Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.08.2018, Page 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.8. 2018
Ég hef áður nefnt það á þessumvettvangi að mörgum þykirþað gefa höggstað á ráðherra
að útgjöld til málaflokka hans standi
í stað, hvað þá að þau dragist saman.
Og sjái ráðherra tækifæri til að
lækka útgjöld á einhverju sviði þyki
mörgum að í þeirri stöðu sé klókt og
nánast skylda að finna umsvifalaust
einhverjar nýjar leiðir til að eyða
þeim fjármunum, til að rýra ekki
sjóðina sem viðkomandi getur slegið
um sig með.
Þörf áminning
Óli Björn Kárason alþingismaður
kom inn á þetta í grein hér í Morg-
unblaðinu í vikunni, sem hitti þráð-
beint í mark. Hann bendir á að
„magn“ er alltof ríkjandi mælikvarði
á störf stjórnmálamanna, fremur en
að horft sé til gæða og innihalds.
Hann vekur athygli á þeim „upp-
boðsmarkaði loforða“ sem stjórn-
málamenn freistast oft til að taka
þátt í af meira kappi en forsjá, í von
um að tryggja sér endurkjör. Og
hann bendir á hvernig sérhagsmunir
valda því að aukin útgjöld vekja alla
jafna meiri hrifningu en aðhald og
skattalækkanir.
Hann skrifar:
„Stjórn-
málamaður sem
lofar auknum út-
gjöldum, stór-
bættri opinberri
þjónustu, fær yf-
irleitt hljóðnema
fjölmiðlanna og frið til að flytja boð-
skapinn. Sá er berst fyrir lækkun
skatta er hins vegar krafinn svara
við því hvernig hann ætli að „fjár-
magna“ lækkun skatta. Og það er
eins gott fyrir þingmann sem vill
draga úr umsvifum ríkisins –
minnka báknið – að vera tilbúinn að
svara hvernig í ósköpunum honum
komi slíkt til hugar.“
Átak til atvinnusköpunar:
1996-2018
Fyrir alþingiskosningarnar 1995 var
mikið rætt um atvinnuleysi og á
meðal þeirra loforða sem vöktu
mesta athygli var að séð yrði til þess
að 12-13 þúsund ný störf yrðu til í
landinu til aldamóta.
Fljótlega eftir kosningarnar setti
viðskiptaráðherra nýrrar rík-
isstjórnar á fót verkefnið „Átak til
atvinnusköpunar“, væntanlega ekki
síst í því augnamiði að efna umrætt
kosningaloforð. Á vegum Átaksins
var tugum milljóna króna varið á
hverju ári til að styrkja ýmis ný-
sköpunarverkefni og atvinnuskap-
andi framtak.
Á árinu 2000 höfðu orðið til næst-
um 15 þúsund ný störf á Íslandi
samanborið við 1995, eða töluvert
fleiri en hafði verið lofað. Nú hafa
orðið til vel yfir 50 þúsund ný störf á
tímabilinu. Engu að síður hefur
Átak til atvinnusköpunar haldið
áfram sleitulaust í 22 ár og hefur
haft um 70 milljónir króna á ári til
ráðstöfunar.
Nú er rétt að hafa í huga að þegar
verkefnið var stofnað var það meðal
annars samsett úr ýmsum eldri
styrkjum sem hafði verið úthlutað
undir öðrum formerkjum. Það var
því ekki sjálfgefið að þeir ættu allir
að falla niður þó að atvinnuleysi
minnkaði. Ekki verður heldur um
það deilt að fjölmörg mjög góð verk-
efni hafa notið góðs af Átakinu.
Aftur á móti er það einnig stað-
reynd að Tækniþróunarsjóður, sem
var stofnaður árið 2004, hefur verið
stórefldur á undanförnum árum og
hlutverk hans aukið. Framlög til
sjóðsins hafa meira en tífaldast frá
stofnun og hann styrkir mun fjöl-
breyttari verkefni en í upphafi. Árið
2008 bættust við
tveir nýir styrk-
flokkar í þágu
sprotafyr-
irtækja og frum-
kvöðlaverkefna
á frumstigi. Þar
með hófst tölu-
verð skörun við
verkefni Átaks til atvinnusköpunar;
skörun sem hefur síðan aukist. Enda
sýnir reynslan að töluvert er um að
sótt sé um styrki á báðum stöðum
samtímis. Í þessari stöðu þurfum við
að geta endurmetið nálgun okkar.
