ekki upp vegna
eðlis aðgerðarinnar. Svo er þetta
náttúrlega svolítil smíðavinna líka.
Ég er opnaður og þau sjá hversu
mikið þau þurfa af öxlinni. Það væri
auðvitað skandall ef búið væri að
flytja til okkar einhverjar hendur en
svo vantaði bara aðeins upp á lengd-
ina.“
Aðspurður segist Guðmundur
ekki hafa hugsað sig tvisvar um þeg-
ar leikstjórar myndarinnar höfðu
samband við hann og vildu gera
heimildarmynd um hann.
„Áður en þeir komu þá var ég bú-
inn að taka upp fundina mína með
læknunum því ég vildi skjalfesta
þetta. Svo þegar þeir hafa samband
við mig þá var þetta ekki erfið
ákvörðum vegna þess að ég vissi að
þeir væru miklu betri í að skjalfesta
þetta heldur en ég,“ segir Guð-
mundur sem bendir á að aðgerðin sé
stórmerkilegur viðburður.
„Þetta er í fyrsta sinn sem eitt-
hvað svona er gert og það er til mik-
ils að vinna að hafa heimildarmynd-
ina.“
Um það hvort ekki sé erfitt að
leyfa ókunnugum að skyggnast inn í
líf sitt eins og gert er í myndinni seg-
ir Guðmundur: „Það var svo sem
ekkert erfitt þar sem ég kynntist
leikstjórunum mjög vel og fljótt þar
sem við eyddum miklum tíma sam-
an. Nú þegar kemur að því að hleypa
öllum inn á baðherbergi hjá sér þá
er alveg hnútur í maganum. Maður
er svolítið afhjúpaður.“
Gefur ekki upp vonina
Í myndinni kemur fram sú skýra
afstaða Guðmundar að gefa ekki upp
vonina, þrátt fyrir langa bið eftir
nýjum höndum.
„Tíminn líður hvort sem þú bíður
eða ekki. Svo er það nú einu sinni
þannig með svona markmið að
ferðalagið er ekkert síðra en áfanga-
staðurinn. Í hvert skipti sem maður
mætir einhverjum hindrunum eða
mótlæti og brýst í gegnum það þá
verður maður bara sterkari karakt-
er eftir það og tilfinningin sem fylgir
því að vera einum degi nær mark-
miðinu þínu er bara það sem gefur
lífinu gildi. Ég kynntist dásamlegri
konu þarna úti og ég er búinn að fá
mér tvo hunda þannig að það eru
ýmsir bónusar í þessu.“
Starfar sem markþjálfi
Guðmundur átti og rak sólbaðs-
stofu í fjórtán ár en seldi hana ný-
verið. Nú hefur hann snúið sér að
öðru atvinnutækifæri sem hann get-
ur nýtt sína lífsreynslu í.
„Nú er ég algjörlega að snúa mér
að markþjálfun. Það ferðalag sem ég
hef tekist á við og gengið í gegnum
öll þessi ár hefur náttúrlega kennt
mér ýmislegt um lífið og hvernig það
er að takast á við flóknar áskoranir
og koma út sem sigurvegari,“ segir
Guðmundur sem setti á dögunum í
loftið heimasíðuna www.gretarsson.-
com. Þar er hægt að fræðast um ævi
hans og markþjálfunina sem hann
býður upp á.
„Ég ákvað að læra markþjálfun
því ég veit að það er eitthvað sem ég
er góður í og þarna liggur minn fók-
us núna. Ég vil gefa áfram það sem
ég hef öðlast og hjálpa fólki með því.
Ég held að það að hjálpa öðru fólki
sé eitt það besta starf sem nokkur
maður getur unnið við.“
Heimildarmyndin um Guðmund,
Nýjar hendur – innan seilingar, er
frumsýnd í dag, fimmtudag, í Bíó
paradís kl. 17.45.
Innsýn í handalaust lífshlaup
Ný heimildarmynd um bið Guðmundar Felix Grétarssonar eftir nýjum höndum frumsýnd í dag
Hefur beðið eftir nýjum höndum síðan 2011 „Ferðalagið er ekkert síðra en áfangastaðurinn“
Morgunblaðið/Hari
Hamingja Guðmundur Felix ásamt eiginkonu sinni Sylwiu Gretarsson Nowakowska sem hann kynntist úti í Lyon.
Guðmundur segir í heimildarmyndinni að allt hafi breyst eftir að hann kynntist Sylwiu. „Að búa hér og bíða, það
hefur eiginlega breyst svolítið mikið. Þetta er ekkert mál þegar maður hefur einhvern svona hjá sér.“
„Við fylgdumst með því þegar
Guðmundur safnaði fyrir aðgerð-
inni, ég Þorkell og Guðbergur Dav-
íðsson sem er aðalframleiðandi
myndarinnar,“ segir Örn Marinó
Arnarsson, annar leikstjóri mynd-
arinnar Nýjar hendur - innan seil-
ingar.
„Við vorum alltaf að ræða það á
kaffistofunni að það hlyti einhver
að gera mynd um þetta ferli en
komumst að því að það væri eng-
inn að gera það. Okkur fannst til-
valið að slá til, enda spennandi
viðfangsefni,“ segir Marinó.
Það var árið 2011 sem Marinó og
hinn leikstjóri myndarinnar, Þor-
kell Harðarson, höfðu samband við
Guðmund sem tók strax vel í hug-
myndina. „Hann var ljúfur sem
lamb. Okkur gengur mjög vel að
vinna saman og erum allir orðnir
bestu vinir í dag.“
Biðin eftir aðgerðinni hefur ver-
ið löng og ströng og gerð heimild-
armyndarinnar því tekið sinn tíma.
„Við erum búnir að vinna að
þessu „on and off“ í sjö ár. Fyrst
erum við með Guðmundi hérna
heima í næstum tvö ár, svo fer
hann til Frakklands 2013 og við er-
um búnir að elta hann og fara út
reglulega. Svo komu franskir með-
höfundar inn í þetta og í gegnum
þá erum við með franskan töku-
mann á „standby“ úti í Lyon,“ seg-
ir Örn en mikilvægt er að töku-
maður sé á staðnum því um leið og
tækifæri gefst á aðgerðinni mun
ekki vera tími fyrir neinar tafir
eins og leit að tökumanni til að
mynda aðgerðina.
Ætlunin er að framleiða þrjár
myndir um Guðmund og er Nýjar
hendur - innan seilingar sú fyrsta.
„Við vorum komnir með svo
mikið efni að við ákváðum að gera
mynd um biðina og undirbúning-
inn. Mynd númer tvö mun fjalla um
aðgerðina sjálfa og við sjáum fyrir
okkur að síðasta myndin muni
fjalla um endurhæfinguna eftir að-
gerðina.“
Örn og Þorkell, sem kalla sig
Markelsbræður, hafa gefið út fleiri
heimildarmyndir og er athyglisvert
hversu ólík umfjöllunarefni þeirra
eru. „Ef eitthvað vekur áhuga okk-
ar þá er aldrei að vita nema það
komi mynd út úr því. Við erum
búnir að garfa í tónlistarsögunni,
elta Bin Laden og ég veit ekki hvað
og hvað.“
TVÆR FRAMHALDSMYNDIR Í KORTUNUM
Leikstjórar Örn Marinó og Þorkell.
„Spennandi viðfangsefni“