Morgunblaðið - 30.08.2018, Side 75
Morgunblaðið/Eggert
Von „Á þeim myrku tímum sem við nú lifum höfum við þörf fyrir að fagna, ekki síst lífinu og voninni sem birtist í
hvert sinn sem nýtt barn fæðist,“ segir Martin Lima de Faria sem fremur tvo gjörninga í Bíó Paradís í dag.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Sænski myndlistar- og kvikmynda-
gerðarmaðurinn Martin Lima de
Faria fremur í dag tvo gjörninga í
anddyri Bíós Paradísar í tilefni af 100
ára afmæli kvikmyndaleikstjórans
Ingmars Bergman. Fyrri gjörningur-
inn hófst á miðnætti í nótt og stendur
til miðnættis í kvöld, fimmtudag, og
er Bíó Paradís opið almenningi allan
þann tíma, en listamaðurinn verður á
staðnum allan tímann. Í dag hefst
einnig sérstök Bergman-dagskrá til
heiðurs leikstjóranum sem stendur til
9. september, en á þeim tíma verða
myndirnar Sommaren med Monika
frá 1953, Smultronstället frá 1957,
Höstsonaten frá 1978 og Fanny och
Alexander frá 1982 sýndar gestum að
kostnaðarlausu.
Ógnaði Ullmann með byssu
„Ég notast við gjallarhorn Berg-
man. Í hvert sinn sem barn fæðist á
Landspítalanum heyrist rödd Berg-
man gegnum gjallarhornið segja:
„Livet, varsågod å börja!“ sem þýðir:
„Lífið, gjörðu svo vel að byrja!“. Á
sömu stundu kviknar ljós og lítil, hvít
fjöður rís upp úr gjallarhorninu og
dansar í loftinu við uppáhalds tónlist
Bergman þar til leikstjórinn þakkar
fyrir sig,“ segir Faria þegar hann er
beðinn að lýsa gjörningi sínum, sem
hann útfærði í samvinnu við Fredrik
Borg. Samkvæmt upplýsingum frá
spítalanum fæðast þar að meðaltali
um níu börn á sólarhring.
„Með þessum gjörningi vil ég
fagna lífinu að hætti Bergman. Hver
veit hvort nú er að fæðast strákur eða
stelpa sem nær að lifa í 100 ár og
skapa jafn magnaða list og Berg-
man,“ segir Faria, sem sjálfur er
menntaður kvikmyndaleikstjóri frá
Danska kvikmyndaskólanum, og
vann með Bergman um tveggja ára
skeið. „Ég var aðstoðarmaður Liv
Ullmann þegar hún leikstýrði sjón-
varpsþáttunum Enskilda samtal sem
sýndir voru 1996. Bergman, fyrrver-
andi maður Ullmann, skrifaði hand-
ritið að þáttunum. Það var mér mikill
heiður að kynnast honum og vinna
með honum, en þetta gekk ekki
áfallalaust fyrir sig enda var hann
ekki auðveldur í umgengni.
Eina nóttina hringdi Ullmann í mig
og bað mig að koma heim til Berg-
man þar sem hann væri að elta hana
um húsið með byssu,“ segir Faria og
rifjar upp að ástæða þess að Berg-
man greip til byssunnar hafi verið að
hann var ósáttur við að Ullmann vildi
breyta einhverju í handriti hans. „Ég
ber mikla virðingu fyrir Bergman, en
á tímum #metoo finnst mér ekki
hægt að hampa aðeins körlum. Á
þeim myrku tímum sem við nú lifum
höfum við þörf fyrir að fagna, ekki
síst lífinu og voninni sem birtist í
hvert sinn sem nýtt barn fæðist,“ seg-
ir Faria og tekur fram að gjörn-
ingnum sé einnig ætlað að heiðra ljós-
mæður og það merkilega starf sem
þær vinna á hverjum einasta degi.
„Ég er sjálfur faðir og hef verið
viðstaddur fæðingu barna minna. Ég
veit því hversu mikilvægt starf ljós-
mæður inna af hendi,“ segir Faria og
gagnrýnir að ljósmæður skuli ekki
njóta meiri virðingar í samfélaginu og
fá betur borgað en raun ber vitni.
Segist hann hafa fylgst vel með kjara-
deilu ljósmæðra hérlendis fyrr í sum-
ar. „Mig langar að sýna gjörninginn á
hinum Norðurlöndunum líka,“ segir
Faria sem sýnir hann í Svíþjóð í nóv-
ember og í Danmörku og Noregi fyrir
áramót. „Mér fannst við hæfi að byrja
á Íslandi í ljósi þess hversu hrifinn
Bergman var af bæði landi og þjóð.“
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð-
herra, setur Bergman-dagskrána í
Bíó Paradís í kvöld kl 19 með ávarpi.
Við það tækifæri sýnir Faria annað
gjörning sem nefnist „Stilla, kamera,
börja!“ eða „Hljóð, kvikmyndatöku-
vél, byrja!“. „Þar nota ég sama gjall-
arhornið til að láta rödd Bergman við
upptökur á Det sjunde inseglet frá
1957 hljóma um leið og ég sýni hið
fræga atriði þar sem dauðinn og ridd-
arinn ræðast við,“ segir Faria.