Það er mitt mat að það fari betur á
því að eftirláta Tækniþróunarsjóði
umfjöllun um styrkumsóknir á þessu
sviði. Sjóðurinn starfar eftir lögum
um opinberan stuðning við tækni-
rannsóknir, nýsköpun og at-
vinnuþróun og hefur því lögbundið
hlutverk sem samræmist vel stuðn-
ingi við verkefni af því tagi sem Átak
til atvinnusköpunar hefur helst stutt
við. Auk þess stendur umsækj-
endum eftir sem áður til boða leið-
sögn og ráðgjöf af hálfu Nýsköp-
unarmiðstöðvar, sem hefur sinnt því
hlutverki vel.
Skilað (að mestu) til skatt-
greiðenda
Ég boðaði í vor endurskoðun á ráð-
stöfun þessara fjármuna og stöðvaði
styrkveitingar á meðan. Eftir þá at-
hugun er það niðurstaða mín að
setja punkt aftan við Átakið.
Í endurskoðunarferlinu komu
fram ýmsar áhugaverðar hugmyndir
um hvernig verja mætti þessum
fjármunum með öðrum hætti og
jafnvel fá meiri ávinning fyrir minna
fé. Líklegt er að einhverjum þeirra
verði hrint í framkvæmd. Meirihluta
fjármunanna verður hins vegar ekki
eytt, og þar með í raun skilað til
skattgreiðenda.
Mér segir svo hugur að í kerfinu
finnist fleiri útgjaldaliðir sem óhætt
væri að setja punkt aftan við með
hliðsjón af því hvernig umhverfið
hefur breyst frá því að upphaflega
var stofnað til þeirra. Það mætti
jafnvel gera átak í því.
Lítið skref en táknrænt
’Nú hafa orðið til velyfir 50 þúsund nýstörf á tímabilinu. Enguað síður hefur Átak til at-
vinnusköpunar haldið
áfram sleitulaust í 22 ár.
Úr ólíkum
áttum
Þordís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Morgunblaðið/Eggert
Edda Björgvinsdóttir leikkona
er ein af þeim fjölmörgu vinum
Stefáns Karls Stefánssonar sem
tjáðu sig á Facebook í vikunni: Ein-
stakur í heiminum. Fallegur, góður,
fyndinn og engum líkur. Heimurinn
hefur misst stórkostlegan lista-
mann með gullhjarta. Margir fleiri
minntust Stefáns Karls á samfélags-
miðlunum.
Leikarinn Gói
Karlsson ritar um
vin sinn: Stefán
Karl var vanur að
vitna í dr Seuss:
„Don’t cry because
it’s over. Smile because it happen-
ed.“ Ég mun ávalt brosa vegna þess
að ég fékk að kynnast, vinna með
og vera nálægt Stebba. Guð geymi
minninguna um dásamlegan vin og
félaga.
Séra Hildur Eir
Bolladóttir þakk-
ar Stefáni fyrir að
tala um dauðann af
hreinskilni: Í veik-
indunum gaf hann
okkur sem álengdar stóðum dýr-
mæta gjöf, hann talaði nefnilega um
dauðann eins og dauðinn á skilið, af
hispursleysi og húmor og þannig
setti hann lífið og vonina í forgang
okkur til huggunar og blessunar.
Takk Stefán Karl.
Alþingismað-
urinn Helga Vala
Helgadóttir
sendir líka kveðju:
Blessuð sé minning
þín elsku Stebbi.
Takk fyrir allt þitt örlæti og enda-
lausa mannúð sem þú sýndir á svo
mörgum sviðum. Takk fyrir listina
og húmorinn.
AF NETINU
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Fullkominn
ferðafélagi
Ástralía og Nýja Sjáland
Sigling fráSydney til Auckland | 2. - 24.nóvember | 2 sæti laus
Verð frá:879.900 kr.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í Concierge klefa með svölum.
Verð án Vildarpunkta: 889.900 kr.
Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson