Morgunblaðið - 30.08.2018, Page 80

Morgunblaðið - 30.08.2018, Page 80
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 242. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Ömurlegt veður í vændum 2. Leita dularfullrar konu í Texas 3. Þarf að læsa og loka öllum … 4. Flygildi kannaði vettvang »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Boðið verður upp á leikhúskaffi um leikritið Dúkkuheimilið, 2. hluti, í Borgarbókasafninu í Kringlunni í dag kl. 17.30. Una Þorleifsdóttir leikstjóri segir gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu og að því loknu verður gengið yfir í Borgarleik- húsið, þar sem gestir fá stutta kynn- ingu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Una segir frá Dúkku- heimilinu, 2. hluta  JFDR + strings er yfirskrift tón- leika sem haldnir verða í Mengi við Óðinsgötu í kvöld kl. 21. Á þeim koma fram Jófríð- ur Ákadóttir, sem gengur undir listamannsnafn- inu JFDR, og strengjasveit og flytja lög af nýútkominni hljómplötu Jófríð- ar, White Sun Live, Part I: Strings. Á hana hefur hún valið nokkur lög af sólóferli sínum sem JFDR og einn- ig með hljómsveitinni Pascal Pinon, sem hún er í með tvíburasystur sinni Ásthildi, og útsett fyrir strengja- kvintett. JFDR og strengir Á föstudag Suðaustan 10-18 m/s árla dags og talsverð rigning, einkum suðaustanlands. Síðan suðvestan 8-13 með skúrum. Á laugardag Suðvestan 8-15 m/s og rigning eða skúrir, bjartviðri norðaustan- og austantil. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Austurlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, hætt við næturfrosti inn til landsins, en 8 til 16 stiga hiti í dag. VEÐUR „Það er frábært að uppselt skuli vera á leikinn og gott fyrir íslenskar íþróttir að okkur takist að fylla stærsta leikvang landsins. Vonandi verður stemningin frábær og leikurinn flottur,“ sagði Glódís Perla Viggós- dóttir, landsliðskona í knattspyrnu, meðal annars þegar Morgunblaðið tók hana tali á landsliðsæfingu í gær og ræddi við hana um Þýskalandsleikinn. »1 Góð tíðindi fyrir íslenskar íþróttir Karlalið Selfoss í handknattleik leik- ur á laugardaginn fyrsta leik sinn í Evrópukeppni félagsliða í nærri aldarfjórðung þegar liðið tekur á móti Klaiopeda Dragunas frá Litháen í endurbættum íþróttasal Iðu á Sel- fossi. „Það ríkir eðlilega eftir- vænting meðal manna svo snemma leiktíðar að takast á við krefjandi leiki,“ sagði Patrekur Jó- hannesson, þjálfari Selfoss, í gær. Nánar er rætt við Patrek og einnig er aldarfjórð- ungssaga Selfoss í Evrópukeppni rifjuð lauslega upp. »2 Evrópuleikur eftir nærri aldarfjórðungs hlé UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, heldur í dag verðlaunahóf í Mónakó þar sem knattspyrnukona og knatt- spyrnukarl ársins í Evrópu verða út- nefnd. Þrír karlar og þrjár konur eru tilnefnd en engin kvennanna verður viðstödd. Tvær eru uppteknar með landsliðum sínum og ein fékk skila- boð um að hún þyrfti ekki að mæta, þar sem hún hefði ekki unnið. »2 Engin kvennanna á verðlaunahófi UEFA ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Vináttubekkir eru þýskt fyrir- brigði. Bekkirnir eru gjöf frá for- eldrafélagi Melaskóla, Formel, í til- efni af 70 ára afmæli Melaskóla árið 2016. Ef eitthvert barn í skólanum vantar félagsskap sest það á bekk- inn. Aðrir nemendur vita þá af því að viðkomandi nemandi er að leita eftir félagsskap,“ segir Björgvin Þór Þórhallsson, skólastjóri Mela- skóla. Hann segir að nemendur í yngri bekkjum séu vel vakandi fyrir því þegar einhver situr á bekknum og komi og veiti honum félagsskap. „Þau taka þetta svo alvarlega að um daginn settist maður á bekkinn til þess að hvíla sig og krakkarnir voru komnir um leið til þess að ræða við hann,“ segir Björgvin og bætir við að vinabekkirnir séu ekki alveg að virka hjá elstu nemendunum en þeir taki hins vegar að sér að vera vinaliðar á skólalóðinni. „Vinaliðar eru í sérstökum vest- um og fá í hendurnar bolta og alls konar áhöld. Vinaliðar er verkefni ættað frá Sauðárkróki og snýst um það að nemendur skipuleggi og stjórni leikjum fyrir aðra nem- endum í frímínútum. Þetta á að tryggja að alltaf sé eitthvað við að vera og skipulagðir leikir í frímín- útum,“ segir Björgvin, sem segir að Melaskóli sé fyrst og fremst Ol- weusarskóli sem sé með sérstakt kerfi til þess að koma í veg fyrir ein- elti. Auk vináttubekkja og vinaliða eru haldnir bekkjarfundir í öllum bekkjum þar sem samskipti og líðan eru rædd og árlega tekur Melaskóli þátt í viðamikilli eineltiskönnun. „Við höfum komið vel út, sem bet- ur fer, undanfarin ár og í raun frá upphafi. Við stöndum mjög vel en það þarf að halda áfram að vinna í þessum málum,“ segir Björgvin. „Gott samstarf við Formel skiptir skólann miklu máli. Foreldrafélagið skipar bekkjarráðsfulltrúa í hvern bekk og heldur utan um þann hóp sem telur 60 manns. Formel vinnur með skólanum og skólastjórnendum og tilnefnir áheyrnarfulltrúa í skóla- ráð. Formel hefur stutt dyggilega við bakið á skólanum með gjöfum eins og vináttubekkjunum, Legó tæknikubbaöskjum og ipödum.“ Framtak skólaliða Það eru fleiri en foreldrar sem leggja sitt af mörkum á skólalóðinni í Melaskóla. Skólaliði sem þar starf- ar hefur tekið í fóstur eina græna svæðið á skólalóðinni og sett upp í samstarfi við smíðakennara og fleiri bekki sem áritaðir hafa verið með uppbyggilegum skilaboðum. Vináttubekkir í Melaskóla  Vinaliðar einn hlutinn af Olweusar- verkefninu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vinir Nemendur í Melaskóla í Reykjavík sitja á vináttubekk með tveimur vinaliðum sem sjá um leiki á skólalóðinni í frímínútum. Melaskóli er Olweusarskóli sem nýtir sérstakt kerfi til þess að koma í veg fyrir einelti á ýmsan hátt. Morgunblaðið/Eggert Vinalegt Vinátta, virðing, fyrirgefning og vinir er meðal þess sem er áletr- að á bekki sem skólaliði í Melaskóla kom ásamt fleirum upp á lóð skólans.  Kristjana Stefáns og Ragga Grön- dal munu hverfa á vit spunans og tilraunagleðinnar og flytja dagskrá af djassstandördum í Listasafni Ís- lands í dag kl. 17.15, í tónleikaröðinni Freyjudjass. Guð- mundur Péturs- son leikur á gítar. Kristjana og Ragga í Freyjudjassi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.