Nýju lífi fagnað
Bergman-dagskrá í Bíó Paradís hefst með gjörningum
Martins Lima de Faria Fjöður dansar fyrir nýfædd börn
MENNING 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018
Lovísa er sænsk kona á þrí-tugsaldri sem starfar viðafgreiðslu- og lagerstörf ísportvöruverslun. Kostur-
inn við starfið er ungur samstarfs-
maður hennar sem hún vill giftast og
geta börn með en verst er að hann
veit það ekki því ástin felst í að njósna
um hann á sam-
félagsmiðlunum.
En þar með eru
kostir starfsins
upptaldir því mis-
lyndir yfirmenn,
dónalegir kúnnar
og afgreiðsla í
leiðinlegasta
hluta búðarinnar,
„yfirhöfnum“ er
til þess eins að Lovísa telur niður
mínúturnar þar til hverjum degi lýk-
ur. Lovísa deilir íbúð með tveimur
vinum sínum og á stóran, skrautlegan
og afspyrnufyndinn vinkvennahóp,
konur sem eru á mismunandi stað í
lífinu en hittast á hverjum föstudegi.
Lovísa er partískipuleggjandi lífsins
og kann öðrum fremur að búa til góð-
ar veislur og ef einhver ætlar að
halda upp á afmæli fær Lovísa verk-
efnið í sínar hendur.
Lovísa á líka systur sem stríðir við
alvarlegt þunglyndi og foreldra sem
eiga erfitt með að horfast í augu við
veikindin, að dóttir þeirra sé það veik
að hún þurfi að vera á geðdeild. Sag-
an er því í senn skondin samtímasaga
af Lovísu og leit hennar að sjálfri sér
og ástinni sem og saga af glímu við
lífshættulegt þunglyndi og hvernig er
að vera aðstandandi í þeim veik-
indum.
Það er ekki sjálfsagt að það heppn-
ist vel að koma fyndni svo vel sé yfir á
annað tungumál en höfundar. Verð að
nefna að Helgu Soffíu Einarsdóttur
tekst það lýtalaust og nær að snara
hverri einustu háræð húmorsins yfir
á íslensku enda skiptir það öllu máli í
þessu tilfelli þar sem Hözzlaðu eins
og þú verslar er í toppbaráttu við
fyndnustu bækur síðari tíma. Þar er
það bæði orðfæri Lovísu sjálfrar og
uppátæki sem og vinahóps hennar
þar sem frásögnin græðir á hömlu-
leysi og þeirri frábæru lífsreglu;
„láttu það bara gossa“. Um leið er
Lovísa bráðskörp og dýpt frásagnar-
innar geldur ekki fyrir grínið, enda
engin þörf á slíkri fórn. Framrás sög-
unnar er þó á smá köflum örlítið ein-
hæf og endurtekningarsöm og ef
þetta er uppistandsbók, eins og sumir
gagnrýnendur hafa sagt, þá er uppi-
standið kannski örlítið of langt. Viss
barnaskapar gætir líka í lýsingum á
geðsjúkrahúsinu þar sem áhersla er
lögð á að systir hennar sé ekki geð-
sjúklingur heldur þunglynd, maður
geti verið á slíkum spítala án þess að
vera eins og hinir sem eru kúkú. Góð
frásögn af þunglyndi geldur örlítið
fyrir þennan tón um „þá þunglyndu“
og svo þá með „hina sjúkdómana“.
Lovísa sem
kætir og bætir
Skáldsaga
Hözzlaðu eins og þú verslar
bbbmn
Eftir Lin Jansson
Þýðandi: Helga Soffía Einarsdóttir
Bjartur gefur út. 2018. Kilja. 357 bls.
JÚLÍA MARGRÉT
ALEXANDERSDÓTTIR
BÆKUR
Fyndin „Í toppbaráttu við fyndnustu
bækur síðari tíma,“ segir í rýni.
Aðstandendur tónlistarhátíðar-
innar Iceland Airwaves kynntu í
gær yfir 100 tónlistarmenn og
hljómsveitir sem bætast við lista
flytjenda en þegar hefur verið til-
kynnt um 120 atriði á dagskrá.
Meðal þeirra sem bætast við eru Ás-
geir, Aurora, Haiku Hands, Not3s
og Black Midi.
Hátíðin verður haldin í tutt-
ugasta sinn 7.-10. nóvember og
hafa aldrei verið jafnmargir flytj-
endur og í ár, 221 hljómsveit og
tónlistarmenn frá 26 löndum.
Meðal viðburða verður frum-
flutningar Ásgeirs á nýrri plötu
sinni á tvennum tónleikum í Frí-
kirkjunni en platan kemur út í byrj-
un næsta árs. Ásgeir mun einnig
velja tónlistarmenn af hátíðinni og
fá þá til að taka þátt í tónleikum
sem fram fara
alla fjóra hátíð-
ardagana í Stúd-
íó Hljóðrita í
Hafnarfirði og
verða þeir teknir
upp beint á vín-
ylplötu.
Norska tónlist-
arkonan Aurora
kemur fram á
hátíðinni á ný en
hún mun gefa út nýja plötu á næst-
unni, samkvæmt tilkynningu, en
hún hélt tónleika í Hafnarhúsi fyrir
þremur árum. Þá munu tónlistar-
útgáfufyrirtækin Bella Union og
Moshi Moshi fagna 20 ára afmæli
og halda sérstök „label“ kvöld.
Frekari upplýsingar á icelandair-
waves.is.
Yfir 100 nöfn til viðbótar
Ásgeir Trausti
Einarsson
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Nú einnig netapótek: Appotek.is
ICQC 2018-20