Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Page 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Brösulega virðist ganga fyrir borgarfulltrúa að finna sér eitthvaðuppbyggilegt að gera. Rætt hefur verið um djúpan samskiptavanda,en kannski er málið ekki svo flókið. Ef til vill þurfa borgarfulltrúar
bara að hafa meira fyrir stafni og minni tíma til að ulla á hina. Hér eru fjórar
hugmyndir að verkefnum fyrir borgarfulltrúa, í engri sérstakri röð:
Númer eitt: Laga leikskóla
Fjöldi foreldra er í þeirri stöðu að fá leikskólapláss fyrir börn sín, en ekki í
þeim leikskóla sem næst er heimili. Þetta kallar á skutl og óþarfa vesen fyrir
alla. Borgarfulltrúar gætu látið til sín taka í leikskólamálum og skoðað alla
fleti þeirra mála.
Númer tvö: Laga strætó
Börn og unglingar ættu að eiga auð-
velt með að taka strætó í þær frí-
stundir sem ekki eru í þeirra hverfi.
Svo er hins vegar ekki eins og stað-
an er nú. Borgarfulltrúar mættu
gjarnan nýta tíma sinn í að stuðla að
því að strætó geti staðið undir sínum
slagorðum og orðið „besta leiðin“
fyrir alla sem þurfa og vilja nota al-
menningssamgöngur. Þannig má
minnka skutlið.
Númer þrjú: Laga frístundaheimili
Ítrekað hefur verið bent á þá staðreynd að frístundaheimilin eru olnboga-
börn í borgarkerfinu. Í mörgum hverfum eru þau í óboðlegu húsnæði og
starfsfólk gefst víða upp og hættir vegna þeirra aðstæðna sem börnum og
starfsfólki er boðið upp á. Borgarfulltrúar gætu farið í það að skoða stöðu frí-
stundaheimila og vinna í að bæta hana.
Númer fjögur: Laga göngustíga
Mikið hefur verið gert til að bæta hjólastíga víða um borg, sem er gott mál,
en göngustígar inni í hverfum hafa orðið út undan. Borgarfulltrúar gætu sett
sér markmið um að gera hverfin göngufær, ekki síst eldra fólki, fólki með
barnavagna og öðrum sem eiga erfitt með að klöngrast yfir bólgið malbik.
Af nógu er að taka og enginn þeirra 23 einstaklinga sem við borgarbúar
kusum yfir okkur í vor ætti að þurfa að láta sér leiðast. Enginn ætti heldur að
þurfa að verja tímanum í að rægja hina eða væla undan þeim í fjölmiðlum.
Morgunblaðið/Valli
Fjórar hugmyndir
fyrir borgarfulltrúa
’Enginn þeirra 23 einstaklinga sem viðborgarbúar kusum yfirokkur í vor ætti að þurfa
að láta sér leiðast.
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Hera Sísí Helgadóttir
Ég er að fara að læra spænsku og
snyrtifræði í Varmárskóla í Mosó.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú að
læra eitt-
hvað nýtt í
vetur?
Reynaldo Cruz
Mig langar að geta klárað klippara-
nám, ég fer kannski í það í vetur.
Jóhanna Guðrún Gestsdóttir
Ég er ekki mikið að pæla í því en
örugglega. Jú, lífsleikni er nýtt.
Unnar Elí Egilsson
Ég ætla halda áfram námi við
Menntaskólann við Sund. Þar er ég
að fara að byrja að læra frönsku.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Hvað er Plastlaus september?
Plastlaus september er árveknisátak til að
draga úr plastnotkun og þá sérstaklega ein-
nota plasti, sem er oft algjör óþarfi.
Hverjir standa að verkefninu?
Það er hópur sjálfboðaliða, allt mjög öflugar
konur. Í fyrra tóku sig saman átta konur og
undirbjuggu mjög flotta dagskrá með
þriggja mánaða fyrirvara. Í ár var auglýst
eftir áhugasömu fólki svo að ég og fleiri
slógumst í för.
Verða einhverjir viðburðir
tengdir átakinu?
Við verðum með opnunarhátíð í Ráðhúsinu 1.
september á milli klukkan 12 og 16 þar sem um-
hverfisráðherra mun setja átakið. Meðal gesta
verða fulltrúar frá Landspítalanum sem ætla að segja
okkur hvernig þeir hafa minnkað plastnotkun, sem er
frábært dæmi um vinnustað sem hefur ekki mikinn tíma
eða fjármagn til að spila með, en gátu samt gert heilmikið
til að minnka plastnotkun. Svo verðum við með markað þar
sem fólk getur keypt og kynnt sér vörur sem eru plastlaus-
ar og umhverfisvænar.
Nota Íslendingar mikið plast?
Já, við notum mjög mikið plast. Ég veit til dæmis að nýjar töl-
ur frá Sorpu sýna að 50% af ummáli óflokkaðs sorps er plast, og
20% af þyngd óflokkaðs sorps er plast. Þetta er mjög mikið þar
sem plast er ekki þungt.
Hvernig er einfaldast að byrja að nota minna
plast?
Það er mikilvægt að muna að það er ekki hægt að gera neitt vit-
laust. Svo er bara að byrja að skoða hverju er hægt að breyta og
það er gott að byrja á einnota plasti. Notarðu mikið af plaströrum
eða einnota filmum og pokum? Svo er mjög mikilvægt að flokka
það sem notað er.
Morgunblaðið/Hari
KOLBRÚN GUÐRÍÐUR
HARALDSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Minna
plast,
takk!
Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir er kennari og einn af skipuleggjendum
átaksins Plastlaus september. Hægt er að fá nánari upplýsingar á plastlaus-
september.is en þar má einnig styrkja átakið.